Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 29
Dagbók 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 Sudoku Frumstig 4 2 8 7 4 5 2 3 7 6 6 9 5 8 9 5 3 6 5 4 7 2 8 9 6 3 6 7 4 5 1 5 3 4 9 8 3 7 5 9 6 7 1 8 1 4 6 5 6 5 8 3 8 1 4 2 3 8 4 1 3 4 9 6 6 8 3 6 1 9 1 3 2 5 9 7 9 5 1 4 8 2 3 6 3 4 1 2 7 6 5 8 9 6 8 2 3 9 5 1 4 7 4 1 8 9 5 7 6 2 3 2 5 6 8 3 1 9 7 4 9 3 7 6 2 4 8 5 1 5 6 4 7 1 2 3 9 8 1 2 3 4 8 9 7 6 5 8 7 9 5 6 3 4 1 2 4 2 8 5 9 1 3 7 6 3 1 6 7 4 2 5 8 9 5 7 9 8 3 6 4 2 1 7 8 4 9 5 3 1 6 2 9 6 3 2 1 7 8 5 4 2 5 1 6 8 4 9 3 7 6 4 5 1 7 8 2 9 3 8 3 2 4 6 9 7 1 5 1 9 7 3 2 5 6 4 8 2 3 4 7 6 5 9 1 8 1 6 7 9 4 8 3 2 5 5 8 9 3 2 1 7 4 6 9 7 6 4 8 3 2 5 1 3 1 8 5 9 2 4 6 7 4 2 5 6 1 7 8 3 9 7 5 2 8 3 6 1 9 4 6 9 3 1 7 4 5 8 2 8 4 1 2 5 9 6 7 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 20. ágúst, 232. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh. 15, 12.) Víkverji var að koma úr sumarfríi,nýtti það eins og best verður á kosið og er fyrir vikið í sögulegu há- marki hvað þyngd varðar. Hann þarf því að grípa til niðurskurðar og lofar betri árangri en ríkisstjórnin í því efni. x x x Fyrir margt löngu boðaði Víkverjiheilsusamlegt líferni en komst fljótlega að því að auðveldara er um að tala en í að komast, einkum og sér í lagi þegar menn sogast að mat og drykk eins og mý á mykjuskán. Því snerist hann á sveif með fólki sem kann vel að meta góðan mat og drykk. Til að byrja með hafði þetta ekki sjáanleg áhrif á þyngdina, það er að segja aukin matarneysla, en eftir því sem sældardögunum hefur fjölg- að hefur Víkverji braggast og er nú kominn í heldri manna tölu. x x x Það getur verið erfitt að vera mikillum sig og ekki síst í flugi. Sum sæti eru minni en önnur og oft er þröngt á milli sætaraða. Sessunautur Víkverja fann fyrir þessu um árið og reyndar brotnaði sætið undan hon- um. Flugfreyja bauð honum þá að sitja í rúmbetra sæti fremst í vélinni og Víkverji fékk að fljóta með þrátt fyrir að hafa verið eins og tannstöng- ull í laginu. Ekki er hægt að ganga að slíkum trakteringum vísum og þó ekki sé enn hámarksþyngd á farþeg- um í flugi óttast Víkverji að fljótlega verði sett fyrir þann leka og þá þarf að huga að enn frekari niðurskurði. Eftir að hafa lifað í vellystingum í rúmar tvær vikur blasti raunveru- leikinn við. Víkverji keypti sér æf- ingabuxur, útlitið varð strax betra og nú verður tekið á því fram að næsta fríi og flugi. x x x Víkverja varð á í messunni þegarhann fullyrti í fyrradag að Jón Þórisson, hönnuður sýningarinnar á Þórbergssetri á Halla í Suðursveit, væri barnabarn Þórbergs Þórðar- sonar. Hið rétta er að Sveinn Ív- arsson, arkitekt setursins, er barna- barn skáldsins. Víkverji biðst afsökunar á þessu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 refsa, 4 gang- braut, 7 erfiðum, 8 í vafa, 9 álít, 11 hása, 13 streyma, 14 refsa, 15 vísa, 17 auðugt, 20 skeldýr, 22 blómið, 23 glað- værðin, 24 ránfuglana, 25 sefaði. Lóðrétt | 1 glatar, 2 bólgu- æxlum, 3 sárt, 4 tek ófrjálsri hendi, 5 skammvinnu snjó- komunni, 6 pjatla, 10 örðug, 12 óhreinka, 13 vínstúka, 15 launa, 16 næða, 18 bumba, 19 þyngdareiningu, 20 ilma, 21 nytjaland. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gáfnaljós, 8 gæfur, 9 tigin, 10 tía, 11 sárni, 13 nárar, 15 flots, 18 Óttar, 21 ket, 22 staur, 23 ræðin, 24 takmarkar. Lóðrétt: 2 álfur, 3 narti, 4 lútan, 5 ólgar, 6 aggs, 7 ónar, 12 nót, 14 ást, 15 foss, 16 okana, 17 skrám, 18 ótrúr, 19 tuðra, 20 rann. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4. d4 Rf6 5. Rf3 g6 6. Re5 Bg7 7. Bc4 O-O 8. O-O a6 9. He1 b5 10. Bb3 Bb7 11. Bf4 Dd8 12. De2 Rd5 13. Df3 e6 14. Re4 Rc6 15. Had1 Rxf4 16. Dxf4 De7 17. c3 Kh8 18. Hd3 Rxe5 19. dxe5 Bxe4 20. Hxe4 c5 21. Bc2 Had8 22. g3 Hd5 23. Hxd5 exd5 24. He1 He8 25. Dd2 De6 26. Hd1 Hd8 27. f4 f6 28. exf6 Dxf6 29. De3 c4 30. Kf1 b4 31. Dc5 De6 32. He1 Dh3+ 33. Kg1 bxc3 34. bxc3 Bxc3 35. He7 Bf6 36. Hf7 De6 37. Da7 Kg8 38. Hxh7 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Leiden í Hol- landi. Hollenski stórmeistarinn Sergei Tivjakov (2623) hafði svart gegn Hugo Hengel (2191). 38… Bd4+! 39. Dxd4 Kxh7 40. f5 Dd6 41. fxg6+ Kg8 42. Bf5 He8 43. Kg2 De5 44. Da7 De2+ og hvítur gafst upp. Svartur á leik BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Uppvakning. Norður ♠54 ♥96 ♦ÁK973 ♣9742 Vestur Austur ♠Á632 ♠D ♥KD543 ♥G7 ♦108 ♦G642 ♣103 ♣ÁKDG65 Suður ♠KG10987 ♥Á1082 ♦D5 ♣8 Suður spilar 4♠ doblaða. Austur vakti á Standard-laufi, suður sagði 1♠ og vestur 2♥. Meinlaus byrjun, en eftir nokkra snúninga í viðbót höfðu NS „fórnað“ í 4♠ yfir 3G. Lauftían út og meira lauf. Í suður var Mike Cappelletti. Hann trompaði lauf númer tvö og skellti síðan ♠K á borðið með góðum árangri. Vestur dúkkaði spaðann tvisvar, tók svo og skipti yfir í ♥K. Cappelletti drap, fór heim á ♦D, kláraði trompin og spilaði tígli á ás. Í endastöðunni átti blindur ♥9 og ♦K9. Heima var sagnhafi með ♥1082. Austur hélt eftir ♥G og ♦G6, en vestur ♥D54. Cappelletti var með stöð- una á tæru, spilaði hjarta og endaspilaði austur. Terence Reese kallaði þetta „winkle“, sem Guðmundur Karlsson þýddi snyrti- lega með „uppvakningu“. Yfirdrepi vest- ur ♥G vakna upp slagir á ♥108 suðurs. 20. ágúst 1942 Sjö manna áhöfn vélbátsins Skaftfellings bjargaði 52 Þjóð- verjum af kafbátnum U–464 sem Catalina-herflugvél með bækistöð í Skerjafirði hafði sökkt 175 sjómílum suður af Hornafirði. 20. ágúst 1973 Sendiherra Bandaríkjanna af- henti forseta Íslands tungl- stein, sem fluttur var til jarðar í ferð Apollo 17 í desember ár- ið áður, og íslenskan fána sem hafði verið farið með til tunglsins. 20. ágúst 1982 Átján manna hópur kleif Eld- ey, þar á meðal fyrsta konan sem það gerði, Halldóra Fil- ippusdóttir. Eyjan var fyrst klifin, svo vitað sé, árið 1894, síðan um 1940 og 1971. 20. ágúst 1982 Um þrjú hundruð marsvín komu að landi við Rif á Snæ- fellsnesi og voru langflest þeirra rekin á haf út. Hafði ekki áður tekist að bjarga svo mörgum marsvínum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … „Ég ætla að halda upp á það í Stokkhólmi,“ segir Katrín Alda Rafnsdóttir, fatahönnuður og afmæl- isbarn dagsins. „Þetta verður fjórfalt afmælispartí með vinkonu minni frá New York og hennar vin- um.“ Hún segir þetta vera árlegt afmælispartí þar sem allir leggja leið sína til Stokkhólms yfir eina helgi að fagna afmælinu sínu saman. Katrín Alda hannar fatnað undir merkinu Kalda og rekur búðina Einveru á Laugaveginum ásamt systur sinni Rebekku. „Það gengur rosalega vel. Við vorum að koma af tískuviku í Köben og vorum að taka inn skómerki sem við erum rosalega ánægðar með.“ Merkið heitir Jeffrey Campbell og kemur í búðina 1. september. „Við erum að fara að sýna sumarlínu Kalda úti í London á tískuvikunni þar í september. Þar er svona „popup“ búð og verður hún í tvær vikur,“ segir hún. Katrín Alda er búin að vera dugleg að vinna að nýju línunni í sum- ar, sem er nú tilbúin og segir hún að ágúst verði einan helst notaður í skemmtilegheit. Eins og fram kom er hún nú stödd í Stokkhólmi í Sví- þjóð en veit ekki hvað tekur við. „Það er óráðið hvað gerist eftir þetta,“ segir hún að lokum. gunnthorunn@mbl.is Katrín Alda Rafnsdóttir fatahönnuður er 27 ára Árlegt partí í Stokkhólmi Nýirborgarar Reykjavík Þórhallur Anton fæddist 14. júlí. Hann vó 3.420 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Guðrún Gunnarsdóttir og Sveinn Þór Þórhallsson. Flóðogfjara 20. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.20 2,8 9.38 1,4 16.05 3,3 22.28 1,2 5.35 21.28 Ísafjörður 5.40 1,5 11.49 0,8 18.12 1,9 5.28 21.45 Siglufjörður 1.26 0,5 8.21 1,0 13.36 0,6 19.55 1,2 5.11 21.28 Djúpivogur 0.09 1,4 6.20 0,7 13.16 1,8 19.30 0,8 5.01 21.01 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú hefur unnið vel að undanförnu og getur því um frjálst höfuð strokið. Komandi ár færir rómantík, daður, frí og fleiri skemmtilega hluti til þín frá og með deginum í dag. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er bráðnauðsynlegt að lesa vel allt smáa letrið á þeim skjölum sem þú skrifar undir. Hafðu ekki áhyggjur af hlutunum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ímyndunaraflið er í góðum gír þessa dagana og þú getur ekki skilið hvernig einhver getur ekki átt sér draum. Breytingar á nánum samböndum neyða þig til að aðlag- ast breyttum aðstæðum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert full/ur orku. Sanngirni er sanngirni, burtséð frá tilefninu. Haltu þínu striki í ástamálunum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Fólk hefur gaman af því að annast þig, hvort sem hjálparleysi þitt er uppgerð eða veruleiki. Spáðu meira í mataræðið. Freisting liggur í loftinu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert það sem þú borðar. Nú eru svo margir kostir í boði að það er óráð að rasa um ráð fram. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú þarft að taka á honum stóra þínum í samskiptum við aðra í dag. Þú rembist við að líkjast einhverjum sem er gjörólík/ur þér. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þar sem þú ert alltaf svo nær- gætin/n, gæti það valdið vissum aðilum sársauka ef þú ætlar að vera hispurslaus. Nýttu tímann þér til ánægju og til að auka á hreysti þína. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þér eru slegnir svo margir gull- hamrar að þú finnur þig knúna/inn til að hrósa þér. Glaðværar og tillitsamar óskir eru strax uppfylltar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú bæði elskar að taka áskor- unum og að vinna auðveldlega - og ert því í klípu. Margar hendur vinna létt verk. vatnsberi Vatnsberi Gættu þess að gaumgæfa smáat- riðin ekki síður en þau stærri. Líttu í spegil og segðu sjálfum/sjálfri þér að þú sért frá- bær. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Athyglin sem þú veitir öðrum er gjöf. Leitaðu ráða þér eldri og reyndari manna og þá áttu auðveldara með að taka af skarið. Stjörnuspá Magnús G. Friðgeirsson er sextugur í dag. Magnús hefur komið víða við í sölu landbún- aðar- og sjáv- arafurða og ný- sköpunar í iðnaði. Hann mun verja deginum í hópi fjölskyldu og vina. 60 ára Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.