Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 4
Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Bruggsmiðjan á Árskógssandi í Eyjafirði er orðin þekkt fyrir framleiðslu sína á Kalda. Bjórnum var vel tekið af landanum og hefur bruggsmiðjan því fært út kvíarnar en nú leggja starfsmenn hennar lokahönd á nýjustu afurð sína, Stinningskalda. Stinningskaldi er bjór sem unninn er í samstarfi við Saga Medica sem er fyrirtæki sem starfar í nátt- úruvöruiðnaði. Bjórinn er m.a. bruggaður úr hvönn úr Hrísey í Eyjafirði. Agnes Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri bruggsmiðjunar, segir bjórinn spenn- andi og hvönnina henta vel til bjórframleiðslu. „Við höfum alltaf haft mikinn áhuga á að brugga úr einhverjum íslenskum jurtum. Þegar hugmyndin fæddist að hægt væri að nota hvönn úr Hrísey fannst okkur það að sjálfsögðu alveg frábært,“ segir Agnes sem kveður hvönnina merkilega plöntu. „Hvönnin verður fyrir valinu þar sem hún er ein þekktasta lækningajurt Íslands. Hún hefur verið notuð á Íslandi til lækninga frá landnámi eða í ellefu hundruð ár. Hvönnin er talin mjög góð fyrir alls kon- ar kvilla,“ segir Agnes en hvönninni bregður víða fyrir í sögu lands og þjóðar. „Það er svolítið gaman að segja frá því að þegar víkingarnir hófu verslunarferðir suður til Evrópu þá tóku þeir með sér þurrkaðar hvannarætur sem voru notaðar í vöruskiptum. Hún þótti mikið betri hvönn- in hér heldur en sú sem óx sunnar. Hún er svo harð- gerð. Hún var því í raun og veru gjaldmiðill. Það var margt sem ég vissi ekki um hvönnina fyrr en við hóf- um þetta samstarf við Saga Medica. T.d. er Hvanna- dalshnjúkur, hæsti tindur Íslands, nefndur eftir hvönninni,“ segir Agnes en hvönnin hefur einnig verið þekkt í gegnum tíðina sem örvandi frygðarlyf fyrir karlmenn. „Við notum nafnið Stinningskaldi því það er tengt veðurfræðinni en hvönnin er mjög góð fyrir karl- menn líka. Þannig að Stinningskalda nafnið var geymt fyrir þetta. Ég er ekki að fara að koma með einhvern ástardrykk, það er ekki málið, en hvönnin er góð fyrir karlmenn,“ segir Agnes sem bindur von- ir sínar við að koma drykknum á markað í október. Hrísey Starfsmaður sker hvönn í Hrísey sem notuð er í nýjustu afurð bruggsmiðjunnar á Árskógssandi, Stinn- ingskalda, sem á að hafa góð áhrif á karlmenn. Búist er við að drykkurinn komi á markað í október. Hríseyjarhvönn í öl  Bruggsmiðjan á Árskógssandi hefur framleiðslu á nýjum bjór, Stinningskalda, sem bruggaður er úr hvönn 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 „Mér skilst að það hafi orðið minna úr þeim heldur en von var á, miðað við hvernig vorið var,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, að- spurður hvort mikið hafi verið um geitunga nú síðla sumars. „Það kviknuðu svo margir úr dvala í vor, sérstaklega holugeitungar,“ en holu- geitungar eru algengastir á Íslandi. Eflaust eru margir hræddir við geitunga, allavega lítið hrifnir af þeim. Vonandi hafa flestir verið heppnir og sloppið við stungu en þó hafa nokkrir orðið svo óheppnir. „Það er vægast sagt óþægilegt að vera stunginn,“ segir Erling. „Menn sem telja sig hafa verið stungna, hafa ekki verið stungnir. Maður veit af því.“ Erling segir að séu menn stungnir festist oddurinn yfirleitt ekki inni í húðinni. Geitungurinn er þannig gerður að hann á að geta beitt odd- inum oft. „Þeir eru ekkert að fórna sér með því að stinga. Stundum stingur sá hinn sami geitungur oft og mörgum sinnum áður en maður nær tökum á honum, sérstaklega ef hann fer innan klæða,“ segir Erling. „Þeir geta verið eins og hæggeng handsnúin saumavél áður en maður nær að kreista þá.“ Erling segir að á þessum tíma séu geitungarnir með einhverja lausung í sér og setjist mikið á fólk. „Þeir eru alltaf leitandi að nammi og eiga það til að stinga fólk af engri ástæðu, þó að menn geri ekkert til að áreita þá eiga þeir það til.“ Því ber að hafa hugfast að varast geitungana það sem eftir er sumars. gunnthorunn@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Geitungabú Færri geitungar í sumar  Eiga það til stinga að ástæðulausu Umhverfis- og samgönguráð Reykja- víkur hefur samþykkt þá tillögu að gera umferðarljós við fjölfarin gatna- mót líflegri. Karl Sigurðsson, borg- arfulltrúi, bar tillöguna fram en hug- myndin er upphaflega frá Akureyri þar sem umferðarljósum var breytt í rauð hjörtu á hátíðinni „Ein með öllu“. „Þetta er aðallega upp á stemningu og til að lífga aðeins upp á umhverfið okkar,“ sagði Karl. „Gera það skemmtilegra að ganga í bænum,“ en tillagan er nú í undirbúningi hjá um- hverfis- og samgöngusviði. Karli datt í hug að setja grænan broskarl en vildi þó ekki rauðan fýlukarl. „Helst ekki fýlukarl, frekar strik,“ sagði hann. Gísli Marteinn Baldursson lagði fram tillögu á fundinum um að Lækj- argata yrði gerð að rólegri og fallegri borgargötu, þar sem mismunandi samgöngumátar ættu sameiginlegt rými. Plöntur yrðu gróðursettar og yfirborði götunnar breytt. Tillögunni var frestað, m.a. vegna þess að gögn vantaði. „Mér finnst þetta frábær til- laga hjá Gísla, mig langar endilega að skoða þetta betur,“ sagði Karl. gunnthorunn@mbl.is Grænn bros- karl og rautt strik í ljósin Umferðarljós Gæti verið fín breyt- ing í skammdeginu. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær- morgun einróma tillögu Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur, forseta borgarstjórnar, um aukna sam- vinnu og samráð borgarfulltrúa. Samþykkt var að sameiginlegir vinnufundir allra borgarfulltrúa yrðu að föstum lið í starfsáætlun borgarstjórnar Reykjavíkur. Fundirnir skulu að jafnaði haldnir mánaðarlega og eiga að auka samstarf borgar- stjórnar allrar um stefnumótun og brýn verkefni borgarbúa. Forsætis- nefnd boðar til fundanna og undir- býr dagskrá í samstarfi við borgar- stjóra. Fyrsti vinnufundurinn verður í byrjun september. Borgarfulltrúar sam- an á vinnufundum Hanna Birna Kristjánsdóttir Með breyttu hugarfari getur þú öðlast það líf sem þú óskar þér. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. NLP er öflugasta sjálfstyrkingarnámskeið sem völ er á. Námskeið í NLP tækni verður haldið 24. - 26.sept. og 1. - 3.okt. 2010 www.ckari.com; Mail: rosamatt@gmail.com; Sími: 894-2992 NLP Practitioner „Hugurinn ber þig alla leið“ - Er sjálfstraustið í ólagi? - Viltu betri líðan? - Skilja þig fáir? - Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu? - Gengur öðrum betur í lífinu en þér? - Gengur illa að klára verkefni? - Er erfitt að höndla gagnrýni? © cKari.com Kári Eyþórsson MPNLP Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is „Nú er að fara á fulla ferð aðlög- unarferli að Evrópusambandinu og ýmis aðlögunarverkefni sem einstök ráðuneyti þurfa að taka þátt í,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þing- maður Vinstri grænna. Á þingflokksfundi hjá VG í fyrradag var dreift yfirliti yfir helstu verkefni sem þarf að taka þátt í á vegum ESB, vegna þessarar aðlög- unar. Þar er stjórnvöldum uppálagt, að sögn Ásmundar, að taka þátt í kynningaráætlun og kynnisferðum til Brussel og tryggja upplýsta um- ræðu um ESB. Í yfirlitinu er því einnig lýst að innleiða þurfi ný lög og reglugerðir, breyta stofnanaverkinu og undirbúa landbúnaðinn fyrir breytt kerfi. Byrja þurfi að setja upp nýja stofnun, greiðslu- stofnun, í þeim tilgangi. Þetta segir Ásmundur Einar óræka sönnun þess að aðild- arviðræðurnar svokölluðu séu í raun aðlögunarferli. „Ég held að þetta hljóti að kalla á að málið verði tekið til grundvallarendurskoðunar á vettvangi, ekki bara allra þing- nefnda heldur Alþingis í heild. Því það sem kynnt var sem aðild- arviðræður er það ekki lengur.“ Hann spyr sig hvar lýðræðið sé fólgið í því að taka upp nýjar stofn- anir og breyta stjórnsýslunni áður en þjóðin hefur sagt sinn hug. „Þeg- ar við erum að tala um að setja í þetta ferli hátt í milljarð á næsta ári hljótum við að spyrja hvort þeim fjármunum sé ekki betur varið til heilbrigðis-, mennta- og velferð- armála. Og Ásmundur Einar kveðst að- spurður ekki geta stutt fjárlaga- frumvarp sem geri ráð fyrir kostnaði í aðlögunarferlið að ESB, á sama tíma og skorið sé niður til velferð- armála. „Ég mun ekki fella mig við að við séum í þessu aðlögunarferli við Evrópusambandið og séum að eyða í það hundruðum milljóna og milljörðum á sama tíma og skorið er niður í velferðarkerfinu. Ég mun ekki styðja slíkt. Við þau orð stend ég,“ segir hann. Ný staða í ESB-málinu með „aðlögun“ í stað umsóknar Ásmundur Einar Daðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.