Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.11.2011, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 11.11.2011, Qupperneq 37
KYNNING − AUGLÝSING Íslendingar halda í þær hefðir að senda vinum og ættingjum sínum jólakort og við leggjum upp úr því að geta boðið við- skiptavinum okkar falleg kort með myndum sem þeir koma sjálfir með eða senda okkur inn rafrænt. Auk þess stækkum við mynd- ir á hágæðapappír, plaköt, striga og álplöt- ur og nú er komin ný tækni sem gerir okkur kleift að bakprenta ljósmyndir á plexigler. Útkoman er glæsileg,“ segir Ólafur Steinars- son, framkvæmdastjóri í Hans Petersen. Ólafur segir úrval af forhönnuðum kort- um í 15,2x15,2 og 10,2x20 og bendir á sýnis- horn á vefnum www.kort.is „Fólk er líka farið að bjarga sér í auknum mæli heima með umbrotsforritum og sendir okkur þá jafnvel inn sín eigin kort í tölvupósti eða mætir með eigin hönnun í verslunina. Þá þarf bara að hafa í huga að kortin séu í þessum stærðum (15,2x15,2, 10,2x20 eða 10,2x15,2) og að upplausnin á myndunum sé 300 punktar. Okkar framleiðsla byggist sem sagt ekki einvörðungu á því að okkar kort séu valin heldur er fólki að sjálfsögðu frjálst að koma með sínar eigin hugmyndir. Það getur sent okkur fyrirspurnir á mynd@ hanspetersen.is Þótt nýtt útlit sé á kortunum frá Hans Peter sen frá ári til árs hefur verðið ekkert breyst frá því í fyrra, að sögn Ólafs, og öll eru kortin seld með umslögum. „Svo ætlum við líka að bjóða frímerki í ár svo fólk geti klár- að málið hjá okkur,“ segir hann. Ljósmyndabækur og dagatöl gerir fólk að nokkru leyti sjálft heima hjá sér í tölvunni, að sögn Ólafs. „Það nær sér í forrit á síðunni okkar, býr til bókina eða dagatalið og send- ir það inn,“ útskýrir hann. „Best er að huga að slíku sem fyrst því mikið álag er á fram- leiðslunni fyrir jólin.“ Meðal þess sem unnið er í Hans Peter- sen eru listaverk úr fallegum myndum viðskiptavina. „Hér er mikið gert af því að prenta ljósmyndir á striga, enda er slíkt til- valin jólagjöf og sömuleiðis myndir á ál- plötur, foam og plexigler,“ segir Ólafur. Þótt stafræna tæknin hafi rutt sér til rúms segir Ólafur framköllun á filmum heldur í sókn aftur. „Fólk er talsvert að taka mynd- ir á filmur og við framköllum bæði lit- og svarthvítar filmur. Eins er dálítið um að fólk komi með gamlar skuggamyndir (slides) og láti setja á rafrænt form og pappír. Í þeim liggja minningar sem fólk hefur ekki hugað að en er nú að vakna til vitundar um.“ Ólafur telur vera 10 ára gat í myndrænni fjölskyldusögu Íslendinga því flestar mynd- ir séu bara vistaðar í tölvum og fáum til gagns. „Fólk þarf að vera duglegt að koma myndunum á pappír,“ segir hann. „Til að varðveita þessar minningar á aðgengileg- an hátt. Eftir sem áður er ljósmyndin fyrir- bæri sem mótar hvernig við munum, skilj- um, sjáum og finnum til. Hvernig við skynjum okkur sjálf og alla hina, heiminn, söguna og sam- tímann, hörm- ungar og ham- farir, sigra og sorg- ir og að sjálfsögðu fegurðina. Þessi 170 ára tækni er heims- bylting hvernig sem á hana er litið.“ Jólakort11. NÓVEMBER 2011 FÖSTUDAGUR 3 Myndlist og minningar Fyrirtækið Hans Petersen hefur verið leiðandi í að meðhöndla ljósmyndir íslensku þjóðarinnar í áratugi, hvort sem það eru persónuleg jólakort, dagatöl og myndabækur eða stækkaðar ljósmyndir á hágæðapappír og striga. Það nýjasta er prentun mynda á plexigler. Fyrirtækið er til húsa í Ármúla 38 og þar er Ólafur Steinarsson framkvæmdastjóri. Ljósmyndin er fyrirbæri sem mótar hvernig við munum, skiljum, sjáum og finnum til,“ segir Ólafur. Ólafur í einu horni fyrirtækisins Hans Petersen þar sem nokkrum myndavélum úr fortíðinni hefur verið stillt upp. MYND/VALLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.