Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 Gisting AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s: 897- 5300. Húsnæði óskast Fort Lauderdale - sumarhús á leigu 2011 Hús eða íbúð óskast á leigu á Fort Lauderdale svæðinu frá 24. júní til 3. júlí 2011. Þeir sem áhuga hafa á að leigja frá sér vand- aða eign hringi í síma 862 7651. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt Bílar WWW.BILAPARTAR.IS Eigum nokkra bíla til sölu. Endilega kíkið á heimasíðuna okkar eða á staðinn, Grænamýri 3, Mosfellsbæ. Uppl. í síma 587 7659. HONDA ÁRG. '06 EK. 63 ÞÚS. KM. HONDA JAZZ 1,4I LS. Staðsettur á Nýju Bílahöllinni. Sparneytinn bíll, árgerð 2006, ekinn 63 þ.km. Frekari upplýsingar í síma 567 2277 og 869 5324. Ný ástandsskoðaður, verð 1.490.000. Bón & þvottur Vatnagörðum 16, sími 445-9090 Þvoum, bónum, djúphreinsum, þrífum að innan alla bíla, eins sendibíla, húsbíla og hjólhýsi, eins vélmössum við matt lakk svo það verði sem nýtt. Einnig bjóðum við hrað-gæðaþvott. Öll vinna er handunnin. Opnum kl. 9.00 virka daga og 10.00 laugardaga. Bonogtvottur.is Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Námskeið Leirkrúsin - Spennandi námskeið á haustönn Námskeið í leirmótun, rakú- og tunnubrennsla, leiðsögn á Opinni vinnustofu og tekið á móti hópum. Allar nánari uppl. á www.leir.is og í s. 661 2179 / 555 1809. Vélar & tæki Bílalyftur, Mig rafsuðuhjálmar. Eigum á lager rafstöðvar 2,5 - 30 kw. Mig rafsuðutæki, bílalyftur. Tig Raf- suður, rafsuðuvír og hjálma. BEINN INNFL.- BETRA VERÐ. www.holt1.is S. 895 6662, 435 6662. Til sölu sumarhús Til sölu fokhelt, tilbúið að utan, til flutnings. 85 fm + 55fm milliloft. Ás. verð 12,5 m. (seljandi tekur þátt í flutningskostn.) Upplýsingar í síma 899 5466. haffihar@simnet.is og hafgolan@gmail.com til að fá nánari upplýsingar og myndir. Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, vefslóð: www.tresmidjan.is. Eignarlóðir undir sumarhús til sölu Sýningar laugardag og sunnudag frá kl. 14-17 í landi Kílhrauns á Skeiðum. 50 mínútna akstur frá Reykjavík. Landið er einkar hentugt til skógræktar og útivistar. Falleg fjallasýn. Upplýsingar í símum 824-3040 og 893-4609. Festu þér þinn sælureit í dag. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Verslun Rýmum! 30% afsláttur á vönd- uðum úrum og nýjustu úrin með 15% afslætti í nokkra daga. Mikið úrval af fallegum úrum og full 2ja ára ábyrgð. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, erna.is 39.900 ALHLIÐASÖG - VELTISÖG VIÐ FELLSMÚLA Sími: 585 2888 Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Til sölu Húsbílar HÚSBÍLL ÓSKAST Óska eftir Ford Transit eða Benz hús- bíl, ekki eldri en 2006 árg. Bíll á 1,5 millj. og 5 millj. st. Uppl. 555 1800. Bílaþjónusta ...þegar þú vilt þægindi Kr. 9.990,- Klossar. Leður með hælbandi Litur - Hvítt. Stærðir 35- 42. Bonito ehf. Praxis Faxafeni 10, 108 Reykjavík Sími: 568 2878 Opnunartimi: mánud- föstudag kl. 11.00 - 17.00 www.praxis.is um fyrir þessi 17 ár sem ég fékk að njóta með honum. Þrátt fyrir veikindi hans þá var aldrei neitt að honum að hans eigin sögn, það kom hins vegar að því að veikindi hans náðu yfirhöndinni. Elsku tengdamamma mín. Megi Guð gefa þér styrk í sorginni. Einnig vil ég senda öðrum að- standendum mínar bestu kveðjur og megi Guð vera með ykkur. Ingibjörg Gestsdóttir. Elsku afi, hvað dettur okkur fyrst í hug þegar við hugsum til þín? Auðvitað allar bústaðaferðirn- ar sem fjölskyldan fór í, alveg frá því við vorum pínulitlar. Þú nennt- ir alltaf að koma í fótbolta, fara í yfir og spila við okkur á spil. Ekki má gleyma göngutúrunum þar sem þú fræddir okkur um lífið og til- veruna. Þú hafðir alltaf áhuga á störfum okkar og áhugamálum, fylgdist mjög vel með öllum þrátt fyrir ótrúlegan fjölda afkomenda. Núna seinni árin höfum við séð þig sýna börnum okkar sömu umhyggju og áhuga sem þú sýndir okkur alla tíð. Kærleikurinn á milli ykkar ömmu var einstakur og okkur öllum til fyrirmyndar. Elsku afi, takk fyrir allt. Elsku Matta amma og Adda mamma, við samhryggjumst ykkur innilega vegna fráfalls Óla afa. Ástar- og saknaðarkveðja frá systrunum í Reynilundi 4. Margrét, Matthea og Álfheiður Sigurðardætur. Elsku afi, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég sakna þín ótrúlega mikið. Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku amma mín, Guð gefi þér styrk í sorginni. Kveðja – Róbert Andri afastrákur. Elsku Óli afi. Við systkinin viljum þakka þér fyrir allar þær yndislegu stundir sem við höfum átt saman í gegnum árin. Takk fyrir samræðurnar, góðu ráðin, faðmlögin og hlýjuna í okkar garð. Nú hefur Hákon Marteinn bróð- ir fengið þig til sín. Mikið hefðum við vilja hafa þig lengur hjá okkur en svona er gangur lífsins. Þú varst ungur í anda en líkami þinn var lúinn og þurfti hvíld. Þú áttir erfitt með að sætta þig við veikindin og varst ekki tilbúinn að gefast upp. Þannig varstu alltaf harðákveð- inn í að fara í gönguferðirnar þínar þrátt fyrir veikindin. Nú getur þú gengið um frjáls, laus við meinið. Við erum sannfærð um að Hákon Marteinn gengur þér við hlið. Þeg- ar okkar tími er kominn þá ætlum við systkinin að ganga með ykkur. Með þessu ljóði kveðjum við þig, elsku afi, með þökk fyrir allt. Minninguna um elskulegan afa munum við geyma í huga okkar um ókomna framtíð. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Guð gefi Möttu ömmu og okkur öllum styrk á þessari sorgar- stundu. Hildur Bára, Ólöf Sandra, Sæmundur Þór, Hilmar Freyr og Jóhann Már. Óli afi er dáinn. Þú varst ekkert venjulegur maður, lágvaxinn en samt svo stór. Við eigum svo marg- ar minningar um þig, hvert um sig og öll saman. Þú hafðir gaman af tónlist og söngst vel. Hafðir gaman af að spila og þá sérstaklega kana, en ólsen-ólsen kenndir þú okkur þegar við vorum lítil. Ferðin til Bandaríkjanna þegar Anna og Steve giftu sig er ein sú besta minning sem við eigum um þig, þar vorum við öll saman og nutum hverrar mínútu. Fjölskyldumótið sem var haldið nú í sumar var frábært, Anna, Steve og Ísak voru ekki með okkur þar, en það var svo gott að fá þessa helgi með þér en þú varst orðinn slappur, en tókst samt fullan þátt í söng og skemmtun. Takk, elsku afi okkar, fyrir öll góðu ráðin og skemmtilegu sög- urnar. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson.) Anna og Steve, Steinunn og Arnfreyr, Kristmann og Karítas, Matthías og Berglind. Elsku Óli langafi. Takk fyrir að sýna mér gömlu bílana þína þegar ég kom í heim- sókn í Stafholtið. Það var mjög gaman að sitja með þér inni í sjón- varpsherbergi og leika. Þegar við vorum búnir að leika okkur með bílana þá gengum við alltaf vel frá þeim í fallega kassann sem þú varst búinn að eiga svo lengi. Núna þegar þú ert kominn til Guðs og Hákonar Marteins, nafna míns, þá ætla ég að biðja Möttu langömmu að passa bílana þína fyrir þig og sýna mér og Friðriku Rögnu þá þegar við komum í heimsókn. Þinn Hákon Marteinn. Kveðja til Óla langafa. Við eigum minningar um brosið bjarta, lífsgleði og marga góða stund, um mann sem átti gott og göfugt hjarta sem gengið hefur á guðs síns fund. Hann afi lifa mun um eilífð alla til æðri heima stíga þetta spor. Og eins og blómin fljótt að frosti falla þau fögur lifna aftur næsta vor. (Guðrún Vagnsdóttir) Eygló Ósk, Arney Helga, Rebekka Ýr, Brynjar Már, Kristmann Ísak og Rakel Eva. HINSTA KVEÐJA Elsku afi, minn takk fyrir samveruna sem þú hefur lifað með mér. Ég skal passa ömmu fyrir þig. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Sakna þín. Kveðja, Birgitta Rún afastelpa. Bikarkeppnin Dregið hefur verið í fjórðu umferð bikarkeppninnar en nú eru aðeins 8 lið eftir í keppninni. Eftirtaldar sveitir spila saman: Garðsapótek – Hf. Verðbréf VÍS – Rúnar Einarsson Skeljungur – Júlíus Sigurjónss. Sigurður Vilhjálmss.– Gylfi Baldurss. Leikjunum skal lokið fyrir 5. sept- ember. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 17. ágúst var spilað á 14 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S: Erla Sigurjónsd. – Ólafur Ingvarsson 390 Þorleifur Þórarinss. – Guðm. Pétursson 372 Bjarnar Ingimars. – Bragi Björnss. 352 Ragnar Björnss. – Pétur Antonsson 345 A/V: Anton Jónsson – Sigurður Hallgrímss. 373 Skarphéðinn Lýðss. – Eiríkur Eiríkss. 364 Sigríður Gunnarsd. – Lilja Kristjánsd. 348 Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 348 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.