Morgunblaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2010
Sudoku
Frumstig
3 9 8
7 1
4 5 2 3
8 4
9 1 2
9 8 7 5
8 3 9
7 9 1 4
4 9 5 3
6 9 7 5 1
3 7 4 6
2 1 7
7 4
5 1 4
1
4 2 9
3
8
9 3 4 1
1 2
7 3 9 8
8 5 1 2
2 9 5
4 9
1 6 7
4
8 7 1 6 5 2 9 4 3
9 6 3 8 7 4 5 1 2
2 4 5 1 9 3 7 6 8
5 1 7 9 2 8 6 3 4
4 8 2 7 3 6 1 9 5
3 9 6 5 4 1 2 8 7
6 5 4 3 1 7 8 2 9
1 2 9 4 8 5 3 7 6
7 3 8 2 6 9 4 5 1
5 1 6 2 7 9 4 8 3
9 3 7 4 8 6 1 5 2
2 8 4 3 5 1 9 6 7
7 5 1 6 4 2 3 9 8
3 4 9 7 1 8 6 2 5
6 2 8 5 9 3 7 1 4
4 6 2 9 3 5 8 7 1
8 7 5 1 6 4 2 3 9
1 9 3 8 2 7 5 4 6
6 3 4 1 7 5 2 8 9
1 5 8 3 9 2 7 6 4
7 9 2 4 8 6 3 1 5
2 8 3 7 4 1 5 9 6
9 6 1 5 3 8 4 7 2
5 4 7 2 6 9 1 3 8
8 2 5 9 1 7 6 4 3
3 7 6 8 5 4 9 2 1
4 1 9 6 2 3 8 5 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 26. ágúst,
238. dagur ársins 2010
Orð dagsins: „Á því munu allir
þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar,
ef þér berið elsku hver til annars.“
(Jh. 13, 35.)
Undanfarið hefur verið fjallað umþað í fréttum að heimurinn hafi
brugðist fálega við ákalli um að
hjálpa nauðstöddum Pakistönum,
sem eru á hrakhólum milljónum
saman eftir miklar rigningar og flóð
að undanförnu. Heimurinn hefur
hins vegar aldeilis tekið við sér eftir
að birt var myndskeið á netinu þar
sem kona sást henda ketti í ruslið í
bænum Coventry. Víkverji ætlar
ekki að verja gerðir konunnar og í
raun kemur honum ekki á óvart að
viðbrögð skuli vera mikil í net-
heimum, en honum finnst fráleitt að
hafin skuli hatursherferð á hendur
konunni á hinni vinalegu sam-
skiptasíðu Facebook og henni skuli
hafa borist morðhótanir.
x x x
Eigendur kattarins fundu hannþegar þeir heyrðu hann mjálma
í ruslatunnunni. Fyrir einhverju síð-
an höfðu þeir sett upp myndavél við
heimili sitt vegna þess að ítrekað
hafði verið ekið utan í bílinn þeirra.
Nú kom myndavélin sér vel vegna
þess að þar sást konan henda kett-
inum í ruslið. Nú er hún í rusli.
x x x
Konan heitir Mary Bale – nafnhennar er að sjálfsögðu komið
fram – og er 45 ára gamall banka-
starfsmaður. Í samtali við blaðið The
Sun kvaðst hún ekki skilja „hvaða
læti“ þetta væru. Hún sagði að þetta
hefði verið grín og bætti við: „Þetta
er bara köttur.“
x x x
Síðar gaf konan hins vegar út yf-irlýsingu þar sem hún baðst
ákaft afsökunar „á uppnáminu og
angistinni, sem gerðir mínar hafa
valdið. Ég get ekki skýrt hvers vegna
ég gerði þetta, þetta er þvert á per-
sónuleika minn og ég ætlaði alls ekki
að valda [kettinum] Lólu eða eig-
endum hennar hugarangri“. Bresku
dýraverndarsamtökin, RSPCA,
rannsaka nú málið og Bale kveðst
ætla að hjálpa til við rannsóknina eft-
ir föngum. Breska lögreglan ætlar
hins vegar ekkert að aðhafast. Hún
segir Bale ekki hafa framið neinn
glæp. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sláttur, 8 lund, 9
falla, 10 mergð, 11 ull, 13
óskir, 15 karldýr, 18 tvíund,
21 ætt, 22 skúta, 23 vesæll,
24 trassafenginn.
Lóðrétt | 2 eyja, 3 harma, 4
andartak, 5 kæpan, 6 óblíð-
ur, 7 brumhnappur, 12 ögn,
14 stormur, 15 alin, 16 reiki,
17 rifa, 18 lítilfjörlegur mat-
ur, 19 þulu, 20 gömul.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tukta, 4 stétt, 7 púlum, 8 efins, 9 tel, 11 ráma, 13 buna,
14 tyfta, 15 baga, 17 ríkt, 20 aða, 22 rósin, 23 kætin, 24 arana,
25 róaði.
Lóðrétt: 1 tapar, 2 kýlum, 3 aumt, 4 stel, 5 élinu, 6 tuska, 10 erf-
ið, 12 ata, 13 bar, 15 borga, 16 gusta, 18 ístra, 19 tonni, 20 anga,
21 akur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 d5 2. c4 e6 3. g3 Rf6 4. Bg2 dxc4
5. Da4+ Rbd7 6. Dxc4 c5 7. O-O b6 8.
b4 Bb7 9. bxc5 Bxc5 10. d4 Bd6 11. Rc3
a6 12. a4 O-O 13. Bb2 De7 14. Hfd1
Hfc8 15. Db3 Hc7 16. Rd2 Bxg2 17.
Kxg2 Hac8 18. Rce4 Bb4 19. Dd3 Rb8
20. Rxf6+ Dxf6 21. Rf3 Hc2 22. Hac1
Hxc1 23. Bxc1 Dd8 24. Rg5 Dd5+ 25.
Kg1 f5 26. e4 fxe4 27. Rxe4 Df5 28. Be3
b5 29. axb5 Dxb5 30. Db1 Be7 31. Da1
Rd7 32. d5 exd5 33. Rc3 Dc6 34. Rxd5
Bf6 35. Da2 Dc4 36. Db1 Hf8 37. Df5
Re5 38. Rxf6+ gxf6 39. Bh6 De2
Staðan kom upp á opna kanadíska
meistaramótinu sem lauk fyrir
skömmu í Toronto. Heimamaðurinn og
alþjóðlegi meistarinn Nikolay Norit-
syn (2401) hafði hvítt gegn Bandaríkja-
manninum Alexander Betaneli (2271).
40. De6+! Kh8 41. Dxf6+! og svartur
gafst upp enda óverjandi mát.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Feluleikur.
Norður
♠642
♥KD3
♦Á1076
♣G72
Vestur Austur
♠DG107 ♠985
♥1062 ♥G9754
♦D43 ♦2
♣1065 ♣Á984
Suður
♠ÁK3
♥Á8
♦KG986
♣KD3
Suður spilar 6♦.
Þegar dýr merkurinnar mætir nátt-
úrulegum óvini sínum reynir það af eðl-
ishvöt að láta lítið fyrir sér fara – fela sig.
Trompdrottningin á sér tvo náttúrulega
óvini, ás og kóng í sama lit. Í viðskiptum
við þá kóna hafa handhafar drottning-
arinnar ósjálfráða tilhneigingu til að
skýla bráðinni.
Í spilinu að ofan fær sagnhafi út ♠D og
leggur niður ♦K í öðrum slag. Staldrar
svo við stutta stund. Þá er eins og vestur
átti sig skyndilega á aðsteðjandi hættu.
Ósjálfrátt tekur hann spil úr blævæng
sínum, færir út á kantinn og hefur til
taks í næsta slag. Lokar svo vængnum
vandlega í lófa sér og lítur til lofts.
Hér er um ósjálfráðan varnarhátt að
ræða, arfgengan felubúnað kynslóðanna.
Vestur ætlar ekki að láta sér fipast og
koma þannig upp um drottninguna. Svín-
ingin er 100%.
26. ágúst 1896
Suðurlandsskjálfti, hinn
fyrri. Fjöldi bæja í Rang-
árvallasýslu hrundi til
grunna. Styrkur skjálftans
hefur verið áætlaður 6,9
stig. Síðari stóri skjálftinn
varð 5. september.
26. ágúst 1948
Loftleiðir hófu áætlunarflug
til Bandaríkjanna þegar
flugvélin Geysir lenti í New
York. Félagið hafði leyfi til
sex ferða í mánuði fyrstu ár-
in. Ameríkuflug var ein meg-
instoðin í rekstri Loftleiða
og síðar
Flugleiða.
26. ágúst
1950
Torfi Bryn-
geirsson
varð
Evr-
ópumeistari
í langstökki
á móti í Brussel, stökk 7,32
metra.
26. ágúst 1950
Vegurinn um Óshlíð, milli
Hnífsdals og Bolungarvíkur,
var vígður við hátíðlega at-
höfn. „Lýsti biskup blessun
yfir vegi og vegfarendum,“
sagði Vísir, sem taldi það
nær einsdæmi. „Sérstæð og
erfið vegaframkvæmd um
hrikalegt landslag,“ sagði
Morgunblaðið.
26. ágúst 1991
Ísland stofnaði fyrst ríkja
formlega til stjórnmála-
sambands við Eystrasalts-
ríkin þrjú, Eistland, Lettland
og Litháen. Ritað var undir
yfirlýsingu um sambandið í
Höfða. „Við snúum nú aftur
inn í fjölskyldu Evr-
ópuþjóða,“ sagði Lennart
Meri, utanríkisráðherra Eist-
lands, að undirrituninni lok-
inni. Í kjölfarið viðurkenndu
aðrar þjóðir þessi ríki.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Það leggst alveg ljómandi vel í mig,“ sagði Gunn-
steinn Sigurðsson, skólastjóri Lindaskóla og fyrr-
verandi bæjarstjóri Kópavogs, aðspurður hvernig
það legðist í hann að verða sextugur.
Gunnsteinn kvaðst ætla að mæta til vinnu í skól-
anum á afmælisdaginn. „Það er rík hefð fyrir því í
minni fjölskyldu að halda upp á tímamót og af-
mæli. Við í fjölskyldunni ætlum að gera okkur
dagamun á föstudagskvöldið, það stendur betur á
þá,“ sagði Gunnsteinn. Hann kvaðst hafa haldið
heilmikla veislu þegar hann varð fimmtugur og
hún sé sér mjög minnistæð.
„Skólastarfið er að fara af stað og það er gleði og eftirvænting í því.
Ég er sæll og glaður yfir að vera kominn aftur hér til starfa. Ég er bú-
inn að vinna í skólaumhverfi alla ævi og þetta er mitt heimasvæði ef
svo má segja,“ sagði Gunnsteinn. En hvað telur hann vera gott veg-
arnesti fyrir lífið í ljósi reynslu sinnar til þessa?
„Það er fyrst og fremst að rækja vel það sem manni er trúað fyrir,
að leggja sig fram um að sinna því sem manni er falið af kostgæfni og
alúð,“ sagði Gunnsteinn. Hann sagði þetta gilda jafnt um nám og
störf. gudni@mbl.is
Gunnsteinn Sigurðsson skólastjóri 60 ára
„Ég er sæll og glaður“
Flóðogfjara
26. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.16 0,4 7.16 3,8 13.23 0,4 19.30 3,9 5.53 21.07
Ísafjörður 3.16 0,2 9.04 2,0 15.20 0,3 21.20 2,1 5.49 21.21
Siglufjörður 5.33 0,2 11.45 1,2 17.39 0,2 23.56 1,3 5.31 21.05
Djúpivogur 4.27 2,1 10.38 0,4 16.45 2,1 22.53 0,4 5.20 20.39
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Leitaðu leiða til að auka tekjurnar og
ef kominn er tími til að þú fáir kauphækkun
skaltu fara fram á hana. Reyndu að hafa áhrif
þar á því þú átt mikið undir því hvernig fer.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér vinnst vel og þú stefnir ótrauður að
settu marki. Einnig væri aukið næði af hinu
góða. Settu þér það mark að hugsa áður en
þú talar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þótt þú kunnir að meta einhvern
mikils, þá er að hugsa ekki það sama og að
elska. Fróðleiksþorsti þinn er mikill og nám
og ferðalög munu koma til góða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að vera sveigjanleg/ur sem
mest þú mátt. Auk þess ertu snillingur ef þú
færð sjálf/ur að ráða för.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Kannski er þetta ekki stundin sem þú
hefur beðið eftir allt þitt líf. Ekki láta reka á
reiðanum, heldur taktu þig saman í andlitinu
og láttu verkin tala.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Komdu þér í rétta gírinn, því þú munt
brátt koma á áhrifaríkum samböndum sem
hækka kaupið. Reyndu að taka hlutunum létt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að vera í einrúmi í dag. Raun-
veruleikinn er of þungbær og þig langar að fá
frí frá skyldum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur auðveldlega þjálfað þig
upp á nýtt. Mundu að svo uppsker maðurinn
sem hann sáir til. Vertu óhrædd/ur við nýjar
hugmyndir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Draumur heltekur þig. Kannski
sérðu ekki ávinning áhættunnar þegar í stað,
en getur verið viss um að hann sé þarna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þig langar til að taka hlutina með
trompi í dag. Reyndu því ekki að troða málum
þínum áfram. Maki gæti jafnvel fengið launa-
hækkun eða annan bónus.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert að jafna þig eftir missi.
Undirtektir ástvina munu gefa þér vísbend-
ingu um framhaldið og hjálpa þér að taka
ákvörðun þar um.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Einmitt þegar þú hélst að þú værir
laus við ákveðið mál, er því dembt aftur á þitt
borð. Sá tími kemur að þú munt geta sagt
hug þinn allan.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is