Fréttablaðið - 03.12.2011, Qupperneq 114
3. desember 2011 LAUGARDAGUR86
Tveir áhugamenn um raf-
bækur og íslenska lestrar-
hefð hafa opnað nýja raf-
bókarveitu. Síðan heitir
Emma.is og gefur öllum
landsmönnum tækifæri til
að gefa út sín eigin verk á
rafrænu formi.
„Við sáum strax að það var mik-
ill áhugi fyrir þessu,“ segir Óskar
Þór Þráinsson, sem ásamt Fann-
ari Frey Jónssyni hefur stofnað og
opnað nýja rafbókaveitu, Emmu.
is, þá fyrstu sinnar tegundar á
Íslandi. Um er að ræða vefsíðu þar
sem sjálfstæðir höfundar, útgef-
endur, fyrirtæki og rétthafar
geta gefið út rafbækur fyrir
íslenska lesendur, hvort heldur
sem þeir eru þekktir eða ekki.
Gríðarstór markaður hefur
myndast fyrir rafbækur erlendis,
en þeir Íslendingar sem hafa vilj-
að prófa fyrirbærið hafa hingað
til þurft að láta sér nægja að lesa
bækur á öðrum tungumálum.
Viðbrögðin við möguleikanum á
íslenskum rafbókum hafa verið
geysilega góð að sögn Óskars. „Við
opnum með fjórar bækur
sem ekki hafa verið
gefnar út áður. Annað,
sem við erum sér-
staklega ánægðir með,
er að geta boðið upp á
efni sem er ekki fáan-
legt lengur á prenti, en
mikil eftirspurn er eftir.
Til dæmis hefur Þor-
grímur Þráins son feng-
ið tækifæri til að gera
bók sína, Allt hold er
hey, aðgengilegt fyrir
lesendur aftur hjá okkur, en hún
hefur verið ófáanleg lengi og ekki
fengist endurprentuð.“
Skiptar skoðanir eru um ágæti
rafbóka og sumir eru hræddir
við að þær muni bola prentuðum
bókum út af markaðnum í náinni
framtíð. Óskar segir það af og frá,
enda séu þær hliðstæðar en alls
ekki sami hluturinn. „Svo má ekki
gleyma því að tilkoma rafbóka er
algjör bylting fyrir marga hópa
sem eiga erfitt með hefðbundinn
lestur. Hægt er að stýra textanum
og lestrinum mun meira og sjón-
daprir og lesblindir geta nýtt sér
rafbækur.“
Óskar vonast til þess að Emma
muni skapa vettvang fyrir sköp-
unar- og lestrarglaða Íslendinga.
„Við erum líka að leita að skúffu-
skáldunum. Það sem við erum
kannski spenntastir fyrir er að
þetta er opið öllum. Fólk sem er að
skrifa smásögur, ljóð eða sértækar
bókmenntir líkt og fantasíur getur
þarna gefið út sitt efni og náð til
þeirra lesenda sem hafa áhuga. Ég
held að þetta muni auka fjölbreytni
í íslenskri bókaflóru.“
Og Óskar segir þetta vera næsta
skrefið í aldalangri bókmenntasögu
þjóðarinnar. „Nú þegar eiga rúm-
lega 90 prósent þjóðar-
innar tæki til að lesa
rafbækur. Það er hægt
að nota spjaldtölvur,
lófatölvur, snjallsíma
og venju legar tölvur
til lestrarins. Þetta
er bara spurning um
kynna sér málið og læra
á tæknina.“
bergthora@frettabladid.is
VILJA LÍKA SKÚFFUSKÁLDIN
FRUMKVÖÐLAR Fannar Freyr Jónsson og Óskar Þór Þráinsson segja lófabókaflóðið
vera rétt að byrja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RAFBÓK Svona lítur forsíða
bókar út hjá Emmu.is
Nýr kærasti Jennifer Lopez,,
Casper Smart, ver samband sitt
og stórstjörnunnar með kjafti
og klóm. Á twitter-síðu sinni
segir Smart að fólk eigi að forð-
ast að dæma hluti sem það hafi
ekki hundsvit á en fjölmiðlar þar
vestra efast um að nokkur alvara
búi að baki sambandinu, Lopez sé
bara að nota hann á meðan hún
nær sér eftir skilnaðinn við Marc
Anthony.
Casper og Jennifer kynntust á
tónleikaferðalagi Lopez
um heiminn og hafa
verið óaðskiljanleg
síðan. Vinur dansar-
ans segir að sam-
bandið sé enn
á fyrstu stig-
unum og það
verði bara að
koma í ljós
hvort þarna
sé ein-
hver alvara
á ferð.
„Casper
segir að J.Lo
sé með ótrú-
legan líkama
og samband
þeirra er mjög
líkamlegt.“ Menn
geta síðan bara lagt
sínar merkingar í
hvað þessi orð vinar-
ins þýða. „Enginn veit
hins vegar hvað fram-
tíðin ber í skauti sér en
Casper skemmtir sér
konunglega.“
Kærastinn
sýnir klærnar
GÓÐUR KÆRASTI Casper
Smart ver samband sitt og
Jennifer Lopez með kjafti
og klóm á Twitter.