Fréttablaðið - 19.12.2011, Side 6

Fréttablaðið - 19.12.2011, Side 6
19. desember 2011 MÁNUDAGUR6 VIÐSKIPTI Danska byggingavörukeðj- an Bygma A/S mun ganga frá kaup- um á Húsasmiðjunni í byrjun þess- arar viku. Heimildir Fréttablaðsins herma að náðst hafi samkomulag milli Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) og dönsku kaupendanna um þá nið- urstöðu. Húsasmiðjan var auglýst til sölu í ágúst síðastliðnum. Alls skiluðu tólf inn óskuldbindandi tilboðum og fimm skuldbindandi tilboðum skömmu síðar. Í byrjun nóvember var síðan ákveðið að ganga til við- ræðna við hæstbjóðanda, Bygma A/S. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins voru viðræður langt komn- ar þegar tilkynning um endurálagn- ingu skatta upp á meira en hálfan milljarð króna barst frá Ríkisskatt- stjóra. Ástæða endurálagningar- innar var að fyrri eigendur Húsa- smiðjunnar nýttu vaxtagreiðslur af lánum sem notuð voru til að kaupa fyrirtækið til skattafrádráttar. Rík- isskattstjóri telur slíkt ekki heimilt. Húsasmiðjan hefur mótmælt end- urálagningunni. Í síðustu viku tókst að ná sam- komulagi milli Bygma og FSÍ um hvernig tekist verður á við endurá- lagninguna verði hún að veruleika. Í kjölfarið var hægt að ganga frá kaupunum. Ástæðu endurálagningarinnar má rekja til þess þegar félag í eigu Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar keypti Húsasmiðjuna sumarið 2002 ásamt Baugi Group, fjárfestingafélagi í meirihlutaeigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl- skyldu. Kaupin fóru fram í gegnum nýstofnað félag sem fékk nafn- ið Eignarhaldsfélag Húsasmiðj- unnar ehf. Árni og Hallbjörn áttu 55% hlut í félaginu en Baugur 45%. Kaupverðið á Húsasmiðjunni var um 5,3 milljarðar króna og var að langmestu leyti tekið að láni. Í byrj- un árs 2004 var Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar síðan sameinað rekstrarfyrirtækinu Húsasmiðjan hf. Í samrunaáætlun kom fram að „við sameininguna renna allar eign- ir, skuldir og skuldbindingar Eign- arhaldsfélags Húsasmiðjunnar ehf. inn í Húsasmiðjuna hf.“. Því voru lánin sem eigendahópurinn tók árið 2002 nú orðin lán Húsasmiðjunnar. Við það hækkuðu skuldir Húsa- smiðjunnar um 4,3 milljarða króna. Snemma árs 2005 seldu Árni og Hallbjörn síðan eignarhluta sinn í Húsasmiðjunni til nýstofnaðs félags í eigu Baugs, Saxbygg og Fjárfest- ingafélagsins Primus, sem var í eigu Hannesar Smárasonar. Það félag fékk sama nafn og félagið, sem áður hafði verið rennt saman við Húsasmiðjuna, Eignarhalds- félag Húsasmiðjunnar ehf. Síðan var sami leikurinn leik- inn aftur. Í mars 2006 var Eign- arhaldsfélag Húsasmiðjunnar og dótturfélög þess sameinuð Húsa- smiðjunni hf. með öllum eignum og skuldum. Sameiningin miðaði við 1. júní 2005. Við það hækkuðu skuldir Húsasmiðjunnar um 2,8 milljarða króna. Samtals hækkuðu skuldir fyrirtækisins því um 7,1 milljarð króna vegna skuldsettra yfirtakna fyrrum eigenda. Landsbankinn breytti samtals 11,2 milljörðum króna af skuldum Húsasmiðjunn- ar í nýtt hlutafé áður en bankinn seldi fyrirtækið til Framtakssjóðs- ins. Skuldir Húsasmiðjunnar í dag eftir þær niðurfærslur eru rúmlega 2,5 milljarðar króna. thordur@frettabladid.is Við tökum gamla rúmið upp í nýtt Hästens eru umhverfisvæn sænsk hágæðarúm sem hafa verið framleidd frá árinu 1852. Komdu og finndu muninn. Dæmi: Marquis 160 x 200: Fullt verð: 616.740 kr Gamla rúmið: -123.350 kr Nú: 493.390 kr Hästens | Grensásvegi 3 | Sími 581 1006 HOLLAND Mörg þúsund hollenskra barna hafa verið beitt kynferðis- legu ofbeldi í kaþólskum stofn- unum frá 1945. Kirkjan greip ekki til nægra aðgerða til þess að koma í veg fyrir ofbeldið, að því er kemur fram í nýrri skýrslu óháðrar rannsóknarnefndar. Eftir að hafa lagt spurning- ar fyrir 34 þúsund einstaklinga dregur nefndin þá ályktun að fimmta hvert barn, sem haft hefur tengsl við kaþólska stofnun, hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Kaþólska kirkjan í Hol- landi hefur ákveðið að greiða fórnarlömbunum bætur. -ibs Kaþólsk börn í Hollandi: Mörg þúsund beitt ofbeldi SVEITARSTJÓRNARMÁL Stefnt er að útgáfu Sögu Garðabæjar á árinu 2013. Bæjarstjóri Garða- bæjar skrifaði á fimmtudag undir samning við Bókaútgáfuna Opnu um að búa bókina til útgáfu. Steinar J. Lúðvíksson hefur unnið að ritun sögunnar fyrir Garðabæ undanfarin ár en hann afhenti í vikunni forseta bæjar- stjórnar Garðabæjar handrit að verkinu upp á hátt í 3.000 blað- síður, að því er fram kemur á vef bæjarfélagsins. „Samkvæmt samningnum sér Opna um for- lagsritstjórn verksins,“ segir þar jafnframt. Áætluð verklok sam- kvæmt samningnum eru 31. des- ember 2012. - óká Saga Garðabæjar kemur út: Handritið hátt í 3.000 blaðsíður Bygma er að ganga frá kaupum á Húsasmiðjunni Verið er að ganga frá kaupum á Húsasmiðjunni. Kaupandinn er danska byggingavörukeðjan Bygma. Ríkis- skattstjóri vill hundruð milljóna frá fyrirtækinu. Hann telur skattafrádrátt ekki hafa verið heimilaðan. HÚSASMIÐJAN Endurálagning Ríkisskattstjóra vegna skuldsettra yfirtakna fyrrum eigenda fyrirtækisins setti stórt strik í reikninginn í söluferlinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Bygma A/S er stærsta byggingavörukeðja Danmerkur. Um 1.350 manns vinna hjá félaginu og það rekur um 50 sölustaði í Danmörku, Svíþjóð og Færeyjum. Félagið var stofnað árið 1952 og hefur heitið Bygma frá árinu 1992. Félagið hefur verið í töluverðum ytri vexti á síðustu árum, sérstaklega í Svíþjóð. Viðskiptablaðið greindi frá því í nóvember að Bygma hefði reynt að kaupa Húsasmiðjuna af Landsbankanum haustið 2009. Um óformlegt tilboð var að ræða sem ekki var tekið til greina, þar sem til stóð að selja fyrirtækið í gegnsæju ferli. Landsbankinn seldi Húsasmiðjuna síðan til Fram- takssjóðs Íslands (FSÍ) án þess að fyrirtækið væri boðið út. FSÍ er síðan að selja Húsasmiðjuna til Bygma eftir að hún var auglýst til sölu í ágúst. Bygma í Danmörku, Svíþjóð og Færeyjum Á að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir landsdómi? JÁ 52% NEI 48% SPURNING DAGSINS Í DAG: Er vírusvörn og eldveggur í tölvunni þinni? Segðu þína skoðun á visir.is Tölfræði Orkuveitu Reykjavíkur um vanskil og lokanir er um margt fróðleg í samhengi við hrunið: Breytt verklag skilar mun betri innheimtu FJÁRMÁL Breyttar aðferðir þjón- ustusviðs Orkuveitu Reykjavík- ur við innheimtu reikninga eru að skila þeim árangri að þeim til- vikum, þar sem grípa þarf til lok- ana, fækkar um meira en helm- ing. Þetta gerist þrátt fyrir að fólk hafi almennt úr minna fé að spila. Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig fjöldi lokana hjá einstak- lingum og fyrirtækjum hefur þró- ast síðustu ár. Skúli Skúlason, framkvæmda- stjóri Þjónustusviðs Orkuveitunn- ar, segir að verklag við innheimtu hafi breyst mikið á umliðnum árum. Fækkun lokana á árunum eftir 2005 megi rekja til bætts verklags, aukinna samskipta við viðskiptavini sem greiðslufall hafi orðið hjá og aukins fyrirsjáanleika lokunaraðgerða Orkuveitunnar. Tölfræðin eftir 2005 er líka athyglisverð í samhengi við hrunið. Greinilegur vandi fólks og fyrirtækja kemur fram árin 2009 og 2010. Hins vegar vekur ekki síður athygli hversu vel fólk stend- ur í skilum á árinu sem er að líða, hverjar sem skýringarnar svo eru á því til viðbótar við breytt verk- lag OR. - shá Fjöldi lokana hjá OR vegna ógreiddra orkureikninga. Einstaklingar og fyrirtæki 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 4.000 3.000 2.000 1.000 0 HEIMILD: OR Undir áhrifum fíkniefna Ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í Fjallabyggð um helgina. Gerð voru upptæk fáein grömm af kannabis- efnum. Þá ók ungur ökumaður út af veginum milli Dalvíkur og Akureyrar. LÖGREGLUFRÉTTIR KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.