Fréttablaðið - 03.12.2011, Qupperneq 118
3. desember 2011 LAUGARDAGUR90
sport@frettabladid.is
ARENA SANTOS keppnishöllin þar sem A-riðill heimsmeistaramótsins fer fram tekur um 5.000 áhorfendur í
sæti. Mótshaldarar hafa farið varlega í það að spá fyrir um hve margir áhorfendur muni mæta á leikina sem fram fara í
Santos. Sumir hafa nefnt töluna 1.000 og aðrir eru aðeins bjartsýnni og búast við allt að 2.000 áhorfendum.
UTAN VALLAR
Sigurður Elvar Þórólfsson
segir sína skoðun
Þær eru hrikalegalega
góðar og líklega með
bestu leikmenn mótsins í
sínum röðum. Við verðum
allar að leggjast á eitt.
ANNA ÚRSÚLA GUÐMUNDSDÓTTIR
LEIKMAÐUR ÍSLANDS
Sigurður Elvar
Þórólfsson og
Pjetur Sigurðsson
fjalla um HM í Brasilíu
seth@frettabladid.is – pjetur@365.is
www.tskoli.is
Dreifnám
Tækniskólans
Kvöld og fjarnám
Innritun stendur yfir í:
• Byggingagreinar. Húsasmíði og tækniteiknun
• Rafiðngreinar. Rafvirkjun og rafeindavirkjun
• Skipstjórnargreinar. A, B, C, D og E stig
• Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar.
• Vélstjórnargreinar og málmiðngreinar.
• Meistaraskólann. Nám til iðnmeistara í öllum iðngreinum
Dreifnám er samheiti yfir greinar sem kenndar eru utan
dagskóla, ýmist í fjarnámi eða í staðbundnu kvöldnámi.
Nánari upplýsingar á tskoli.is
Nýr kafli verður skrifaður í dag í
íslenska íþróttasögu þegar kvenna-
landslið Íslands leikur sinn fyrsta leik
á heimsmeistaramótinu í handbolta
hér í Santos í Brasilíu. Ísland hefur
aldrei áður komist í úrslitakeppni
HM og er þetta í annað sinn sem
kvennalandsliðið kemst í lokakeppni
á stórmóti. Evrópumeistaramótið
í Danmörku í fyrra var frumraunin
en þar tapaði Ísland öllum þremur
leikjum sínum.
Það er ekki sjálfgefið að Ísland
sé í þessari stöðu að vera með lið í
úrslitakeppni á stórmóti. Fyrirliðinn
Hrafnhildur Skúladóttir hefur t.d.
beðið eftir þessu tækifæri í 14 ár.
Það þarf allt að ganga upp til þess að
Ísland sé í þessari stöðu. Það er því
hið eina rétta að njóta augnabliks-
ins og njóta þess að horfa á Ísland
keppa í lokakeppni á stórmóti. Við
Íslendingar erum reyndar góðu vanir.
Karlalandsliðið hefur varla misst úr
stórmót á undanförnum árum og
Íslendingar gera miklar kröfur.
Íslenska liðið hefur sett sér það
markmið að komast í 16-liða úrslit.
„Stelpurnar okkar“ ætli sér að ná
árangri. Þær eru ekki hingað komnar
sem ferðamenn. Möguleikarnir eru
til staðar en flest þarf að ganga upp
til þess að liðið verði í hópi fjögurra
efstu í A-riðli. Góð vörn, markvarsla
og mörk úr hraðaupphlaupum verða
lifibrauð Íslands á þessu móti. Ef
það gengur upp er aldrei að vita
hvað gerist í framhaldinu.
Brasilía er gestgjafi heims-
meistaramótsins og er þetta í 20.
sinn sem HM kvenna fer fram. Það
er óhætt að segja að Brasilíumenn
eru ekkert að æsa sig mikið þegar
kemur að ýmsum stórum hlutum
sem tengjast þessu móti. Daginn
fyrir fyrsta leikinn í Arena Santos
var t.d. gríðarlega margt sem átti
eftir að ganga frá. Þar á meðal net-
samband fyrir fjölmarga blaða- og
fréttamenn sem fylgja liðunum.
Þegar spurt var um stöðu mála var
svarið einfalt. „Þetta verður í lagi á
morgun.“ Það er ekkert stress í gangi
hjá mótshöldurum – bara alls ekki.
„Við reddum þessu“ er frasi sem var
örugglega fundinn upp í Brasilíu en
ekki hjá Blikksmiðju Guðmundar á
Akranesi. – Áfram Ísland.
Nýr kafli í íslenskri íþróttasögu
HANDBOLTI Mótherjar Íslands í
fyrsta leiknum á heimsmeistara-
mótinu er Svartfjallaland sem er
til alls líklegt á þessu móti. Flestir
gera ráð fyrir því að Evrópumeist-
aralið Noregs undir stjórn Þóris
Hergeirssonar og Svartfjalla-
land muni berjast um efsta sætið
í A-riðlinum í Santos. Og þessi lið
gætu jafnvel farið alla leið á þessu
móti.
Ísland og Svartfjallaland átt-
ust við í riðlakeppni Evrópumóts-
ins í Danmörku í desember í fyrra
þar sem Ísland tapaði með þriggja
marka mun, 26-23. Forráðamaður
Svartfellinga sagði í gær að mark-
miðin væru skýr. Að tryggja liðinu
farseðil á Ólympíuleikana og þá
kemur ekki margt annað til greina
en að komast í sjálfan úrslitaleik-
inn – í það minnsta.
„Þetta lið sem við erum mæta
er gríðarlega sterkt og í raun bara
félagsliðið Buducnost sem endaði
í öðru sæti í Meistaradeildinni í
fyrra. Og það lið mun að mínu mati
vinna Meistaradeildina í ár. Þetta
er stórt verkefni fyrir okkur,“
sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari
íslenska liðsins, í gær eftir æfingu
liðsins í Arena Santos.
Ákefðin þarf að vera í lagi
„Við þurfum að leggja mikla
áherslu á að ganga út í skytturn-
ar þeirra, og vera með ákefðina í
lagi. Það verður rauði þráðurinn
í okkar leikskipulagi til þess að
byrja með,“ bætti Ágúst við.
Íslenska liðið æfði af mikl-
um krafti í gær á síðustu æfing-
unni fyrir frumsýninguna í dag.
Allir leikmenn liðsins eru heil-
ir og einbeitingin skín úr augum
þeirra. Það er alveg ljóst að leik-
urinn gegn Svartfjallalandi verður
gríðarlega erfiður en Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir er hvergi smeyk.
„Við reynum að negla þær, þær
eru hrikalegalega góðar og lík-
lega með bestu leikmenn mótsins í
sínum röðum. Við verðum allar að
leggjast á eitt og sýna okkar styrk
og það sem hefur leitt okkur hing-
að,“ sagði Anna í gær en það er
ljóst að línumaðurinn mun standa
í ströngu í vörn sem sókn gegn lík-
amlega sterku liði Svartfjallalands
í leiknum í dag.
Fáir iðkendur en mikill áhugi
Íbúafjöldinn í Svartfjallalandi
er aðeins um 700.000 en athygli
vekur að aðeins eitt þúsund skráð-
ir iðkendur eru í handbolta í land-
inu. Til samanburðar eru rúmlega
sex þúsund skráðir iðkendur á
Íslandi. Einn forsvarsmanna liðs-
ins segir að um 50% af landsmönn-
um muni horfa á beinar útsending-
ar frá leikjum liðsins.
Svartfjalland komst, líkt og
Ísland, á HM í gegnum umspil.
Svartfjallaland vann Tékka sam-
anlagt 75-52 í tveimur leikjum.
Ísland vann Úkraínu 61-42 saman-
lagt í tveimur leikjum. Svartfjalla-
land endaði í sjötta sæti á Evrópu-
meistaramótinu í Danmörku í
desember á síðasta ári. Það var í
fyrsta sinn sem Svartfjallaland
komst inn í úrslitakeppni EM en
Íslendingar voru í sömu sporum á
því móti, sem nýliðar.
Reynum að halda okkur á jörðinni
„Það er rosalega gott að vera
komin á stórmót, HM, og allt. En
við erum að reyna að halda okkur
á jörðinni og líta á þetta sem
venjulegan landsleik. Einn leik í
einu og allt það. Þannig er stemn-
ingin í hópnum,“ sagði Hanna Guð-
rún Stefánsdóttir.
„Þetta er stórt verkefni fyrir okkur“
Ísland fær risa prófraun í fyrsta leiknum á HM í Brasilíu en andstæðingurinn, landslið Svartfjallalands, er í
raun eitt besta félagslið heims. Gríðarlega öflugt lið sem gæti farið alla leið á þessu heimsmeistaramóti.
DAGINN FYRIR LEIK Íslensku landsliðskonurnar hafa æft í Santos í Brasilíu síðustu dagana en þar mætir Ísland sterku liði Svart-
fjallalands í frumraun sinni í úrslitakeppni heimsmeistaramóts í handbolta. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Andstæðingur Íslands
á HM í Brasilíu í dag, Svartfjalla-
land, er eitt sterkasta landslið
heimsins. Liðið var nálægt því að
komast í undanúrslit EM í Dan-
mörku í fyrra en endaði með sex
stig líkt og Rúmenía sem náði
öðru sætinu í milliriðlinum og
komst þar með í undanúrslit.
Allir leikmenn liðsins eiga það
sameiginlegt að hafa á einhverj-
um tímapunkti leikið með félags-
liðinu Buducnost frá Podgorica,
höfuðborg Svartfjallalands. Og
að sjálfsögðu er þetta lið meist-
ari í heimalandinu en yfirburðir
liðsins undanfarna tvo áratugi
eru ótrúlegir. Liðið hefur fagnað
meistaratitlinum á hverju vori
frá árinu 1992 eða í tuttugu skipti
í röð.
Dragan Adžic er þjálfari lands-
liðsins og það kemur líklega ekki
á óvart að hann er einnig þjálfari
meistaraliðsins Buducnost. Nán-
ast allir leikmenn Svartfjalla-
lands hafa leikið í einhvern tíma
undir stjórn Adžic hjá Buduc-
nost. - seth
„Landslið“ Svartfjallalands:
Meistarar í 20
ár í röð
ÖFLUG Skyttan Bojana Popovic er ein
allra besta handknattleikskona heimsins
í dag. NORDIC PHOTOS/AFP