Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 90

Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 90
3. desember 2011 LAUGARDAGUR62 80 ára afmæli JÓN BOÐI BJÖRNSSON Gleðigjafinn síungi, dansarinn Jón Boði Björnsson (Boði), mat- reiðslumeistari og bryti frá Sjónarhóli í Hafnarfirði, nú að Löngufit 24 í Garðabæ er 80 ára, sunnudaginn 4. desember 2011. Það mun gleðja hann mikið að sjá sem flesta samferðamenn, vini og fjölskyldumeðlimi gefa sér tíma til þess að samgleðjast honum. Byrjað verður á marseringu að hætti Boða, naglasúpan margfræga verður á sínum stað, dansað, sungið og glaðst saman. Staðsetningin er Sjónarhóll á Kaplakrika frá kl. 15.00-18.00, Boði afþakkar blóm og gjafir en sparibaukur verður staðsettur við hljómsveitarpallinn og eru framlög vel þegin sem munu renna í ferðasjóð unga mannsins. Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson ÚTFARARÞJÓNUSTA Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is Elskuleg móðir okkar, dóttir og systir, Vera Siemsen, hjúkrunarfræðingur, Lágholti 9, Mosfellsbæ, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 1. desember. Helgi Siemsen Sigurðarson Guðmundur Siemsen Sigurðarson Ólafur Siemsen Sigurðarson Gústav Magnús Siemsen Kristín Siemsen Ásbjörn Sigurgeirsson Ólöf Guðfinna Siemsen Baldur Bjartmarsson Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, Jón Lindberg Friðþjófsson lést að heimili sínu í Pennfield, New Brunswick, þann 19. nóvember. Útför fór fram frá Dartmouth Chapel N.S. 28. nóvember. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Bertelsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Ragnar Björnsson skipstjóri, Framnesvegi 20, Keflavík, áður Garðbraut 56, Garði, lést á Landsspítalanum v/Hringbraut, 25. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 6. desember kl. 13.00. Loftveig Kristín Sigurgeirsdóttir Guðlaug Þóra Sveinsdóttir Baldvin Sigurðsson Sigurgeir Borgfjörð Sveinsson Elín Gunnarsdóttir Björn Sveinsson Elísa Rakel Jakobsdóttir Rósa Sveinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn. Frá Vegagerðinni Mánudaginn 5. desember verða afgreiðsla og skrif- stofur Vegagerðarinnar í Borgartúni lokaðar frá kl. 12 á hádegi, vegna jarðarfarar Auðar Eyvinds. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnar Guðmundur Guðjónsson vélstjóri frá Eyri við Ingólfsfjörð, Strandasýslu, lést sunnudaginn 27. nóvember á Höfða dvalar- og hjúkrunarheimili, Akranesi. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 6. desember kl. 14.00. Sigríður E. Gunnarsdóttir Sveinn T. Þórólfsson Ásdís Gunnarsdóttir Guðrún A. Gunnarsdóttir Ásgeir G. Jónsson Helga Gunnarsdóttir Sigtryggur Karlsson barnabörn og barnabarnabörn timamot@frettabladid.is THOR JENSEN athafnamaður (1863-1947) fæddist þennan dag. „Fjáraflamenn eru frekar ráðsmenn yfir fé sínu en fullkomnir eigendur. Því ber þeim að verja fé sem þeir hafa aflögu til framfara og menningarbóta.“ Á þessum degi árið 1990 fékk Miðnes- hreppur kaupstaðarréttindi og nefndist eftir það Sandgerðisbær. Miðnes- hreppur var stofnaður árið 1886 þegar Rosmhvalaneshreppi var skipt í tvennt eftir endilöngu nesinu. Hélt hinn hlutinn gamla nafninu áfram en hann náði yfir byggðirnar Garð, Leiru og Keflavík. Sandgerðisbær nær yfir alla vestur- strönd Miðness, allt út að Garðskaga. Sandgerði var upphaflega útvegsjörð í betra lagi og bjuggu þar góðbændur, sem aðallega höfðu fiskinn í sjónum að bústofni. Eins og nafnið gefur til kynna er jarðvegur þar mjög sendinn og ekki vel fallinn til ræktunar. Sandurinn var að miklu leyti heftur með umfangsmikilli ræktun melgresis og hleðslu mikils sjóvarnargarðs á fyrri hluta 20. aldar. Heimild: Wikipedia ÞETTA GERÐIST: 3. DESEMBER 1990 Sandgerðisbær verður til „Þetta ár er svokallað Nansen/Amund- sen ár í tilefni þess að 100 ár eru frá því að Roald Amundsen varð fyrstur manna á Suðurpólinn og 150 ár eru frá fæðingu heimskautafarans Fridtjofs Nansen,“ segir Per Landro menningarfulltrúi norska sendiráðsins. Margir viðburðir hafa verið skipulagðir á árinu í tilefni þessa og í gær var opnuð sýning í Ráð- húsi Reykjavíkur um Fridtjof Nansen. „Þessi sýning var fyrst sett upp í Hofi á Akureyri í haust í tengslum við heimsókn utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre,“ segir Per, en tilefni heimsóknarinnar var stofnun Nansen prófessorsstöðu við Háskólann á Akur- eyri. „Háskólanum var síðan gefin þessi sýning og hún hefir hangið þar uppi. Hins vegar fannst okkur tilvalið að leyfa Reykvíkingum að njóta henn- ar líka,“ útskýrir Per en um er að ræða yfirlitssýningu um líf og störf Nansens á veggspjöldum með myndum og texta á ensku. En hver var þessi Nansen? „Hann var norskur heimskautafari, vísindamaður og mannvinur,“ byrjar Per að útskýra. Sem ungur maður var hann afreks- maður á skíðum og skautum en árið 1888 vann hann það afrek að fara fyrir flokki manna á skíðum yfir Grænlands- jökul. „Þá vann hann sér það til frægð- ar að komast norðar en nokkur annar maður hafði áður gert á árunum 1893 til 1896,“ segir Per. Þó að Nansen hafi ekki stundað heim- skautaferðalög eftir þetta voru marg- ir heimskautafarar sem tóku hann sér til fyrirmyndar enda hafði Nansen not- ast við nýjungar bæði í klæðnaði og út- búnaði á ferðum sínum. „Nansen var doktor í dýrafræði og einbeitti sér að haffræði eftir 1896. Hann fór af því tilefni í margar vísinda- ferðir, aðallega á Norður-Atlantshafi,“ segir Per en Nansen var afar þekktur í Noregi bæði meðan hann lifði og ekki síður í dag. Hann var þekktur í þjóðfélaginu enda talaði hann fyrir sjálfstæði Noregs og lagði meðal annarra grunn að aðskiln- aði landsins frá Svíþjóð. Síðasta hluta ævinnar einbeitti Nan- sen sér að starfi innan Þjóðabanda- lagsins. Árið 1922 hlaut hann friðar- verðlaun Nóbels fyrir vinnu sína fyrir fórnarlömb fyrri heimsstyrjaldarinnar og vinnu með flóttamönnum sem hann sinnti allt til dauðadags árið 1930. Því er ljóst að um afar merkan mann er að ræða og ekki úr vegi að skella sér í Ráðhúsið og fræðast nánar um hann. Sendiherra Noregs á íslandi, Dag Wernø Holter, opnaði sýninguna í Ráðhúsinu í gær og mun hún standa fram yfir jól. solveig@frettabladid.is 150 ÁR FRÁ FÆÐINGU FRIDTJOFS NANSEN: SÝNING Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR Landkönnuður og mannvinur VIÐ HLIÐ NANSENS Í tilefni þess að 150 ár eru frá fæðingu heimskautafarans Fridtjof Nansen hefur verið sett upp sýning um Nansen í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hér er menningarfulltrú norska sendiráðsins, Per Landro, við mynd af Nansen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.