Morgunblaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010 NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 16 16 12 L L L 12 16 14 L SÍMI 462 3500 16 12 L 16 RESIDENTEVIL:AFTERLIFE3D kl. 8-10 THEOTHERGUYS kl. 8-10 AULINN ÉG 3D kl. 6 THEEXPENDABLES kl. 6 SÍMI 530 1919 16 12 L L 18 16 RESIDENTEVIL:AFTERLIFE 3D kl. 5.50-8.30-10.30 THEOTHERGUYS kl. 5.30-8-10.30 THEFUTUREOFHOPE kl. 6-8 AULINNÉG 3D kl. 6.15 THE HUMAN CENTIPEDE kl. 10 THEEXPENDABLES kl. 8-10.20 RESIDENTEVIL: AFTERLIFE3D kl. 5.50-8-10.10 RESIDENTEVIL: AFTERLIFE3DLÚX kl. 3.40-5.50-8-10.10 THEOTHER GUYS kl. 8-10.30 DESPICABLEME3D kl. 3.40 AULINN ÉG 3D kl. 3.40 AULINN ÉG 2D kl. 3.30 SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 5.30 THEEXPENDABLES kl. 10.15 SALT kl. 10.15 KARATEKID kl. 5.10 .com/smarabio „MIKIÐ ER NÚ GAMAN AÐ GETA LOKS HLEGIÐ INNILEGA Í BÍÓ“ -H.S.S., MBL Sýnd kl. 4, 8 og 10 (3D) - enskt tal Sýnd kl. 4, 6 (2D) - íslenskt tal Sýnd kl. 4, 6 (3D) - íslenskt tal ÍSLENSKT TAL Á heildina litið er Aulinn ég 3D einstaklega vel heppnuð teiknimynd sem hentar ekki einungis börnum, heldur öllum aldurshópum. H.H. - MBL Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15 Sýnd kl. 8 og 10 (POWERSÝNING) STEVE CARELL POWE RSÝN ING Á STÆ RSTA DIGIT AL TJALD I LAN DSINS KL. 10 „Mikið er nú gaman að geta loks hlegið innilega í bíó“ -H.S.S., MBL -bara lúxus Sími 553 2075 www.laugarasbio.is Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Robert Plant hefur löngu sann- að það að hann er meira en röddin úr Led Zeppel- in; frá því sú sveit gaf upp öndina hefur hann margsannað að hann er hug- myndaríkur og ævintýragjarn tón- listarmaður. Fyrir stuttu end- urreisti hann sína fyrstu hljómsveit, Band of Joy, gaf út plötu sem heitir nafni sveitarinnar og fór í tónleika- ferð um heiminn. Band of Joy spilaði hrynblús og á skífunni nýju spilar hann það sem kallað hefur verið Americana, þ.e. blúskennda, rokkskotna þjóðlaga- tónlist, lög eftir ýmsa listamenn, frá Norður- og Mið-Ameríku og Bret- landi, sem stundað hafa slíkt síðustu árin, til að mynda hjónakornin (fyrr- verandi) Richard og Lindu Thomp- son og Los Lobos-félaga, í bland við gamlar lummur og þjóðlög. Einkar skemmtileg blanda og vel flutt, nefni sérstaklega Low-lögin sem hann túlkar einkar vel og eins lummuna I’m Falling In Love Again og sálmalagið Satan Your Kingdom Must Come Down. Það fer ekki á milli mála að Ro- bert Plant, sem fer á kostum í söngnum, hefur skemmt sér vel við gerð skífunnar og það skilar sér. All- ur hljóðfæraleikur er fyrsta flokks og bakraddir framúrskarandi Robert Plant - Band of Joy bbbbm Plant í ævintýrum Árni Matthíasson Þegar menn geta ekki dratthalast til að kokka upp eitthvert heiti á lista- verkið sitt er óhætt að veita viðvör- unarbjöllunum í hausnum eftirtekt. Og í tilfelli Interpol, sem er fjórða plata samnefndar nýsíðpönksveitar frá New York, hringdu þær ekki að ósekju. Platan veldur vonbrigðum, er einfaldlega leiðinleg svo ég skafi allt poppfræðibull utan af þessu. Þegar sveitin steig fram með frum- burð sinn, Turn on the Bright Lights árið 2002 var í góðu lagi að baða sig upp úr vel framreiddu og uppfærðu síðpönki sveitarinnar með bros á vör. Því að þó að tónlistin væri nokkuð ná- kvæmt afrit af Joy Division og Chameleons voru lögin bara eitthvað svo skemmtileg, flutningurinn svo hressilegur og sannfærandi, að maður fyrirgaf allt slíkt. Á Antics (2004) var siglt um svipuð mið með sæmilegasta árangri en á Our Love to Admire (2007) var reynt að sveigja af stöðn- uðum kúrs með miður góðum árangri. En nú er bandið gjörsamlega komið í þrot, vængbrotið, hljómar eiginlega áhugalaust. Einn af fóstbræðrum mínum í dægurmálafréttunum og Int- erpolmaður mikill, Atli Fannar Bjarkason, mun eiga fullt í fangi næstu vikurnar að sannfæra fólk um að platan sé í raun og veru góð, þó hún sé léleg. Gangi þér vel, Atli. Næstum tóm leiðindi Interpol - Interpol bmnnn Arnar Eggert Thoroddsen Grinderman 2 er eins og nafnið gef- ur til kynna önnur plata hljómsveit- arinnar Grinder- man en fyrir henni fer meistari Nick Cave. Á frumburði sínum stakk Grinderman sér á bólakaf í grugguga laug ruddarokksins og heppnaðist sú plata stórvel. Grófa rokkhliðin sem ekki hafði sést lengi á Cave nema í svip (sbr. „Dead Man in My Bed“ og „Babe I’m on Fire“ á Nocturama) naut sín þar til fulls og var verkið afar vel heppnað. Á 2 eru Cave og kumpánar teknir að fljóta nokkuð upp á yfirborðið og rokkið því ekki eins ruddafengið og á fyrirrennaranum. Þó spara þeir ekki hávaðann og gjarna hljóma gít- ar, bassi og fiðla öll í senn, mikið bjöguð, meðan húðir eru barðar mis- kunnarlítið. Úr verður þó engin há- vaðasúpa eða hljóðveggur; hljómur plötunnar fyllir ekki hlustirnar og þreytir hlustandann ekki eða ærir þó hann sé mjög bílskúrslegur, allt að því losaralegur en þó ekki holur. Segja má að sveitin sé stigin með annan fótinn út úr bílskúrnum þó hún standi vissulega fast í þann sem inni er. Er það vel því í bílskúrinn sækir sveitin sjarmann. Platan í heild er mjög góð, hún rennur í gegn hnökralaust en lögin eru þó blæbrigðarík innan fábrotins formsins og eru tilbrigðin fjölbreytt- ari en á fyrri Grinderman. Þó standa engin lög upp úr hér á sama hátt og „No Pussy Blues“, „Go Tell the Wo- men“ og „(I Don’t Need You to) Set Me Free“ gerðu á frumburðinum. Er 2 að því leyti síðri. Þess ber þó að geta að „Worm Tamer“ og „Bellr- inger Blues“ slaga upp í hæðir nefndra laga. Óhjákvæmilegt er að hlusta á þessa plötu í ljósi síðustu afurðar Nick Cave & the Bad Seeds, hinnar stórgóðu Dig, Lazarus, Dig!!! sem kom út fyrir tveimur árum, ári á eft- ir fyrri Grinderman. Lazarus var greinilega litaður af Grinderman; gítarinn var þar meira í fyrirrúmi en á fyrri Bad Seeds- plötum og hljómurinn var bílskúrs- legri en áður. Að gæðum verða Laz- arus og 2 ekki bornar saman hér. Staldra verður þó við að með Laz- arus stigu Nick og fræin illu einu skrefi nær Grinderman og með 2 stígur Grinderman til þeirra. Allir meðlimir Grinderman eru einnig í The Bad Seeds og má því segja að fari sem horfir eigi sveitirnar ekki sjálfstæðan tilverurétt hvor um sig mikið lengur. Allt um það. Cave skilar sínu og Grinderman 2 er ágætisviðbót í safn- ið þó ekki sé hún fullkomin.. Með annan fótinn í bílskúrnum Grinderman - Grinderman 2  Skúli Á. Sigurðsson Rokk! Í Grinderman láta Cave og félagar allt flakka. Erlendar plötur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.