Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 4
3. desember 2011 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 02.12.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,8536
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,21 118,77
185,31 186,21
159,27 160,17
21,427 21,553
20,427 20,547
17,512 17,614
1,5171 1,5259
184,25 185,35
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
LÖGREGLUMÁL Ungur karlmaður er
í gæsluvarðhaldi eftir að hann var
tekinn fyrir viku í Leifsstöð með
kókaín í farteskinu.
Ungi maðurinn, sem er íslensk-
ur og rúmlega tvítugur, var að
koma til landsins frá London. Við
hefðbundið eftirlit fundu toll verðir
um 180 grömm af kókaíni í far-
angri hans. Hann var handtekinn
og úrskurðaður í gæsluvarðhald í
átta daga eða fram á mánudaginn
kemur.
Maðurinn hefur komið við sögu
lögreglu áður en á ekki langan
brotaferil að baki. - jss
Handtekinn í Leifsstöð:
Tollverðir fundu
kókaín í tösku
RÚSSLAND Vinsældir Sameinaðs
Rússlands, stjórnmálaflokks
þeirra Vladimírs Pútín forsætis-
ráðherra og Dmitrí Medvedev
forseta, hafa dalað nokkuð í Rúss-
landi vegna spillingar ímyndar
þótt enn sé honum spáð góðum
sigri í þingkosningum sem haldn-
ar verða á morgun.
Óvenjumargar kvartanir hafa
borist vegna misbrests á fram-
kvæmd kosninganna.
Medvedev forseti ávarpaði
landsmenn í sjónvarpsávarpi
í gær og varaði við sundruðu
þingi. Fjölmargir smáflokkar
myndu eiga erfitt með að koma
góðum málum í framkvæmd. - gb
Þing kosið í Rússlandi:
Forsetinn varar
við sundrungu
KOSNINGASTEMNING Vladimír Pútín og
Dimitrí Medvedev blasa við á vegg-
spjaldi. NORDICPHOTOS/AFP
Hörður skrifaði ekki
Fyrir mistök var Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar, sagður með-
höfundur í grein sem Vilhelm Jónsson
fjárfestir skrifaði. Greinin er eingöngu
eftir Vilhelm og kom Hörður ekki
nálægt gerð hennar. Fréttablaðið
biður Hörð og Vilhelm báða afsök-
unar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
7°
7°
7°
9°
7°
6°
6°
20°
11°
18°
8°
24°
4°
11°
15°
5°Á MORGUN
Strekkingur vestast
annars hægari.
MÁNUDAGUR
Hæg norðlæg átt.
-3
-2
-2
-2
-6
-7
-4
-14
0
0
-6
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
-10
-12
-6
-5
-4
-16
-8
-7
-10
-14
HARÐNANDI
FROST Þokkaleg-
asta veður víðast
hvar um helgina
þrátt fyrir mikið
frost um allt land.
Víða dálítil él, eink-
um við ströndina.
Hörkufrost á mánu-
dag, allt að -20 °C
inni til landsins
norðaustan til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu lagði í gær hald
á fjölda vopna.
Vopnin sem fundust voru
byssur, skotfæri og hnífar. Lög-
regla fann þau við húsleit í fram-
haldi af handtöku manns í Kópa-
vogi um miðjan dag í fyrradag.
Maðurinn, sem var í annarlegu
ástandi og hefur glímt við and-
leg veikindi, hafði ógnað starfs-
manni Sorpu með hnífi.
Húsleitir voru gerðar þar sem
hann er skráður fyrir skotvopn-
um. Sjö skotvopn voru fundust,
en maðurinn er einungis skráður
fyrir hluta þeirra. Verið er að
kanna með tilurð hinna.
Maðurinn var yfirheyrður í
gær en síðan var hann látinn laus
úr haldi lögreglu og var í fram-
haldinu vistaður á viðeigandi
stofnun.
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu rannsakar nú málið.
- jss
Lögregla leggur hald á fjölda vopna í annað sinn á skömmum tíma:
Vopnasafn fannst við húsleit
VOPNASAFNIÐ Þessi vopn fann lögregla
við húsleit í gær. Þetta er í annað sinn
á skömmum tíma sem lögreglan finnur
fjölda vopna heima hjá einstaklingum.
KRÓATÍA, AP Allt bendir til þess að
íhaldsmenn í Króatíu missi völdin
í þingkosningum á morgun, að því
er virðist einkum vegna spillingar-
mála sem tengjast flokksmönnum.
Það kemur þá væntanlega í hlut
bandalags vinstriflokkanna, sigri
þeir í kosningunum, eins og kann-
anir benda til, að fylgja til enda
aðildarumsókn landsins að ESB.
Aðildarsamningur bíður nú stað-
festingar allra ríkja ESB og er
reiknað með að í júlí á næsta ári
taki aðildin gildi. - gb
Þingkosningar í Króatíu:
Stjórn íhalds-
flokks spáð falli
KÓPAVOGUR Einn starfsmaður
hefur verið ráðinn án auglýsingar í
stjórnkerfi Kópavogs á þessu kjör-
tímabili. Þetta kemur fram í svari
við fyrirspurn tveggja bæjarfull-
trúa minnihluta Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn.
Í svarinu segir að um sé að ræða
starf aðalbókara. Í það var ráðinn
bæjarstarfsmaður „sem ákjósan-
legt þótti“. „Er þessi meðferð í
samræmi við starfsmannastefnu
Kópavogsbæjar um þróun í starfi
auk þess sem skoðun fjármála-
stjóra var sú að tæpast væri hægt
að fá ákjósanlegri starfsmann
í starfið,“ segir í svarinu og að
starfsmaðurinn hafi „þróast með
verkefnum deildarinnar“. - gar
Fyrirspurn svarað í Kópavogi:
Einn ráðinn án
auglýsingar
JADRANKA KOSOR Leiðtogi Króatíska
lýðræðisbandalagsins verður vart for-
sætisráðherra mikið lengur.
STJÓRNSÝSLA Ákveðið hefur verið að
veita fé til byggingar nýs fangelsis
á Hólmsheiði, samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins. Að auki er rætt
um að setja sérstaka fjárupphæð til
nauðsynlegra endurbóta á fangels-
inu á Litla-Hrauni.
Óvissa kom upp um áform
innanríkis ráðherra varðandi fang-
elsisbyggingu þegar fjárlaganefnd
tók fjárheimild til þess úr fjár-
lögum. Björgvin
G. Sigurðsson,
fulltrúi í nefnd-
inni, hefur mjög
talað fyrir því
að áhersla eigi
frekar að vera
á uppbyggingu
á Litla-Hrauni.
Heimildir
Fréttablaðsins
herma að sátt hafi náðst í málinu
í gær.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir málið ekki frá gengið,
en hann sé mjög bjartsýnn á að
málið nái fram að ganga í samræmi
við óskir fagaðila, en þeir hafa mælt
með fangelsi á Hólmsheiði. „Ég hef
átt góðar samræður við fulltrúa
í fjárlaganefnd þingsins og ráðu-
neytismenn og fulltrúar fangelsis-
málastofnunar undanfarna daga og
ég er mjög bjartsýnn á að málið nái
farsællega fram að ganga.“
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segist bjartsýnn á að málið leys-
ist með farsælum hætti og hann
hafi átt nokkra fundi með nefndum
Alþingis þar sem gögnum hafi verið
komið á framfæri og hreinskiptin
umræða átt sér stað.
Byggt á Hólmsheiði
og fé veitt á Hraunið
Samþykkt verður að veita fé til byggingar fangelsis á Hólmsheiði. Farið verður
eftir tillögum fangelsismálayfirvalda. Að auki verður sett fjármagn í endur-
bætur á Litla-Hrauni. Fjárlagafrumvarpið verður afgreitt úr nefnd í dag.
Ögmundur Jónasson er bjartsýnn á að farið verði að óskum fagaðila með
uppbyggingu fangelsis á Hólmsheiði. Hann segir jafnframt mikilvægt að
byggja upp á Litla-Hrauni.
„Ég hef jafnframt lagt mjög ríka áherslu á það að ráðist verði í endur-
bætur á Litla-Hrauni og áform gerð um uppbyggingu þar. Ég hef alltaf lagt
áherslu á að Litla-Hraun verði þungamiðja í fangelsakerfi landsins.“
Litla-Hraun verði þungamiðjan
LITLA-HRAUN Fjárheimild til nauðsynlegra endurbóta á Litla-Hrauni verður bætt
inn á fjárlög 2012, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PÁLL WINKEL
Þá sendi Fangavarðafélag íslands
frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
lýst er yfir heilshugar stuðningi
við stefnu Fangelsismálastofnunar
um uppbyggingu fangelsiskerfis-
ins, þar með nýtt fangelsi á Hólms-
heiði.“
Það er komið nóg af töfum á
þessu brýna verkefni og er varað
við því að Alþingi leggi stein í götu
þessa framfaramáls eins og ráða
má af fréttum,“ segir í yfirlýsing-
unni.
„Við fylgjumst með fram vindunni
og munum ekki taka því þegjandi
ef þessi áform verða stöðvuð eina
ferðina enn. Að sjálfsögðu viljum
við líka áframhaldandi uppbygg-
ingu á Litla-Hrauni á komandi
árum. En þetta eru ekki valkostir.
Hólmsheiðina strax eins og lagt
hefur verið upp með, síðan/og jafn-
framt uppbyggingu á Litla-Hrauni,“
segir jafnframt í yfirlýsingunni.
jss@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is