Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 ✝ Árelía ÞórdísAndrésdóttir (Dísa) fæddist í Reykjavík hinn 4. desember 1956. Hún lést á heimili sínu, Smyrlahrauni 45, Hafnarfirði, sunnu- daginn 8. ágúst 2010. Faðir hennar er Andrés Sighvatsson, f. 10.7. 1923, og móð- ir hennar var Júlíana Viggósdóttir, f. 2.8. 1929, d. 14.12. 2000. Systkini Árelíu Þór- dísar eru Kristín Andrésdóttir, f. 25.10. 1947, Sighvatur Andrésson, f. 26.3. 1949, d. 1.7. 1989, Margrét Lilja Rut Andrésdóttir, f. 6.6. 1955, d. 8.8. 1994, Andrés Jón Andrésson, f. 1.2. 1960, Lára Halla Andr- ésdóttir, f. 15.3. 1965, Viggó Andr- ésson, f. 7.1. 1967, og Finnur Andr- ésson, f. 10.4. 1971. Hinn 30. nóvember 1974 giftist Árelía Þórdís eftirlifandi eigin- manni sínum, Leifi Rósinbergssyni, f. 4.5. 1953 í Reykja- vík. Þau eignuðust fjögur börn: (1) Leifur Þór Leifsson, f. 23.12. 1975, kona hans er Sigrún Jónsdóttir, f. 15.7. 1976, dætur þeirra eru Eyrún Alda Leifsdóttir, f. 5.3. 2001, Kolbrún Ósk Leifsdóttir, f. 24.10. 2003, og Berg- rós María Leifsdóttir, f. 29.4. 2009, (2) Ró- bert Leifsson, f. 7.10. 1978, dóttir hans er Þórdís María Róbertsdóttir, f. 25.1. 2007, (3) Anna María Leifsdóttir, f. 23.11. 1979, hún er í sambúð með Róberti Ragnari Grönqvist, f. 20.9. 1979, og eiga þau saman Guðrúnu Emmu Grönqvist, f. 31.8. 2009, og (4) Karl Kristján Leifsson, f. 28.11. 1983, hann er í sambúð með Angel- ine Theresa Thomas, f. 27.7. 1976. Útför Árelíu Þórdísar fer fram í Hafnarfjarðarkirkju í dag, 20. ágúst 2010, kl. 13. Ég kynntist tengdaforeldrum mínum vorið 1997 þegar við Leifur vorum að byrja saman og ég kom í heimsókn til þeirra í Hafnarfjörð- inn. Leifur ætlaði að lauma mér nið- ur í herbergið sitt en í staðinn hitt- um við alla fjölskylduna í dyrunum. Ég var alltaf velkomin til þeirra og það er mjög eftirminnilegt þegar við sögðum þeim að von væri á fyrsta barnabarninu, þau klöppuðu af einskærri gleði og voru ákaflega spennt. Dísa var stelpunum okkar þremur góð amma, hún hugsaði mikið til þeirra og þegar hún hitti stelpurnar laumaði hún oft lítilli gjöf í höndina á þeim. Hún smíðaði fyrir þær fínustu dúkkuvagna og vöggu sem þær eiga eftir að eiga alla tíð. Það átti enginn von á því að þegar við komum í sumarbústað til Dísu og Leifs um verslunarmannahelgina yrði það í síðasta skiptið sem við sæjum hana Dísu. Henni fannst ofsalega gaman að fá allar ömmu- stelpurnar fimm til sín og skemmti sér konunglega yfir látunum í þeim í heita pottinum. Þetta var skemmti- legur dagur og við áttum góða stund saman. Ég er þakklát fyrir þennan dag, stelpurnar okkar eiga glaðlegar síðustu minningar um Dísu ömmu sína. Blessuð sé minning hennar. Við kveðjum þig, kæra amma, með kinnar votar af tárum, á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi, athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi, mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi, við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Sigrún Jónsdóttir og ömmu- stelpurnar Eyrún Alda, Kol- brún Ósk og Bergrós María. Hún Dísa er dáin. Það sló mig af öllu afli í hjartastað þegar hringt var í mig. Og nú sit ég hér og hugsa til þín, elsku frænka. Margs er að minnast. Ég man þegar við hittumst yfir kaffisopa og spjölluðum um lífið og tilveruna. Við rifjuðum upp gamla tíma, föndruðum stundum eða skruppum á kaffihús. Ég man allan þinn styrk og dugnað um æv- ina, ósérhlífni og manngæsku. Þú máttir ekkert aumt sjá og vildir allt- af hjálpa öðrum. Ég mun ætíð sakna þín og minnast. Ég trúi á ljós, sem lýsi mér, á líf og kærleika, á sigur þess, sem sannast er, og sættir mannanna. Á afl sem stendur ætíð vörð um allt, sem fagurt er, á Guð á himni, Guð á jörð og Guð í sjálfum mér. (Ólafur Gaukur.) Mér fannst í gær að hvíslað væri að mér að þú værir orðin að engli og yrðir alltaf hjá okkur. Ég vil senda Leifi og fjölskyldu innilegar sam- úðarkveðjur. Far vel, Dísa mín. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perlu- glit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson.) Þín frænka, Rós. Elsku Dísa mín, mig langar að þakka þér samveruna gegnum árin. Þú skapaðir eiginmanni þínum og börnum fallegt heimili, þú mátt vera stolt af börnum ykkar Leifs, sem hafa staðið sig vel í námi og öðru sem þau taka sér fyrir hendur. Söknuðurinn er sár, mér var alltaf hlýtt til þín, þú gafst af þér hlýju og kærleik til allra. Ég vil minna á bænina okkar sem við áttum sam- eiginlega: „Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ Kveðja. Ásta. Dísa vinkona mín er orðin engill á himnum sem vakir nú yfir okkur. Fyrir nokkrum árum fluttu Dísa og Leifur í íbúðina fyrir neðan mig og fjölskyldu mína. Ég og Dísa urð- um fljótt góðar vinkonur og hún bauð mér yfirleitt einhvað, t.d. ís eða svala. Þegar ég var ein heima þá var gott að vita um Dísu niðri og þegar mamma og pabbi þurtu að skreppa eitthvað þá vildi ég að þau létu Dísu vita. Mér fannst mjög gott að fara til hennar í heimsókn til að spjalla, lita eða horfa á sjónvarpið. Minning þín lifir í huga mínum. Ég og fjölskylda mín biðja Guð að styrkja Leif og fjölskyldu í sorginni. Stefanía Sigurðardóttir, nágranni. Það voru sorgarfréttir sem okkur bárust mánudaginn 9. águst. Dísa eins og hún var alltaf kölluð í Geysi var látin og eftir sitja ættingjar og vinir. Hún gekk snemma í Klúbbinn Geysi og stundaði hann nokkuð fyrstu árin sem hann starfaði. Síðan tók hún sér hlé en árið 2007 fór hún að mæta á ný í klúbbinn og var mjög virk allt þar til hún lést svo sviplega á besta aldri. Dísa var drífandi í því sem hún tók sér fyrir hendur og sat aldrei auðum höndum. Hún var mjög listfeng og kenndi félögum í Geysi meðal annars að skreyta kerti sem seld voru á haustmarkaði klúbbsins. Hún var hláturmild og hress. Það var alltaf gaman að um- gangast hana og alltaf gat hún feng- ið mann til að brosa og hlæja. Hún var ætíð tilbúin að hjálpa og aðstoða aðra og þeir sem minna máttu sín áttu alltaf stað í hjarta hennar, jafnt menn sem málleysingjar. Það eru margar minningar sem við eigum um hana Dísu okkar og hennar verður sárt saknað. Um leið og við vottum fjölskyldu og vinum okkar dýpstu samúð þökkum við Dísu samfylgdina. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Benediktsson.) Fh. félaga og starfsfólks Klúbbsins Geysis, Benedikt Gestsson og Þórunn Helga Garðarsdóttir. Árelía Þórdís Andrésdóttir ✝ Árni Skarphéð-insson fæddist að Króki í Víðidal í Vestur-Húnavatns- sýslu 4. júní 1923. Hann lést á Heil- brigðisstofnuninni á Hvammstanga hinn 12. ágúst 2010. Árni var sonur hjónanna Skarphéð- ins Skarphéð- inssonar, f. 2. júní 1892, d. 2. febrúar 1978, og Þuríðar Kristínar Árnadótt- ur, f. 7. júní 1898, d. 14. sept- ember 1980. Systkini Árna eru: Þuríður, f. 12. apríl 1919, d. 12. júní 2000, Sigríður, f. 12. apríl 1919, d. 18. maí 2002, Anna, f. 17. maí 1929, og Baldur, f. 17. októ- ber 1930. Sambýliskona Árna var Laufey Jónsdóttir, en þau slitu sam- vistum árið 1966. Dóttir Árna og Laufeyjar er Kristín, f. 26. sept- ember 1962. Maki hennar er Jón Óli Sigurðsson. Sonur Kristínar frá fyrra hjónabandi er Árni Þór Óskarsson, f. 27. febrúar 1983, faðir hans er Óskar Hlynsson. Árni ólst upp í foreldrahúsum fram yfir þrítugs- aldur og vann að öllum almennum bú- störfum þrátt fyrir mikla fötlun sína, en á öðru aldursári fékk Árni löm- unarveiki sem stöðv- aði eðlilegan þroska á hægri fæti og olli jafnframt lömun á fætinum. Árið 1956 keypti Árni jörðina Hvarf í Víðidal með Jóhanni Hermanni Sigurðssyni og hóf hann þar búskap. Eftir að Árni og Laufey slitu sambúð sinni árið 1966 hætti Árni búskap og flutti hann heim til foreldra sinna með dóttur sína Kristínu, þar sem hún ólst síðan upp. Eftir að Árni hætti búskapnum stundaði hann ýmis störf í Reykjavík ásamt því að læra skósmíðar á Akureyri. Frá árinu 1973 starfaði hann í Ál- verinu í Straumsvík eða þar til hann varð sjötugur. Síðustu 10 árin dvaldi Árni á Heilbrigð- isstofnuninni á Hvammstanga. Útför Árna fer fram í Grensás- kirkju í dag, 20. ágúst 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku pabbi, nú ert þú búinn að kveðja en þú fórst aðeins of fljótt, ég náði ekki að kveðja þig og segja þér hvernig veðrið var á leiðinni frá Reykjavík til Hvammstanga. Þú varst alltaf svo áhugasamur um veðrið og spurðir mig alltaf mikið um það og kenndir mér marga hluti um veðrið. Þú ert mín fyrirmynd sem ég ætla að varðveita. Alltaf svo jákvæður og í góðu skapi og kvartaðir ekki þó að þú værir ekki jafnvígur á við aðra til gangs þar sem þú varst fatlaður frá unga aldri. En það lést þú ekki aftra þér í leik og starfi. Og alltaf varst þú til í ferðalög, sumarbústaðaferðir og að heimsækja ættingja og vini. Gam- an var að hlusta á þig segja sögur því þú hafðir skemmtilega frásagnar- hæfileika og lýstir alltaf vel bæði að- stæðum og fólki og mikið var hlegið að sögunum þínum, enda er maður manns gaman. Ég þakka þér fyrir allt, pabbi minn, og ég veit að þér á eftir að líða vel á nýja staðnum og þegar við hitt- ust aftur þá fáum við okkur vöpplur (vöfflur) saman. Augun mín og augun þín, ó! þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Úr vísum Vatnsenda-Rósu) Þín dóttir, Kristín. Við skulum fara í bíltúr bara við tveir. Ekki að við ætlum að ræða það fyrirfram hvert við ætlum að fara, heldur bara leggja af stað. Bíllinn var alltaf settur ákveðið í gang eins og þú værir ekki viss um að hann færi í gang nema með hljóðlátri hvatningu fyrst en hann fór samt alltaf í gang. Best var að keyra upp að gamalli rétt á Kjalarnesi, ekki beint til þess að skoða hana heldur til að heilsa upp á kunnuglegt svæði í góðu veðri. Við erum heppnir í dag þar sem þú þarft ekki lengur að keyra þangað sem við förum núna við getum farið hvert sem er, upp að Borgarvirki eða kíkt á Kolugljúfur á leið okkar um Víðidalinn. Ferðalögin voru svo skemmtileg þar sem það kom alltaf eitthvað óvænt upp. Allt í einu varstu búinn að draga upp kalt hangilæri og vasa- hníf og skarst góða bita fyrir okkur báða en ávallt skulum við vera spar- samir því þetta er langt ferðalag. Eitt sinn á löngu ferðalagi til Ak- ureyrar vorum við búin að bóka her- bergi í fallegu gulu húsi. Þegar við komum þangað var stiginn brattari en stiginn í Huppahlíð en þú ætlaðir að láta þig hafa það. Við færðum okkur ekki á annað gistiheimili fyrr en þú varst allavega búinn að klöngr- ast stigann tvisvar upp og niður og eftir það var gistiheimilið kallað gula hættan. Við fundum aðra mun hættuminni gistingu og fengum okk- ur skorinn bita af hangikjöti. Hvern- ig geta reimar verið svona langar? Það tekur óratíma að þræða þessar löngu reimar gegnum svo margar spennur upp á hvern dag. Reimarn- ar voru það langar að það var gríð- arlega spennandi að hjálpa til við að binda umbúðirnar. Fyrst hérna yfir, svo halda áfram hérna upp. Þetta var sko lítið mál stöku sinnum fyrir mig en ég var hissa að þessi duglegi afi nennti að græja þetta á hverjum degi. Ég hugsaði með mér að sem betur fer væri þetta bara öðru megin því annars kæmumst við eflaust ekki upp að réttinni á Kjalarnesinu. Ef veðrið var mjög gott létum við ekki réttina duga heldur fórum upp að Staupasteini í Hvalfirði. Vegirnir eru orðnir svo góðir í dag og bíllinn þægilegur, þetta er allt annað en að keyra um á Skoda, alveg sama hvernig hann er á litinn. Litirnir voru alltaf smá-vandamál en við viss- um samt báðir að sjórinn var blár eins langt og augað sá þegar við fór- um saman í Grímsey. Það var löng sigling en við vorum þolinmóðir allan tímann, skrítið að ég muni bara eftir ferðalaginu til eyjarinnar en ekkert eftir eyjunni. Kannski var það vegna þess að við vorum ekki með hangi- læri til að skera bút af á staðnum. Á endanum komum við samt alltaf heim og yfirleitt heim á Kleppsveg. Það var kannski ekki mikið til en alltaf voru til kaldar kartöflur í gráu mælikönnunni, kaldur hafgragraut- ur full-hlaupkenndur fyrir minn smekk og súrt slátur. Ég held við fáum okkur samt bara rúgbrauð með kæfu núna með aðeins of miklu smjöri undir kæfuna. Nú ert þú, afi minn, kominn heim úr stóra ferðalaginu. Ég held samt áfram að ferðast en mun aldrei gleyma vasahnífnum þínum heima, hangilærið er ekki eins gott þegar maður bítur í það. Árni Þór Óskarsson. Árni Skarphéðinsson ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður okkar, afa og langafa, BENEDIKTS GRÖNDAL, Hjallalandi 26, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2B á Hjúkrunaheimilinu Eir fyrir góða umönnun. Heidi Jaeger Gröndal, Jón Gröndal, Dorothea Emilsdóttir, Einar Gröndal, Guðrún Guðmundsdóttir og aðrir aðstandendur. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birt- ingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birt- ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsing- ar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.