Morgunblaðið - 16.11.2010, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 268. tölublað 98. árgangur
KONUR ÆTTU AÐ
ELSKAST EINS
OG KARLAR
BLINDRA-
HESTUR
HLAUPIN HREINSA
HUGANN OG EFLA
BJARTSÝNI
HÓFASKELLIR Í SKÓLA 15 MARAÞONHLAUPARI 10SPJALLAÐ VIÐ TRACEY COX 30
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þegar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
afhenti Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar,
umsókn Íslands að Evrópusambandinu í júlí lét sá
fyrrnefndi þau orð falla að hann bæri þá von í
brjósti að Íslandi gæti orðið samferða Króatíu í
ESB en það nýfrjálsa ríki sótti fyrst um aðild 2003.
Efasemdir um að stöðumatið reynist rétt
Spurður um þessar væntingar svarar Árni Þór
Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis, því til að hann telji ólíklegt að þær rætist.
„Ég hef efasemdir um það. Það voru ýmsir sem
töldu að svo gæti orðið. Þegar við fórum af stað
töldu einmitt margir að þjóðirnar gætu fylgst að,“
segir Árni Þór og vísar til viðvarana evrópskra
stjórnmálamanna um að byggja ekki upp of miklar
væntingar um að aðildarferlið gangi hratt.
Sambandið vill fleiri en eitt ríki í einu
Fari svo að Ísland og Króatía verði ekki samferða
í sambandið, að því gefnu að báðar þjóðir samþykki
aðildarsamning, myndi það sæta tíðindum í stækk-
unarsögu sambandsins, sem, eins og Árni Þór bend-
ir á, kýs að taka inn ríki „í kippum“.
Spurður til hvaða tímaramma sé nú horft svarar
Árni Þór því að „bjartsýni [sé] að halda að samn-
ingaviðræðum verði lokið vorið 2012“.
Fari þjóðaratkvæðagreiðsla fram sumarið 2012
tæki líklega við 24 mánaða staðfestingarferli ESB.
Samkvæmt því kemur aðild fyrst til greina sumarið
2014.
Aðildargluggi að lokast
Áætlanir um að Ísland geti gengið í ESB á sama tíma og Króatía í endurskoðun
Formaður utanríkismálanefndar telur samning um aðild geta legið fyrir 2012
Ljón í veginum
Ljón í veginum
» Ljóst þykir að aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu kemur ekki til greina fyrr en
búið er að leiða Icesave-deiluna til lykta.
» Þá gætu deilur við einstök aðildarríki um
fiskveiðilögsögu Íslands orðið til að seinka
aðildarferlinu verulega, enda þarf aðeins eitt
ríki að setja sig upp á móti samningnum.
» Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
nefndi aðildargáttina framundan „Króatíu-
gluggann“ þegar hann afhenti umsóknina í
júlí síðastliðnum.
M„Króatíuglugginn“ »12
Seljaskóli kom, sá og sigraði í Skrekk, hæfileikakeppni íþrótta- og tóm-
stundasviðs fyrir grunnskóla Reykjavíkur, sem fram fór í Borgarleikhús-
inu í gærkvöldi. Vinningsatriðið vakti athygli fyrir nýstárleika og mikla
litagleði. Í öðru sæti varð Breiðholtsskóli og Laugalækjarskóli lenti í því
þriðja. Átta skólar kepptu til úrslita að þessu sinni og létu stuðningsmenn
vel í sér heyra þegar þeir fluttu atriði sín fyrir troðfullum sal. »33
Morgunblaðið/Eggert
Seljaskóli bar sigur úr býtum á Skrekk 2010
Bretar og Hollendingar knýja nú
stíft á um samninga við íslensk
stjórnvöld um Icesave. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins eru
samninganefndir landanna tveggja
tilbúnar til þess að gefa umtalsvert
eftir af kröfum sínum, miðað við
upphaflegar kröfur, og mun Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra vera áfram um að ljúka samn-
ingum í þá veru sem drögin gera ráð
fyrir. Hann hefur, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, beitt sér
fyrir því að forystumenn í atvinnulíf-
inu reyndu að hafa áhrif á stjórnar-
andstöðuna í þá veru.
Eftirgjöf þjóðanna mun, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, skipta hundruðum milljarða í
vaxtakostnaði, sem ella hefði fallið á
íslenska ríkið samkvæmt þeim
samningi sem íslenska þjóðin hafn-
aði snemma á þessu ári í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. »8
Knýja
á um
Icesave
Töluvert gefið eftir
af kröfunum
Íbúð sem eitt sinn
var í eigu Hann-
esar Smárasonar
og Landsbankinn
leysti til sín í
mars 2008 hefur
ekki enn verið
seld. Verðmiðinn
er 10 milljónir
punda, eða um 1,8
milljarðar króna.
Íbúðin er önnur
tveggja fasteigna
í eigu einkahlutafélagsins Fjölnis-
vegar 9 ehf., en Hannes seldi bank-
anum félagið í mars 2008 á 875 millj-
ónir króna til að bæta skuldastöðu
sína. Bókfærðar eignir félagsins sam-
kvæmt ársreikningi 2009 eru þó öllu
meiri, eða 1,2 milljarðar.
»Viðskipti
Íbúð Hannesar
ennþá óseld
Hannes
Smárason
með appelsínulíkjör
með sólþurrkuðum tómötum með hvítlauk með svörtum pipar
hreinnmeð kryddblöndu
ostur.is
Mikið úrval
rjómaosta við
öll tækifæri
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
0
8
-2
3
8
6