Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 ✝ Jón Einarssonvélstjóri fæddist á Siglufirði 6. janúar 1917. Hann lést á hjúkrunardeild Dval- arheimilisins Höfða á Akranesi 6. ágúst sl. Foreldrar hans voru Einar Hall- dórsson bóndi og sjó- maður úr Fljótum og síðar síldarmats- maður á Siglufirði, f. í Tungu í Stíflu, Skag., 30. mars 1853, d. 5. júní 1941, og k.h. Svanborg Rannveig Bene- diktsdóttir húsfreyja, f. í Efri- Skútu á Siglufirði 3. maí 1885, d. 24. ágúst 1946. Alsystkini Jóns voru: Guðrún, f. 1904, d. 1910, Benedikt, f. 1906, d. 1980, Guðrún Solveig Margrét, f. 1907, d. 1910, Guðmundur Konráð, f. 1909, d. 2002, Eiður, f. 1910, d. 1910, Guð- brandur Maron, f. 1912, d. 1941, Guðrún Júlíana, f. 1914, d. 1934, Óli Martínus, f. 1918, d. 1946, Zophanía Guðmunda Briem (Góa), f. 1925, hún er eina eftirlifandi systkini Jóns. Systkini Jóns sam- feðra voru: Rósa, f. 1873, d. 1943, Solveig, f. 1874, d. 1881, Einar, f. nesi 9. febrúar 1951. 6) Lovísa, f. 4. janúar 1949, m. Gísli Þor- steinsson, f. 24. sept. 1943. 7) Ólöf, f. 9. apríl 1950, m. Gylfi Lár- usson, f. 23. okt. 1946. 8) Einar, f. 7. ágúst 1951, m. Guðrún Kristín Guðmundsdóttir, f. 4. apríl 1951. 9) Svanborg Rannveig, f. 7. febr- úar 1953, m. Valdimar Jóhanns- son, f. 20. mars 1951. 10) Svan- fríður, f. 28. maí 1955, m. Kristófer Oliversson, f. 30. júní 1955. Barnabörn Jóns og Önnu eru 33, barnabarnabörn 51 og barnabarnabarnabörn sjö. Jón tók meira mótorvélstjóra- próf í Reykjavík 1946. Hann hóf sjómennsku fjórtán ára á síld- veiðiskipinu Hjalteyrinni 1931. Hann var vélstjóri við Skeiðsfoss- virkjun í Fljótum 1946-55, Sem- entsverksmiðju ríkisins og á fiski- skipum 1955-66, vann við byggingu Búrfellsvirkjunar 1966- 71, var vélstjóri hjá Eimskipa- félagi Íslands hf. og starfsmaður við verknámsdeild Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi til starfsloka. Eftir það var hann vaktmaður í togurum Akurnes- inga í landlegum. Jón var hag- leiksmaður og fékkst við smíði á skipsmódelum ýmiskonar auk annars handverks. Útför Jóns fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 20. ágúst 2010, og hefst athöfnin kl. 14. 1876, d. 1876, Steinn, f. 1877, d. 1928. Fjórða maí 1939 kvæntist Jón Önnu Halldórsdóttur, f. á Ísafirði 18. ágúst 1913, d. 24. nóv- ember 1978. For- eldrar hennar voru Halldór Friðgeir Sig- urðsson skipstjóri á Ísafirði, f. 27. jan. 1880 í Arnardal, Eyrarhr. N-Ís., d. 17. nóv. 1969, og Svan- fríður Albertsdóttir, f. 26. okt. 1895 á Ísafirði, d. 20. júní 1966. Börn Jóns og Önnu eru: 1) Svana, f. 18. ágúst 1939, m. Örn Óskar Helgason, f. 25. mars 1936. 2) Halldór Friðgeir, f. 29. júní 1941, m. Ragnhildur Theo- dórsdóttir (skildu.) Núv. maki Kristín Guðrún Jónsdóttir, f. 27. júní 1950, 3) Margrét, f. 21. maí 1944, m. Páll Jónatan Pálsson, f. 22. des. 1941. 4) Þórelfur, f. 4. júní 1945, m. (skildu) Jóhann Garðar Knútsson Larsen, f. 1945. 5) Gunnar Þór, f. 12. febrúar 1947, m. Ingunn Sveinsdóttir, f. 21. júní 1949, barnsmóðir Guðlaug Sigrún Sigurjónsdóttir, f. á Akra- Jón Einarsson tengdafaðir minn frá Siglufirði er allur. Kveður þennan heim saddur lífdaga 93 ára. Afkomendur orðnir 101. Sveitin hans, Fljótin í Skagafirði, kveður einn af sínum góðu sonum, sveipuð bláberjalyngi milli fjalls og fjöru og berjatíminn að fara í hönd. Fyrir rúmu ári kom Jón í fylgd sonar síns Gunnars og Ingu tengdadóttur í Fljótin, þau komu við á Skeiði hjá okkur Lovísu, þáðu kaffi og pönnukökur, það lá í loft- inu að þetta yrði hans hinsta för á þessar slóðir, því var samvera okk- ar þennan dag sérstök. Afi Jóns í föðurætt, Halldór, var fæddur 1790 og spönnuðu barn- eignir hans yfir liðlega hálfrar ald- ar tímabil og svipað var upp á ten- ingunum hjá föður hans Einari. Þetta er víst kallað að vera iðinn við kolann. Ekki fetaði Jón í fótspor þeirra feðga hvað þetta varðaði því þau hjónin Anna og hann luku barn- eignum á innan við 16 árum og voru börnin þó 10. Ungur lagði Jón land undir fót og 15 ára er hann kominn til Vest- mannaeyja. Þetta er árið 1932 og kreppan mikla í algleymingi. Þegar Jón er 17 ára og búandi í Eyjum brestur á aftakaveður í febr- úarmánuði. Skipstjórinn hans fær Jón til að róa með sér út í bátinn á legunni til að treysta festingar. Á leiðinni í land gengur fylling yfir julluna og fara þeir báðir í sjóinn. Næst gerist það að önnur alda þeytir Jóni um borð í kænuna og síðan upp að Bæjarbryggjunni. Jóni er bjargað á land og farið með hann á sjúkrahúsið, þá var hitastig hans við neðstu mörk lifandi manns. Skipstjórinn drukknaði í slysi þessu. Þær 4-5 vertíðar sem Jón var í Eyjum var með honum bróðir hans Maron, 5 árum eldri, og voru þeir samrýndir mjög. Þrátt fyrir þessa erfiðu lífsreynslu voru Eyjaárin honum ljúf í minningunni. Þar steig hann sín fyrstu skref sem fulltíða maður, tók þátt í félagslífi, söng meðal annars í karlakór. Árið 1941 ferst bróðir hans Mar- on með togaranum Gullfossi. Ekki munaði nema hársbreidd að Jón væri um borð þá örlagaríku ferð. Hann átti að leysa af vélstjóra en í þann mund sem skipið er að leggja frá kemur umræddur skipverji og Jón sveiflar sér í land með sjópok- ann. Árið 1994 þegar 9 ár voru liðin frá því að við Lovísa fluttum frá Eyjum var ákveðið að sækja Eyj- arnar heim og ekki þurfti að eggja Jón til þeirrar farar. Það er hásumar og Eyjarnar skarta sínu fegursta. Jón gisti hjá vinkonu sinni frú Sigríði í Hvíld og þótti það ekki verra. Við hin gistum niðri í bæ. Næsta dag var til reiðu hrað- bátur Sigga Óskars. Þegar komið var norður fyrir Heimaklett fékk Jón stýrið í hendur. Jón mundi nöfn á öllum dröngum, eyjum og skerjum sem siglt var framhjá þótt árin væru um 60 síðan hann var á þessum slóðum. Dreginn var ufsi við Álsey, farið í Fjósin og oftar en ekki var Jón við stjórnvöl á sigling- unni. Hér leið honum vel. Við geng- um líka um gamla bæinn þar sem mörg húsanna höfðu lítið breyst. Jón var fljótur að finna húsin þar þeir Maron höfðu átt heimili, bæði við Vesturveg og Reglubraut. Þetta reyndist síðasta ferð Jóns til Eyja. Ég þakka samfylgdina í góð 40 ár. Aðstandendum sendi ég samúð- arkveðjur. Gísli Þorsteinsson. Stundum fannst okkur að afi ætti að vera eilífur og hann myndi aldr- ei fara. Þegar ævi afa er nú liðin eru tilfinningarnar svo margbreyti- legar. Það er gleðilegt að hann varð þeirrar gæfu aðnjótandi að halda heilsunni lengi og verða svo ríkur, ekki af veraldlegum eignum, heldur öllum þeim afkomendum sem hann átti. Daginn sem hann kvaddi voru þeir orðnir 101 og hann var stoltur af hverjum einasta. Hann var heilsuhraustur fram eftir aldri og var kominn yfir nírætt þegar hann sjálfur ákvað að flytja inn á dval- arheimilið Höfða og þar til fyrir nokkrum mánuðum ók hann bíl sín- um um götur Akraness til fundar við börnin sín og aðra. Það er samt líka söknuður í hjartanu því það er gjald kærleik- ans og afi skilur eftir skarð sem er stórt en við munum reyna að fylla það með öllum þeim minningum sem við eigum um hann. Við minn- umst jólanna þar sem hann var okkar skjól og styrkur og ferðalaga með honum og heimsókna til hans þar sem manni leið alltaf vel. Sér- staka og góða afalyktin og stóru hendurnar sem samt gátu gert svo ótrúleg listaverk sem við fáum að njóta um ókomna tíð. Það er skrítin tilhugsun að sjá hann ekki aftur með hattinn sinn og staf, stóru gleraugun og blíðlega andlitið sem horfði stolt á afrek sín í hvert sinn sem hann var umkringdur fjöl- skyldunni. Það er erfitt að kveðja okkar ljúfasta afa en léttir að vita að hann hafi fengið hvíld og líði ekki lengur illa. Lagstur í sína síðustu siglingu er hann horfinn sjónum okkar en amma bíður hans við ókunna strönd og loksins fá þau að vera saman á ný. Minningin um góða afa okkar og langafa dætra okkar lifir áfram í hjörtum okkar og í andlitum af- komendanna þar sem alltaf má sjá Jón Einarsson einhvers staðar. Inga Lára, Helena, Eiður og börn. Stórhöfðinginn Jón Einarsson er allur, kominn á tíræðisaldur. Það er komið hátt á annan tug ára síðan við kynntumst í Hvera- gerði, eða Hælinu eins og við köll- uðum það. Kynnin þróuðust yfir í sterkan vinskap sem leiddi til þess að við stofnuðum Hveragerðisklík- una. Stofnfélagar voru átta og kom- ust færri að en vildu. Nú hafa tveir af stofnendum fallið frá. Aðalfundir voru haldnir þegar okkur datt í hug, ýmist á Akranesi hjá Jóni en þó oftast á Snorrastöðum hjá þeim sæmdarhjónum Ingu og Hauki og eiga þau miklar þakkir skilið. Við fundargerðum má ekki hrófla fyrr en allir stofnfélagar eru horfnir af þessu jarðlífi eða árið 2050. Það má upplýsa hér að á stofn- fundinum var ég, undirritaður, með mína lesblindu, látinn fara í dval- arreglur Hælisins. Sem betur fer fann ég engar reglur er meinuðu þorrablót eftir klukkan níu á kvöld- in en þau voru haldin vikulega meðan á dvöl stóð. Dvalargestir hægðu stundum á sér á leið um gangana þegar blót stóðu yfir og undraðist enginn. Það kom fyrir að „klíkan“ gekk til kirkna og hlýddi á messu hér og þar en við kölluðum það okkar á milli að fara í púka- hreinsun. Þess má geta að þegar klíkan var stofnuð var samanlagður aldur fé- laganna 467 ár. Sjálfsagt fer fund- um fækkandi með árunum en við reynum hvað við getum. Það var oft gaman á fundum þegar okkur datt í hug að tala eitthvað af viti og hlusta á Jón segja frá allri sinni reynslu í gegnum árin. Pitsu-, pítu- og pastakynslóðin hefði ekki lifað það af. Þegar við vorum einir talaði Jón oft um sína konu sem lést langt um aldur fram, og einnig um allt barnalánið. Þá geislaði af honum. Þegar Hveragerðisklíkan var stofn- uð átti Jón um 70 afkomendur. Hann sagðist ætla að lifa þar til hópurinn væri kominn á annað hundrað. Jón stóð við það eins og allt annað sem hann sagði. Ég öfundaði Jón oft af hagleik sínum. Snilli hans endurspeglast í báta- og skipslíkönum sem hann bjó til í gegnum tíðina, fyrir utan annað sem hefur leikið í höndum hans. Að lokum, er ég kveð höfðingj- ann Jón Einarsson, bið ég öllum af- komendum hans guðsblessunar, sem og ættingjum hans og vinum. Hvíl í friði, gamli skútukarl. Þráinn Þorvaldsson. Jón Einarsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR HELGASON múrarameistari, Seljalandsvegi 40, Ísafirði, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði laugar- daginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 21. ágúst kl. 14.00. Steinunn Margrét Jóhannsdóttir, Jóhann Einars Guðmundsson, Júlíana Bjarndís Ólafsdóttir, Kristjana Guðmundsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Herbert Sveinbjörnsson, Bára Guðmundsdóttir, Kristinn Þór Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Unnusti minn, sonur okkar, bróðir og mágur, ÓTTAR RAFN GARÐARSSON ELLINGSEN, lést af slysförum þriðjudaginn 17. ágúst á gjör- gæsludeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 23. ágúst kl. 13.00. Hugheilar þakkir sendum við hjúkrunarfólki og læknum gjörgæsludeildar fyrir einstaka umönnun og stuðning. Guðbjörg Eiríksdóttir, Dagný Þóra Ellingsen, Garðar V. Sigurgeirsson, Sveinn Ingi Garðarsson, Cathrine K. Garðarsson, Benedikt Jón Garðarsson, Manuela Fernández Jiménez. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG SVEINSDÓTTIR, Ljósheimum, Selfossi, sem lést mánudaginn 16. ágúst, verður jarðsungin frá Selfosskirkju þriðjudaginn 24. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélagið. Kristín Hultgren, Lahbib Mekrani, Sveinbjörg Þóra Brynjólfsdóttir, Alfreð Guðmundsson, Björn Brynjólfsson, Sigríður Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GEIR VALGEIRSSON, Hásteinsvegi 1, Stokkseyri, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugar- daginn 21. ágúst klukkan 14.00. Auður Þórunn Gunnarsdóttir, Karl Óskar Geirsson, Úlfhildur Sigurðardóttir, Valdís Geirsdóttir, Erna Rut Pétursdóttir, Gunnar Þór Geirsson, Auður Hlín Ólafsdóttir, Júlíus Geir Geirsson, Jóna Björg Björgvinsdóttir, Guðríður Ester Geirsdóttir, Hlynur Óskarsson, Bergur Geirsson, Ingibjörg Vigdís Ottósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR á Kirkjubæjarklaustri, andaðist á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum mið- vikudaginn 18. ágúst. Útför hennar fer fram frá Prestbakkakirkju laugar- daginn 28. ágúst kl. 14.00. Lárus Valdimarsson, Sólrún Ólafsdóttir, Einar Ólafur Valdimarsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Elín Anna Valdimarsdóttir, Haukur Valdimarsson, Hrefna Sigurðardóttir, Trausti Valdimarsson, Gréta Fr. Guttormsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.