Morgunblaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.09.2010, Blaðsíða 6
Haustið er aðalárstími flækingsfiðr- ilda og má eiga von á slíkum heim- sóknum hingað til lands næstu vik- urnar. „Ekkert varð vart við flækingsfiðrildi á landinu í sumar enda veðurblíða einstök og ekki veð- ur til hrakninga. Það var ekki fyrr en nú viku af september að til tíðinda bar. Fiðrildi af ýmsum tegundum tóku þá að berast til landsins með hlýjum loftstraumum, e.t.v. langt úr suðri komin,“ segir Erling Ólafsson á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar. Dagana 6.-14. september hafa alls komið fram við eftirgrennslan tíu tegundir útlendra fiðrilda. Upplýs- ingar um stærri og skrautlegri fiðr- ildin hafa fyrst og fremst borist frá fólki sem slík hefur séð á förnum vegi en aðrar tegundir hafa hafnað í fiðrildagildrum sem reknar eru vegna vöktunar fiðrilda. Kóngasvarmi er stærst fiðrilda sem hingað berast og hafa allnokkrir kóngasvarmar sést á sunnanverðu landinu þessa vikuna. Svipaða sögu er að segja af aðmírálsfiðrildi, en nokkur hafa sést undanfarna daga. Frekar með vörum en vindum Páfiðrildi sást á flögri í Mosfells- dal en líklegra er að það hafi borist með varningi en vindum. Flestar tegundir flækingsfiðrilda eru af ygluætt. Gammaygla, skraut- ygla og garðygla hafa átt sína full- trúa meðal flækinganna í þessari göngu en þó ekki í teljandi fjölda. Að þessu sinni hefur netluygla stolið senunni, segir Erling. Það hafi verið óvænt því hingað til hafi hún verið mjög fáséður gestur hér á landi, en nú veiddust um 50 slíkar í Öræfum. Á heimasíðunni er ennfremur get- ið um gulyglu og kálmöl í flokki flæk- ingsfiðrilda. aij@mbl.is Aðmírálar og yglur á flækingi  Fiðrildi hafa undanfarið borist hingað til land með hlýjum loftstraumum  Upplýsingar um stærri og skrautlegri fiðrildin berast einkum frá almenningi Ljósmynd/Erling ÓlafssonFlækingur Kóngasvarmi er stærst fiðrilda sem hingað berst. Litríkt Aðmírálsfiðrildi berst hingað nær árlega og vekur ævinlega athygli. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010 Kristinn Kristmunds- son, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni er látinn, 73 ára að aldri. Krist- inn fæddist á Kaldbak í Hrunamannahreppi hinn 8. september ár- ið 1937. Foreldrar hans voru Elín Hallsdóttir og Kristmundur Guð- brandsson er bjuggu á Kaldbak frá 1930 til æviloka. Kristinn var næstyngstur sjö systkina. Eftirlifandi eiginkona Kristins er Rannveig Pálsdóttir frá Stóru- Sandvík en þau giftust árið 1960. Eignuðust þau fjögur börn, þau Ara Pál, f. 1960, Kristrúnu, f. 1962, Sigurð f. 1966, og Jónínu Guðrúnu, f. 1968. Barnabörnin urðu alls 14 talsins. Kristinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1957 og cand. mag.-prófi í íslensk- um fræðum frá Há- skóla Íslands 1966. Frá árinu 1958 kenndi hann við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum, Menntaskólann að Laugarvatni, Héraðs- skólann á Laug- arvatni og Hús- mæðraskóla Suðurlands. Þá var hann kennari við Laugarnesskólann og Menntaskólann í Reykjavík, aðstoðarstjórnandi við Menntaskólann við Tjörnina og stundakennari við Háskóla Ís- lands. Árið 1970 var Kristinn skip- aður skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni og gegndi því starfi allt til starfsloka árið 2002. Eftir starfslokin á Laugarvatni fluttust þau Rannveig að Safamýri 73 í Reykjavík. Kristinn lést á gjörgæsludeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss hinn 15. sept- ember. Andlát Kristinn Kristmundsson Kristján Jónsson kjon@mbl.is Fyrir átta árum flutti Ögmundur Jónasson, núverandi ráðherra dóms- og mannréttindamála, frum- varp um að felldar yrðu niður tak- markanir við því að sakborningar í opinberu máli gætu áfrýjað til Hæstaréttar. Er hann kominn í mótsögn við sjálfan sig ef hann styður tillögur um að ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm? „Þarna er verið að rugla saman tveimur gerólíkum málum,“ segir Ögmundur. „Árið 2002 lagði ég fram lagafrumvarp og skrifaði um það grein í Morgunblaðið þar sem ég mótmælti því að einstaklingur sem hlyti dóm í undirrétti í op- inberu máli gæti ekki áfrýjað úr- skurðinum til Hæstaréttar sem væri fjöl- skipaður dómur. Í undirrétti er iðulega aðeins einn dómari sem dæmir en í Hæstarétti eru þeir fleiri. En settar hafa verið ákveðnar skorð- ur við því að fólk geti áfrýjað dóm- um frá undirrétti. Þetta var gert vegna þess að hlaðist höfðu upp mál, menn vildu lækka bunkann. Ég mótmælti þessu og setti fram frumvarp um að tekið yrði fyrir þetta. En það sem hér er um að ræða [þ.e. landsdóm] er að máli yrði vís- að til fyrsta dómstigs, til æðsta dómstóls í landinu sem væri fjöl- skipaður dómur. Og það var þang- að sem ég taldi að mál ættu að komast, í fjölskipaðan dóm á æðsta dómstigi. Síðan vil ég vekja at- hygli á því að í Mannréttindasátt- mála Evrópu er ákvæði þar sem tekið er undir þetta sjónarmið mitt. Mál danska ráðherrans Eriks Ninn Hansen, sem hlaut dóm fyrir landsdómi í Danmörku, kom fyrir Mannréttindadómstólinn. Hann vísaði því frá með nákvæmlega sömu forsendum og ég er að rekja hér. Þetta eru tvö gerólík mál, þessu er ekki saman að jafna. Ég vildi tryggja að maður sem væri dæmd- ur gæti undir öllum kringumstæð- um leitað til æðsta dómstigs þar sem dómurinn er alltaf fjölskip- aður en strandaði ekki í undir- rétti.“ „Þetta eru tvö gerólík mál“  Ögmundur segist ekki vera í mótsögn við sjálfan sig styðji hann ákærur Ögmundur Jónasson E N N E M M / S ÍA / N M 4 3 3 4 9 15.-19. september Tilboð á nýjum vörum Skoðaðu Kauphlaups- blaðið á smaralind.is KAUP HLAUP Verslanir opnar: mán-mið 11-19, fim 11-21, fös 11-19, lau 11-18 og sun 13-18, Opið til 21! Skipulagsnefnd Akureyrar sam- þykkti í gær að falla frá auglýstri til- lögu að deiliskipulagi fyrir svo- nefndan Drottningarbrautarreit. Nefndin samþykkti jafnframt að láta vinna heildstæða tillögu að deili- skipulagi fyrir reit sem afmarkast af Kaupvangsstræti – Hafnarstræti – Drottningarbraut – Austurbrú. Skipulagsnefnd samþykkti í maí að auglýsa tillögu að nýju deiliskipu- lagi fyrir Drottningarbrautarreit í miðbænum á Akureyri. Frestur til að skila inn athugasemdun rann út 18. ágúst sl. og bárust 30 athuga- semdir við tillöguna að meðtöldum tveimur undirskriftalistum með 1.868 undirskriftum þar sem skipu- laginu var mótmælt. Óánægjan beindist einkum að fyr- irætlunum um skyndibitastað og bensínstöð við Hafnarstræti. Hætt við breytingar eftir mótmæli Morgunblaðið/Ómar Akureyri Margir urðu til að mót- mæla breytingum á deiliskipulagi við Drottningarbraut á Akureyri. Á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar kemur fram að tilkynning barst um mikinn fjölda af gullglyrnum við sumarhús í Lóni að kvöldi 10. september en þær hurfu fljótt. Gullglyrna er netvængja en ekki fiðrildi og er sögð gædd mikilli flökkunáttúru. Gullglyrnur sáust í Lóni NETVÆNGJUR Á FERÐ Vonast er til að Herjólfur geti byrjað að sigla til Land- eyjahafnar á laugardag. Sanddæluskipið Perla hóf dýpkun snemma í gærmorgun og gekk dæling prýði- lega, að sögn Þórhildar Elínar Elínardóttur, upplýs- ingafulltrúa Siglingastofnunar. „Þetta hefur eiginlega gengið eftir bjartsýnustu spám. Á þessum fyrsta sólarhring er áætlað að skipið dæli um 4.000 rúmmetrum af efni,“ segir Þórhildur El- ín. Að öllu óbreyttu og ef ekkert kemur upp á ætti höfn- in að geta verið nothæf á laugardag og Herjólfur hafið siglingar þangað. Ekki var hægt að vinna við dýpkun hafnarinnar vegna öldugangs fyrr en snemma í gær- morgun. Þá fór ölduhæðin minnkandi. Spáð er hagstæðu veðri næstu daga. Skipið tekur sand og aur og losar á meira en 25 metra dýpi, framan við höfnina. Perlan tek- ur um 300 rúmmetra í hverri ferð. Unnið er allan sólar- hringinn og þegar aðstæður eru góðar getur skipið flutt um 3.000 rúmmetra á sólarhring. Herjólfur hefur siglt til Þorlákshafnar frá því Land- eyjahöfn lokaðist vegna sand- og aurburðar. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Næg verkefni Dýpkunarskipið Perla utan við mynni Landeyjahafnar í gær, en dæling gekk vel. Styttist í siglingar Herjólfs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.