Fréttablaðið - 11.11.2011, Qupperneq 70
11. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR50
GÓÐUR FÉLAGI Jens Pétur ásamt Randver sem er orðinn 28 vetra gamall. Til stóð að lóga honum en Jens ákvað að fresta því þar
sem Randver mun leika í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIþýsk gæðavara sem fæst í BYKO
Blár fyrir fagmenn
Grænn fyrir heimilið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Someone Great með LCD
Soundsystem. Eitt af þessum
lögum sem ég hafði oft heyrt
en aldrei pælt í. Svo eitthvert
kvöldið heyri ég það og það sat
fast í mér í margar vikur, þar
til ég fann loksins út hvaða lag
þetta var. “
Ragnar Hansson leikstjóri.
„Þetta er lítið framleiðslufyrir-
tæki sem frétti af bókinni í gegn-
um sameiginlega vinkonu, Rut
Hermannsdóttur sjónvarpsfram-
leiðanda. En það er ekkert fast í
hendi,“ segir Óttar Martin Norð-
fjörð rithöfundur.
Bandarískt framleiðslufyrir-
tæki hefur sýnt bók hans, Lygar-
anum, áhuga en hún gerist árið
1972 þegar hið heimsfræga ein-
vígi Spasskís og Bobby Fischer fór
fram í Laugardalshöll.
Fyrirtækið frétti af bókinni í
gegnum Rut sem fékk að sjá upp-
kastið að bókinni. „Rut hefur
mjög góð tengsl í þessum bransa
og hefur vitað af þessari bók mjög
lengi. Hún spurði hvort hún mætti
gauka henni að vinum sínum og
mér fannst það sjálfsagt mál,“
segir Óttar og bætir því við að
hann hafi nú báðar fæturna á jörð-
inni, það sé ekkert niðurneglt.
„Hins vegar er mikill áhugi á
norrænum bókmenntum og kvik-
myndum í Bandaríkjunum og
bóka-umboðsmaður minn hefur
sagt mér að fólk sé mjög áhuga-
samt um Norðurlöndin. Fischer/
Spasskí-tengingin skemmir auð-
vitað heldur ekkert fyrir því það
er mun stærra í hugum Banda-
ríkjamanna en fólk hérna heima
gerir sér grein fyrir.“
- fgg
Ameríka sýnir Óttari áhuga
„Þetta er bara algjör snilld og við erum í skýj-
unum,“ segir Kristinn Árni Hróbjartsson sem
ásamt þeim Brynjari Guðnasyni og Júlíusi
Valdimarssyni hafa náð settu takmarki í söfn-
un fyrir útgáfu Litla herramennskukversins.
Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir stuttu
síðan fundu þeir félagarnir skemmtilega fjár-
mögnunarleið á netinu til að safna fyrir útgáfu
bókarinnar, eins konar hópfjármögnun þar
sem fólk kaupir eintak í forsölu og styrkir um
leið útgáfu bókarinnar. Félagarnir þurftu að
safna rúmlega 460 þúsund íslenskum krónum
og náðu settu markmiðið á miðvikudaginn, 10
dögum áður en söfnuninni lýkur formlega. Litla
herramennskukverið er uppflettirit þar hægt
er að finna ýmsan fróðleik fyrir herramenn.
„Við höfðum alltaf trú á þessu verkefni en
það kom okkur vissuleg á óvart hversu stutt-
an tíma þetta tók og hvað það eru margir á
styrktarlistanum sem við þekkjum ekki. Það
er greinilegt að þetta framtak féll í góðan jarð-
veg,“ segir Kristinn sem skilar kæru þakklæti
til allra sem hafa keypt sér bók í forsölu og um
leið hjálpað til að við að koma bókinni út.
„Það hjálpaði okkur heilmikið að verslunin
Herragarðurinn var svo hrifin af þessu fram-
taki okkar að þeir keyptu stærsta pakkann,“
segir Kristinn en stærsti pakkinn kostaði um
170 þúsund krónur. „Við erum bara að fara að
demba okkur í jólabókaflóðið, sem er frekar
óraunverulegt.“
Ennþá hægt að tryggja sér eintak í forsölu
á síðunni herramennska.pozible.com en bókin
kemur út í byrjun desember og verður til sölu í
Herragarðinum, Iðu og Máli & menningu fyrir
jólin. - áp
Litla herramennskukverið kemur út
Í SKÝJUNUM Kristinn Árni Hróbjartsson einn höfunda
Litla Herramennskukversins er mjög ánægður að þeim
hafi tekist að safna fyrir útgáfu bókarinnar með nýstár-
legri söfnunaraðferð. Bókin kemur því út fyrir jólin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BÁÐIR FÆTUR Á JÖRÐINNI Óttar Martin
hefur fundið fyrir áhuga hjá bandarísku
framleiðslufyrirtæki vegna nýrrar bókar
sinnar, Lygarinn.
„Ég var hættur þessu og ætlaði ekk-
ert að gera meira af svona hlutum.
En þegar starfsmenn Pegasus sáu
reiðhestana mína gengu þeir mjög
hart að mér og ég lét til leiðast,“
segir Jens Pétur Högnason hesta-
bóndi.
Fimmtán hestar frá Jens Pétri
verða notaðir við tökur á sjónvarps-
þáttunum Game of Thrones en eins
og Fréttablaðið hefur greint frá er
sextíu manna tökuliðið frá þáttun-
um væntanlegt hingað til lands í lok
þessa mánaðar.
Tökurnar fara að mestu leyti
fram við Höfðabrekkuheiði sem var
þjóðleiðin austur að Mýrdalssandi
í tuttugu ár eða þar til Jónsmessu-
hlaupið í Múlakvísl árið 1955 rauf
hana. Ekki verður byggð nein risa-
stór leikmynd vegna þáttanna þar
sem slíkt er aðallega unnið í tölv-
um. Byrjað er að ráða „statista“ í
þættina en eins og Fréttablaðið
sagði frá sóttu hátt í þúsund karl-
menn um að komast að.
Jens Pétur og hestarnir hans eru
vanir í sjónvarps- og kvikmynda-
bransanum. Jens hefur verið með
hrossin sín fyrir framan töku vélar
í tuttugu ár, var meðal annars
með hesta í Myrkrahöfðingjanum,
Agnesi og stórmyndinni Bjólfskviðu
eftir Sturlu Gunnarsson. Tökul-
ið bandarísku sjónvarpsþáttanna
bjargaði meira að segja lífi tveggja
hrossa því Jens hugðist lóga þeim
áður en verkefnið kom inn á borð
til hans. Þar á meðal hinum aldna
höfðingja Randver sem er orðinn
28 vetra gamall. „En nú er ég bara
að fara að járna hann og hann fær
að draga vagn í þáttunum. Hann er
öllu vanur, hefur verið í Borgarleik-
húsinu og á Hótel Íslandi.“
Að sögn Jens Péturs er það mikið
þolinmæðisverk að vera með hesta
í kvikmyndum og það krefst þess
að hestarnir séu með gott geðslag.
„Hver mínúta er dýr hjá svona töku-
liði, það skiptir miklu máli að hest-
arnir hreyfi sig ekki þegar þeir eiga
ekki að hreyfa sig,“ segir Jens. Og
að sögn bóndans er ágætis peningur
í boði fyrir svona starf. „En maður
reynir auðvitað að vera sanngjarn
á báða bóga.“ freyrgigja@frettabladid.is
JENS PÉTUR HÖGNASON: VERÐUR MEÐ HROSSIN Í GAME OF THRONES
Hætti við að lóga Randver
Tónlistarmennirnir og félag-
arnir Ragnar Bjarnason og Erpur
Eyvindarson auglýsa saman kaffi á
skjáum landsmanna þessa dagana.
Í auglýsingunum kafa þeir ofan
í mannlegt eðli og í einni skýtur
upp kollinum vísun í kunnuglegan
sjónvarpsþátt. Erpur segir Ragnari
að um 90 prósent þjóðarinnar
sé óstefnumótahæf
og Ragnar virðist
hissa á því. Er þetta
samtal nánast
afritað úr frægum
Seinfeld-þætti þar
sem Seinfeld sjálfur
lýsti þessu yfir með
miklum tilþrifum.
Blaðamaður
danska blaðs-
ins Politiken
fer fögrum
orðum um
heimildar-
myndina
Gnarr,
sem fjallar um kosningabaráttu
Besta flokksins og verður sýnd á
kvikmyndahátíð í Kaupmannahöfn
á laugardaginn. Talar hann mikið
um hreinskilni Jóns Gnarr og segir
ótrúlegt að fylgjast með stjórn-
málamanni fara á fund og nota
múmínálfanna í röksemdafærslu
um innflytjendamál. Gaukur Úlfars-
son verður viðstaddur
sýninguna í Köben, en
hann hefur flakkað
víða um heim með
myndina sem vekur
hvarvetna mikla
athygli. Enda pólitísk
saga Jóns Gnarr
einstök. - afb