Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 52

Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 52
KYNNING − AUGLÝSINGSpjaldtölvur og myndavélar LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 20112 Í stuttu máli sagt uppfyllir hún allar kröfur sem gerðar eru til venjulegrar tölvu og tekur flestum öðrum fram í hraða og afköstum ásamt því að bjóða upp á óþrjótandi notkunarmögu- leika,“ segir Bjarni Ákason, fram- kvæmdastjóri Apple á Íslandi, um spjaldtölvuna iPad 2 sem hefur notið mikilla vinsælda um allan heim síðan hún kom á markað fyrr á árinu. Allt frá því að bandaríski tölvurisinn Apple kynnti iPad 2 í febrúar var ljóst að mikil eftir- vænting var fyrir tölvunni. Til marks um það mynduðust langar biðraðir óþreyjufullra viðskipta- vina víða um heim þegar hún kom fyrst í verslanir. Bjarni segir notendur ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum enda sé tölvan mun fullkomnari en fyrir- rennari hennar, iPad frá árinu á undan. „Því auk þess að vera bæði hraðari og afkastameiri en fyrsta týpan er önnur kynslóð- in líka þynnri og léttari, vegur ekki nema 600 grömm, þann- ig að hún er fislétt og auðvelt að ferðast með á milli staða. Svo er hún líka búin myndavélum að framan og aftan og hægt að eiga vídeósamtöl í gegnum hana við vini og vandamenn.“ Þá segir Bjarni óupptalinn þann fjölda spennandi forrita sem notendum iPad 2 stendur til boða. „Í sumar fengu Íslending- ar aðgang að vefverslun Apple í Bandaríkjunum, apple.com, og í kjölfarið opnaðist okkur heill heimur af alls kyns spennandi forritum. Allt frá ferðaforritum með GPS-staðsetningartækj- um og upp í sérhæfðari forrit, til dæmis fyrir fólk sem stríðir við sykursýki. Þetta eru forrit fyrir allt sem hugsast getur og ódýr að auki. Við getum keypt þau á sama verði og Bandaríkjamenn og mörg kosta ekki nema einhver 99 sent.“ Traust og á hagstæðu verði Inntur út í þá gagnrýni að iPad 2 sé eingöngu dýrt leikfang, segir Bjarni margt mæla á móti þeirri staðhæfingu. „Í fyrsta lagi myndi ég segja að iPad væri frem- ur ódýr miðað við margar tölv- ur þegar horft er til söluverðs og viðhaldskostnaðar. Við sjáum það einfaldlega af því hversu sárasjaldan er komið með ein- tök í viðgerð á verkstæðið. Enda er viðhaldið náttúrulega miklu minna þegar sami framleiðandi er að hugbúnaði og vélbúnaði. Þá er leikfang ákveðið rang- nefni þar sem iPad 2 má hæglega nýta sem fullkomna vinnutölvu. Hraðinn, afkastagetan, góð raf- hlöðuending, minni og ógrynni vinnutengdra forrita eru vitnis- burður um það. Auk þess er hægt að bæta við tölvuna þráð- eða þráðlausu lyklaborði, upphækk- un og stuðningi þannig að hún minnir á hefðbundna fartölvu eða jafnvel borðtölvu nema að músina vantar. Hún er auðvitað óþörf þar sem skjárinn er snerti- skjár,“ segir hann. iPad 2 fæst í tólf gerðum, þar sem meðal annars er hægt að velja á milli svartrar og hvítrar útgáfu, um þráðlausu staðarnet- in 3G eða Wi-Fi og þrjár gagna- stærðir: 16, 32 og 64. Í öllum til- vikum segir Bjarni Apple hafa lagt gríðarlega alúð í útlitið. „Glæsileg hönnun er auðvitað eitt helsta einkenni á öllu sem frá Apple kemur og það á ekki eingöngu við tölvur heldur alla fylgihluti, tæki, tól, töskur og fleira,“ segir hann og vísar á vef- síðu Apple á Íslandi þar sem nán- ari upplýsingar er að finna. Slóð- in er www.epli.is. iPad2 er uppspretta óþrjótandi möguleika Bandaríski tölvurisinn Apple setti iPad 2 spjaldtölvuna á markað á árinu. Hún þykir taka fyrirrennara sínum og öðrum tölvum fram í hraða, afköstum og notkunarmöguleikum, að sögn Bjarna Ákasonar, framkvæmdastjóra Apple á Íslandi. Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Apple á Íslandi, segir notendur iPad 2 ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum. Tölvan slái fyrirrennara sínum við að flestu leyti og öðrum sambæri- legum tölvum á markaði. MYND/STEFÁN Lófatölvan iPod Touch hefur bæði verið köll-uð hliðstæða iPhone án símamöguleikans og litla systir iPad nema léttari. Að sögn Bjarna Ákasonar, framkvæmdastjóra Apple á Íslandi, hefur iPod Touch notið gríðarlegra vinsælda frá því að hún kom fyrir sjónir almennings á árinu. „Hún hefur selst rosalega vel og virðist falla sér- staklega vel í kramið hjá unga fólkinu,“ segir hann og upplýsir að frá því í mars hafi framleiðandinn Apple selt yfir 60 milljónir eintaka af iPod Touch um allan heim. En af hverju stafa vinsældir tölvunnar? „Í fyrsta lagi keyrir iPod Touch sama stýrikerfið og iPad og iPhone sem útskýrir samlíkinguna. Þess vegna ganga velflest forritin á milli. Þá er iPod Tough búin myndavél og vídeóupptöku- vél og með Wi-Fi og innbyggðum aðgangi að netverslununum iTunes og App Store í Bandaríkjunum sem gerir notendum kleift að hlaða niður tónlist og forrit- um, þar á meðal alls kyns skemmti- legum tölvuleikjum milliliða- laust í tölvuna. Svo er hún vegna stærðar alveg ótrúlega hand- hæg.“ Nánari upplýsingar um iPod Touch má nálgast á vefsíðunni epli.is. Lipur og létt í hendi Lófatölvan iPod Touch hefur átt gríðarlegum vinsældum að fagna frá því að hún kom á markað á árinu. Tölvan er búin helstu eiginleikum iPad og iPhone Tough nema léttari. SPENNANDI NÝJUNGAR iPad Smart Cover iPad Smart Cover-hlífin var hönnuð með iPad 2 í huga og þau eru því fullkomið par. Hlífin er þunn og úr endingargóðu efni sem festir sig auðveldlega með seglum. Hún vekur iPad sjálfkrafa þegar þú opnar hana og auk þess er hægt að rúlla henni upp til að nota sem stand fyrir aukin þægindi við lestur, áhorf á vídeó og ritun. Hlífin fæst í ýmsum litum. Apple Digital AV Adapter Leyfðu iPad að njóta sín á stórum skjá. Apple Digital AV Adapter gefur þér kost á að hafa myndasýningu, kvikmyndir, ljósmyndir og allt það sem birtist á iPad 2 skjánum í HD sjónvarp- inu, myndvarpanum eða skjá sem er með HDMI-tengi. iPad Camera Connection Kit Myndavélatengi sem gefur þér kost á að flytja inn myndir beint úr stafrænu myndavélinni með USB-tengi eða úr SD-minniskorti. iPad styður stöðluð myndasnið, eins og JPEG og RAW, og er því samhæft við flestar myndavélar á markaðnum í dag. ION iCade Upplifðu fyrsta alvöru tölvuleikjatíma- bilið með iCade og iPad. iCade minnir mann einna helst á gömlu spilakassana með stýri- pinnum og tökkum. Kassinn er einfaldur í uppsetningu, en hann tengist þráðlaust við iPad og hægt að nota hann til að stjórna m.a. 100 klassískum Atari-leikjum eins og Asteroids, Centipede og Battlezone sem fást á App Store. Farðu aftur í tímann og fáðu þér iCade! Crayola ColorStudio HD Gerðu iPad að lifandi teiknibók! Með þessum magnaða penna, sem er sérhannaður fyrir litlar hendur, er hægt að notast við sýndarpenna á borð við túss- penna, vaxliti, pensla, tréliti og blekpenna. Ýmsar útfærslur af litabókum fylgja sem hafa að geyma ýmsar hljóð- og tækni- brellur, hreyfimyndir og tónlist þegar maður litar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.