Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 ✝ HallgrímurBjörgvinsson fæddist á Akranesi 31. desember 1975. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 10. ágúst 2010. Foreldrar hans eru Guðrún Bóel Hallgrímsdóttir, f. 8. janúar 1955 og Björgvin Karlsson, f. 21. mars 1957. Bræður Hallgríms eru: 1) Kristinn, f. 26. maí 1980, maki Elva Hlín Harðardóttir, f. 9. mars 1980, þeirra börn eru Dagný Katla, f. 24. nóvember en fór aftur í FNv á vorönn 1994 og lauk þaðan stúdentsprófi á fé- lagsfræðibraut vorið 1997. Í skólafríum vann Hallgrímur m.a. í rækjuverksmiðjunni á Skaga- strönd og á togurum Skagstrend- ings, þar sem hann bjó ásamt fjölskyldu sinni á Skagaströnd árin 1981 til 1995, en þá flutti fjölskyldan í Mosfellsbæ. Eftir stúdentspróf innritaði hann sig í Háskóla Íslands en fann sig ekki þar, og vann við ýmis störf næstu árin. Hallgrímur greindist með geðhvarfasýki árið 2001 og tókst á við þau vandamál sem því fylgja af miklu æðruleysi og ein- urð. Straumhvörf urðu í lífi hans árið 2003 þegar hann stofnaði ásamt vinum sínum og fagaðilum Hugarafl. Ásamt störfum í Hug- arafli vann hann í Hlutverkasetri til hinsta dags. Útför Hallgríms fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 20. ágúst 2010, og hefst athöfnin kl. 13. 2006 og Hólmar Darri, f. 10. desem- ber 2008, 2) Loftur Árni, f. 1. maí 1983, maki Christiane Klee, f. 16. febrúar 1975. Hallgrímur stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi 1991- 1992, en skipti yfir í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauð- árkróki haustið 1992. Síðan var hann skiptinemi í Tasmaníu í Ástralíu árið 1993 á vegum AFS, Elsku drengurinn okkar og bróð- ir. Það er huggun harmi gegn að vita að þú ert í góðum höndum hjá öfunum þínum, ömmu og litla engl- inum. Illa dreymir drenginn minn: Drottinn, sendu engil þinn vöggu hans að vaka hjá, vondum draumum stjaka frá. Láttu hann dreyma líf og yl, ljós og allt, sem gott er til, ást og von og traust og trú, taktu hann strax í fóstur nú. Langa og fagra lífsins braut leiddu hann gegnum sæld og þraut. Verði hann besta barnið þitt. Bænheyrðu nú kvakið mitt, svo ég megi sætt og rótt sofa dauðans löngu nótt. (Páll Ólafsson) Með ást og söknuði. Pabbi, mamma, Kristinn, Loft- ur og fjölskyldur. Elsku Halli minn. Það er svo ótrúlegt að þú skulir vera farinn frá okkur. Við höfum þekkt þig alla þína ævi, sambandið á milli fjöl- dskyldnanna hefur ætíð verið mikið og gott, og við Dóri höfum alltaf lit- ið á þig og bræður þína eins og strákana okkar. Þið Jón Karl eruð jafnaldrar og hafið frá fyrstu tíð verið bestu vinir, og hefur sú vin- átta ávallt haldist. Minningarnar um þig eru margar og góðar, allar samverustundirnar á Lokastígnum, í sveitinni á Kambi, á Skagaströnd, hér á Akranesi þar sem þú bjóst hjá okkur þegar þú varst hér í FVA, og svo í Mosó. Alltaf mundir þú eftir að færa mér fingurbjargir í safnið mitt ef þú fórst til útlanda. Þær eru margar frá þér í skápunum mínum og minna mig á tryggð þína við mig. Í huga mínum geymi ég myndina af þér, fallega brosinu þínu og glettnu augunum. Elsku Bjöggi, Bóel, Kiddi, Elva, Loftur, Kris, Dagný og Hólmar, missir ykkar er mikill, en minningin um ljúfan dreng lifir áfram í hjörtum okkar. Með innilegum kveðjum frá okk- ur Dóra, og þakklæti fyrir góðar stundir. Þín frænka, Sæbjörg (Sæja). Elsku Halli minn, nú leggur þú upp í þína síðustu ferð, og eftir sitj- um við vinirnir og fjölskyldan og söknum þín. Þakka þér fyrir sam- fylgdina í gegnum öll árin, takk fyr- ir að reynast jafn góður vinur og þú varst. Takk fyrir að vera „besti frændi í heimi“. Takk fyrir allar samverustundirnar sem við áttum. Takk fyrir alla kaffibollana sem við drukkum saman, sögurnar sem þú sagðir mér, lögin sem þú söngst fyr- ir mig. Takk fyrir að koma mér allt- af til að hlæja þegar illa lá á mér. Takk fyrir öll „Halla-knúsin“ og góðlátlegu stríðnisorðin þín. En fyrst og fremst: Takk fyrir að vera þú. Þú varst engum líkur. Það er ég alveg viss um að þegar við hittumst næst, þá eigir þú eftir að taka á móti mér með „Halla-knúsi“ og kossi á báðar kinnar eins og þú varst vanur að gera, klappa mér góðlátlega á bakið og segja: „Jæja kerling, komum og fáum okkur kaffi.“ Stoppi hver klukka! Klippið símavír! Og kastið beini’ í seppa. Hann er há- vært dýr. Píanó þagni! Deyfðan trumbudyn! Sjá, hér er kistan. Syrgið látinn vin! (W.H. Auden/Þorsteinn Gylfason.) Ragnheiður Hjálmarsdóttir. Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Hvað verður um mig ef það sem ég er er bölvað og bann- að? Er þá líf mitt, að fela mig og vera feiminn, mitt líf, var það til þess sem ég kom í heiminn? Fúlt finnst mér það líf að fá ekki að segja: Ég er eins og ég er! Ég er eins og ég er, og hvernig ég er er alveg á hreinu. Ég er eins og ég er og biðst ekki afsökunar á neinu. Þetta er eitt líf, þetta er eina lífið sem við eigum eitt líf, og það verður ekkert líf í leyn- um. Ljúft verður það líf að láta það flakka: Ég er eins og ég er! (Hafsteinn Þórólfsson) Takk, Halli frændi, fyrir að vera þú sjálfur, og vera öðrum fyrirmynd um að gera það sama. Elska þig, sakna þín, takk fyrir þann tíma sem við þó fengum. Þín litla frænka, Reynhildur. Hæ Halli. Mikið vildi ég geta hringt í þig til að leita ráða hjá þér með hvernig maður skrifar minningargrein. Allt- af gastu hjálpað manni við að greiða úr vandamálum. Líklega hefðir þú sagt mér að skrifa það sem ég vildi og vera ekkert að hugsa um hvað öðrum fyndist um það. Ég vona að þegar minn tími kemur hafi einhver jafn góðar minningar um mig og ég hef um þig. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Hvíl í friði, kæri frændi, Grétar. Hallgrímur frændi minn er farinn frá okkur alltof snemma. Ég man ekki hvenær ég sá Halla fyrst enda bara tæp 3 ár á milli okkar í aldri, en ég man eftir litlum strák með rauðan blett á höfðinu sem átti heima rétt hjá stóru kirkjunni í Reykjavík. Margar góðar og skemmtilegar minningar koma upp í hugann þeg- ar ég hugsa um Halla. Ég man til dæmis eftir okkur frændsystkinun- um á Lokastígnum í desember fyrir ca. 30 árum, við höfðum fengið súkkulaðidagatal, trúlega í fyrsta skipti, þetta var auðvitað mjög spennandi og erfitt að bíða alltaf eftir nýjum degi til að fá annan mola; við fundum út það snjallræði að smakka smá á öllum molunum í dagatalinu en bara smá af hverjum mola og svo var hann settur á sinn stað aftur, ekki voru foreldrar okk- ar sérstaklega ánægðir með þetta uppátæki okkar. Fjölskyldur okkar hafa alltaf ver- ið mjög mikið saman, enda feður okkar bræður. Við komum oft í heimsókn á Skagaströnd þegar þið bjugguð þar, og þið komuð oft í sveitina til okkar. Það var mjög spennandi að koma á Skagaströnd og geta farið með þér á skólalóðina þar sem voru svo flott leiktæki, í Kántrýbæ að fá ís og svo var stund- um bíó í félagsheimilinu en mest fannst mér gaman þegar við komum norður að vetri til að fá að fara með þér í sunnudagaskólann. Á sumrin fóru svo fjölskyldurnar oft saman í sumarbústað eða ferðalög og þá var nú ýmislegt brallað. Þegar þú varst á 16. ári var fjöl- skyldan mín flutt á Akranes og þú fluttir til okkar til að fara í Fjöl- brautaskólann, þið Jón Karl deilduð herbergi enda jafn gamlir og voruð alla tíð miklir mátar. Við fórum allt- af þrír saman í skólann á morgnana en ég var þá komin með bílpróf og var með bíl en ég verð nú að segja að oft munaði nú litlu að ég skildi þig og Jón Karl eftir, enda voruð þið á þessum tíma ekki miklir morgunhanar og alltaf á síðustu mínútu að mér fannst. Þegar þú komst til baka frá Ástr- alíu eftir ársdvöl hélstu áfram í skóla á Sauðárkróki en þá var ég flutt þangað, þá komstu stundum til mín til að fá lánaðan hjá mér bílinn til að fara á rúntinn eða skreppa í smá-heimsókn út í sveit. Síðustu árin höfum við kannski ekki hist svo oft enda höfum við bú- ið hvort í sínum landshlutanum en alltaf var nú gaman að hitta þig og spjalla við þig, Halli minn. Elsku Bjöggi, Bóel, Kiddi, Loft- ur, Elva, Chris, Dagný og Hólmar Ég, Baddi og Finnbogi sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (HJH) Elsku Halli minn, ég mun sakna þín óendanlega mikið. Unnur Ólöf. Elsku Hallgrímur. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar þú komst á Hvítabandið til endurhæfingar þar sem ég starfaði sem iðjuþjálfi. Samstarf okkar hófst og varð upphaf dýrmætrar vináttu. Við vorum sammála um að allir væru einstakir og að það væri engin ein leið best í bataferlinu. Að vinna hlutina saman með valdeflingu og á jafningjagrunni yrði leiðarljósið. Þú tókst þessu eins og hverju öðru verkefni sem þér bæri að sinna og vildir komast í gegnum þetta. Ég fékk að kynnast þínum sterka per- sónuleika, hlýjan og húmorinn var aldrei langt undan. Þrátt fyrir að hugurinn bæri þig á stundum næst- um ofurliði á þessum tíma gastu alltaf greint á einstakan hátt hvað var raunveruleiki og hvað ekki. Það gat verið sárt en það studdi þig í bataferlinu og seinna náðir þú jafn- væginu sem þú leitaðir að. Þegar við unnum að „listanum góða“ sem innihélt þín markmið og framtíð- arsýn kom í ljós að þú ætlaðir þér mikið í lífinu og gerðir miklar kröf- ur til þín. Í samstarfi okkar próf- uðum við að fara „út fyrir ramm- ann“ og létum hefðbundna hugmyndafræði ekki trufla, sem byggist annars oft á því að það sé stórt bil á milli fagmanns og not- anda. Fyrir skömmu þegar við tókum „skurk“ á Njálsgötunni ræddum við listann og okkur kom saman um að þú hefðir nánast náð að tæma hann. Þú varst sáttur, áttir heimili sem vinum var afar ljúft að heimsækja og daglegt líf í nokkuð föstum skorðum. Þú fórst oft í Mosina og hittir fjölskylduna sem alltaf tók þér opnum örmum og þér þótti svo vænt um. Við stofnuðum Hugarafl 5. júní 2003 ásamt Garðari Jónassyni heitnum, Jóni Ara Arasyni og Ragnhildi Bragadóttur. Þar fékkst þú tilgang og hafðir mjög stórt hlut- verk í ótal verkefnum. Hugsjón okkar var að hafa áhrif á og stuðla að nýjum áherslum í nálgun við geðsjúka. Við trúðum á að allir gætu náð bata, ættu von. Sú gára sem þarna fór af stað hefur skipt sköpum og verið vel tekið. Ekki alls fyrir löngu horfðir þú yfir Hugar- aflshópinn sem hefur stækkað ótrú- lega, þú varst stoltur og ánægður með dagsverkið. Gáran heldur áfram, kæri vinur, og við sem eftir sitjum sjáum um að gefast ekki upp, höldum áfram að stuðla að já- kvæðni og virðingu í geðheilbrigð- iskerfinu. Með þinni einstöku frásagnargáfu gafst þú notendum, aðstandendum, fagfólki og öðrum nýja sýn á geð- raskanir. Þú þreyttist aldrei á að fræða, leiðbeina og styðja samferða- menn á þinn einlæga hátt, af um- burðarlyndi og hlýju. Í gegnum Geðfræðslu Hugarafls fengu grunn- og menntaskólanemar að kynnast sögu þinni og samstarfsmanna þinna. Þú sagðir þeim frá reynslu þinni af geðklofa, frá batanum, hvaða leiðir hefðu virkað fyrir þig og varst gjarnan með húmorinn í farteskinu. Þau áhrif sem þú hafðir verða seint metin til fulls. Fordóm- arnir hurfu eins og dögg fyrir sólu og ungmennin skildu að fólk með geðraskanir er bara venjulegt fólk. Þín verður sárt saknað, kæri Hallgrímur, af ótrúlega stórum og marglitum hópi fólks sem á minn- ingar um góðan dreng. Elsku Bóel, Björgvin og fjöl- skylda, aðrir ættingjar og vinir, ég votta ykkur mína innilegustu sam- úð. Auður Axelsdóttir. Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur. Þetta á engan veg- inn við, þegar það kemur að Halla. Ég held að flestir, ef ekki allir, sem áttu Halla, hafi áttað sig á því hverslags fjársjóður hann var. Ég áttaði mig að minnsta kosti á því. Ég fann alltaf fyrir gleðinni yfir því að eiga svona fjársjóð og þó að sorgin sem fylgir því að missa hann yfirgnæfi allt núna veit ég að gleðin nær einhvern tíma aftur yfirhönd- inni. Ég hugga mig við það. Minningar mínar um Halla eru svo margar að ég gæti fyllt bók með þeim: Ferðirnar okkar til Kanarí og Spánar og þegar þú komst í heim- sókn til okkar Önnu Siggu í Ung- verjalandi. Svo gleymi ég ekki þeg- ar við héldum epískan fyrirlestur fyrir langþreytta iðjuþjálfanema sem voru að kikna undan náminu. Þau voru svo endurnærð eftir klukkutíma með okkur að þau litu út fyrir að vera tilbúin í að sigra heiminn hálftíma eftir útskrift. Þú áttir salinn þá eins og þú gerðir yf- irleitt þar sem fólk kom saman. Svo þessir mörgu rúntar sem ég, þú og Bími fórum um Reykjavík þegar við höfðum ekkert betra að gera. Þeir voru skemmtilega gefandi. Góð tón- list, góður félagskapur og enginn að flýta sér neitt. Minningarnar eru svo margar. Ég get ekki gert þeim öllum nógu góð skil hér. Þú áttir að vera svaramaðurinn minn. Ég gleymi því aldrei þegar ég sagði þér að það kæmi enginn ann- ar til greina. Þú varst svo innilega ánægður að heyra það. Þú sást fyrir þér ræðuna sem þú myndir flytja. Ég efa ekki að hún hefði verið einn af þessum gullmolum sem hefði fengið fólk til að leggjast á gólfið af hlátri. Halli átti ófáa vini og mjög hátt hlutfall þeirra litu á hann sem sinn allra besta vin. Sú staðreynd lýsir einna best því skarði sem fráfall hans skilur eftir sig. Ég sendi öllum sem hafa misst þennan stórkostlega mann úr lífi sínu mínar dýpstu samúðarkveðjur og þá sérstaklega Bóel, Björgvin, Kidda, Lofti og Bíma. Jón Ari Arason. Það kom sem þruma úr heiðskíru lofti, Jón Ari sambýlismaður minn hringdi í mig frá Íslandi í síðustu viku. Ég heyrði strax að eitthvað var verulega að en gerði mér ekki strax grein fyrir að heimurinn hefði snúist á hvolf og skipt litum, að einn merkasti maður sem ég hef hitt væri dáinn. Það vita margir í kringum mig í Ungverjalandi hver Halli var þó þau hafa ekki hitt hann. Halli kom hingað í heimsókn, við vorum svo spennt að kynna hann fyrir okkar litla heimi hér að ég var búin að segja flestum sem ég umgekkst að einn skemmtilegasti og klárasti maður sem ég veit um væri að koma í hingað. Það var frábær tími, þegar ég þurfti að vera læra sendi ég strákana í höfuðborgina að spóka sig, sem virkaði vel á báða bóga. Svo stórum hluta í lífi svo margra var kippt í burtu, þó ég viti vits- munalega að sárindin og sorgin eigi eftir að dofna og að upp muni standa brunnur af einstökum minn- ingum af tímanum sem við fengum að eiga með Halla, þá skynja tilfinn- ingarnar það ekki. Maður verður virkilega að hafa sig allan við að einbeita sér að því fyrrnefnda til að komast í gegnum þessa þoku sem liggur yfir okkur á þessum tíma. Einnig verður maður að muna hversu lánsamur maður hefur verið að hafa fengið að kynnast honum. Elsku Halli. Því miður kemst ég ekki heim fyrir þína hinstu kveðju, en ég verð með hugann hjá þér og þínum á ferðinni heim til Íslands. Ég sendi mínar dýpstu samúðar- kveðjur til Björgvins, Bóelar, bræðra hans Kidda og Lofts. Einn- ig vil ég votta samúð mína hinum stórkostlega hópi vina sem hafa staðið sem einn með Bíma í stór- hlutverki þessa síðustu óraunveru- legu daga. Anna Sigríður Pálsdóttir (Anna Sigga). Hallgrímur Björgvinsson HINSTA KVEÐJA Halli Vinur minn Íslenski bróðir minn Við sjáumst hinum megin. Thomas Aagaard. Elsku Halli frændi! Takk fyrir allar sögurnar sem þú last fyrir mig. Takk fyrir að vera alltaf svo góður við mig. Þú ert besti frændi minn. Ég veit að núna ertu engill sem passar mig hvert sem ég fer. Ég elska þig! Sofðu rótt, Halli frændi. Þín guðdóttir, Karen Lilian Aagaard.  Fleiri minningargreinar um Hall- grímur Björgvinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.