Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 13

Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 13
LAUGARDAGUR 3. desember 2011 13 arionbanki.is – 444 7000 Fjármálalæsi - fræðslufundur Almenningur og hlutabréfakaup - hvað ber að hafa í huga? Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, fjallar um hlutabréfakaup á mannamáli. Hlutabréfakaup eru áhættusöm fjárfesting og því er mikilvægt að kynna sér vel það sem þarf að hafa í huga. Fundurinn, sem haldinn verður þriðjudaginn 6. desember í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, hefst kl. 17:30. Léttar veitingar í boði. Allir velkomnir Skráning á arionbanki.is eða hjá þjónustuveri í síma 444-7000. Á fræðslufundinum verður farið yfir það sem ber að hafa í huga við kaup á hlutabréfum þar sem fjárfesting í þeim felur í sér áhættu. Ekki verður fjallað um einstök hlutafélög eða útboð á vegum bankans. ÞÝSKALAND „Við erum komin á nýtt stig í samhæfingu Evrópusam- bandsins,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari í ræðu á þýska þinginu í gær, þar sem hún lýsti hugmyndum sínum um að styrkja efnahagssamstarf evruríkjanna. Nýtt efnahagsbandalag evru- ríkjanna sé nauðsynlegt til að vinna bug á kreppunni og bjarga evrunni, og þetta nýja bandalag fæli í sér strangar fjárlaga reglur með refsiákvæðum. Til þess þurfi að gera breytingar á stofn- sáttmálum Evrópusambandsins, en þær breytingar verði ekki gerð- ar í hvelli. „Einfaldar og hraðvirkar lausnir eru ekki til,“ sagði Merkel. „Þetta er ferli, og það ferli mun standa árum saman.“ Hún sagði nánari útfærslur verða kynntar á mánudaginn í næstu viku, þegar hún hittir Nicolas Sarkozy Frakklands- forseta, en stefnt er að afgreiðslu á leiðtogafundi Evrópusambands- ins í Brussel um miðja vikuna. Ráðamenn Evrópusambands- ríkjanna eru á stöðugum fund- um þessa dagana til að komast að sameiginlegri niðurstöðu, sem gæti styrkt trú fjármálaheimsins á evruna og hjálpað skuldugustu evruríkjunum úr vanda. Í fyrrakvöld flutti Sarkozy ræðu í Frakklandi, þar sem hann lagði áherslu á nauðsyn þess að evru- ríkin verði að tengjast sterkari böndum til að koma í veg fyrir að skuldabákn þeirra gangi af evrunni dauðri. „Við verðum að standa fullkom- lega saman á móti þeim sem efast um stöðugleika evrunnar og veðja á hrun hennar,“ sagði hann. Í gær brá David Cameron, for- sætisráðherra Bretlands, sér síðan yfir Ermarsundið í heimsókn til Frakklands að ræða við Sarkozy. Bretar hafa nokkra sérstöðu þar sem þeir eru ekki með evru, en Cameron sagðist standa heils- hugar að baki því að leysa yrði vandann með því að gera stofnun- um evruríkjanna kleift að sann- færa markaði. Einnig þurfi að efla samkeppnishæfni sumra Evrópu- sambandsríkjanna. „Reyndar þarf ekki að breyta stofnsáttmálum til þess,“ sagði hann, „en ég stend alveg klár á því að ef gera þarf samnings- breytingar þá mun ég sjá til þess að við verjum og styrkjum hags- muni Bretlands.“ gudsteinn@frettabladid.is Merkel útilokar nú allar skyndilausnir Þýskaland vinnur hörðum höndum að því að fá Evrópusambandið til að mynda formlegt efnahagsbandalag til að tryggja ábyrga fjárlagastjórn. Hafnar sem fyrr sameiginlegri skuldabréfaútgáfu. Sarkozy og Cameron hittust í Frakklandi. ANGELA MERKEL Kanslari Þýskalands ítrekar enn á ný andstöðu sína við margvís- legar aðgerðir, sem önnur evruríki hafa viljað grípa til í von um að leysa skulda- vandann á evrusvæðinu. NORDICPHOTOS/AFP AKUREYRI Ríflega helmingur Akureyringa er frekar eða mjög hlynntur því að banna akstur í Hafnarstræti, eða Göngugötunni svokölluðu. 36 prósent eru frekar eða mjög andvíg banni. Þetta eru niðurstöður könnunar á vegum félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri og greint er frá í Akur- eyri Vikublaði. Þar kemur fram að fleiri konur eru hlynntar göngugötu en karl- ar, eða 55 prósent kvenna á móti 45 prósentum karla. Niðurstöð- urnar byggja á 506 svörum við símakönnun sem gerð var um miðjan október. - sv Spurt um akstur í Hafnarstræti: Fleiri hlynntir göngugötu GÖNGUGATAN Á AKUREYRI Helmingur Akureyringa er hlynntur því að loka fyrir umferð í miðbænum. MYND ÚR SAFNI DANMÖRK Amager-maðurinn svo- kallaði neitaði fyrir rétti í gær að hafa nauðgað konu á fimm- tugsaldri árið 2007. Hann er sakaður um tvö morð og átta nauðganir eða kynferðisárásir í nágrenni við Amager í Kaup- mannahöfn á árabilinu 1987 til 2010. Þrátt fyrir að sönnunargögn, meðal annars lífsýni, bendi ein- dregið til sektar mannsins, sem er nú 46 ára gamall, hefur hann neitað sök í öllum málunum. Gert er ráð fyrir að dómur verði upp kveðinn fyrir jól. - þj Réttað yfir Amager-manninum: Segist saklaus af glæpunum Áfram í varðhaldi Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæslu- varðhald til 8. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í austurborginni föstudaginn 18. nóvember. DÓMSMÁL DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á höfuð borgarsvæðinu hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að stela mat úr Bónus fyrir nær tíu þúsund krónur og síðan áfengi úr Vínbúð fyrir nær þrjú þúsund. Þá er maðurinn ákærður fyrir fjársvik, þar sem hann hafi pantað veitingar á matsölu- stað en stungið af án þess að greiða fyrir þær. Loks er hann ákærður fyrir að hafa haft tæpt gramm af marijúana á sér sem lögreglan fann við leit á honum á lögreglustöðinni við Hverfis- götu. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. - jss Ákærður fyrir fjársvik: Sveik út veiting- ar og stal víni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.