Fréttablaðið - 11.11.2011, Side 28
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 11. nóvember
Tösku og hanskabúðin Skólavörðustíg 7 101 Reykjavík Sími 551 5814 www.th.is
Félag eldri borgara, FEB, stendur fyrir dansleik í Stangarhyl
4, Reykjavík á sunnudagskvöld klukkan 20. Hljómsveitin Klass-
ík leikur fyrir dansi til klukkan 23. Aðgangseyrir er 1.500 krónur
en 1.300 krónur fyrir félagsmenn FEB.
Föstudagur er sjötti
dagur vikunnar. Dagur-
inn er á eftir fimmtu-
degi en á undan
laugardegi. Nafnið
er dregið af því að
þennan dag skyldi fólk
fasta á kjöt. Dagurinn
er síðasti almenni
vinnudagur vikunnar.
Til forna var dagurinn
kenndur við Freyju
og hét Frjádagur. Það
nafn sést enn þá
í dönsku, sænsku,
norsku, ensku og
þýsku samanber orðin
„Fredag“, „Friday“ og
„Freitag“.
wikipedia.org
„Það sem er einna mest spennandi
á sýningunni eru efnisprufur sem
bæði voru fluttar inn til landsins
og framleiddar í Innréttingun-
um í Aðalstræti,“ segir Benedikt
Eyþórsson sagnfræðingur um
sýningu sem opnuð verður í Þjóð-
skjalasafninu klukkan 12 á morg-
un, á norræna skjaladeginum.
Benedikt er einn þeirra sem
tekur þátt í dagskrá sem stend-
ur til klukkan 16 og gerir grein
fyrir sýningunni. „Þema dagsins
í ár er verslun og viðskipti og við
höfum dregið fram skjöl úr okkar
pússi sem tengjast því efni. Það
elsta er skinnskjal frá 15. öld og
svo ná þau fram á 20. öld en við
einblínum samt svolítið á 18. og
19. öldina,“ segir hann og útskýr-
ir síðan tilurð efnisbútanna. „Á
tímum einokunarinnar kvörtuðu
Íslendingar mikið undan verslun-
arlagi og lélegri vöru og upp úr
miðri átjándu öld kom tilskipun
um að sýslumenn ættu að taka
út allar vörur sem kaupmenn
væru að selja sem þeir gerðu
samviskusamlega. Þeir skrifuðu
skýrslur á dönsku og sendu til
rentu kamersins í Kaupmannahöfn
þar sem gerðu grein fyrir magni
og gæðum og þar fylgdu prufur
meðal annars af innfluttum vefn-
aði sem kaupmenn voru að selja.
Þetta eru efni og litasamsetning-
ar sem ættu alveg við í dag, bæði
ofin ullarefni, lín, flauel og fleira.
Verðið miðaðist við eina alin sem
er, að mig minnir, 57 senti metrar
og var metið í fiskum. Alinin kost-
aði allt frá tveimur til þremur
fiskum upp í fimmtíu.“
Þar sem Skúli fógeti hefði orðið
300 ára 12. desember í ár segir
Benedikt safninu hafa þótt við
hæfi að fjalla um hann í dag-
skránni og þá líka Innrétting-
arnar. „Skúli var ötull talsmaður
bættra verslunarhátta og gerði til-
raun til tauiðnaðar á vegum Inn-
réttinganna,“ segir hann. „Við
sýnum líka efnisprufur af þeirri
framleiðslu sem var ofin og lituð
niðri í Aðalstræti á 18. öld.“
gun@frettabladid.is
Ullarefni metin í fiskum
Margvísleg skjöl sem tengjast viðskiptum fyrri alda verða til sýnis í Þjóðskjalasafninu á morgun því þá er
norræni skjaladagurinn. Meðal annars verða þar prufur af vefnaðarvöru sem kaupmenn seldu á 18. öld.
Benedikt segir Dani hafa skilað þeim gögnum sem tilheyrðu Íslandi. Því séu þau til á
Þjóðskjalasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÓKIÐ AUGLÝSINGAR
TÍMANLEGA:
ÍVAR ÖRN HANSEN
S: 512 5429, GSM: 615 4349
ivarorn@365.is
ALLT LAGT Í
SÖGURNAR
Sérblað um skáldsögur kemur út
þann 15. nóvember.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar