Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 120
3. desember 2011 LAUGARDAGUR92
Kartöfluverksmiðja Þykkvabæjar hf. hefur í
samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands,
ákveðið að innkalla af markaði Kartöflusalat
þar sem það inniheldur sinnep sem aftur
inniheldur hveiti. Hveiti er ekki gefið upp í
innihaldslýsingu.
Hveiti og afurðir búnar til úr þeim eru á lista
yfir ofnæmis – og óþolsvalda og því vara-
samar fyrir
ákveðna neytendahópa. Tekið skal fram
að vörurnar eru skaðlausar neytendum
sem hafa ekki ofnæmi eða óþol fyrir hveiti
(glúten).
Þeir sem eiga vöruna og hafa ofnæmi getað
skilað henni til Kartöfluverksmiðju
Þykkvabæjar hf Austurhrauni 5, Garðabæ
FÓTBOLTI Síðara bindi bókarinnar
um 100 ára sögu Íslandsmótsins
í knattspyrnu kom út í gær.
Umfjöllun þess hefst á Íslands-
mótinu 1966 til þess hundraðasta
sem fór fram nú í sumar. Fyrra
bindið kom út í apríl á þessu ári.
Sigmundur Ó. Steinarsson er
höfundur verksins en þeim Sigur-
steini Gíslasyni og Gunnari Guð-
mundssyni voru afhent fyrstu
eintökin. Þeir eru báðir nífaldir
Íslandsmeistarar í knattspyrnu,
oftast allra núlifandi Íslendinga.
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, sæmdi við það tilefni Sigur-
stein gullmerki KSÍ. Gunnar fékk
gullmerki á síðasta ári á 80 ára
afmæli sínu.
Þrír Íslendingar hafa tíu sinn-
um orðið Íslandsmeistarar, þeir
Frímann Helgason, Hermann
Hermannsson og Tryggvi
Magnús son. - esá
100 ára saga Íslandsmótsins:
Síðara bindið
komið út
HÖFUNDURINN Sigmundur Ó. Steinars-
son ritaði 100 ára sögu Íslandsmótsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lengjubikarkeppni karla
UNDANÚRSLIT
Þór Þorl. - Grindavík 66-80 (40-42)
Þór Þorlákshöfn: Guðmundur Jónsson 18,
Darrin Govens 18/12 fráköst, Darri Hilmarsson
9, Michael Ringgold 8, Baldur Þór Ragnarsson 7,
Marko Latinovic 2, Emil Karel Einarsson 2, Þor-
steinn Már Ragnarsson 2.
Grindavík: J’Nathan Bullock 25/17 fráköst, Ólafur
Ólafsson 14, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14/15
fráköst, Giordan Watson 9/10 stoðsendingar,
Páll Axel Vilbergsson 8, Jóhann Árni Ólafsson 5,
Þorleifur Ólafsson 3, Ómar Örn Sævarsson 2.
Snæfell - Keflavík 88-93 (51-59)
Snæfell: Marquis Sheldon Hall 25, Quincy
Hankins-Cole 22/11 fráköst Jón Ólafur Jónsson
18, Sveinn Arnar Davidsson 9, Hafþór Ingi Gunn-
arsson 5, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5, Ólafur
Torfason 4/6 fráköst.
Keflavík: Jarryd Cole 36/10 fráköst, Steven
Gerard Dagustino 26, Charles Michael Parker
12/6 fráköst/6 stoðsendingar/6 stolnir, Almar
Stefán Guðbrandsson 9/10 fráköst Valur Orri
Valsson 7, Gunnar H. Stefánsson 3.
Úrslitaleikurinn fer fram í dag klukkan 16.00.
Þýska úrvalsdeildin
Bayer Leverkusen - Hoffenheim 2-0
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði fyrstu 80 mínúturnar
í liði Hoffenheim. Þetta var fyrsti leikur hans í
byrjunarliði síðan í október, en Hoffenheim hefur
nú leikið fimm leiki í röð án sigurs.
Ítalska úrvalsdeildin
Genoa - AC Milan 0-2
0-1 Zlatan Ibrahimovic (57.), 0-2 Antonio
Nocerino (79.).
Skoska úrvalsdeildin
Motherwell - Hibernian hætt (0-1)
Leikurinn var blásinn af í hálfleik vegna eldsvoða
í fljóðljósum á vellinum. Guðlaugur Victor Páls-
son var á meðal varamanna Hibernian.
Sænska úrvalsdeildin
Örebro - Jämtland 79-97
Brynjar Þór Björnsson skoraði sjö stig og gaf
fimm stoðsendingar fyrir Jämtland. Liðið kom sér
með sigrinum úr fallsæti.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Grindavík og Keflavík
leika til úrslita í Lengjubikarnum í
dag. Grindavík sigraði Þór frá Þor-
lákshöfn 80-66 og Keflavík lagði
Snæfell að velli 93-88 í undanúr-
slitunum sem leikin voru í DHL-
höll KR-inga í gærkvöld.
Leikur Grindavíkur og Þórs var
spennandi í fyrri hálfleik en varla
meira en það. Grindavík hóf leik-
inn af krafti og náði fjórtán stiga
forystu, 21-7. Með góðri svæðis-
vörn og mikilli baráttu náði Þór
að jafna leikinn fyrir hálfleik en
Grindavík var tveimur stigum yfir
í hálfleik, 42-40.
Öflugir í seinni hálfleik
Grindavík stjórnaði leiknum allan
seinni hálfleikinn fyrir utan síð-
ustu þrjátíu sekúndur þriðja leik-
hluta þegar Þór skoraði tvær
þriggja stiga körfur og minnkaði
muninn í fimm stig 60-55 fyrir síð-
asta leikhlutann.
„Við misstum einbeitingu í smá
stund í lok þriðja leikhluta. Við
vorum búnir að halda þeim í níu
stigum en þá skoruðu þeir tvo
auðvelda opna þrista á þrjátíu síð-
ustu sekúndunum. Ég hafði aldrei
áhyggjur af þessu, við jörðuðum
þá í fráköstum á báðum endum
vallarins,“ sem eru orð að sönnu
hjá Helga Jónasi Guðfinnssyni,
þjálfara Grindavíkur, því Grinda-
vík tók 56 fráköst á móti 39, en þar
af tók Grindavík 21 sóknarfrákast.
Grindvíkingar náðu fljótt
öruggri forystu í fjórða leikhluta
og í þetta sinn gáfu þeir Þórsur-
um aldrei leið inn í leikinn á ný og
lönduðu öruggum sigri.
Þrátt fyrir að úrslitaleikurinn
verði leikinn um miðjan dag í dag
hélt Helgi Jónas byrjunarliði sínu
inni á vellinum allt þar til mínúta
var eftir. „Þetta var það mikilvæg-
ur leikur að ég vildi ekki taka þá út
af fyrr. Það er hægt að skora ansi
mörg stig í körfubolta á stuttum
tíma,“ sagði Helgi Jónas.
Benedikt Guðmundsson sagði
sitt lið hafa þurft að hitta á topp-
leik til að eiga mögulega í sterkt
lið Grindavíkur en taldi upp margt
af því sem brást hjá Þór í leiknum.
„Ég get nefnt tapaða bolta,
fráköst, skotnýtingu erlendra
atvinnumanna, ég get tínt sitt
lítið af hverju til. Þeir taka fullt
af sóknarfráköstum. Við töpum
dýrum boltum þar sem við fáum
hraðaupphlaup á okkur og körfu.
Svo var nýtingin alveg hræðileg
hjá mönnum sem eru vanir að hitta
miklu betur,“ sagði Benedikt eftir
leikinn.
Keflavík hélt út
Leikur Keflavíkur og Snæfells var
eins og svart og hvítt. Fyrri hálf-
leikurinn opinn þar sem liðin gátu
nánast skorað að vild en Keflavík
var 59-51 yfir í hálfleik. Seinni
hálfleikurinn einkenndist af
góðum varnarleik og baráttu.
Keflavík var allan tímann á
undan nema þegar Snæfell komst
yfir undir lok fyrsta leikhluta. Í
seinni hálfleik var Snæfell allt-
af að elta en liðið var aldrei langt
undan og náði að jafna metin
þegar skammt var eftir af leikn-
um, 85-85.
Keflavík leitaði þá til Jarryd
Cole og Steven Gerard, sem fóru
mikinn í leiknum og þeir brugðust
ekki á meðan skotin féllu ekki fyrri
Snæfell. „Við lékum vörnina vel í
seinni hálfleik en hún var léleg í
fyrri hálfleik. Þetta dugði þó að
fæstir hafi trúað því að Keflavík
færi í úrslit. Við gerðum réttu hlut-
ina í lokin, fengum auðveldar körf-
ur,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari Keflavíkur. - gmi
Suðurnesjaslagur um Lengjubikarinn
Grindavík og Keflavík mætast í úrslitum Lengjubikarkeppni karla í dag. Grindvíkingar höfðu betur gegn
Þór frá Þorlákshöfn í undanúrslitunum í gærkövldi og þá vann Keflavík lið Snæfells í spennandi viðureign.
ÁTTI STÓRLEIK Jarryd Cole skoraði 36 stig fyrir Keflavík í sigrinum á Snæfelli í gær og tók þar að auki níu fráköst. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
3ja herb. Einstakt tækifæri ! 2 Nýjar ENDAÍBÚÐIR, 55 ára og eldri.
Stærð 145 fm. 2 íbúðir með suður svölum á 3. og 4. hæð.
Íbúð skiptist í: Forstofu, hjónasvítu m/fataher-
bergi og baðhergi. Svefnherbergi, eldhús, stofu,
borðstofu, baðherbergi og þvottahús í íbúð.
Þægileg og falleg íbúð í nýju lyftuhúsi með
stæði í bílskýli. Verð 39. millj 3. hæð og
40,5 millj 2. hæð.
Boðaþing 8 Kópavogi
3herb.íbúð fyrir fyrir 55 ára og eldri
Opið hús SUNNUDAG frá kl 13-16
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.HUSAVIK.NET Sími 510-3800
OP
IÐ
H
ÚS
Elías Haraldsson, lögg. fasteignasali
' GRAPHIC NEWS
EM 2012
Úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins í Póllandi og Úkraínu, 8. júní til 1. júlí 2012
Efstu tvö liðin úr hverjum riðli komast áfram í fjórðungsúrslit keppninnar.
A-riðill B-riðill C-riðill D-riðill
Pólland
Grikkland
Rússland
Tékkland
Varsjá og Wroclaw
8., 12. og 16. júní
Varsjá 21. júní
A1 gegn B2
27. júní A gegn C Donetsk
HEIMILD: UEFA © GR IC NEWS
28. júní B gegn D Varsjá
Kharkiv og Lviv
9., 13. og 17. júní
Fjórðungsúrslit
Gdansk og Poznan
10., 14. og 18. júní
Kænugarður, Donetsk
11., 15. og 19. júní
Holland
Danmörk
Þýskaland
Portúgal
Spánn
Ítalía
Írland
Króatía
Úkraína
Svíþjóð
Frakkland
England
A B C D
Gdansk 22. júní
A1 gegn B2
Donetsk 23. júní
A1 gegn B2
Kænugarður 24. júní
A1 gegn B2
Undanúrslit
Úrslitaleikur EM 2012
FÓTBOLTI Í gær var dregið í riðla
fyrir EM í knattspyrnu sem fer
fram í Póllandi og Úkraínu næsta
sumar. Heims- og Evrópumeistar-
ar Spánverja eru í sterkum riðli en
dauðariðillinn svokallaði inniheld-
ur Þýskaland, Holland, Danmörku
og Portúgal.
Holland og Þýskaland eru vitan-
lega gamlir erkifjendur og hið
sama má segja um Spán og Ítalíu
sem eru saman í riðli. Þá hafa
grannríkin England og Frakk-
land oft att kappi saman á íþrótta-
vellinum og eru þau saman í D-
riðli. Þau mætast strax í fyrstu
umferð riðlakeppninnar.
Austurblokkin gamla er fyrir-
ferðarmikil í A-riðli en þar dróg-
ust saman Pólland, Rússland,
Tékkland og svo Grikkland sem
varð Evrópumeistari árið 2004.
Opnunarleikur mótsins verður ein-
mitt í þeim riðli, en þá mætast Pól-
land og Grikkland 8. júní í Varsjá.
Úrslitaleikurinn fer fram 1. júlí.
Dregið í riðla fyrir EM í Póllandi og Úkraínu:
Gamlir erkifjendur
mætast á nýjan leik
1. júlí, Ólympíuleikvangurinn í Kænugarði í Úkraínu