Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 20
20 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 Dr. Baldur Þór- hallsson, Monnet- prófessor við Háskóla Íslands, varpar fram spurningunni: Land- nám ESB? í Frétta- blaðinu 18. ágúst sl. Undir greininni kem- ur að vísu ekki fram að Baldur sé Jean Monnet-prófessor en sá virðingartitill er til heiðurs samnefndum „föður“ Evr- ópusambandsins. Það hefði verið eðlilegt og heiðarlegt að láta það fylgja. En látum það vera. Í grein sinni fer prófessor Bald- ur fögrum orðum um „fyrirmynd- arríki“ aðildarsinna að ESB. Hann tínir til öll þau fallegustu orð sem prýða má fyrirmyndarríki. Þannig vill það stuðla að betri kjörum og velferð íbúa, vinna að umhverfis- og náttúruvernd, bæta stöðu launa- fólks, styrkja menn- ingu og menntun, stuðla að friði, lýð- ræði, mannréttindum og vinna að skilvirkri og gegnsærri stjórn- sýslu. Já, í fyrir- myndarríkinu áttu öll dýrin í Orwellskum skógi að vera vinir eins og íbúum Sov- étríkjanna sálugu var talin trú um í áróð- ursgreinum fræðinga. Og svo eins og góð- ur sölumaður gerir þá tekur dr. Baldur skýrt fram að Evrópusam- bandið sjálft sé „frekar tregt til að veita nýjum ríkjum inngöngu“. Bretar hafi þannig þurft að bíða í heil 12 ár eftir aðild! Hér minnist prófessor Baldur ekki á baráttu Charles de Gaulle, Frakklands- forseta, sem beitti sér ákveðið gegn inngöngu Bretlands þar sem hann taldi að það þýddi eðlisbreytingu til hins verra á sambandinu. De Gaulle reyndist hafa rétt fyrir sér að mínu áliti. Og þegar dr. Baldur hefur fjallað um samhug og bræðralag aðildar- ríkjanna í löngu máli þá eru loka- orð hans þessi (skáletrun mín): Þau (þ.e. aðildarríki ESB) hafa flest hver takmarkaðan áhuga á inngöngu nýrra ríkja þar sem þau horfa fyrst og fremst á eigin hags- muni innan sambandsins. Skyldi Össur vita af þessu? „Þau horfa fyrst og fremst á eigin hagsmuni“ Eftir Jón Baldur Lorange » Já, í fyrirmyndarrík- inu áttu öll dýrin í orwellskum skógi að vera vinir eins og íbúum Sovétríkjanna sálugu var talin trú um í áróð- ursgreinum fræðinga. Jón Baldur Lorange Höfundur er stjórnmálafræðingur og situr í stjórn Heimssýnar. V i n n i n g a s k r á 16. útdráttur 19. ágúst 2010 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 5 3 2 8 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 1 8 6 5 1 3 3 2 2 6 4 4 5 0 2 7 9 2 9 6 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2860 10275 40666 46152 55666 68454 5841 40095 43384 50915 59442 79379 V i n n i n g u r Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) 2 4 6 2 1 6 6 5 3 2 3 5 4 1 3 5 7 9 6 4 2 6 4 8 5 0 7 8 7 6 5 1 1 9 7 0 5 7 3 2 9 3 8 1 6 6 8 6 2 5 1 5 3 3 7 8 5 1 4 2 9 2 5 5 0 8 3 5 6 5 2 5 0 7 0 8 7 0 4 1 0 8 1 7 0 0 5 2 5 2 2 0 3 8 2 2 5 4 4 6 6 7 5 6 2 5 1 6 6 6 4 8 7 1 1 0 1 4 3 4 9 1 7 2 5 3 2 8 9 9 7 3 8 4 4 1 4 5 6 6 4 5 7 0 6 6 6 6 9 3 3 7 2 9 9 3 5 7 5 3 1 7 9 1 3 2 9 4 4 4 3 8 5 8 2 4 5 8 6 0 5 8 3 4 7 6 7 3 8 4 7 4 7 2 1 6 3 0 6 1 8 2 6 0 3 0 7 5 9 3 9 7 6 0 4 7 1 1 3 5 9 0 3 5 6 7 4 7 3 7 6 0 0 5 7 4 0 5 2 0 6 3 1 3 0 9 5 1 3 9 8 1 5 4 7 3 8 8 5 9 3 7 2 6 7 8 0 2 7 6 3 8 9 1 2 3 4 3 2 0 7 7 3 3 2 8 0 3 4 0 2 9 8 4 7 4 4 1 6 0 7 7 2 6 8 1 6 5 7 9 1 6 4 1 3 9 2 9 2 2 0 2 3 3 3 3 7 5 4 1 2 7 8 4 9 7 3 5 6 3 0 7 1 6 8 2 5 0 7 9 2 3 2 1 4 9 4 0 2 3 0 6 2 3 3 8 6 6 4 2 4 9 5 5 0 1 0 6 6 4 6 1 1 6 9 5 9 8 7 9 2 6 1 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 1 8 7 2 7 6 1 9 5 8 8 2 8 8 7 3 3 6 1 9 7 4 5 7 6 8 5 8 9 0 5 6 9 2 5 1 1 5 5 7 7 0 4 1 9 6 3 4 2 8 9 6 5 3 6 7 0 3 4 5 7 8 7 5 9 6 3 4 6 9 6 6 9 2 2 9 9 1 4 4 1 9 9 6 8 2 9 3 1 6 3 7 1 9 6 4 5 9 2 1 5 9 7 1 6 6 9 9 7 4 5 1 0 9 7 0 5 2 0 0 3 4 2 9 5 0 5 3 7 2 8 4 4 7 5 4 8 6 0 3 3 1 7 1 1 0 6 6 3 3 1 0 0 3 1 2 0 9 5 9 2 9 6 4 7 3 7 9 0 0 4 8 1 2 7 6 0 4 4 5 7 1 9 1 7 7 3 3 1 0 1 4 2 2 1 0 2 1 2 9 7 7 4 3 8 0 8 4 4 8 4 0 3 6 1 0 6 5 7 2 0 8 4 1 0 4 7 1 0 4 5 3 2 1 3 8 0 2 9 9 5 8 3 8 4 7 6 4 8 7 5 7 6 2 4 0 4 7 2 1 3 1 1 1 7 1 1 0 6 0 2 2 2 8 0 0 2 9 9 7 9 3 8 9 5 5 4 8 9 7 6 6 2 5 9 3 7 2 4 2 0 1 4 8 0 1 0 8 2 0 2 2 9 2 7 3 0 2 2 9 3 9 7 4 2 4 9 2 2 3 6 2 6 2 6 7 2 7 6 0 1 9 7 6 1 1 1 9 3 2 2 9 9 8 3 0 5 9 3 3 9 8 2 8 4 9 2 9 6 6 3 0 1 6 7 3 8 2 2 2 0 5 9 1 1 4 3 3 2 3 0 7 8 3 0 8 2 8 3 9 8 8 7 4 9 8 1 4 6 3 2 3 6 7 3 9 3 4 2 4 3 3 1 1 4 4 4 2 3 2 8 9 3 0 8 7 0 4 0 3 3 2 5 0 1 2 1 6 3 5 2 7 7 4 3 2 8 2 8 8 9 1 1 6 4 1 2 3 4 5 1 3 1 2 3 8 4 0 3 5 4 5 0 3 9 7 6 3 5 5 5 7 4 7 8 1 2 9 0 8 1 2 0 0 3 2 3 4 6 5 3 1 2 4 4 4 0 4 0 8 5 2 2 1 0 6 3 6 1 2 7 5 1 3 0 3 2 2 9 1 2 9 9 0 2 3 7 9 2 3 1 3 2 1 4 0 4 2 8 5 2 5 2 8 6 4 0 4 8 7 5 5 3 5 3 2 9 6 1 3 2 4 6 2 3 9 7 4 3 1 4 1 8 4 0 4 9 9 5 2 9 8 9 6 4 1 2 3 7 5 5 7 8 3 5 9 7 1 3 3 4 1 2 4 6 0 5 3 1 5 9 3 4 0 9 7 8 5 3 2 4 2 6 4 5 5 4 7 6 7 3 7 3 6 2 3 1 3 7 9 4 2 4 6 3 9 3 1 7 1 0 4 1 8 1 9 5 3 7 7 1 6 5 2 4 6 7 6 9 5 5 3 8 6 4 1 3 8 0 9 2 4 7 4 5 3 2 0 4 8 4 1 8 4 5 5 3 8 4 2 6 5 6 0 3 7 7 4 6 6 4 1 3 5 1 4 5 7 8 2 4 8 3 0 3 2 0 7 4 4 1 9 8 9 5 3 9 8 0 6 5 9 0 9 7 8 0 4 4 4 6 8 5 1 5 9 3 8 2 5 3 0 5 3 2 7 6 4 4 2 3 3 2 5 3 9 9 5 6 5 9 1 0 7 8 0 7 7 4 9 9 7 1 6 6 2 8 2 5 4 3 4 3 2 8 4 4 4 2 7 0 7 5 4 2 7 1 6 6 2 0 7 7 8 1 8 0 5 0 3 4 1 7 8 5 5 2 5 5 7 2 3 2 8 9 7 4 3 1 1 4 5 4 3 7 8 6 6 3 4 6 7 8 5 7 1 5 6 1 8 1 8 1 0 7 2 5 8 2 1 3 3 4 7 0 4 3 2 6 8 5 4 9 2 5 6 7 0 5 6 7 9 1 9 3 6 0 8 8 1 8 5 2 6 2 5 8 2 9 3 4 0 0 2 4 3 6 6 3 5 5 2 4 3 6 7 1 2 5 7 9 2 8 7 6 1 5 3 1 8 7 2 5 2 6 0 7 0 3 4 0 4 3 4 4 2 0 3 5 5 6 0 0 6 7 6 9 8 7 9 5 9 5 6 1 6 8 1 8 8 8 1 2 6 7 4 1 3 4 3 2 1 4 4 4 2 9 5 6 6 9 5 6 7 7 2 1 6 4 7 4 1 8 9 1 9 2 6 9 5 5 3 4 8 2 3 4 4 5 4 8 5 7 2 8 6 6 7 9 9 3 6 7 6 1 1 8 9 4 7 2 7 0 4 5 3 5 0 3 3 4 4 6 2 2 5 7 3 4 8 6 8 5 6 9 7 0 0 4 1 8 9 8 4 2 7 1 8 9 3 5 0 3 8 4 4 9 2 6 5 7 4 3 4 6 9 0 4 6 7 0 2 7 1 9 0 2 7 2 7 5 3 0 3 5 4 2 7 4 5 3 7 2 5 7 9 0 0 6 9 2 2 4 7 1 0 7 1 9 5 2 2 2 8 0 2 9 3 6 0 7 1 4 5 7 0 9 5 8 0 5 0 6 9 2 2 5 Næstu útdrættir fara fram 26. ágúst & 2. sept 2010 Heimasíða á Interneti: www.das.is Sú neyð sem nú blasir við hjálp- arsamtökum eins og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Pakistan er gríðarleg. Samtökin hafa óskað eft- ir rúmlega 47 milljónum banda- ríkjadala til að geta staðið að hjálp- ar- og uppbyggingarstarfi á svæðinu í þágu barna næstu þrjá mánuðina. Þrátt fyrir að umfang neyðarinnar sem blasir við börnum og fjölskyldum þeirra í Pakistan fari sívaxandi hefur UNICEF þó einungis fengið um fimmtung af þessari nauðsynlegu fjárhæð. Í þessu sambandi hefur UNICEF lýst áhyggjum yfir því að skortur á fjármagni geti sett allt hjálparstarf í uppnám. Nú er þörf fyrir að alþjóða- samfélagið taki höndum saman og sýni hlýhug sinn til pakistanskra fjölskyldna í verki. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, á Íslandi hefur af þeim sökum hafið neyðarsöfnun fyrir börn í Pakistan. Það er reynsla okkar að ekki stend- ur á viðbrögðum íslensku þjóð- arinnar þegar óskað er eftir stuðn- ingi við fórnarlömb náttúruhamfara og er það okkar von að þessi söfn- un verði engin undantekning. Þörf á tafarlausri aðstoð Talið er að meira en 15 milljónir manna hafi orðið illa úti í flóðunum í Pakistan – þar af er um helming- urinn börn. Það er mat UNICEF í Pakistan að um 3,5 milljónir þess- ara barna þurfi lífsnauðsynlega á tafarlausri aðstoð að halda þar sem líf þeirra liggi við. Búist er við að þeim sem þurfa aðstoð geti fjölgað töluvert á næstu dögum enda er enn fjöldi fólks innlyksa á flóða- svæðunum. Ekki má vanmeta þetta gríðalega neyðarástand. UNICEF í Pakistan einbeitir sér að verkefnum sem miða að því að tryggja aðgengi að ómenguðu vatni og hreinlætisaðstöðu ásamt því að útvega næringu og bólusetningar handa yngstu börnunum, sjúkra- gögn og bráðabirgðaskýli. UNI- CEF hefur flutt á hamfarasvæðin um 100 tonn af hjálpargögnum, svo sem segldúkum, stórum tjöldum sem nota má sem bráðabirgða- skólastofur og -heilsugæslustöðvar, sjúkragögn, vatns- og hreinlæt- isgögn, næringarmáltíðir og sölt til að hindra uppþornun hjá ungum börnum. Ein aðalvörugeymsla UNICEF í landinu skemmdist illa og því er mikil þörf fyrir utanaðkomandi aðstoð í formi hjálp- argagna. Á hverjum degi út- vega samtökin 1,3 milljónum manna ómegnað vatn en millj- ónir til viðbótar þurfa á sömu aðstoð að halda. Lykillinn að bjargræði milljóna fórnarlamba flóðanna er einmitt að- gangur að heilnæmu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu. Ef ekki tekst að útvega vatn til þeirra fjöl- skyldna sem hvað verst hafa orðið úti vegna flóðanna er mik- il hætta á hraðri út- breiðslu lífshættulegra sjúkdóma eins og kól- eru, blóðkreppusóttar og niðurgangspesta, þá sér í lagi meðal barna. Þarfir barnanna settar í forgang Það er eitt af forgangsverkefnum UNICEF að koma lífi barna á flóðasvæðunum í Pakistan aftur í sem eðlilegast horf. UNICEF hefur komið á fót sérstökum vernd- arsvæðum fyrir börn í neyð- arbúðum fyrir fólk sem misst hefur heimili sín. Á þessum barnvænu verndarsvæðum geta börnin fundið til öryggis, átt samskipti sín á milli, leikið sér og tekist á við áhyggjur sínar með hjálp þjálfaðs starfsfólks. Á þessari stundu stendur UNICEF vörð um líf og velferð þeirra milljóna barna í Pakistan sem þurfa á hjálp að halda. UNICEF hefur langa reynslu af neyðar- og uppbyggingarstarfi á flóðasvæðum Pak- istan og mun starfa þar á meðan neyðar- ástandið varir og löngu eftir að athygli fjölmiðla beinist ann- að. Við viljum koma í veg fyrir að fleiri börn týni lífi og veita þeim, sem hafa misst svo mikið, vernd og umönnun. Því hvetj- um við alla sem hafa tök á að styrkja neyðarsöfnunina að leggja sitt af mörk- um. Hvert framlag skiptir máli, hversu lítið sem það kann að vera. Hringdu í síma 908 1000, 908 3000 eða 908 5000 og þá mun sam- svarandi upphæð dragast af sím- reikningi þínum. Einnig er hægt að leggja beint inn á söfnunarreikning UNICEF fyrir Pakistan 515-26- 102040 / kt. 481203-2950. Nánari upplýsingar má nálgast á www.uni- cef.is. Mannskæð flóð í Pakistan ógna milljónum barna Eftir Stefán Inga Stefánsson » Sú neyð sem nú blasir við hjálparsam- tökum í Pakistan er gríðarleg og hefur UNICEF á Íslandi hafið neyðarsöfnun fyrir börn á flóðasvæðunum. Fjölskylda flýr flóðasvæðin í Pakistan. Höfundur er framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Stefán Ingi Stefánsson Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.