Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 32

Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 32
3. desember 2011 LAUGARDAGUR32 ● Fjöldi grínara og listamanna sam- einar krafta sína í skemmti- og söfnunarþætti sem sýndur verður í opinni dagskrá á Stöð 2. ● Aðalkynnar kvöldsins verða Þor- steinn Guðmundsson og Ilmur Kristjánsdóttir en auk þeirra koma fjölmargir listamenn að þættinum. Þeirra á meðal eru Spaugstofan, Steindi Jr., Ari Eldjárn, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Guðlaug Elísa- bet Ólafsdóttir og margir fleiri. ● Þetta verður í fjórða skiptið sem dagur rauða nefsins er haldinn á Íslandi. Í undan- gengin skipti hafa þúsundir Íslendinga bæst í hóp styrktarforeldra UNICEF – heimsforeldra. Þeir fjármunir sem hafa safnast hafa verið notaðir til að bæta aðstæður barna um allan heim. ● Rauðu nefin eru seld um land allt og skátar bjóða þau til sölu. Í ár er um að ræða þrjá mismunandi kar- aktera: Skottu, Skjóðu og Skrepp. Þ au Páll Óskar Hjálm- týsson og Halldóra Geirharðsdóttir hafa hvort um sig leikið margvísleg hlutverk í gegnum sinn lista- feril. Undanfarið hafa þau þau spreytt sig á nýju og krefjandi hlut- verki sem tók verulega á, um leið og það gaf þeim nýja sýn á lífið. Halldóra heimsótti Úganda í fyrra og Haítí í október síðastliðnum en Páll Óskar fór til Afríkuríkisins Síerra Leóne. Fyrrnefnda landið er í sárum eftir náttúruhamfarir, það síðarnefnda eftir borgarastyrjöld. Á báðum stöðum vinnur UNICEF nauðsynlegt starf við að bæta lífs- skilyrði barna og standa vörð um réttindi þeirra. Halldóra: „Ef við viljum breyta heiminum þá byrjum við í grunnin- um. Þess vegna er eitthvað svo rök- rétt að einbeita sér að börnunum.“ Páll Óskar: „Þetta er einmitt inntakið í textanum sem ég var að klára við UNICEF-lagið. Það var dálítil áskorun. Hún fólst í því að fara ekki í klisjurnar: „Save the world, save the children“. Ég held mér hafi tekist þetta ágætlega.“ [Hér lokar Páll Óskar augunum og fer með textann við nýja lagið sem hann gerði fyrir UNICEF: „Megi það byrja með mér.“] Halldóra: „Þetta er alveg gæsa- húð!“ Páll Óskar: „Þetta er bæn í sjálfu sér. Þetta ferðalag mitt, að fá að fara til Síerra Leóne, varð til þess að ég umturnaðist úr því að vera vanmáttugur í það að vera máttug- ur. Það er mjög einfalt. Maður ger- ist heimsforeldri!“ Halldóra: „Einmitt. Við sem erum hérna megin og borgum þurf- um ekki að vita allt sjálf. Til þess er UNICEF-skrifstofan, milliliður- inn, þar sem er greint hvar neyðin er mest og hvað þarf að gera. Við Palli höfum séð að fólkið hjá UNI- CEF er eldhugar, bæði sjálfboða- liðarnir í löndunum sjálfum og starfsfólkið. Heimurinn er fullur af góðu fólki og við viljum öll það sama. Við viljum að hvert einasta barn fái að þroskast og fái grunn- lífsskilyrði. Þetta tekur tíma. Þess vegna þurfum við að hugsa í þrjátíu árum. Ekki í hálfu ári.“ Hér er barn, við þangað! Bæði hrifust þau Páll Óskar og Halldóra af þeirri einföldu sýn sem UNICEF starfar eftir, að öll börn eigi rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar gegn ofbeldi og misnotkun. Páll Óskar: „Mér finnst algjör snilld að UNICEF hefur engar trúarlegar eða pólitískar skoðan- ir. Fókusinn hjá þeim er algjörlega á barnið: „Hér er barn. Það hefur ákveðin réttindi. Við þangað!“ Sagan á bak við samtökin sló mig. Í seinni heimsstyrjöldinni var ráð- ist á konur og börn. Hún var ekki háð uppi á einhverri hæð milli tveggja fylkinga karlmanna. Eftir sat heimurinn í sárum og spurði sig: „Bíddu, hvað gerðist eigin- lega?“ Og þá kom þessi spurning upp – hafa börn engan rétt? Börn voru réttlaust fólk á þessum tíma. Í framhaldinu bjuggu Sameinuðu þjóðirnar barnasáttmálann til. Þar er kveðið á um að öll börn í heim- inum, sama hvar þau búa, eiga rétt á því að lifa, nærast, fá heilsugæslu, menntun, að leika sér … Ef UNICEF grunar að einhvers staðar sé geng- ið á rétt barnsins – þau þangað! Ef UNICEF hefði einhverjar pólitískar eða trúarlegar skoðanir gætu þau ekki starfað.“ Halldóra: „Einmitt. Enda er UNI- CEF oft á meðal þeirra hjálpar- samtaka sem fá að aðstoða börn í löndum þar sem öðrum er meinað aðgengi.“ Páll Óskar: „Þetta eru stærstu barnahjálparsamtök í heimi og þau fá að fara alls staðar inn. Við Hall- dóra fengum aðgang að hlutum sem venjulegt fólk fær aldrei að sjá. Ég er endalaust þakklátur fyrir það. En þetta var áfall. Þetta var eins og að fá að verða vitni að umferðar- slysi. Eins og einhver hefði komið til mín og sagt: „Ég veit það verður umferðarslys hérna á morgun. Ég ætla að bjóða þér að sjá það.“ Gátu skilið vonina eftir Þau urðu bæði tvö vitni að ólýsan- legri þjáningu og eymd á ferðalög- unum. En þau upplifðu líka þakk- læti fólksins yfir því að þau væru þarna og létu sig líf þeirra varða. Halldóra: „Eitt af því sem ég velti fyrir mér, áður en ég tók ákvörðun um að fara, var þetta: Hver er ég, hvít kona frá Íslandi, sem býr við allsnægtir, á nóg að borða og getur sent börnin sín í skóla, hver er ég að fara þangað? Verð ég ekki eins og boðflennan með konfektmolann í munninum að fylgjast með fátæka fólkinu? En svo upplifði ég einmitt hið gagnstæða. Þegar það kemur hvít kona inn í fátækrahverfi, horf- ir í augu barns og spyr: „Hvernig líður þér?“ getur kviknað vonar- neisti hjá því. Þó það sjái aldrei þessa hvítu konu aftur veit það að það er ekki öllum alveg sama. Þetta getur skipt mjög miklu máli. Eina sem maður getur skilið eftir sig er von. Von gefur þér kraft.“ Páll Óskar: „Ég hafði miklar áhyggjur af þessu sama áður en ég lagði af stað. En börnin tóku það burtu frá mér um leið. Alls staðar þar sem ég kom var mér fagnað, börnin föðmuðu mig, dönsuðu og sungu. Ég passaði mig líka alltaf á því, þegar myndavélin var hætt að rúlla, að segja: „Takk fyrir að segja mér þessa sögu. Þú verður að vita það að þessi saga kemur í sjón- varpinu á Íslandi, þar sem fullt af fólki fær að heyra hana. Við vonum að þetta fólk gefi síðan peninga til UNICEF. Þannig að sagan þín er að fara að bjarga fullt af fólki sem þú þekkir ekki neitt.“ Að gefa þeim þetta, vissu um að þau hefðu verið að gera gagn, var meiri háttar. Ég sá ljósið í augum þeirra kvikna. Þau tóku að blika.“ Mikilvægi hreina vatnsins Páll Óskar: „Ég heimsótti nokkur þorp og fann á viðtökunum að þar höfðu góð verk verið unnin. Og hvað fæ ég að sjá? Skóla sem er byggður af UNICEF, vatnsbrunna sem dæla hreinu vatni djúpt neðan úr jörð- inni, hannaða af UNICEF.“ Halldóra: „Þau hjá UNICEF eru sérfræðingar í vatni.Þau hreinsa vatn, sem er algjör grunnforsenda fyrir börn á aldrinum 0 til 2 ára. Það getur verið óbætanlegur skaði fyrir barn að drekka eitrað vatn og lenda í því að fá niðurgang. Hann er önnur algengasta dánarorsök barna í heiminum. Hugsið ykkur það! Það kostar tíu krónur, svona lítið bréf með nauðsynlegum söltum til að binda vatn í líkamanum svo barnið þorni ekki upp og deyi.“ Páll Óskar: „Þessi hjálp sem við getum veitt er ekki flókin. Við gerumst heimsforeldrar. Það kost- ar 2.000 krónur á mánuði. Það er dregið af reikningnum þínum og þú tekur varla eftir því. Ég veit að margir hér á Íslandi eiga um sárt að binda og að hver hundrað kall skiptir það máli. En hvað ef það er sett í það samhengi að hundrað kallinn þinn getur bjargar þrem- ur til fjórum mannslífum? Þarna liggur okkar máttur, búandi í vel- ferðarsamfélagi. Við megum ekki drukkna í okkar eigin kreppu.“ Halldóra: „Ég upplifði svo sterkt á Haítí hvað verðmæti menntun- ar eru mikil. Það að fá menntun, hafa aðgang að hreinu vatni og heilbrigðis þjónustu segir mér að við erum í grunninn svo rík hér á Íslandi. Hér er nóg til. Kreppan verður afstæð í þessu samhengi.“ Halldóra: „Ef við viljum breyta heiminum þá byrjum við í grunninum. Þess vegna er eitthvað svo rökrétt að einbeita sér að börnunum.“ FRAMHALD Á SÍÐU 34 Dagur rauða nefsins verður haldinn 9. desember næstkomandi. Dagurinn er landssöfnun fyrir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. LANDSSÖFNUN UNICEF NÆSTA FÖSTUDAG Við getum breytt heiminum Þau Halldóra Geirharðsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson hafa bæði tvö ferðast til fjarlægra landa með UNICEF, hún til Úganda og Haítí, hann til Síerra Leóne. Þau sögðu Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur frá því hvernig ferðirnar hafa breytt lífi þeirra. Bæði eru þau heilluð af heimssýn UNICEF – að öll börn eigi rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar gegn ofbeldi og misnotkun. FUNDU MÁTT SINN Halldóra Geirharðsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson fóru bæði tvö frá því að upplifa sig vanmáttug yfir í að finna til máttar síns þegar þau urðu vitni að því hvernig stuðningur heimsforeldra skilar sér beint í betri afkomu barna á hrjáðum svæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.