Morgunblaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 36
Á morgun verða haldin stelpu- og strákaböll til
styrktar Gay Pride 2010. Strákaballið verður á
gleðistaðnum Barböru þar sem Páll Óskar mun
þeyta skífum, en stelpnaballið á Skólabrú og þar
ætla að halda uppi fjörinu dj-dúóið Dj Glimmer og
hljómsveitin Elektra sem nýverið spilaði á Gay
Pride í Osló.
Dj Glimmer skipa parið Eva María Þórarins-
dóttir og Birna Hrönn Björnsdóttir. „Við erum
búnar að vera Dj Glimmer í þrjú ár, síðan á Gay
Pride 2007, en fyrir það vorum við að spila hvor í
sínu lagi,“ segir Birna Hrönn. Það leið ekki á
löngu þar til ástin blómstraði. „Spileríið,“ svarar
hún þegar ég spyr hvort kom á undan, tónlistar-
samstarfið eða ástin, „en svo vatt þetta upp á sig“,
heldur hún áfram og hlær.
Stelpurnar spila allan ársins hring í afmælum,
brúðkaupum og við hvers kyns tækifæri, en Birna
segir að áheyrendahópur þeirra sé að stórum
hluta samkynhneigður, enda hafa þær átt hálf-
gert heimili á Barböru sem er eini gay-skemmti-
staðurinn í Reykjavík. „Það má segja að við spil-
um svona popp-danstónlist. Gamla góða slagara
og ný lög sem hljóma mikið í útvarpinu. Við reyn-
um að hafa fjölbreytni í þessu því þessi hópur er
náttúrlega alveg frá tvítugu og upp í sextugt.“
Birna segir langa hefð fyrir styrktarböllunum,
þau séu stór liður í fjáröflun fyrir Gay Pride og
því mikilvægt að vel takist til. Það eru líka litlar
líkur á öðru en að það verði dynjandi stemning,
enda eru þetta „gleðiböll“, eins og Birna orðar
það. Þær Eva María ætla að sjálfsögðu að taka
þátt í Gleðigöngunni og eru á fullu að skipuleggja
fyrir Hinsegin daga.
Bæði böllin hefjast kl. 23 annað kvöld.
holmfridur@mbl.is
Stelpna- og strákaböll til styrktar Gay Pride
Par Stelpurnar í Dj Glimmer halda uppi stuðinu.
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Listahátíðin Villa Reykavík hefst
í miðborginni í dag. Hljómsveit-
irnar Stafrænn Hákon og Sudden
Weather Change opna hátíðina með
pomp og prakt á Venue í Trygga-
götu kl. 22.00 í kvöld með ókeypis
tónleikum. Sjá nánari dagskrá á
www.villareykjavik.com.
Villa Reykjavik tón-
leikar í kvöld
Fólk
Það verður nóg um að vera í
verslun Nikita og bakgarðinum
hennar á Laugaveginum í dag.
Beatmaking Troopa spilar frá kl.
17.00 inni í búðinni, en klukkutíma
síðar munu svo herlegheitin færast
út í bakgarðinn hjá Nikita. Þar
koma fram Skruken, Beatmaking
Troopa, Snorri Helgason, Show-
case frá Óla Ofur og Captain Fuf-
anu og standa tónleikarnir til kl.
22.00. Að sjálfsögðu verður hjóla-
brettapallurinn opinn fyrir þá sem
vilja renna sér. Nikita-búðin er svo
opin lengur alla föstudaga í sumar
eða til kl. 20.00.
Bland í poka í Nikita-
garðinum í dag
Hljómsveitin Hjaltalín er þessa
dagana á tónleikaferðalagi um
landið og í gærkvöldi spilaði hún á
Græna hattinum á Akureyri. Hjalt-
alín endurtekur leikinn í kvöld á
sama stað og kemur fram ásamt
söngkonunni Láru Rúnars. Bæði
Hjaltaín og Lára tóku nýverið þátt í
Iceland Inspires-tónleikunum í
Hljómskálagarðinum.
Hjaltalín og Lára á
Græna hattinum
Undanfarna föstudaga hafa
skapandi listhópar á vegum Hins
hússins verið með svokölluð Föstu-
dagsfiðrildi í miðborg Reykjavíkur
og skemmt gestum og gangandi. Í
dag á milli 12 og 14 fer fram síðasta
fiðrildi sumarsins. Dagskráin nær
frá horni Ingólfsstrætis og Lauga-
vegs til Ingólfstorgs og má finna
allar upplýsingar á:
www.hitthusid.is.
Síðasta Föstudagsfiðr-
ildi sumarsins í dag
Matthías Árni Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
Í gær hófst tónlistarhátíðin Eistna-
flug í Neskaupstað og segja að-
standendur hennar að búast megi
við að íbúafjöldinn tvöfaldist yfir
helgina. Hátíðin hefur verið haldin
árlega frá árinu 2005 og vaxið með
hverju árinu. Eistnaflug sem byrjaði
sem lítil metal-rokkhátíð er í dag
þriggja daga tónlistarhátíð sem
samanstendur af ýmsum tónlistar-
straumum og stefnum þó rokktónlist
af harðari gerðinni sé enn aðals-
merki hennar. Yfir 30 hljómsveitir
koma fram á hátíðinni um helgina.
Feður „grind-core“-tónlistar
Ein þessara hljómsveita er breska
hljómsveitin Napalm Death sem
spilaði á hátíðinni í gærkvöldi. En
margir segja að meðlimir hennar
séu feður svokallaðrar „grind-core“-
tónlistarstefnu. Hljómsveitin var
stofnuð snemma á níunda áratugn-
um og eru núverandi meðlimir henn-
ar söngvarinn Mark „Barney“
Greenway, Mitch Harris á gítar,
Shane Embury á bassa og Danny
Herrera spilar á trommur. Blaða-
maður sló á þráðinn til Shane Emb-
ury bassaleikara þar sem hann og
félagar í Napalm Death voru að
gera sig klára fyrir tónleikana
og spjallaði aðeins um feril
sveitarinnar og framtíðina.
–Nú er sveitin búin að
vera að í ein 27 ár, hvernig
haldið þið ykkur fersk-
um tónlistarlega séð?
„Þetta snýst að-
allega um viðhorfið. Þó að við séum
komnir á fimmtugsaldurinn þá eru
við ennþá með mjög unglegt viðhorf
tónlistarlega séð. Við höfum allir
sama bakgrunninn í tónlist og svo
erum við duglegir að hlusta á nýjar
hljómsveitir og annað slagið heyrum
við í hljómsveit sem er góð og það
eiginlega staðfestir það fyrir okkur
að það sem við erum að gera er gott
og að virka.“
Forréttindi að spila
Embury segist enn hafa jafn gam-
an af því að spila og þegar hann
byrjaði í sveitinni. Aldur segi þó
stundum til sín og stundum séu
menn þreyttir en þeir hristi það af
sér.
„Mig langaði alltaf að vera í
hljómsveit þegar ég var ungur að
alast upp í litlu þorpi á Englandi.
Mér var sagt í skóla að það ætti
aldrei eftir að gerast. Þannig að ég
tel mig mjög gæfusaman að vera
tónlistarmaður í dag. Eftir ein 23 ár
í hljómsveitinni lítur maður stund-
um til baka og sér að þetta er ein-
hvers virði, það sem við erum að
gera, sérstaklega þegar aðrar sveitir
kalla okkur áhrifavald sinn. Það er
mjög drífandi fyrir okkur,“ segir
Embury.
Ýmsir áhrifavaldar
–Hverjir hafa verið áhrifavaldar
sveitarinnar ?
„Þeir hafa verið margir. Eitt sem
er áhugavert við Napalm Death er
hvað það eru margar mismunandi
tónlistarstefnur sem hafa áhrif á
okkur. Það getur verið „grind-core,“
dauðarokk, þungarokk, pönk eða
„noise“-sveitir eins og Sonic Youth
og My Bloody Valentine. Við hlust-
um á svo margt og það hefur haldið
okkur gangandi.“
Embury segir að þegar platan
Scum kom út árið 1987 hafi fólk
fyrst farið að taka eftir því sem
sveitin var að gera og því sem kallað
er „grind-core,“ en eins og fram hef-
ur komið eru meðlimir Napalm
Death oft titlaðir feður þeirra tón-
listarstefnu. „Það voru hljómsveitir í
Bandaríkjunum að gera svipaða tón-
list en gamli trommarinn okkar fær
víst heiðurinn að hafa fundið upp
nafnið og þess vegna erum við svona
tengdir því. Svo var John Peel líka
duglegur að spila lögin okkar í út-
varpinu á þeim tíma sem tónlist eins
og sú sem við vorum að spila heyrð-
ist aldrei í svona „venjulegu“ út-
varpi. Ætli þetta tvennt hafi ekki
orðið til þess að við erum kallaðir
upphafsmenn „grind-core“.“
Stoppa stutt hérlendis
Meðlimir sveitarinnar fá því mið-
ur ekki að njóta alls sem Ísland hef-
ur upp á að bjóða, því eftir nokkra
daga spila þeir á tónleikum í Þýska-
landi. Embury segist þó vel geta
hugsað sér að koma hingað aftur
seinna, bæði með fjölskylduna og til
að spila aftur fyrir Íslendinga.
– Ein spurning í lokin, er ný plata
á leiðinni?
„Við erum með nokkrar hug-
myndir og förum vonandi að æfa
fyrir hana snemma á næsta ári. En
það er ekkert ákveðið með útgáfu-
dag,“ segir Embury að lokum.
Sömdu stysta lag sögunnar
Grænt Fjöldi manns hafa verið í Napalm Death í gegnum árin, en sveitin hefur starfað frá því snemma á níunda áratugnum.
Napalm Death spiluðu á Eistnaflugi í gær Kallaðir feður „grind-core“
Undanfarin 23 ár hefur hljóm-
sveitin gefið út tugi platna sem
margar hverjar hafa átt góðu
gengi að fagna og vakið
mikla athygli. Hér má
sjá lista yfir helstu
plötur sveitar-
innar frá árinu
1987:
Scum og
From Enslave-
ment To Obli-
teration -
1987. Harmony Corruption - 1990.
Utopia Banished - 1992. Fear
Emptiness Despair - 1994. Diatri-
bes - 1996. Inside The Torn Apart -
1997. Words From The Exit Wound
- 1998. Leaders Not Followers-
MCD - 1999. Enemy Of The Music
Business - 2001. Order Of The
Leech - 2002. Leaders Not Follo-
wers: Part 2 - 2004. The Code Is
Red … Long Live The Code - 2005.
Smear Campaign – 2006. Time
Waits For No Slave - 2009.
Plöturnar 1987-2009
NAPALM DEATH
Shane Embury