Fréttablaðið - 03.12.2011, Síða 76
KYNNING − AUGLÝSINGSpjaldtölvur og myndavélar LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 20116
Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðum við tvær gerð-ir af spjaldtölvum, annars
vegar 10,1 tommu sem er vinsæl
hjá þeim sem lesa mikið rafbæk-
ur, og 8,9 tommur fyrir þá sem eru
mikið á ferðinni og vilja nettari og
léttari spjaldtölvu,“ segir Sverrir
Jónsson, sölustjóri hjá Bræðrun-
um Ormsson.
Spjaldtölvur hafa fengið góðar
viðtökur um allan heim og ekki
síst hér á Íslandi. En hvað er svona
sniðugt við þessa nýju tækni?
Sverrir segir marga nota spjald-
tölvuna eins og stjórnstöð fyrir
önnur tæki á heimilinu ásamt því
að vera sítengdur við netið.
„Allar Samsung spjaldtölv-
ur geta talað sjálfkrafa við önnur
Samsung tæki, eins og síma, sjón-
vörp, Blu-ray spilara og aðrar
ferðavélar. Þetta eru allt þráðlaus
samskipti og er hægt að stjórna
tónlist og myndum gegnum
spjaldtölvuna. Það sem er einnig
mjög áhugavert við spjaldtölvuna
er að hægt er að vera áskrifandi að
tímaritum rafrænt, hvaðan sem er
úr heiminum í gegnum hana og
áskriftin kostar talsvert minna en
í lausasöu blaða, fyrir utan að þú
týnir aldrei blaðinu og þarft ekki
að farga því,“ segir Sverrir. „Marg-
ar af þeim bókum sem gefnar eru
út í dag koma út í kiljum á ódýrum
pappír og í mjög smáu letri. Spjald-
tölvur henta því til dæmis les-
blindum mjög vel því auðveldlega
er hægt að stækka letrið að vild. Þá
eru inni í mörgum raftímaritum
lítil myndskeið, allt upp í 90 sek-
úndur að lengd og það eykur enn
meira ánægjuna við lesturinn að
geta séð atburðinn sem um ræðir
á myndskeiði líka.“
Munu spjaldtölvur jafnvel leysa
bókina af? „Ég skal ekki segja en
útgáfa rafbóka er mun hagstæð-
ari en hefðbundin prentútgáfa
og umhverfisvænni. Sumstaðar í
heiminum hefur prentun skóla-
bóka á pappír þegar verið hætt
og sumir háskólar hafa hætt allri
úgáfu á námsefni og láta spjald-
tölvuna leysa það mál. En hvort
sem spjaldtölvur verða það sem
notað verður til að lesa allt náms-
efni er annað mál, en þróunin er
hafin í þessa átt.“
Sverrir segir stærstan hóp kaup-
enda spjaldtölva vera á aldrinum
tuttugu til fjörutíu og fimm ára.
Þá kaupi þó nokkuð stór hópur á
aldrinum fimmtíu og fimm og yfir
spjaldtölvur til að hafa með í bú-
staðinn til að fylgjast með frétt-
um, vafra á netið, lesa eða horfa
á kvikmyndir. „Rafhlaðan end-
ist í 9 tíma ef horft
er á kvikmynd-
ir eingöngu en
í um 72 klukku-
stundir ef bara
er hlustað á tón-
list,“ segir Sverrir.
„Einnig er hægt að
fá mikið af íhlutum
fyrir spjaldtölvur,
dokkur, lyklaborð
og f leira.“ Spurður
hvort spjaldtölvan
muni þá jafnvel leysa
fartölvuna af segist hann reyndar
eiga von á nýrri spjaldtölvu sem sé
fullvaxin tölva og sé líklegri kand-
ídat en núverandi spjaldtölvur í að
geta leyst fartölvuna af hólmi.
„Hún heitir Samsung Slate PC
og er væntanleg til okkar í febrúar.
Hún sameinar eiginleika spjald-
tölvu og fartölvu. Sú vél er með
11,6 tommu skjá, Intel i-5 örgjörva
og SSD drif en keyrir í Microsoft-
umhverfi. Hún gæti leyst ferðavél-
ina af í skólann og verið spennandi
kostur fyrir þá sem vilja öfluga vél
með eiginleika spjaldtölvunnar
en er kannski ekki beinn arftaki
heimilistölvunnar. Þó er því spáð
að spjaldtölvan muni taka stóran
hluta af sölu fartölva á markaðn-
um í framtíðinni og sú þróun virð-
ist þegar vera hafin samkvæmt
rannsókn markaðsfyrirtækja.“
Ódýrari áskrift af tímaritum
Spjaldtölvur munu eflaust rata ofan í margan jólapakkann í ár en þessi nýja tækni hefur fengið góðar viðtökur hér á landi eins og um allan heim.
Sverrir Jónsson, sölustjóri hjá Bræðrunum Ormsson ehf., segir spjaldtölvur skemmtilega viðbót í flóru upplýsingatækninnar enda spennandi nýjung
sem geti nýst á margan hátt.
Sverrir Jónsson rekstrarstjóri hjá Bræðrunum Ormsson efh segir spjaldtölvur spennandi nýjung. MYND/GVA
Orðabókin The Oxford Dic-tionary of English skilgrein-ir hugtakið rafbók sem „raf-
ræn útgáfa prentaðrar bókar“ en nú
orðið eru margar bækur einungis
gefnar út á rafrænu formi og aldrei
prentaðar. Mikil umræða hefur átt
sér stað um þá ógn sem prentuðum
bókum standi af rafbókunum og
margir hafa gengið svo langt að lýsa
yfir dauða bókarinnar á því formi
sem við þekkjum. Það eru þó vænt-
anlega óþarfa áhyggjur, hin hefð-
bundna bók mun vafalítið halda
velli, þótt aukin eftirspurn eftir raf-
bókum þýði kannski færri prentuð
eintök af hverri bók og færri útgefna
titla. Rafvæðing bókarinnar býður
hins vegar upp á mikla möguleika
í útgáfumálum og ætti að auðvelda
rithöfundum og öðrum bókaskrif-
urum að koma verkum sínum á
framfæri.
Ævintýrið byrjaði árið 1971
þegar Michael S. Hart, tölvugúrú
hjá Háskólanum í Illinois, skráði
bandarísku sjálfstæðisyfirlýs-
inguna á tölvutækt form. Í fram-
haldinu var hrundið af stað verk-
efni sem nefndist Project Guten-
berg og gekk út á það að skrá sem
f lestar bækur sem þegar höfðu
verið gefnar út á tölvutækt form.
Síðan hafa orðið miklar framfar-
ir í rafrænni útgáfu bóka og í ágúst
2009 var hægt að nálgast yfir 2.000
ókeypis bækur á hinum ýmsu vef-
síðum. Þar fyrir utan hefur orðið
bylting í útgáfu rafbóka sem greitt
er fyrir, enda hefur tækninni í
tölvugeiranum fleygt ansi hratt
fram síðan. Nú lesa menn bækur í
spjaldtölvum, farsímum og kjöltu-
tölvum hvar sem þeir eru stadd-
ir og ekki er lengur í öllum tilfell-
um nauðsynlegt að hlaða bókinni
niður heldur hægt að lesa hana í
sístreymi. Þar fyrir utan benda for-
svarsmenn rafbókanna á að í því
plássi sem venjuleg vasakilja taki sé
hægt að geyma diska með þúsund-
um rafbóka og spara þannig dýr-
mætt plássið inni á heimilinu svo
ekki sé nú minnst á léttari far-
angur á ferðalögum bóka-
orma. Þar að auki sé hægt
að lesa rafbækurnar án
þess að hafa lýsingu sem sé
stór kostur á ferðalögum.
Auk alls þessa benda rafbóka-
ormarnir á að möguleikarnir í út-
gáfu slíkra bóka séu nánast ótæm-
andi og meðal annars sé hægt að
endurvekja gamla framhaldssögu-
formið sem Dostojevskí og f leiri
stórkanónur skrifuðu sínar bækur
í sem framhaldssögur í dagblöð-
um. Höfundur geti þá birt hvern
kafla bókarinnar um leið og hann
hafi verið skrifaður og þannig hald-
ið lesendum í spennu. Margar raf-
bókavefsíður bjóða einnig upp á
þann möguleika að þýða bækurn-
ar jafnóðum og þannig ætti raf-
bókavæðingin að gefa lesendum
færi á að lesa bækur eftir höfunda
sem skrifa á tungumálum sem þeir
skilja ekkert í. Allt eru þetta góðir
kostir sem bókaormar um allan
heim taka fagnandi, en raunveru-
legir bókaelskendur munu þó seint
fórna pappírseintökunum fyrir raf-
ræna strauma.
Rafbókin hefur ótal kosti
en pappírsunnendur efast
Bylting hefur orðið í útgáfu rafbóka á undanförnum árum og sumir óttast um líf hinnar prentuðu bókar. Það eru þó væntanlega óþarfar áhyggjur.
Þrátt fyrir auknar vinsældir rafbóka halda bókaormar fast í prentuðu bækurnar.
Bókaormar munu væntanlega halda fast í prentuð eintök bóka, þótt framboð rafbóka
aukist.