Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 35
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Myndlistarkonan Elín Hansdóttir
opnar sýninguna Trace í i8 galleríi á
Tryggvagötu 16 hinn 9. júlí. Sýningin
er hluti af myndlistarviðburðinum
Villa Reykjavík sem i8 tekur þátt í
um þessar mundir. Elín, sem býr og
starfar í Berlín, setti upp sýninguna í
vikunni og blaðamaður náði tali af
henni í galleríinu.
„Villa Reykjavík hafði upphaflega
samband við i8, en það vildi svo til að
sýning mín var á sama tíma og hátíð-
in. Ég hef þekkt aðstandendur Villa
Reykjavík í nokkur ár og fór á fyrri
hátíð þeirra, Villa Varsjá, sem haldin
var í yfirgefnu einbýlishúsi í miðborg
Varsjár árið 2006. Ég var þar í heila
viku og upplifði mjög nýstárlegar
leiðir til að sýna myndlist. Þarna voru
fagmannleg gallerí að kynna unga
listamenn í mjög óhefðbundnu rými,“
segir Elín.
Elín er þekkt fyrir að skapa með
innsetningum sínum afmarkaða og
sjálfbæra heima sem lúta eigin
reglum. Í verkinu sem Elín vinnur
inn í rými i8 vísar hún í hinn bylting-
arkennda danshöfund Loïe Fuller,
sem varð þekkt fyrir hinn svokallaða
snákadans sinn, eða Serpentine
Dance, um aldamótin 1900. „Ég er að
vinna út frá svipuðum forsendum og
áður en nýti mér aðra miðla. Það var
stutt kvikmyndabrot þeirra Lumière-
bræðra af þessum dansi sem kveikti á
ákveðnu hugsanaferli hjá mér. Ég
nota það efni sem eins konar grunn
eða kveikju og læt það svo leiða mig
áfram.“
16 mm kvikmynd grunnurinn
Elín segist aðallega vera að skoða
hvernig orka miðlar hreyfingu í tíma
og rúmi. Hún segist hafa byrjað á því
að taka upp 16mm kvikmynd sem sé
grunnurinn að sýningunni. „Kvik-
myndin var byrjunarreiturinn, hin
verkin eru unnin annaðhvort sam-
hliða kvikmyndinni eða í kjölfarið. Til
dæmis sýni ég ljósmyndir sem teknar
eru á tíma af varpaðri kvikmyndinni,
þannig að ég nýti efnið áfram eftir að
ég framkvæmi fyrstu hugmyndina.“
Búið er að setja upp vegg sem skilur
galleríið í tvennt. Á veggnum öðrum
megin hefur verið komið fyrir fjöl-
mörgum speglum. „Þegar sýning-
argesturinn gengur framhjá veggn-
um er eins og allt splundrist upp í
augnablik, ekki ósvipað því hvernig
filmurenningurinn er uppbyggður. Á
einhvern hátt er ég að reyna að setja
samasemmerki á milli áhorfandans
og filmunnar.“
Elín var í óðaönn að setja upp sýn-
inguna þegar blaðamaður ræddi við
hana en sagðist vera afskaplega róleg
enda gengur uppsetningin vel. „Upp-
setningin á þessari sýningu er afar
ólík því sem ég hef áður sýnt hér á Ís-
landi. Það má samt segja að ég sé allt-
af að fjalla um sama efniviðinn; skynj-
un eða hreyfingu í rými, þótt ég velji
ólíkar leiðir til að miðla honum. Und-
anfarin ár hef ég byggt strúktúra
sem hafa umbreytt umhverfi áhorf-
andans, t.d. með stjórnun gönguleiða,
breytilegu birtustigi eða bjögun á
umhverfinu. Í þessu tilfelli er ég hins
vegar ekki að fjalla um beina líkam-
lega skynjun mannsins, heldur frem-
ur að skoða hvernig eitt augnablik í
hreyfingu getur falið í sér marga
ólíka heima.“
Morgunblaðið/Eggert
Hreyfing Elín í i8 galleríi. Sýning hennar er hluti af Villa Reykjavík.
Sjónræn
upplifun tíma
og rýmis
Elín Hansdóttir vísar í snákadans
ameríska danshöfundarins Loïe Fuller,
Serpentine Dance, á sýningu sinni í i8
www.i8.is
www.elinhansdottir.net
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Listahátíðin Villa Reykjavík
hefst í dag og stendur til 31.
júlí. 12 erlend gallerí taka þátt
í hátíðinni auk fjölda erlendra
og íslenskra listamanna. Í dag
kl. 18 verða sýningar opnaðar á
Vesturgötu 10-10a en þar sýna
Croy Nielsen, IBID Projects,
Raster og Zero. i8 opnar sýn-
ingu Elínar Hansdóttur og á
Tryggvagötu 18 sýna Foksal
Gallery Foundation og Galerie
Jocelyn Wolff. Á Geirsgötu 11 eru það Rodeo, Jo-
hann König, Hollybush Gardens og Jan Mot. Á
morgun verða svo opnaðar sýningar á Hverfis-
götu 42, Kling & Bang og Hunt Kastner og á
Næsta bar eru það Tulips and Roses.
Myndlist
Villa Reykjavík
hefst í dag
Lilja Gunnarsdóttir
skipuleggjandi.
Þrír nýútskrifaðir myndlistar-
menn, Sigrún Guðmunds-
dóttir, Sólveig Thoroddsen og
Unnur G. Óttarsdóttir, opna
sýningu á verkum sínum í Ed-
inborgarhúsinu, Aðalstræti 7
á Ísafirði, á morgun kl. 16.
Sýningin ber yfirskriftina
USS en nafnið er myndað úr
upphafsstöfum nafna þeirra.
Í tilkynningu má finna
þennan stutta en hnitmiðaða
texta um sýninguna: „USS. Ekkert mál. Þegjum
yfir því. Slæmt er það. Höfum hljótt. Þetta
reddast.“ Unnur, Sigrún og Sólveig námu við
Listaháskóla Íslands. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 16 til 18.
Myndlist
USS í Edinborgar-
húsinu
Verkið „Pilsfald-
ur“ eftir Unni.
Kórinn Collegium Cantorum
frá Uppsölum í Svíþjóð heldur
tónleika í kvöld kl. 21 í Lang-
holtskirkju. Efnisskrá kórsins
er fjölbreytt, allt frá endur-
reisnarverkum til sænskra nú-
tímaverka. Meðal eldri verka
eru Le chant des oiseaux eftir
Clément Janequin, en það verk
er merkilegt fyrir þær sakir að
fuglasöngur er færður í kór-
setningu, og Missa Pange ling-
ua eftir Josquin des Préz. Af nýrri nútímaverkum
má nefna En ny himmel och en ny jord eftir Sven-
David Sandström við texta úr Opinberunarbók
Jóhannesar og Michaelimotetten eftir Bent
Hamraeus. Stjórnandi er Olle Johansson.
Tónleikar
Sænskur kór í
Langholtskirkju
Olle Johansson
kórstjóri.
Bókaútgáfan Veröld gaf í gær út
bókina Spói – barnasaga eftir Ólaf
Jóhann Sigurðsson í nýjum búningi.
Saga þessi kom upphaflega út árið
1962 en hún hefur verið gefin út á
fjölda tungumála og verið ófáanleg
til margra ára. Bókin er mynd-
skreytt af Jóni Baldri Hlíðberg og
bókinni fylgir einnig geisladiskur
en á honum les leikkonan Ólafía
Hrönn Jónsdóttir söguna.
Í bókinni segir af íslenskum spóa
sem þykist öðrum spóum gáfaðri.
Hann leggur í ferðalag í leit að
kvonfangi og lendir í miklum ævin-
týrum. Ólafur Jóhann fæddist árið
1918 og lést 1988. Hann hlaut bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
árið 1976.
Gáfaður Spóinn Filippus á kápu
bókarinnar Spói – barnasaga.
Spói Ólafs
í nýrri
útgáfu
Barnasaga frá 1962
í nýjum búningi
Myndlistartvíeykið Sallý og Mo
opnar á morgun kl. 14 sýninguna
Fýkur yfir hæðir (Wuthering
Heights) í Ketilhúsi og Deiglunni á
Akureyri. Sally og Mo eru listakon-
urnar Elín Anna Þórisdóttir og
Þóra Gunnarsdóttir en þær fóru að
vinna með gjörningaspuna sumarið
2006 sem Sally og Mo. Um sýn-
inguna segir m.a.: „Sally og Mo
benda á að hið afbrigðilega eða
skrítna getur jafnframt innihaldið
frelsi. Frelsi til að láta ekki kredd-
ur og sleggjudóma hefta upplifun
einstaklingsins. Útkoman verður
stundum hlægileg eða grátbrosleg.
Barnsleg einlægni og einfeldni, að
ekkert sé bannað, tabú eða banalt
er rómantísk hugsun.“ Sýningunni
lýkur 25. júlí.
Fýkur yfir hæðir
Frelsi Myndin sem fylgir tilkynningu um sýningu Sally og Mo.
Sally og Mo sýna í Ketilhúsi og Deiglunni á Akureyri Jón Jónsson frá Hvanná fæddist áþessum degi, 9. júlí, fyrir 100 árum,
árið 1910. Eftir Jón liggja margar
dægurlagaperlur og sú þekktasta er
sjálfsagt „Capri Katarina“ sem
Haukur Morthens söng inn á hljóm-
plötu árið 1958. Lagið samdi Jón við
ljóð Davíðs Stefánssonar en ljóðið
flutti Davíð ítalskri blómarós á eynni
Capri, mælti það af munni fram á
staðnum, en einn félaga hans sem
þar var staddur með honum, Rík-
harður Jónsson myndskeri, sá til
þess að ljóðið gleymdist ekki og
skráði niður. Jón sótti á ferli sínum
nokkrum sinnum í ljóð Davíðs, t.d. í
laginu „Ég vildi að ég væri“ og
„Mánadísin“.
Árið 1997 var hljóðrituð hljóm-
platan Töfrablik með lögum eftir
Jón en framleiðandi hennar var
Björgvin Halldórsson og söng hann
að auki mörg laganna, þ.á m. „Capri
Katarinu“.
Jónatan Garð-
arsson skrifaði
texta um Jón sem
finna má í plötu-
umslaginu og
segir þar m.a. að
Jón hafi átt þátt í
að ryðja braut ís-
lenskrar dægur-
lagasmíði og
móta nýjar hefðir
í tónlistarmálum Ísfirðinga og þjóð-
arinnar allrar með verkum sínum.
Jón fékk mjög alvarlega heilablæð-
ingu árið 1954 en skömmu áður en
hann veiktist samdi hann „Capri
Katarinu“. Jónatan segir í texta sín-
um að Jóni hafi verið ljóst að það lag
gæti heillað fólk um allan heim ef
rétt væri að málum staðið.
Jón var sjúklingur í níu ár og lést
langt um aldur fram, 26. mars 1963.
Frumkvöðull í lagasmíði
Jón Jónsson
frá Hvanná.
Elín lauk myndlistarnámi frá
Listaháskóla Íslands árið 2003
og framhaldsnámi árið 2006.
Hún hefur haldið fjölda einka-
sýninga og samsýninga bæði
erlendis og hér heima. Trace er
hennar þrettánda einkasýning.
Þrettánda
einkasýningin
ELÍN HANSDÓTTIR
Sýning á leik-
föngum Guð-
bjargar Ringsted
verður opnuð í
Friðbjarnarhúsi
á Akureyri á
safnadaginn, 11.
júlí. Leikföngin
eru frá síðustu
öld en Guðbjörg
byrjaði að safna
leikföngum sér til ánægju þegar hún
var tvítug að aldri.
Leikföng
Guðbjargar
Brúða á sýningu.
Á frjósömum beiti-
lendum Indlands eru
beljurnar heilagar og fólkið
hungrað 38
»