Fréttablaðið - 11.11.2011, Qupperneq 2
11. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR2
„Ingimundur, þú ert sem
sagt ekki kominn af léttasta
skeiði?“
„Alls ekki, ég er léttur á fæti og
léttur í lund.“
Ingimundur Ingimundarson leikur hand-
bolta með Fram og íslenska landsliðinu.
Í viðtali í Fréttablaðinu í gær sagði hann
að Guðmundur Þ. Guðmundsson lands-
liðsþjálfari hefði verið að tuða yfir því
að hann væri orðinn of léttur eftir stífar
æfingar síðustu mánuði.
BJÖRGUN Sýslumaðurinn á Eski-
firði féllst í gær á beiðni Loðnu-
vinnslunnar á Fáskrúðsfirði og
sveitarfélagsins Hornafjarðar
um að flutningaskipið Alma, og
farmur inn um borð, yrði kyrr-
sett í Fáskrúðsfjarðarhöfn. Fyrir-
tækið og sveitarfélagið fara fram
á að trygging að upphæð 625
milljónir króna verði lögð fram til
að kyrrsetningunni verði aflétt.
„Við fórum fram á kyrrsetn-
ingu vegna þess að það lagðist
skip utan á Ölmu í gærkvöldi til
að umskipa farminum. Þetta var
nauðsynlegt til að tryggja kostn-
að og björgunarlaun,“ segir Gísli
Jónatansson, framkvæmdastjóri
Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðs-
firði, um ástæður þess að farið
var fram á kyrrsetningu flutn-
ingaskipsins. Aðspurður segir
Gísli að farið hafi verið fram á
625 milljóna króna tryggingu.
Hér vísar Gísli til þess að Green
Lofoten, systurskip Ölmu, kom
til Fáskrúðsfjarðar til að mögu-
legt væri að umskipa farmi til
útflutnings. Slíkt er ekki leyfilegt
á meðan kyrrsetningin er í gildi.
Umboðsaðili fyrir flutninga-
skipið hér á landi er flutninga-
fyrirtækið Nesskip og þarf að
leggja fram trygginguna til að
aflétta kyrrsetningunni. Garð-
ar Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Nesskipa, segir að í sínum
huga hafi aðgerðin verið með öllu
óþörf. „Ég lít svo á að þeir séu að
baktryggja sig í málinu.“
Í samtali við Fréttablaðið í gær,
áður en kyrrsetningarbeiðnin
hafði verið samþykkt af sýslu-
manninum á Eskifirði, sagði
Garðar að ekkert væri vitað um
hvenær yrði af umskipun á farmi
Ölmu. Slíkt lægi ekki fyrir fyrr
en búið væri að ganga frá málum
vegna kostnaðar og hugsanlegra
björgunarlauna vegna aðgerðar-
innar.
Loðnuvinnslan er eigandi Hof-
fells SU 80, sem tók Ölmu í tog og
dró flutningaskipið til hafnar um
helgina. Alma missti stýrið við
innsiglinguna við Höfn í Horna-
firði þegar Björn Lóðs, dráttar-
bátur í eigu Hornfirðinga, var að
aðstoða skipið út fyrir ós í Horna-
firði á laugardag.
Spurður hvort upphæð trygg-
ingarinnar gæfi hugmynd um
hversu há björgunarlaun fyrir-
tækið og sveitarfélagið hygðust
fara fram á, segir Gísli að slíkt sé
samningsmál og reiknað út með
hliðsjón af verðmæti skips og
farms. Hann segir hins vegar að í
sínum huga sé skýrt að um björg-
un var að ræða.
Alma er um hundrað metra
langt flutningaskip í eigu félags
frá Úkraínu og um borð eru
tæplega þrjú þúsund tonn af
frosnu sjávarfangi frá íslensk-
um og færeyskum sjávarútvegs-
fyrirtækjum.
Garðar segir óljóst hvort við-
gerð á Ölmu verði gerð hér á landi
eða hvort skipið verði dregið til
viðgerðar í öðru landi.
svavar@frettabladid.is
Alma kyrrsett í höfn
og tryggingar krafist
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði og sveitarfélagið Hornafjörður krefjast 625
milljóna króna til að tryggja greiðslu á kostnaði og björgunarlaunum vegna
flutningaskipsins Ölmu. Óþarft, segir umboðsaðili skipsins hér á landi.
FLUTNINGASKIPIÐ ALMA Í TOGI Myndin er tekin frá Hoffelli SU 80, sem dró skipið í
land. Það var mál allra sem komu að aðgerðinni að hætta hefði verið töluverð, eins
og alltaf við þessar aðstæður. MYND/GUNNAR HLYNUR ÓSKARSSON
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur karl-
maður hefur verið dæmdur í sex og
hálfs árs fangelsi fyrir að misnota
dreng gróflega frá því að hann var
tíu ára og til fjórtán ára aldurs. Þá
hafði hann í fórum sínum tæplega
1.800 ljósmyndir sem sýndu barna-
níð og fjölda hreyfimynda.
Maðurinn hefur áður verið
dæmdur í árs fangelsi fyrir að mis-
nota tvo drengi, tvisvar hlotið dóm
fyrir að hafa klámfengið myndefni
af börnum í sinni vörslu og í þriðja
skiptið þurft að greiða sekt fyrir
sams konar athæfi.
Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa í tugi skipta fróað
drengnum og haft við hann munn-
mök. Gegn neitun sinni var hann
sýknaður af því að hafa haft enda-
þarmsmök við drenginn í fjögur
eða fimm skipti.
Drengurinn var tengdur sam-
Margdæmdur og óforbetranlegur barnaníðingur dæmdur fyrir brot gegn dreng:
Sex og hálft ár fyrir gróft barnaníð
Skólaganga drengsins hefur verið í molum vegna brotanna, að því er segir í
greiningum sálfræðinga. Minningar um ofbeldið sæki stöðugt á hann, hann
upplifi martraðir á nánast hverri nóttu og eigi erfitt með að vera einn. Hann
hafi verið haldinn miklum kvíða og þunglyndiseinkennum og verið tilfinn-
ingalega dofinn. Þetta megi rekja til áfalls sem valdið hafi óttaviðbrögðum,
hjálparleysi og hryllingi. „Því megi segja að ákærði hafi með brotum sínum
rænt brotaþola fjórum árum af æsku sinni í bókstaflegri merkingu.“
Rændi drenginn fjórum árum af æskunni
býlismanni hins dæmda, og því
reglulega inni á heimili hans. Hinn
dæmdi gekkst við brotunum að
hluta en sagði þau gjarnan hafa
verið að frumkvæði drengsins, sem
hefði virst njóta þeirra.
Segir í dómnum að sakaferill
mannsins sé varðaður brotum sem
beri þess skýran vott að hann sé
haldinn alvarlegri og fastmótaðri
barnahneigð.
Frásögn hans af því að
drengurinn hafi notið brotanna veki
óhug. „Verður ekki fram hjá því litið
að ungum drengjum stafar mikil
hætta af ákærða eins og dæmin
sanna.“ Ákærði eigi sér engar máls-
bætur og ítrekaðar refsingar hafi
verið árangurslausar. „Hann hefur
hafist handa við fyrri iðju eins og
ráða má af því að hann rýfur tví-
vegis reynslulausn sem hann hefur
fengið og heldur áfram á sömu braut
og lætur sér ekki segjast.“ - sh
Matthías Á. Mathiesen, fyrr-
verandi ráðherra og alþingis-
maður, lést í fyrradag, áttræður
að aldri.
Matthías lauk
lögfræðiprófi frá
Háskóla Íslands
1957 og var kjör-
inn á þing 1959
fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann
var þingmaður Reyknesinga til
1991.
Matthías var sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Hafnarfjarðar 1958
til 1967. Hann rak málflutnings-
skrifstofu í Hafnarfirði 1967 til
1974 og síðan frá 1991.
Eftirlifandi eiginkona
Matthíasar er Sigrún Þ.
Mathiesen. Þau eignuðust þrjú
börn: Árna Matthías, Halldóru
og Þorgils Óttar.
Matthías Á.
Mathiesen
látinn
FJARSKIPTI „Aðalatriðið í málinu er að það er
enginn möguleiki fyrir starfsmenn Símans
að hlera. Það er bara ekki hægt,“ segir Sævar
Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, spurður um
viðbrögð fyrirtækisins við kvörtun þess efnis
að tiltekinn starfsmaður þess hafi hlerað síma
fyrrverandi maka síns í heimildarleysi.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur nú með
höndum rannsókn á slíku máli og hvort við-
brögð Símans hafi verið fullnægjandi, eins og
Fréttablaðið greindi frá í gær.
Sævar Freyr segir erfitt að ræða þetta ein-
staka mál. Þó segir hann aðspurður að í ljósi
þess að ekki sé til hlerunarbúnaður hjá Sím-
anum og því ógerlegt fyrir starfsfólk að hlera
símtöl hafi málið ekki verið kært til lögreglu
né viðkomandi starfsmaður látinn hætta.
„Hlerunarbúnaðurinn er hjá lögreglu og
þegar hleranir fara fram þarf aðstoð starfs-
manna Símans til að tengja lögreglu við núm-
erið sem þarf að hlera. Það er það eina sem
starfsmenn geta gert hér,“ segir Sævar.
„Ég tek undir það sem Ásgeir Karlsson, yfir-
maður greiningardeildar ríkislögreglustjóra,
og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
sögðu í Fréttablaðinu í gær að auka þarf eftir-
lit með hlerunum og tengiliðum lögreglu innan
fjarskiptafyrirtækjanna. Slíkt myndi auðvelda
fyrirtækjunum aðkomu að þessum viðkvæmu
málum, sem mikilvægt er að unnin séu af
öryggi af þeim starfsmönnum sem sinna þessu
verkefni.“ - jss
SÆVAR FREYR ÞRÁINSSON Tekur undir orð þeirra sem
vilja auka eftirlit með hlerunum og tengiliðum lögreglu
innan símfyrirtækjanna.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir hlerunarbúnað ekki til hjá fyrirtækinu:
Starfsmenn eiga ekki möguleiki á að hlera
Hermann Fannar Valgarðsson
er látinn, 31 árs að aldri. Hann
fannst látinn í Hafnarfirði á
þriðjudagskvöld
og hafði orðið
bráðkvaddur er
hann var úti að
hlaupa.
Hermann var
annar eigenda
Nýlenduvöru-
verzlunar Hemma og Valda á
Laugavegi, kaffihússins Tíu
dropa, ferðaþjónustufyrirtæk-
isins Reykjavík Backpackers
og tölvuþjónustufyrirtækisins
Macland. Þá starfaði Hermann
fyrir vefþjónustufyrirtækið
Skapalón. Hann hafði einnig
verið útvarpsmaður á X-inu
977 með hléum frá árinu 1998.
Hermann lætur eftir sig
eigin konu og fjögurra ára son.
Hermann
Fannar látinn
LÖGREGLUMÁL Magn fíkniefnanna
sem lögregla lagði hald á í
Straumsvík 10. október var 9,9
kíló af amfetamíni og 8.100 e-
töflur. Þetta kemur fram í dómi
Hæstaréttar, sem í gær staðfesti
úrskurð Héraðsdóms Reykjavík-
ur um að annar hinna grunuðu í
smyglmálinu skyldi sæta gæslu-
varðhaldi til 6. desember. Maður-
inn hefur játað aðild að málinu en
ber því við að hann hafa talið að
efnin væru sterar en ekki eitur-
lyf. Allt að tólf ára fangelsi liggur
við því broti sem maðurinn er
grunaður um.
Gæsluvarðhald yfir öðrum
manni, sem talinn er hafa skipu-
lagt innflutning efnanna, rennur
út í dag en óskað verður eftir
framlengingu á varðhaldi hans
sömuleiðis. - gar
Smyglmálið í Straumsvík:
Amfetamínið
vegur 9,9 kíló
LÖGREGLUMÁL Leit að 25 ára
sænskum manni stóð fram á nótt
í gær á Sólheimajökli.
Svíinn hringdi eftir aðstoð
seint í fyrrakvöld og var þá villt-
ur, kaldur og óttasleginn. Kvaðst
hann hafa gengið í sex til átta
tíma upp frá Skógum. Var því
leitað að manninum á svæðinu
við Fimmvörðuháls alla nóttina
þar til síðdegis í gær að bíla-
leigubíll hans fannst við sporð
Sólheimajökuls. Þar eru erfiðar
sprungur í jöklinum og voru
aðeins reyndustu leitarmenn
sendir þangað í gærkvöld.
Maðurinn var ekki fundinn
þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gærkvöld og ekki hafði náðst
samband við hann aftur í síma.
Hann hefur búið í Bretlandi frá
árinu 1988. Hann kom til Íslands
á mánudag og átti bókað flug
aftur út í dag.
- gar
Leit við erfiðar aðstæður:
Óttast um Svía
á Sólheimajökli
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
SPURNING DAGSINS