Morgunblaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2010 ✝ Hulda Þorsteins-dóttir fæddist 15. nóvember 1921 í Bjarnaborg í Reykja- vík. Hún lést laug- ardaginn 14. ágúst sl. á Landspítalanum í Fossvogi á 89. ald- ursári. Foreldrar hennar voru Guðrún Eyþórs- dóttir, f. 18. ágúst 1886 í Reykjavík, dá- in 4. janúar 1931, ættuð af Mýrum og Þorsteinn Guðmunds- son, f. 26. ágúst 1877, verkamaður í Reykjavík, d. 10. feb. 1926 ætt- aður úr Borgarfjarðardölum. Hulda var yngst þriggja systra, en yngri var hálfbróðir sam- mæðra. Elst var Svanlaug, fædd 17. jan. 1919, dáin 29. júní 2007, þá Inga, fædd 4. júlí 1920, dáin 1. des. 2002. Yngstur var hálfbróðir þeirra, Birgir Guðmundsson, f. 13. júlí 1925, en hann drukknaði 23 ára gamall 7. ágúst 1948. Hulda ólst ekki upp hjá for- eldrum sínum. Hún var send í fóst- ur átta vikna gömul í Helgadal í Mosfellssveit í ársbyrjun 1922 til Ingibjargar Jónsdóttur, sem þar bjó ásamt syni sínum Guðjóni Sig- urði Jónssyni. Sigurður kvæntist 1927 Guðlaugu Einarsdóttur og ólst Hulda upp hjá þeim eftir það. að læra hjúkrun en aðstæður buðu ekki upp á það. Hulda eignaðist dóttur, Berg- lindi, með Braga Benediktssyni frá Landamótsseli í S-Þingeyjarsýslu 14. maí 1943. Hulda og Bragi tóku ekki upp sambúð og ólst Berglind upp hjá móðursystur Huldu, Lilju Eyþórsdóttur, framan af en fluttist til móður sinnar eftir að Hulda giftist. Hulda giftist Jóni Hjálmarssyni, erindreka og verslunarmanni, 14. maí 1955. Jón var fæddur 9. okt. 1924. Hann dó 18. apríl 1988 á 64. aldursári. Hulda og Jón eignuðust tvo syni, Hjálmar, f. 5. apríl 1956 og Brynjar, f. 17. maí 1957. Berglind eignaðist tvö börn með Agli Halldórssyni, Steinunni, f. 1963 og Huldu, f. 1965. Hún giftist síðar Karli Friðriki Kristjánssyni sem lést 2006 og eignuðust þau einn son, Kristján Friðrik, f. 1970. Langömmubörnin eru fimm tals- ins: Berglind Erna, Vésteinn, Karl Friðrik, Kristófer Matthías og Hugi. Hjálmar er kvæntur Ingibjörgu Klemenzdóttur. Þau eiga tvö börn, Huldu, f. 1987 og Jón, f. 1989. Fyrir átti Ingibjörg Hólmfríði Rós Rúnarsdóttur, f. 1978. Brynjar eignaðist Jón, f. 1978 með Sigríði Elíasdóttur. Hann er kvæntur Steinunni Steinarsdóttur og eiga þau tvö börn, Birnu, f. 1983 og Steinarr, f. 1987. Útför Huldu fer fram frá Ás- kirkju í dag, 26. ágúst 2010, klukkan 15. Kallaði hún Sigurð ávallt fóstra sinn og hélt sambandi við hann alla tíð. Birgir hálfbróðir Huldu ólst einnig upp í Helga- dal frá fjögurra ára aldri til 16 ára ald- urs. Systur Huldu fóru einnig í fóstur í Reykjavík þegar móðir þeirra veiktist, en veikindin leiddu til þess að hún dó í ársbyrjun 1931. Alla tíð var mikið samband á milli syst- kinanna þó þau ælust ekki upp saman. Hulda fór frá Helgadal 17 ára gömul og sá eftir það um sig sjálf. Hún var fyrst í vistum í Mosfells- sveit og Reykjavík og kaupavinnu á sumrum, en vann einnig afgreiðslustörf og almenn verka- kvennastörf. Lengst vann hún í Mjólkursamsölunni í Reykjavík í tæp 10 ár til ársins 1955. Eftir það var hún lengst af heimavinnandi húsmóðir sem sinnti uppeldi barna sinna. Hulda átti ekki kost á skólanámi svo nokkru næmi, þótt hún hefði góða námshæfileika. Hún lauk barnaskólaprófi og var einn vetur í Húsmæðraskólanum á Staðarfelli í Dölum 1940-41. Hún hafði hug á Móðir mín. Hví skyldi ég yrkja’ um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó, móðir góð? – Upp, þú minn hjartans óður! Því hvað er ástar og hróðrar dís, og hvað er engill úr Paradís hjá góðri’ og göfugri móður? --- Þú bentir mér á, hvar árdags-sól í austrinu kom með líf og skjól, þá signdir þú mig og segir: „Það er Guð sem horfir svo hýrt og bjart, það er hann sem andar á myrkrið svart og heilaga ásján hneigir.“ Ég fann það var satt; ég fann þann yl, sem fjörutíu’ ára tímabil til fulls mér aldregi eyddi; ég fann þann neista í sinni’ og sál, er sorg og efi, stríð og tál mér aldregi alveg deyddi. --- Þá lærði ég allt, sem enn ég kann, um upphaf og enda, um Guð og mann og lífsins og dauðans djúpin. Mitt andans skrúð var skorið af þér, sú skyrtan best hefur dugað mér við stormana, helið og hjúpinn. (Matthías Jochumsson) Hjálmar og Brynjar. Elsku Hulda. Með söknuð í hjarta langar mig að skrifa nokkur kveðjuorð og þakka þér fyrir vináttuna og þann hlýhug sem þú ávallt sýndir mér og börnum okkar Brynjars, Birnu og Steinari. Okkur Brynjari brá mikið þegar hringt var og sagt að þú hefðir dottið og slasast. Við vorum nýfar- in frá þér, höfðum komið í heim- sókn til þín í hádeginu, spjallað og átt góða stund með þér. Þú varst hress og skýr, fékkst þér vindil og við sungum fallegt ljóð eftir Davíð Stefánsson, en þér fannst svo gam- an að syngja eins og mér. Og þeg- ar við kvöddum þig sagðir þú eins og svo oft áður þessi fallegu kveðjuorð: „Ég bið mikillar bless- unar í bæinn, elskurnar mínar.“ Því miður reyndust áverkarnir það alvarlegir að þú náðir þér ekki af þeim, elsku Hulda mín, og nú ertu horfin á braut til nýrra heim- kynna, en ég er viss um að þar tekur Jón þinn á móti þér, Hulda mín. Eitt af því sem við áttum sam- eiginlegt var trúin. Við vorum báð- ar mjög trúaðar, trúðum á mátt bænarinnar og töluðum oft um hvað það væri gott að nota bænina til að biðja fyrir fjölskyldunni og öðru fólki. Og þegar Brynjar var langdvölum úti á sjó sýndir þú mér mikinn stuðning, passaðir oft Birnu og Steinar fyrir mig þegar þau voru lítil, hringdir oft í mig daglega til að spjalla og þá minnt- um við hvor aðra á að muna að biðja fyrir Brynjari okkar og öll- um sjómönnum á hafi úti. Það sem einkenndi þig líka, elsku Hulda, var hvað þú varst góður hlustandi. Þú vissir hvað ég hafði alla tíð mikinn áhuga á andlegum og dul- rænum málum og spurðir mig oft út í þau mál og þá komst ég á flug og alltaf hlustaðir þú á mig með opnum huga, Hulda mín. Það var alltaf gaman að spjalla við þig um lífið og tilveruna en sjálf hafðir þú frá mörgu að segja, hafðir reynt margt á þinni löngu ævi. Á tímabili hringdir þú í mig fyrir hver jól og spurðir mig hvort ég væri búin að fá bókatíðindin eða frétta hvort það væri nú ekki að koma út ný dulræn bók fyrir þessi jól því þig langaði að gleðja mig og gefa mér bók í jólagjöf. Þetta gladdi mig alltaf jafnmikið, Hulda mín. Og þegar við fjölskyldan komum í heimsókn til þín bauðstu okkur alltaf velkomin með því að faðma hvert og eitt okkar innilega með kærleika og hlýju, og síðan var stjanað við okkur. Ég er enn að átta mig á því að þú sért farin, elsku Hulda, en ég segi: „Ég bið mikillar blessunar í bæinn, elsku Hulda mín, og góða ferð til æðri heima.“ Ég mun ávallt biðja fyrir þér og senda þér ljós frá mínum bænum. Ég læt hér ljóðið fylgja sem við sungum sam- an síðast þegar ég var hjá þér og mun ég syngja það oft þér til heið- urs um ókomin ár, elsku Hulda mín. Þá hlæja hvítir fossar þá hljóma strengir allir, þá hlýnar allt og brosir, þá fagna menn og dýr, þá leiðast ungir vinir um vorsins skógarhallir, þá verður nóttin dagur, – og lífið ævintýr. (Úr Dalakofanum, Davíð Stef- ánsson) Takk fyrir allt. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Steinunn Steinarsdóttir. Strákurinn er orðinn lúinn. Þetta er orðin löng leið í hríð- armuggunni og janúarmyrkrinu. Hann hafði lagt heldur seint af stað úr Reykjavík, kveðjustundin hafði verið erfið og dregist á lang- inn. Maður fer heldur ekki hratt yfir með reifarstranga í fartesk- inu. Nú kemur hann að ánni og heldur upp með henni inn dalinn. Barnið ambrar, hún hefur annars verið ósköp góð á leiðinni greysk- innið. Eftir því sem snjókoman þéttist verða háværari mótmælin úr bögglinum sem strákurinn reið- ir fyrir framan sig. Líklega er ekk- ert vit að halda áfram ferðinni í kvöld, þarna sér hann móta fyrir bænum Laxnesi í snjókomunni. Strákurinn réttir fannbarinn bögg- ulinn inn um gættina áður en hann fer til að spretta af klárnum. Ókunnugar hendur taka við barninu og rekja utan af því mestu umbúðirnar áður en því er holað óní ylinn hjá gamalli rúmliggjandi konu. Og þarna liggja þær af nótt- ina í fletinu tvær ókunnugar sálir meðan hríðin ber utan bæinn, frægasta amma á Íslandi og þessi kalda og umkomulausa písl sem seinna átti eftir að verða besta amma á Íslandi – amma okkar. Hulda Þorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 15. nóvember 1921, yngst þriggja systra. Vegna veik- inda var móður hennar nauðugur einn kostur að koma nýfæddu barni sínu í fóstur og því var það að amma var send til vandalausra, aðeins átta vikna gömul. Hún ólst upp í Helgadal, litlum afdal upp af Mosfellsdal, fram á unglingsár. Þrátt fyrir misjafnt atlæti í upp- vextinum talaði amma alltaf af hlý- hug um dalinn sinn sem hún þurfti að yfirgefa tæpra sautján ára göm- ul og standa á eigin fótum upp frá því. Það er merkilegt að hún sem hóf ævina þannig í einstæðingsskap og hraglanda og átti oft síðan eftir að lenda í ágjöf skyldi verða svo heil- steypt og mikil manneskja sem raun bar vitni. Líf ömmu var ekki allt með sméri og rjóma og marg- ur hefði eflaust fyllst beiskju og ásökun í hennar sporum. En mót- byrinn náði aldrei að varpa skugga á heiðríkju hugans og lífssýn ömmu var sannarlega til eftir- breytni. Hún söng sig gegnum erf- iðleikana og hallaði aldrei orði á nokkurn mann. Hún dæmdi hvorki né fordæmdi, virti frelsi annarra og gerði sjálf kröfu um að fá að vera frjálsborin sál. Amma var litríkur persónuleiki, fór sínar eigin leiðir og lét sér álit annarra í léttu rúmi liggja. Hún var sjálfstæð og um margt nútíma- leg og langt á undan sinni samtíð. Þannig var hún t.d. einstæð móðir og útivinnandi framan af ævi og vann karlmannsvinnu í síðbuxum, ein kvenna á sínum vinnustað. Hún hafði líka alla ævi lifandi áhuga á samtíð sinni. Það segir sína sögu um ömmu að allar kyn- slóðir afkomenda hennar, eldri sem yngri, sóttust eftir að vera í samvistum við hana fram á síðasta dag. Við þökkum allar gjafir ömmu, stórar og smáar og kærleikann sem hún umvafði okkur og börnin okkar, Berglindi, Véstein og Huga. Þótt ferð þeirri sem hófst að vetr- arlagi fyrir margt löngu sé nú lok- ið er samfylgd okkar ekki á enda því við geymum mynd ömmu í huganum og tökum hana okkur til fyrirmyndar héðan í frá. Steinunn og Hulda Egilsdætur. Elsku amma okkar. Þegar við komum að heimsækja þig á Laugateiginn þá tókst þú iðulega á móti okkur með þínu hlýja faðmlagi og fallegu orðum, varst alltaf svo jákvæð og óspör á gullhamrana. Okkur leið alltaf svo vel eftir samverustundir með þér, elsku amma. Við systkinin viljum kveðja þig með ljóði sem segir allt um hug okkar til þín og kveðjum þig með þeim orðum sem þú kvaddir okkur með: „Guð og góðir vættir gæti þín alltaf – alltaf.“ Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Þín barnabörn, Birna og Steinarr. Hulda Þorsteinsdóttir ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU E. GUÐMUNDSDÓTTUR, Flúðabakka 2, áður Helgafelli, Blönduósi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis- stofnunarinnar á Blönduósi fyrir að annast hana afar vel, með hlýju og vináttu. Karl Helgason, Sigurborg Bragadóttir, Guðmundur Helgi Helgason, Friðþjófur Helgi Karlsson, Þórey Sæmundsdóttir, Guðrún Ingibjörg Karlsdóttir, Ragnar Þórður Jónasson, Hjalti Rafn Guðmundsson, Sigrún Nanna Karlsdóttir, Magnús Örn Úlfarsson, Helga María Guðmundsdóttir, Davíð Helgason og langömmubörn. Farinn er til betri heima í hárri elli fyrrverandi tengdafaðir minn, Kristinn Krist- varðsson. Kristni kynntist ég þeg- ar ég tengdist fjölskyldu hans fyr- ir rúmum fjörutíu árum. Kristinn var ljúfur maður og tók mér eins og syni sínum og alltaf voru sam- skipti okkar góð. Kristinn var ávallt veitandi og krafðist aldrei neins af öðrum en gerði ríkar kröf- ur til sjálfs sín. Vinnudagurinn hjá honum var ætíð langur. Hann vaknaði fyrstur manna og vann fram á kvöld, enda rak hann um áratuga skeið matvöruverslun, sem á sínum tíma var stórverslun. Þrátt fyrir þetta var hann boðinn og búinn að aðstoða aðra á allan hátt. Hann styrkti öll börn sín og tengdabörn með ríkulegum fjár- framlögum til fyrstu íbúðarkaupa. Hann var rausnarlegur en vildi ekki tala um hlutina og fór hljóð- lega í gegnum lífið. Hann hafði skoðanir, en var ekki að halda þeim fram og sóttist ekki eftir veg- tyllum, var nægjusamur og þakk- látur fyrir sitt. Aldrei var hann að gagnrýna fólk, tók frekar upp hanskann fyrir aðra og var maður sátta. Hann hafði þann þroska að Kristinn Kristvarðsson ✝ Kristinn Krist-varðsson fæddist að Fremri-Hrafna- björgum í Hörðudal í Dalasýslu 6. sept- ember 1911. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 4. ágúst síðastliðinn. Útför Kristins var gerð frá Seljakirkju þriðjudaginn 17. ágúst 2010. gefa frekar eftir en halda sínum hlut. Hann var að mörgu leyti lánsamur og átti góða konu, Val- dísi Meyvantsdóttur, sem hann sinnti eftir að hún varð veik, svo aðdáun vakti. Voru þau gjarnan nefnd saman, Kristinn og Gógó. Heimili þeirra stóð öllum opið og vel var tekið á móti gestum, enda voru þau vinmörg. Eftir að langri vinnuævi lauk, sinnti hann barnabörnum sínum enn frekar. Kristinn var ekki stór maður en alltaf grannur og spengi- legur, og ótrúlega kraftmikill. Ég minnist þess þegar hann var að hjálpa mér við húsbyggingu, þá hátt í sjötugt; hann var svo ótrú- lega öflugur að ég, þá ungur mað- ur, hafði tæplega við honum. Hann var hreinlegur og snyrtilegur svo eftir var tekið og aldrei man ég eftir að bílarnir hans væru ekki hreinir og snyrtilegir. Þannig fór Kristinn í gegnum lífið, sívinnandi, hjálpandi og ekkert nema ljúf- mennskan. Aldrei sagði hann hnjóðsyrði um nokkurn mann og mig grunar að margir af hans við- skiptavinum hafi notið góðvildar hans og rausnarskapar. Oft hef ég sagt um elsta son minn, sem heitir í höfuðið á afa sínum: hann er eins og Kristinn. Ekki þarf að útskýra þetta nánar, allir sem kynntust Kristni vita við hvað er átt. Krist- inn mun lifa í minningunni sem einn heiðarlegasti og besti maður sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og það er ríkidæmi að hafa átt sam- leið með honum. Dan Wiium.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.