Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 126
3. desember 2011 LAUGARDAGUR98
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CC Flax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið
lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
www.celsus.is
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
JÓL ÁN AUKAKÍLÓA
- Frábær árangur -
Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan.
Talið gott við bjúg og vökvasöfnun, styrkir
þvagfærakerfið. Fjölbreyttar trefjar, hreinsa
og tryggja góða starfsemi ristilsins.
Lækkar kólestrólfitu, ríkt af Omega-3
PERSÓNAN
Jakob Smári Magnússon
Aldur: 47 ára.
Starf: Tónlistar-
maður.
Búseta: Mos-
fellsbær.
Fjölskylda: Kona
mín heitir Ragna
Sveinbjörnsdóttir
og saman eigum
við synina Ara,
Jökul Smára og
Lárus og dóttur-
ina Sonju Líf
Svavarsdóttur.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Jakob Smári gaf nýverið út plötuna Annar
í bassajólum.
„Ég var tilbúin með lag, dúett með
mér og Jónsa í Svörtum fötum.
Og mér var einfaldlega ráðlagt
að senda það inn. Hitt lagið var
ég búin að vinna með Þorvaldi
Bjarna og ég mat hlutina þannig að
það væri skynsamlegast að senda
lagið inn í keppnina í stað þess að
bíða með útgáfu þess í viku,“ segir
Greta Salóme Stefánsdóttir, fiðlu-
leikari með Sinfóníuhljómsveit
Íslands.
Greta Salóme á tvö lög í Söngva-
keppni Sjónvarpsins. Hún semur
textana sjálf og syngur annað
með Jónsa og hitt með þeim Guð-
rúnu Árnýju Karlsdóttur og Heiðu
Ólafsdóttur. Fiðlan verður auð vitað
innan seilingar, það hefur hún
verið síðan Greta var fjögurra ára.
„Ég hef alltaf verið fiðlu stelpan
á kantinum, hef mikið verið að
spila með alls konar fólki og verið
með annan fótinn í dægurlaga-
tónlistinni,“ segir Greta en að-
dáendur Útsvars gætu munað eftir
henni, hún spilar á fiðlu í einni af
vísbendingaspurningum þáttarins.
Það er saga á bak við lögin tvö.
Lagið með Jónsa er meðal annars
innblásið af harmþrunginni sögu
af forboðnum ástum Ragnheiðar
biskupsdóttur og Daða Halldórs-
sonar. „Lagið varð til í Skálholti
í fyrra. Þetta er svona íslenskt
þjóðlaga-rokkpopp, mjög sterkt og
kraftmikið. Hitt lagið er einlægt
með sterkum texta.“
Seint verður sagt að Eurovision-
keppnin sé háttskrifuð hjá klass-
ískt menntuðu tónlistarfólki en á
því verður væntanlega breyting í
ár. Fyrir utan að vera með limur
í Sinfóníuhljómsveit Íslands er
Greta að klára mastersnám í tón-
list frá Listaháskóla Íslands. Greta
segist finna fyrir miklum stuðn-
ingi frá félögum sínum í Sinfó.
„Þau eru alveg ótrúleg, hvetja
mig áfram og styðja mig hundrað
prósent. Eftir að þetta varð opin-
bert hef ég fengið alveg ótrúlega
jákvæð viðbrögð,“ segir Greta sem
getur auðveldlega reiknað með
hundrað öruggum atkvæðum þar.
„Eitthvað af þeim verður örugg-
lega á upptökunum.“
Eins og það sé ekki nógu tíma-
frekt að vera í Sinfóníuhljómsveit-
inni og spila á tónleikum hér og þar
úti um allan bæ þá stundar hin 25
ára gamla Greta crossfit af mikl-
um móð hjá Crossfit BC. „Kær-
astinn minn á þetta þannig að ég
kemst ekki hjá því að vera í þessu.
Ég er búin að vera í þessu í tæpt ár
og þetta hefur hjálpað mér mikið
enda eiginlega alltaf á hlaupum.“
freyrgigja@frettabladid.is
GRETA SALÓME STEFÁNSDÓTTIR: HEFUR SINFÓNÍUNA Á BAK VIÐ SIG
Fiðlustelpan á kantinum
stígur fram í sviðsljósið
Í NÆGU AÐ SNÚAST Greta Salóme hefur alltaf verið með annan fótinn í dægurtónlist en hún hefur fullan stuðning fólksins í
Sinfóníuhljómsveit Íslands í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þegar Greta hefur tíma leggur hún stund á Crossfit. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það jafnast ekkert á við jólastemminguna í
miðbænum í desember svo við erum að opna
á besta tíma,“ segir Svava Halldórsdóttir
fatahönnuður um búðina Verzlunarfjelagið
sem opnar á næstu dögum á Laugaveginum.
Svava stendur á bak við búðina ásamt
vinkonu sinni, Kolbrúnu Amöndu Hasan,
en báðar eru þær menntaðir fatahönn-
uðir frá Ítalíu og Listaháskóla Íslands og
hanna barnafatnað saman. „Hugmyndin
að búðinni kom vegna þess að okkur gekk
illa að koma barnafatamerkinu okkar í sölu
í búðum og fannst vanta fleiri hönnunar-
búðir á markaðinn. Þetta er frekar þröngur
heimur hérna á Íslandi og stundum erfitt að
komast að,“ segir Svava en hugmyndin er að
hönnuðir komi fyrir bás í verslunarpláss-
inu og selji sínar vörur beint til viðskipta-
vina yfir þennan háannatíma. „Þetta er ekk-
ert ósvipað pop-up mörkuðum þar sem hægt
er að kaupa vöruna beint frá hönnuðinum
nema verslunin verður opin á hverjum degi
í lengri tíma.“
Verzlunarfjelagið verður opið í sex vikur
og var Svava nýbúin að taka við lyklunum
á 250 fm verslunarhúsnæði á Laugavegi
95 þegar Fréttablaðið náði af henni tali.
„Við stefnum á að búa til notalega stemm-
ingu hérna með kaffisölu og alls konar
menningar legum uppákomum eins og
tónlistar atriðum og upplestrum frá rit-
höfundum,“ segir Svava.
Þær taka ennþá við umsóknum frá hönn-
uðum sem vilja selja sínar vörur í mið-
bænum í desember og hægt er að senda
þeim póst á takaskrefid@gmail.com. - áp
Opna nýja verslun á Laugavegi
VERZLUNARFJELAGIÐ Svava Halldórsdóttir og Kol-
brún Amanda Hasan opna Verslunarfjelagið þar sem
hönnuðum býðst að selja vörur sínar í miðbænum í
desember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.
„Ísland er draumaland áhuga-
ljósmyndarans og vonandi fæ
ég tækifæri til að taka nokkrar
myndir. Ég er því miður mjög
tímabundinn en vonandi næ ég
einhverjum myndum,“ segir
óperusöngvarinn Paul Potts en
hann þykir nokkuð liðtækur
áhugaljósmyndari.
Þetta er annað árið í röð sem
Potts kemur hingað til lands til
að syngja á Jólagestum Björg-
vins Halldórssonar og hann seg-
ist kunna ákaflega vel við sig hér.
„Núna hefur veðurfarið reyndar
snúist við, það var allt á kafi í snjó
heima á Englandi þegar ég kom
fyrst en nú er enginn snjór þar en
allt á kafi hér. En þetta bætir bara
góðu bragði við jólastemninguna
sem verður í kvöld,“ segir Potts
en hann mun meðal annars syngja
dúett með hinum unga óperu-
söngvara Sveini Dúa.
Potts viðurkennir að hafa ekki
verið neitt sérstaklega vel að sér
í íslenskri tónlist áður en hann
kom hingað fyrst en upplýsir þó
að bróðir hans hafi verið mikill
Bjarkar-aðdáandi. Og hann kveðst
vera sérstaklega hrifinn af því
hvernig henni takist að endurnýja
sig upp á nýtt. „Ég þekkti því tón-
listina hennar frá því hafa hlustað
á hana inni í herbergi hjá honum.“
- fgg
Tekur myndir af Íslandi
MYNDAR ÍSLAND Paul Potts þykir
liðtækur ljósmyndari og ætlar að nýta
tækifærið á meðan hann dvelst hér til
að taka nokkrar myndir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM