Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Gunnlaugur Jónasson sló innlent hraðamet í tímakeppni á götuhjólum í gærkvöldi þegar hann hjólaði 20 km leið á Krýsuvíkurvegi á 27 mínútum og 8 sekúndum. Meðalhraði hans var rúmlega 44 km á klst. Þar með varð Gunnlaugur Íslandsmeistari í greininni en Ásdís Kristjáns- dóttir varð Íslandsmeistari kvenna á 34:50. Vax- andi áhugi er á götuhjólreiðum og hafa verslanir selt götuhjól í sumar sem aldrei fyrr. Hraðamet slegið á Krýsuvíkurvegi Morgunblaðið/Jakob Fannar Hraði Í tímakeppni eru keppendur ræstir með einnar mínútu millibili. Starfsmaður keppninnar styður við keppendur þar til þeim er hleypt af stað. Yfirheyrslu yfir Sigurði Einarssyni, fyrrverandi for- stjóra Kaupþings banka, verður að líkindum haldið áfram í dag, að sögn Ólafs Þ. Haukssonar, sérstaks saksóknara. Sigurður vildi lítið tjá sig um yfirheyrsluna eftir að henni lauk í gær en sagði að vel hefði gengið. Sigurður mætti til embættis sérstaks saksóknara klukkan níu í gærmorgun. Hann sagði þá við blaðamenn að hann hefði komið til skýrslutöku nú þar sem hann hefði talið þetta rétta tímann. Hann sagðist vera með hreina samvisku. Alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir Sigurði í maí vegna þess að hann sinnti ekki óskum sérstaks saksókn- ara um að koma til skýrslutöku. Yfirlýsingin hefur verið fjarlægð af vef Interpol. Ólafur Þ. Hauksson neitar því að embættið hafi samþykkt skilyrði Sigurðar fyrir því að hann kæmi til landsins. „Það kemur inn að hann hyggst koma og þess vegna er ekki tilefni lengur til að handtaka hann,“ sagði Ólafur. Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar, vildi ekki tjá sig um málið í gærkvöldi. Ólafur vildi ekki ræða framgang mála að öðru leyti en því að nú væri fram- vinda í rannsókninni, sem væri vel. Sigurður verður líklega yfirheyrður áfram í dag Morgunblaðið/Ernir Mættur Fjöldi blaðamanna beið Sigurðar Einarssonar.  Neitar að hafa samþykkt skilyrði fyrir mætingu Manni sem var hafður í haldi eftir yf- irheyrslu í fyrradag vegna morðmáls- ins í Hafnarfirði hefur verið sleppt. Lögreglan segir að allt kapp sé lagt á að handsama þann sem banaði Hann- esi Þór Helgasyni. Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- maður rannsóknardeildar lögregl- unnar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöld að ekkert fréttnæmt hefði gerst í gær eftir að manninum var sleppt úr haldi. Þá komu systur Hannesar fram í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöld og þökkuðu þann samhug sem fjöl- skyldan hefði fundið fyrir. Báðu þær þjóðina um aðstoð við að upplýsa mál- ið og sögðu að allar upplýsingar, sem tengdust málinu, gætu komið sér vel. Manninum sleppt úr haldi í gær Systur Hannesar þakka fyrir samhug Morgunblaðið/Jakob Fannar Rannsókn Lögreglan fyrir utan hús Hannesar Þórs í Hafnarfirði. Tilkynnt var að eldur væri laus í kjallara steypuskála álversins í Straumsvík laust fyrir klukkan 10 í gærkvöldi og voru slökkviliðsmenn frá tveimur stöðvum sendir til að ráða niðurlögum hans. Ekki voru til- kynnt slys á fólki. Eldurinn virtist vera staðbundinn og fremur lítil hætta var talin vera á að hann breiddist út. Þó gekk slökkviliði illa að komast að upp- tökum hans. Slökkvistarf stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prent- un á tólfta tímanum í gærkvöldi. Eldur í kjallara steypuskála Morgunblaðið/Eggert Eldur Reyk lagði frá steypuskála. FRÍTT Í STRÆTÓ Á MENNINGARNÓTT Maður tekur strætó 21. ágúst. Nánari upplýsingar á strætó.is Reykjavíkurborg býður strætó.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Norðurál getur hafið framkvæmdir við álver í Helguvík um leið og orku- málin leysast. Ragnar Guðmunds- son, forstjóri Norðuráls, segir að taf- ir við undirbúning virkjana, hvort sem þær séu af viðskiptalegum eða pólitískum ástæðum, seinki fram- kvæmdum við álverið. Þessum hindrunum verði að ryðja strax úr vegi. Tafir á mörgum stöðum Framkvæmdir við uppbyggingu álvers Norðuráls í Helguvík hafa taf- ist vegna þess að ekki hefur tekist að ljúka undirbúningi virkjana. Ragnar segir rætt við orkufyrirtækin um at- riði varðandi orkukaup sem út af standi en samið var um að HS Orka og Orkuveita Reykjavíkur útveguðu orku til álversins. Ragnar segir að það skapi vandamál að orkufyrir- tækin hafi ekki getað komið verk- efnum áfram. Nefnir hann að ætlunin hafi verið að leggja rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma fyrir Alþingi á síðasta þingi. Hann segir að þegar Norðurál samdi við HS Orku hafi fyrirtækið verið í meirihlutaeigu sveitarfélaga. Eignarhald fyrirtæk- isins hafi verið í uppnámi um árabil og málið sé ekki endanlega til lykta leitt. Þá segir hann að HS Orka þurfi að hafa möguleika til að uppfylla skuldbindingar um útvegun raforku sem fyrirtækið tók á sig 2007. Þá skilst Ragnari að það hafi áhrif á undirbúning Hverahlíðarvirkjunar að skipulag sveitarfélagsins Ölfuss sitji fast í umhverfisráðuneytinu. Loks nefnir hann að HS Orka hafi reynt að fá framkvæmdaleyfi fyrir stækkun Reykjanesvirkjunar í heilt ár. Vonast eftir meiri stuðningi „Við vitum að álverið í Helguvík hefur mikla þýðingu fyrir landið og vonum að það fari að fá þann stuðn- ing sem það þarfnast,“ segir Ragnar. Hindrunum við orkuöflun verður að ryðja strax úr vegi Morgunblaðið/RAX » Álver í Helguvík skilar rík- issjóði um milljarði á mánuði. » Á þriðja þúsund manns fá vinnu við uppbygginguna og að minnsta kosti tvö þúsund störf verða til þegar rekstur þess hefst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.