Fréttablaðið - 03.12.2011, Side 94
3. desember 2011 LAUGARDAGUR66
krakkar@frettabladid.is
66
WWW.JIGSAWPLANET.COM er vefsíða þar
sem hægt er að púsla á netinu. Púslin eru miserfið.
Í hvaða skóla ertu: Lágafellsskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu: Sporðdreki.
Áttu happatölu? Nei.
Helstu áhugamál/hvað gerirðu í frístundum
þínum? Fótbolti og gítar.
Eftirlætissjónvarpsþáttur: Ég
horfi eiginlega aldrei á sjónvarpið.
Besti matur? Lambalæri.
Eftirlætisdrykkur? Malt og
appelsín.
Hvaða námsgrein er í
eftirlæti? Stærðfræði.
Áttu gæludýr – ef svo
er, hvernig dýr og hvað
heitir það? Köttur=Snotra,
köttur=Salka, hundur=Títla.
Skemmtilegasti dagurinn og af hverju?
Laugar dagur, nammidagur.
Eftirlætistónlistarmaður/hljómsveit?
Steindinn okkar.
Uppáhaldslitur? Gulur.
Hvað gerðirðu í sumar? Fór á fótbolta-
mót á Akureyri, á reiðnámskeið í
Mosó og spilaði fótbolta og lék við
vini mína. Hékk líka í tölvunni, smá
:-) fór tvisvar í útilegu. Svo æfði ég og
spilaði golf í Bakkakoti.
Skemmtilegasta bók sem þú
hefur lesið? Harry Potter og
Fönixreglan.
Hvað ætlarðu að verða
þegar þú ert orðinn stór?
Byggingaverkfræðingur.
Hvað kemur til að þú ert að
gefa út barnaplötu? Ég tel það
bara skyldu mína að sinna eitt-
hvað börnunum í þjóðfélaginu.
Á plötunni eru ný lög og nýir
textar.
Finnst þér ekkert skrítið að
syngja barnalög eftir að hafa
sungið fyrir fullorðna í áratugi?
Jú, það er öðruvísi og mjög gef-
andi því ég fékk að finna fyrir
barninu í sjálfum mér og var
glaður að hafa ekki yfirgefið
það. Fannst ég geta leikið mér
eins og barn í stúdíóinu.
Hvernig tónlist hlustaðir þú
á í uppvextinum? Platan með
Dýrunum í Hálsaskógi var í
uppáhaldi en fyrsta lagið sem
ég man eftir að hafa sungið
hástöfum er Hæ, Stína stuð!
Áttir þú þér uppáhaldssöngv-
ara eða hljómsveit þegar þú
varst krakki? Ég byrjaði svona
þriggja ára að hlusta á djass,
Oskar Peterson, Charles Davis og
fleiri. Svingið heillaði mig strax,
enda var það mikið spilað á heim-
ilinu. En fyrsta hljómsveitin sem
ég hélt upp á var Kiss. Þá var ég
svona sjö, átta ára.
Hvenær söngst þú fyrst opin-
berlega? Það var þegar ég var
fimmtán ára og kom fram í
vinsælum sjónvarpsþætti hjá
Hemma Gunn sem öll þjóðin
horfði á. Ég söng lagið Eltu mig
uppi eftir Guðmund Jónsson í
Sálinni hans Jóns míns.
Platan þín heitir Amma er
best. Af hverju? Ég vil bara
leggja áherslu á hvað ömmur
eru góðar og hlýjar manneskjur.
Átt þú börn sjálfur? Nei, ekki
svo vitað sé.
Hvernig varst þú þegar þú
varst lítill? Ég var ofvirkur eins
og mörg önnur börn sem voru
talin eðlileg þá. Ég átti góða
félaga í Efra-Breiðholtinu og
við höfðum alltaf eitthvað fyrir
stafni úti við, sama hvernig
viðraði. Við spiluðum mikið fót-
bolta og svo var stundum farið
með stelpunum í brennó.
Dreymir þig stundum að þú
sért lítill strákur? Nei, ekki
minnist ég þess. Ég á það bara
inni.
Ferðu oft í tölvuleiki? Nei, ég
er mjög lítið í þeim. Tölvu leikir
eru eflaust þroskandi í hófi en
ég hugsa að of mikil spilun á
þeim geti neikvæð áhrif á börn.
Ég vil að þau tengist frekar
náttúrunni og tel að hreyfing og
hollt mataræði sé grundvallar-
atriði fyrir krakka.
Hvert er þitt mesta prakkara-
strik? Það var þegar ég tók lopa-
peysurnar mínar og seldi þær
í hverfinu. Ég var lopapeysu-
víkingur og amma prjónaði allt-
af nýja og nýja peysu á mig.
AMMA PRJÓNAÐI ALLTAF
NÝJA OG NÝJA PEYSU
Mesta prakkarastrik Geirs Ólafs frá barnæsku var þegar hann tók lopapeysurnar
sem amma hans hafði prjónað á hann og seldi þær í hverfinu sínu. Nú hefur hann
í fyrsta skipti sungið inn á barnaplötu sem heitir Amma er best.
Halldór Jakobsson 11 ára
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Drengur var í sundi þegar
sundlaugarvörðurinn flaut-
aði í flautuna sína og kallaði:
„Hey, hættu að pissa í laug-
ina!“
Þá kallaði drengurinn: „En
allir gera það.“
„Ekki af stökkbrettinu,“ svar-
aði þá vörðurinn.
Hvað heldur sig úti í horni og
ferðast um allan heim?
Svar: Frímerki.
Af hverju hnerraði tölvan?
Svar: Hún var með vírus.
Hvað kallar þú bjúgverpil sem
kemur ekki til baka þegar þú
kastar honum?
Svar: Prik.
Hvað sagði stóri skorsteinninn
við litla skorsteininn?
Svar: Þú ert of ungur til að
reykja.
Ég byrjaði svona þriggja ára að hlusta á
djass, Oskar Peterson, Charles Davis og
f leiri. Svingið heillaði mig strax.