Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
SIFFONBOLIR
Verð 5.900 kr.
Litur: svart, gegnsæir
Rýmum fyrir nýjum vörum,
vetrayfirhafnir á útsölu, ULLARKÁPUR,
ALLRA VEÐRAKÁPUR OG JAKKAR
SUMARFATNAÐUR 60-70% AFSLÁTTUR
Nýjar vörur streyma inn
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Niðurstöður mælinga sem Heil-
brigðiseftirlit Suðurlands fram-
kvæmdi á grunn- og neysluvatni í
landi Kárastaða á Þingvöllum sýna
verulega saurkólímengun í vatninu.
Sumarbústaðaeigendur á svæð-
inu þurfa því að sjóða allt neyslu-
vatn og sömuleiðis er fólk varað við
berjatínslu á svæðinu. Mengunin
getur varað allt að því mánuð í
grunnvatni. Að sögn sérfræðings
heilbrigðiseftirlitsins getur neysla
vatnsins valdið slæmum maga-
verkjum.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands
fundaði sérstaklega um málið í gær
ásamt heilbrigðiseftirliti umdæm-
isins.
„Niðurstöður mælinga sýna það
mikla mengun í drykkjarvatni sum-
arbústaða á svæðinu að vatnið er
ekki drykkjarhæft og sömuleiðis er
yfirborðsvatn á svæðinu mjög
mengað,“ segir Birgir Þórðarson,
heilbrigðisfulltrúi á umhverfis og
mengunarsviði Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands. Hann segir að áfram
verði fylgst með svæðinu.
Geta misst starfsleyfið
Stafsmenn Holræsa- og stíflu-
þjónustu Suðurlands voru síðasta
föstudag staðnir að verki við að
losa seyruvökva í mosavaxinn
kjarrmóa sem liggur innan vatns-
verndarsvæðis Þingvallavatns.
Fram kom í Morgunblaðinu í
gær að sumarbústaðaeigendur á
svæðinu hefðui kært atvikið til lög-
reglu. Heilbrigðiseftirlitið hefur
einnig veitt eiganda stífluþjónust-
unnar áminningu. Slík áminning
getur verið undanfari þess að fyr-
irtækið missi starfsleyfið. Holræsa-
og stífluþjónustu Suðurlands var
einnig gert að hreinsa upp eftir
sig, þar á meðal dæla upp úr tjörn-
um á svæðinu. Þar að auki þarf
fyrirtækið að greiða fyrir allar
rannsóknir heilbrigðiseftirlitsins á
vatninu.
Herða reglur og eftirlit
„Þetta er óafsakanlegt og við lít-
um svo á að fyrirtækið geti með
engum hætti komið með skýringar
sem eru boðlegar eða mark á tak-
andi fyrir þessum atburði,“ segir
Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum. Hann krefst
þess að framvegis verði starfsmenn
þjóðgarðsins látnir vita þegar tæki
af þessu tagi komi inn í þjóðgarð-
inn til verkefna á þessu sviði.
„Hér eftir munum við standa
fyrir auknu eftirliti. Hingað til hef-
ur ekki verið talin ástæða fyrir
slíku en við munum ekki sætta
okkur við að svona lagað gerist aft-
ur.“
Seyruber
Mengunin hefur ekki
aðeins áhrif á neysluvatn
heldur er móinn sem
seyruvökvinn var losaður
í vinsæll til berjatínslu.
Til stendur að setja
upp merkingar á
svæðinu til að vara
fólk við umræddri
mengun.
Tíni ekki ber á
mengaða svæðinu
Vatn í landi Kárastaða við Þingvelli er ódrykkjarhæft
Páll Magnússon útvarpsstjóri fer
hörðum orðum um það sem hann kall-
ar „greiðasemi“ Landsbankans við
Jón Ásgeir Jóhannesson í viðtali sem
birtist í Viðskiptablaðinu í gær.
Páll segir Landsbankann, sem þá
var kominn í eigu ríkisins, hafa gert
Jóni kleift að
halda stjórn sinni
á fjölmiðlum 365 í
kjölfar hruns
bankakerfisins í
október 2008.
Þetta hafi verið
gert með því að
færa hina eigin-
legu fjölmiðla á
milli félaga en
skilja stórar
skuldbindingar eftir, eftir linnulaust
tap og gargandi vitlausar fjárfesting-
ar árin á undan, svo sem í blaðaútgáfu
í Danmörku og Bandaríkjunum,
kaupum á prentsmiðju í Bretlandi og
rekstri NFS hér á Íslandi.“ Hefði
þetta ekki verið gert hefði rekstur
þeirra farið rakleitt í þrot. Eignar-
hlutur ríkisins í Landsbankanum er í
dag um 81%.
„Allar þessar tilfæringar voru
gerðar með tilstyrk Landsbankans,
sem þá var orðinn ríkisbanki, og
höfðu tvíþættan tilgang: annars vegar
að tryggja eignarhald og yfirráð Jóns
Ásgeirs fyrir fjölmiðlunum, en hins
vegar koma skuldunum yfir á ein-
hverja aðra, þar með talda skattgreið-
endur sem voru orðnir eigendur
bankans,“ segir Páll. 365 miðlar, sem
eiga og reka meðal annars Bylgjuna,
Stöð 2 og Fréttablaðið, eru í dag að
stærstum hluta í eigu Ingibjargar
Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs,
en hún á ríflega 90% hlut í félaginu.
Arion banki tók við keflinu
Páll segir Arion banka hafa tekið
við í greiðaseminni með því að láta
„það viðgangast að svo gott sem allt
auglýsingafé stærstu verslanakeðju
landsins renni óskipt til 365, þvert á
öll viðskiptasjónarmið“. Með þessu
hagnist fyrrverandi eigandi, Jón Ás-
geir, „á kostnað núverandi eiganda“,
Arion banka. Arion banki á nú 95,7
prósenta hlut í Högum í gegnum
eignarhaldsfélagið 1998 ehf.
Páll bætir því við að Jón Ásgeir hafi
látið „bera mikið fé“ á áhrifamikla
stjórnmálamenn í Sjálfstæðisflokki
og Samfylkingu. Páll segir Jón líklega
hafa gert það „til að öðlast einhvers
konar tök á þeim og auka líkur á að
þeir beittu sér fyrir ákvörðunum sem
væru honum í hag. Eignarhald á
stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins
getur verið enn betri leið til að öðlast
slík tök á ístöðulitlum stjórnmála-
flokkum og stjórnmálamönnum“.
Ágæt samskipti við RÚV
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
kvaðst ekki hafa séð viðtalið í Við-
skiptablaðinu. Hann segir samskipti
Haga við Ríkisútvarpið hafa verið
ágæt í gegnum tíðina og hann voni að
svo verði áfram. „Við erum að kaupa
auglýsingar af þeim og ég reikna með
að við gerum það áfram enda er þetta
flottur fjölmiðill,“ sagði Finnur í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hvorki náðist í Höskuld Ólafsson,
bankastjóra Arion banka, né Steinþór
Pálsson, bankastjóra Landsbankans,
við vinnslu fréttarinnar.
einarorn@mbl.is
Segir Jón hafa
fengið óeðlilega
fyrirgreiðslu
Útvarpsstjóri gagnrýnir Landsbank-
ann og Arion banka í Viðskiptablaðinu
Gagnrýnir eignarhald
» Páll segir um meinta greiða-
semi bankanna við Jón Ásgeir
að þannig gangi „banki undir
banka hönd við að tryggja
einsmannseignarhald á
stærsta fjölmiðlafyrirtæki
landsins. Af þessu eignarhaldi
stafar það sem menn kalla
núna því fína nafni lýðræð-
ishalli.“
» Á fyrri hluta þessa árs birt-
ust 95% sjónvarpsauglýsinga
Haga í sjónvarpsstöðvum 365.
Páll Magnússon
„Reglurnar eru alveg skýrar
og þá sérstaklega á þessum
stað þar sem mjög strangar
reglur gilda um vatnsvernd
innan þjóðgarðsins á Þingvöll-
um,“ segir Kristín Linda Árna-
dóttir, forstjóri Umhverf-
isstofnunar.
Kristín segir aðeins heimilt
að losa seyruvökva á til-
teknum urðunarstöðum.
Stofnunin líti málið mjög al-
varlegum augum. Sérstaklega
þar sem um sé að ræða fyr-
irtæki með starfsleyfi sem
gefi sig út fyrir þessa þjón-
ustu. Ekki sé hægt að tala um
mistök einstaklings í þessu
sambandi.
„Í Reykjavík fer til dæmis
allt skólp í gegnum hreinsi-
stöðvar sem er síðan dælt
ákveðið langt út í sjó en þar
sem slíkt er ekki fyrir hendi
eru gerðar kröfur um þriðja
hreinsunarstigið sem fer
fram í stórum hreinsi-
tönkum áður en urðun
fer fram.“
Kristín Linda segir
mikilvægt að á svona
málum sé tekið bæði
hratt og örugglega
en slíkt sendi skýr
skilaboð út í sam-
félagið.
Losi aðeins á
losunarstöðum
UMHVERFISSTOFNUN
Kristín Linda Árnadóttir
Grunnkort: LMÍ
Saurmengun
Mörk þjóðgarðar
Kárastaðir
Þingvallavatn
Úlfljótsvatn
(Mosfellsbær)
(Nesjavallaleið)
Almannagjá
„Vonandi koma fleiri Færeyingar til
meðferðar hér á landi. Það styður
okkur í því að halda uppi eðlilegri
starfsemi á meðan á kreppunni
stendur,“ segir Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans. Samningur
sem Landspítalinn hefur gert við
heilbrigðisyfirvöld í Færeyjum
skapar möguleika til að fleiri sjúk-
lingar frá Færeyjum komi hingað til
læknismeðferðar.
Landspítalinn og færeyska heil-
brigðisráðuneytið gerðu ramma-
samning um sölu sjúkrahúsþjónustu
Landspítala til færeysku sjúkrahús-
anna. Samkvæmt honum verður
sjúklingum sem Færeyingar þurfa
að senda til annarra landa vísað til
Landspítala til jafns við önnur nor-
ræn háskólasjúkrahús. Jafnframt
verður efld samvinna milli landanna
með það að markmiði að færeyskum
sjúklingum verði í vaxandi mæli
beint til Landspítalans.
Nokkur hundruð milljónir
Tiltölulega fáir færeyskir sjúklingar
hafa leitað hingað til lands til þessa
enda hafa þeir aðallega verið sendir
til Danmerkur og Svíþjóðar. Björn
segir enn óljóst hversu margir sjúk-
lingar muni koma hingað til lands.
Hann vekur athygli á því að Fær-
eyingar verja 2,8 milljörðum kr. á
ári til meðferðar sjúklinga erlendis.
„Við vonumst til að ná meðhöndlun
fyrir nokkur hundruð milljónir
króna en tíminn verður að leiða það í
ljós,“ segir Björn. helgi@mbl.is
Fleiri sjúklingar
frá Færeyjum
LSH semur við færeysk yfirvöld
Morgunblaðið/Ómar
Sjúkrahús Landspítali vonast til að
fá aukin verkefni frá Færeyjum.