Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 2
3. desember 2011 LAUGARDAGUR2
Þorgeir, var þetta bara Klíka?
„Milljón manns hafa fylgt mér með
elegans í gegnum ferilinn og Klíkan
er þar á meðal.“
Þorgeir Ástvaldsson fékk viðurkenningu í
vikunni fyrir framlag sitt til íslenskrar tón-
listar. Hann gerði meðal annars garðinn
frægan með hljómsveitinni Klíkunni.
ORKUMÁL „Þetta er mikið tjón,“
segir Haraldur Magnússon, bóndi
í Belgsholti í Leirársveit, þar sem
spaðarnir af 24 metra hárri vind-
myllu losnuðu af og féllu til jarðar
á þriðjudagsmorgun.
„Það er ekki vitað nákvæmlega
hver frumorsökin er og hvað gerð-
ist. Trúlega hefur skemmst spaði og
við það komið titringur á mylluna.
Hún sneri sér ekki alveg rétt undan
vindinum. Það hefur verið einhver
feill í gangi,“ segir Haraldur.
Að sögn Haraldar slóst einn spað-
anna í mastrið og skemmdi það áður
en mótorhausinn losnaði frá mastr-
inu og vindmyllan féll til jarðar.
Haraldur segir enn allt á huldu
hvernig fer með ábyrgðargreiðslur
og tryggingar vegna tjónsins og
hversu mikið það sé. „Það er ekki
gott að segja en það hleypur á ein-
hverjum milljónum,“ áætlar hann.
Vindmyllan í Belgsholti er af
gerðinni Hannewind og er fram-
leidd í Svíþjóð. „Það var áhugi fyrir
því hjá mér að virkja vindinn og
maður hjá Orkustofnun benti mér
á þessa tegund,“ segir Haraldur.
Frá því vindmyllan var sett upp
í Belgsholti að viðstöddu fjölmenni
í byrjun júlí í sumar hefur hún
framleitt rafmagn fyrir utan stutt
tímabil þegar upp hafa komið smá-
bilanir að sögn Haraldar. Hann
segir mylluna framleiða upp undir
26 kílóvött af rafmagni þegar best
láti. Við þær aðstæður geti hann
selt um 10 kílóvött frá sér inn á
almenna netið. Afganginn nýti
hann á búi sínu.
Haraldur segir að fram undan
sé að endurhanna vindmylluna og
athuga hvort breyta þurfi útfærslu
hennar. Hann hafi þegar verið
búinn að taka ákvörðun um að
lækka hið 24 metra háa mastur
niður í 15 til 18 metra. „Ég sé ekki
að það sé þörf á að hafa mastrið
svona hátt,“ segir hann.
gar@frettabladid.is
Spaðarnir þeyttust af
vindmyllu í Belgsholti
Vindmylla í Belgsholti í Leirársveit féll af 24 metra mastri sínu á þriðjudag
eftir að hafa framleitt rafmagn í aðeins fimm mánuði. Bóndinn segir orsakir
óhappsins ekki ljósar og óvíst hver þurfi að bera tjónið sem hlaupi á milljónum.
VINDMYLLAN Í BELGSHOLTI Haraldur Magnússon í Belgsholti kveðst lengi hafa haft áhuga á að beisla vindorkuna og loks hafa
keypt þessa vindmyllu frá Svíþjóð og sett hana upp í sumar. Myndin er frá því að verið var að reisa mylluna. MYND/HANNEVIND
SAMFÉLAG „Þetta eru óskiljan-
leg vinnubrögð af hálfu ríkis-
sjóðs. Vanvirðing við mannlífið
og menninguna sem tengjast
starfseminni,“
segir Gunnar
Hákonarson,
markaðsstjóri
Kolaportsins,
sem verður
lokað í allt að
átján mán-
uði á næsta ári
vegna fyrirhug-
aðra bygginga-
framkvæmda í
Tollhúsinu.
Tollstjórinn í Reykjavík hyggst
reisa þar ramp undir bílastæði
fyrir starfsmenn, samhliða við-
gerðum á þaki. Breytingar hafa
verið áætlaðar síðan árið 2008.
Þá undirrituðu fjármálaráðu-
neytið og Reykjavíkurborg vilja-
yfirlýsingu þar sem segir að þess
verði gætt að starfsemi Kola-
portsins verði að stærstum hluta
óröskuð. - rve / Allt í miðju blaðsins
Endurbætur á Tollhúsinu:
Kolaportið lagt
niður um tíma
GUNNAR
HÁKONARSON
BÚRMA, AP „Ef við höldum þessu
áfram í sameiningu þá er ég sann-
færð um að ekki verði hægt að
snúa af braut lýðræðis,“ sagði
Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræð-
ishreyfingarinnar í Búrma, eftir
að hafa rætt við Hillary Clinton,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Clinton hefur lofað herforingja-
stjórninni í Búrma margvíslegri
aðstoð Bandaríkjanna, og heitir
enn frekari aðstoð ef Búrmastjórn
gengur lengra í lýðræðisátt.
Í gær bárust fréttir af því að
Shan-þjóðflokkurinn, sem barist
gegn Búrmastjórn, hefði undirrit-
að vopnahlés samkomulag. - gb
Vopnahléssamningar nást:
Suu Kyi vongóð
um framfarir
CLINTON OG SUU KYI Eftir nærri tvo
áratugi í stofufangelsi hitti Suu Kyi loks
fulltrúa eins valdamesta ríkis heims.
NORDICPHOTOS/AFP
ÞÝSKALAND Um það bil helmingur
íbúa borgarinnar Koblenz í
Þýskalandi, um fimmtíu þúsund
manns, þarf að yfirgefa heimili
sín á morgun, þegar 1,8 tonna
sprengja frá seinni heims-
styrjöldinni verður gerð óvirk.
Nú þegar er búið að rýma
fangelsi, elliheimili og sjúkrahús
á svæðinu til öryggis.
Fyrir klukkan níu í fyrramálið
þurfa 45 þúsund manns að vera
farin að heiman, en 2.500 manna
lið slökkviliðsmanna, sjúkraliðs
og hreinsunarfólks bíður átekta
ef illa skyldi fara. - gb
Sprengja gerð óvirk í Koblenz:
Tugir þúsunda
yfirgefa heimili NEYTENDUR Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði í flestum
verslana keðjum um 1,6 prósent
til 5,6 prósent frá því í júní.
Undantekningin var þó Hagkaup
og Nóatún, þar sem verðið hafði
lækkað um 1,2 prósent og 2,4 pró-
sent. Þetta kemur fram í nýrri
mælingu verðlagseftirlits ASÍ
sem gerð var í nóvember.
Mesta verðhækkun á milli
mælinga var hjá Nettó, um 5,6
prósent, 10-11 um 5,2 prósent og
Samkaupum Úrval um 4,6 pró-
sent. Töluverðar hækkanir má sjá
í öllum vöruflokkum í verslunum
landsins, en einstöku lækkanir
eru þó sjáanlegar í öllum versl-
unum nema hjá 10-11. - sv
Nýjasta verðlagskönnun ASÍ:
Verðhækkanir í
flestum búðum
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur staðfesti
í gær gæsluvarðhald yfir Lárusi
Welding, fyrrverandi bankastjóra
Glitnis, og tveimur fyrrverandi
undirmönnum hans. Þeir sitja í
varðhaldi vegna rannsóknar sér-
staks saksóknara á meintum
umfangsmiklum brotum í rekstri
bankans fyrir hrun.
Hinir mennirnir tveir eru
Jóhannes Baldursson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri markaðs-
viðskipta bankans, og Ingi Rafnar
Júlíusson, fyrrverandi verðbréfa-
miðlari. Varðhaldsúrskurðurinn er
til miðvikudagsins næsta.
Viðskiptin sem til rannsóknar
eru vegna gruns um stórfellda,
kerfisbundna markaðsmisnotkun
og önnur brot árin 2004 til 2008
nema á annað hundrað milljörð-
um og hafa alls um þrjátíu manns
verið yfirheyrðir vegna þeirra á
síðustu dögum.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að sérstakur saksóknari hefði
boðað Bjarna Ármansson, sem var
bankastjóri á undan Lárusi, til
yfirheyrslu. Bjarni er á ferðalagi
og ekki væntanlegur til landsins
fyrr en í síðari hluta desember. Þá
mun hann mæta í skýrslutöku. - sh
Um þrjátíu manns hafa verið yfirheyrðir vegna Glitnisrannsóknar sérstaks saksóknara:
Gæsluvarðhald þremenninganna staðfest
Salt sakar Glitnismenn um blekkingar
Forsvarsmenn félagsins Salt Investments fagna rannsókn sérstaks saksóknara
á láni Glitnis til félagsins fyrir kaupum á bréfum í bankanum. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá félaginu. Fréttablaðið greindi frá því í gær að meðal
þeirra lánveitinga sem væru til rannsóknar væri 15,2 milljarða lán til Salt
Financials, dótturfélags Salt Investments, sem er í eigu Róberts Wessman.
„Salt Investment tapaði umtalsverðum fjárhæðum á viðskiptunum og
telur félagið sig hafa verið beitt blekkingum af hálfu stjórnenda bankans,“
segir í yfirlýsingunni. Viðskiptin hafi verið að undirlagi Glitnis og byggt á
gögnum sem sýndu fram á sterka stöðu bankans. „Í ljós hefur komið að
bankinn var að afhenda einskis verða pappíra til Salt en eftir stóð gríðarlega
há skuldbinding Salt gagnvart bankanum.“ Félagið hafi staðið í skilum og
afhent allar tryggingar sem lágu að baki viðskiptunum.
LÖGREGLUMÁL Egill Einarsson, rit-
höfundur, sjónvarpsmaður og
líkamsræktar frömuður, hefur
ásamt unnustu sinni verið kærður
fyrir að nauðga átján ára stúlku á
heimili Egils aðfaranótt föstudags
fyrir rúmri viku.
Kæran var lögð fram á fimmtu-
dag. Stúlkan, sem hefur stundað
líkamsrækt undir handleiðslu
Egils, kveðst hafa farið heim
með parinu eftir gleðskap í
miðbænum og þar hafi Egill
nauðgað henni. Unnusta
hans hafi tekið þátt í ofbeld-
inu.
Egill segir í yfirlýsingu
sem lesa má hér til
hliðar að ásakan-
irnar séu frá leitar
og til þess eins að
sverta mannorð
hans. Hann hafi
falið lögmanni
að undirbúa kæru á hendur
stúlkunni fyrir rangar sakar-
giftir.
Eftir atburði næturinnar
flúði stúlkan fáklædd
heim til vinkonu
sinnar sem bjó í
nágrenninu, að
því er fram kom á
Vísi í gærkvöldi.
Morguninn eftir
leitaði hún á neyðar móttöku fyrir
þolendur kynferðisofbeldis. Egill
var yfirheyrður vegna málsins í
gær.
Egill er þekktur sjónvarps maður
og rithöfundur. Þættir byggðir á
bók hans, Mannasiðum Gillz, voru á
dagskrá Stöðvar 2 fyrr í ár og fram-
hald þeirra væntanlegt á næsta ári.
Þá var hann meðhöfundur að síð-
ustu útgáfu símaskrárinnar. - sh
Þekktur sjónvarpsmaður og rithöfundur segir ásakanir átján ára stúlku fráleitar:
Egill Einarsson kærður fyrir nauðgun
„Það er refsivert að saka fólk ranglega um lögbrot. Það er jafnframt refsivert
að hafa samband við handrukkara í þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki. Þær
ásakanir sem á mig hafa verið bornar eru fráleitar og engar líkur á að þær
muni leiða til opinberrar ákæru. Tilgangurinn með þessum ásökunum er því
augljóslega ekki að ná fram ákæru heldur einvörðungu að sverta mannorð
mitt. Af tillitssemi við hlutaðeigandi mun ég ekki tjá mig meira um þessi
mál opinberlega að svo stöddu. Ég hef falið lögmanni mínum að kæra
viðkomandi fyrir rangar sakargiftir.“
Yfirlýsing Egils
SPURNING DAGSINS