Fréttablaðið - 11.11.2011, Side 55
FÖSTUDAGUR 11. nóvember 2011 35
„Þetta er einhvern veginn góður
endapunktur í kjölfarið á komm-
bakkinu í sumar og að Quarashi á
fimmtán ára afmæli,“ segir Egill
Ólafur Thorarensen „Tiny“ um
útgáfu rappsveitarinnar á vegleg-
um safnpakka sem kallast Antho-
logy.
Þrjár plötur eru í pakkanum
sem inniheldur efni sem spann-
ar glæstan feril sveitarinnar og
nokkur áður óútgefin lög. „Það
er náttúru lega gaman bæði fyrir
aðdáendurna og okkur að sjá allt
þetta efni komið saman á einum
stað og fá heildarsýn yfir þetta.“
Quarashi-liðar blása til glæsi-
legs útgáfuteitis á Prikinu í kvöld
kl. 21 til að fagna útgáfunni. Egill
vill ekkert gefa upp um hvort
sveitin hyggist rifja upp gamla
takta um kvöldið. „Það verða
hljóðnemi og trommusett þarna
en meira get ég ekki sagt. Maður
veit aldrei hvað gerist, þetta verð-
ur eitthvað fjör.“ Ekki er hægt
að kaupa miða á kvöldið en hægt
er að fylgjast með Facebook-síðu
Quarashi þar sem heppnir aðdá-
endur gætu náð sér í miða. -bb
Quarashi fagnar útgáfu
SAMEINAÐIR Á safnplötunni má finna
bestu lög Quarashi, öll myndbönd
sveitarinnar, brot frá tónleikum og áður
óútgefin lög.
➜ Bókmenntir
17.00 Endurútgáfu bókarinnar
Morgunn lífsins eftir Kristmann Guð-
mundsson verður fagnað á Bókasafni
Seltjarnarness. Jafnframt verður höf-
undurinn kynntur sem skáld mánaðar-
ins á bókasafninu í samstarfi við Lestu.
is og Hlusta.is. Ármann Jakobsson og
Bjarni Harðarson verða með stutt erindi
um skáldið.
➜ Dansleikir
22.00 Hjómsveitin Spútnik spilar
ásamt Telmu Ágústsdóttur á dansleik
sem fram fer á skemmtistaðnum Spot
í Kópavogi.
➜ Uppistand
20.00 Sprenghlægilegt uppistand fer
fram í Norræna húsinu þar sem Zinat
Pirzadeh, fyndnasti kvengrínisti Svía
2010, Ruben Søltoft, Danmerkurmeist-
ari í uppistandi 2010, og Anna Svava
Knútsdóttir, leikkona, handritshöfundur
og uppistandari, sameinast í gríninu.
Aðgangur er ókeypis.
20.00 Kevin Smith
heldur sitt heims-
fræga uppistand/
spurt og svarað
í Eldborgarsal
Hörpu. Hann er
maðurinn á bak
við Clerks, Chasing
Amy, Jersey Girl og
fleiri myndir. Miða-
verð er frá kr. 4.990
til kr. 9.990.
➜ Tónlist
22.00 Danni Deluxe þeytir skífum á
skemmtistaðnum Austur.
22.00 Dj KGB tryllir lýðinn á Bakkusi.
22.00 Atli Kanilsnúður heldur uppi
stuðinu á Kaffibarnum.
22.00 Dj Marti stjórnar tónlistinni á
Bar 11.
23.00 Dj Veloci býður til dansveislu á
Barböru.
23.00 Dj Who’s that girl þeytir skífum
á Trúnó.
➜ Fyrirlestrar
13.20 Helga Kristín Kolbeins flytur
erindið Stjórnkerfið í Kína í Lögbergi
102 í Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
er hluti af fyrirlestraröð Konfúsíusar-
stofnunarinnar norðurljós og Kínversk-
íslenska menningarfélagsins. Allir
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Söngkonan Sigríður Thorlacius
kemur fram á tónleikum í Kalda-
lóni í Hörpu á fimmtudagskvöld
í næstu viku, hinn 17. nóvember,
klukkan 20. Tónleikarnir marka
enda á 100. afmælisári Alliance
Française.
Sigríður mun syngja nokkrar
fallegustu og þekktustu dægur-
lagaperlur Frakka frá árunum
1920-2011. Miðasala á tónleikana
fer fram í Hörpu og á Miði.is.
Syngur perl-
ur Frakka
SIGRÍÐUR THORLACIUS Syngur franskar
dægurlagaperlur.