Morgunblaðið - 16.11.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2010
Ég fluttist í Sigtún
í Laugarneshverfinu
þegar ég var 9 ára.
Hinum megin við mikil tún var bær-
inn Brúnstaðir, og þar rétt hjá
Undraland. Þetta var nálægt því
sem síðar var Hótel Esja, handan
við Suðurlandsbrautina. Hilmar var
bóndasonurinn á Brúnstöðum og
það var bara yfir túnið að fara til að
hitta hann. Við urðum miklir vinir.
Og eins og ég minnist þess, snerist
líf okkar um íþróttir og leiki.
Við strákarnir á svæðinu vorum
sífellt að æfa og keppa í frjálsum
íþróttum á heimatilbúnum íþrótta-
völlum. Hilmar var góður í kúlu-
varpi og kringlukasti, en ég í sprett-
hlaupunum. Í fótboltanum kepptum
við hvor gegn öðrum, hann var í
Svaninum en ég í Eldingu.
Hilmar hjálpaði snemma mikið til
við búskapinn eins og tíðkaðist til
sveita, en ég var á kafi í að bera út
Þjóðviljann og rukka fyrir hann.
Hann var með sérherbergi á Brún-
stöðum, sem þótti mikill kostur í þá
daga. Þar sátum við á kvöldin og
ræddum hinstu rök tilverunnar og
reyndar allt annað sem unglingar
ræða.
Hilmar var það sem kallað var
flottur gæi, ljóshærður og krafta-
legur með brilljantín í hárinu. Hann
fór snemma að keyra jeppa heim-
ilisins eins og tíðkaðist til sveita og
lentum við í ýmsum ævintýrum í
Ingi Hilmar
Ingimundarson
✝ Ingi Hilmar Ingi-mundarson fædd-
ist í Reykjavík 27. nóv-
ember 1938. Hann lést
á krabbameinslækn-
ingadeild Landspít-
alans við Hringbraut
22. október 2010.
Útför Hilmars fór
fram frá Vída-
línskirkju í Garðabæ
1. nóvember 2010.
þeim útréttingum.
Við umgengumst
nú eitthvað minna
þegar á leið og ég fór
erlendis til náms um
tvítugt. Hann fór í
lögfræðina hér heima.
Ég vissi að á háskóla-
árunum starfaði hann
mikið í forystu Fé-
lags róttækra stúd-
enta (eins og komma-
samtök stúdenta hétu
þá).
Hilmar kynntis
ungur og giftist Erlu
Hatlemark, sem síðar starfaði lengi
sem flugfreyja. Samband þeirra
var fallegt og gott, en endaði með
skilnaði. En samt, ást þeirra varaði
þó alla tíð, og eftir að Erla missti
heilsuna sinnti Hilmar henni og
studdi allt til þess að hann sjálfur
veiktist núna í september.
Ég frétti ekki af veikindum
Hilmars fyrr en þremur dögum áð-
ur en hann dó og fór þá til hans á
Landspítalann. Yngsta tengdadótt-
irin var hjá honum og sinnti honum
eins og sínum eigin pabba. Þótt
hann væri illa haldinn braust gamli
hláturinn fram þegar við rifjuðum
upp fyrri tíð. Þessa fallegu stund
áttaði ég mig á því hvað Hilmar
var mikill hamingjumaður í sinni
fjölskyldu sem var með honum
fram í andlátið. Slíka hamingju átti
hann skilið. Hann var drengskap-
armaður og maður réttlætis og
mannúðar.
Kærar kveðjur til ykkar allra,
Erlu, strákanna Snorra, Örvars og
Darra, Svönu systur hans og ann-
arra hans nánustu.
Ragnar Stefánsson,
Laugasteini, Svarfaðardal.
Ég man fyrst eftir Hilmari ung-
ur að árum en faðir minn og Hilm-
ar voru vinir úr lögfræðinni og alla
tíð var mikill samgangur milli
heimilanna. Ég hef minningu úr
bernsku minni þegar ég var með
foreldrum mínum hjá Hilmari og
Erlu í Garðabænum að Hilmar
bauð mér í skák og þá var ég að-
eins 10 ára gamall.
Ég varð svo þeirrar ánægju að-
njótandi að kynnast Hilmari aftur
á lífsleiðinni í gegnum starf mitt
sem lögreglumaður. Hilmar var
mjög afkastamikill lögfræðingur og
var mjög oft verjandi sakborninga
við skýrslutökur og samskiptin því
mikil. Ég tel að Hilmar hafi verið
mjög vel virtur af skjólstæðingum
sínum en aldrei sjá ég hann fara í
manngreinarálit og alltaf sinnti
hann skjólstæðingum sínum af
kostgæfni. Hilmar hafði gaman af
orðaleikjum og að leika sér að ís-
lenskri tungu og fékk maður oft að
finna fyrir því í réttarsalnum þegar
hann hélt uppi vörnum.
Hilmar lifði fyrir starfið sitt og
lifði fyrir fjölskylduna sína. Það
eru aðeins tveir mánuðir síðan við
Hilmar vorum að ræða saman um
lífið og tilveruna að Hilmar sagði
að hann ætlaði að halda áfram í
lögfræðinni, a.m.k. nokkur ár í við-
bót, á meðan heilsan leyfði.
Hilmars verður sárt saknað.
Ég votta aðstandendum samúð
mína.
Lúðvík Kristinsson.
Mikið yrði mér auðvelt að skrifa
langa minningargrein um félaga
minn Hilmar. Hilmar kenndi mér
hins vegar að orð eru dýr og frekar
skuli ég vanda til skrifa minna,
segja minna en meina meira. Hilm-
ar þekkti mig frá fæðingu en það
var ekki fyrr en ég hóf störf sem
lögmaður að ég kynntist honum.
Ég hafði alltaf hræðst Hilmar pínu-
lítið, þennan stóra, þekkta lögmann
sem hafði unnið með pabba mínum
svo lengi sem ég man eftir mér.
Mér var alltaf hulin ráðgáta hvern-
ig þeir gátu unnið saman eins og
þeir áttu til að deila, hnýta hvor í
annan og metast.
Eftir að ég kom í Austurstrætið
og kynntist Hilmari áttaði ég mig á
því hversu mikið hann gaf, ekki
bara pabba mínum heldur öllum
þeim sem hann þekktu. Hilmar
varð mér langtum meira en sam-
starfsfélagi. Hann varð kennari
minn og vinur. Ég lærði inn á létt-
leika Hilmars, stríðni og ekki síður
föðurlegar umvandanir.
Mér verða alltaf minnisstæðar
heimsóknir Hilmars inn á skrif-
stofu mína til þess að ræða fót-
bolta, stöðu þjóðmála og ekki síst
til að kryfja hinn júridíska þanka-
gang. Ég þakka fyrir þann tíma
sem ég fékk með vini mínum og
sendi fjölskyldu hans mínar hlýj-
ustu kveðjur.
Stefán Karl Kristjánsson.
Það er ekki hægt annað en skrifa
nokkur orð um hinn valinkunna
sæmdarmann og lögfræðing, Hilm-
ar Ingimundarson, sem lést þann
22.10. sl. Þau eru orðin nokkuð
mörg árin frá því fundum okkar
bar fyrst saman, en það var þegar
Lögreglan í Reykjavík var og hét.
Hilmar var að mínum dómi lög-
fræðingur af Guðs náð og þau eru
ófá skiptin sem hann var kallaður
til sem verjandi eða réttargæslu-
maður hinna ýmsu manna og
kvenna sem hrasað höfðu á vegi
dyggðarinnar. Það er m.a. hlutverk
verjanda við yfirheyrslur að ekki
sé of nærri gengið sakborningi, en
um leið að gefa lögreglumanninum
svigrúm til þess að kalla fram það
sem er sannast og réttast í hverju
máli. Þar var Hilmar á heimavelli,
enda naut hann víðtæks trausts að
ég held flestra lögreglumanna sem
leituðu til hans, ekki síður en skjól-
stæðinga. Ég þori að fullyrða að
Hilmar var sá verjandi hér á höf-
uðborgarsvæðinu sem hvað oftast
var kallaður til ef á þurfti að halda
í skyndingu, enda alltaf boðinn og
búinn, nánast hvernig sem á stóð,
jafnvel nú hin síðari ár þegar ald-
urinn var farinn að segja til sín. Þá
voru þeir margir skjólstæðingarnir
sem vildu Hilmar sem sinn lög-
fræðing og engan annan. Með tím-
anum sá maður að það var ekki að
ástæðulausu, því margir nutu
meistaralegrar málafærslu hans
fyrir dómi og niðurstaðan oft með
eindæmum hagstæð fyrir viðkom-
andi.
Mér virtist að það sem ræki
Hilmar áfram af svo miklum krafti
í starfi sínu, hefði verið, fyrir utan
lögfræðina sjálfa og þjóðfélagsmál,
áhugi hans á fólki yfirleitt, ætt-
fræði og sögu. Hann var tíður
gestur á fornbókasölum og ekki
fyrir löngu síðan rakst ég á hann á
bókamarkaði í Perlunni. Þar leit
hann haukfránum sjónum yfir
bókastaflana og fann þá strax það
sem höfðaði til þessara áhugamála
hans, enda átti hann víst mikið og
gott safn sjaldgæfra bóka um
þessi efni.
Það er ekki langt síðan við
Hilmar ræddum ættfræðinnar
ýmsu hliðar, en þar var ekki komið
að tómum kofunum hjá honum.
Mér lék forvitni á því hvort í
einhverjum forfeðra Hilmars fynd-
ust þeir eiginleikar sem mér
fannst hann hafa til að bera. Ekki
leið á löngu þar til sá leggur
fannst sem mér sýndist eiga vel
við hann. Í sjötta lið var hann
kominn út af Boga Benediktssyni
sem fæddur var 1720, en hann var
lengst af bóndi í Hrappsey á
Skarðsströnd. Bogi þessi stýrði
prentsmiðju í Hrappsey 1774-1785,
var mikill framkvæmda- og fram-
faramaður og varð auk þess stór-
auðugur. Bogi var sonur Benedikts
Jónssonar sem sagður var fálka-
fangari og síðar bóndi í Heina-
bergi og síðar Hrappsey í Skarðs-
strandarhreppi. Lýsing í
Íslenskum æviskrám á Benedikt
eru: „Mannasættir, góðmenni,
frændrækinn mjög og góðviljaður
öllum.“ Ég held að þessi lýsing
gæti allt eins vel átt við Hilmar
eins og hann kom mér fyrir sjónir.
En nú er sem sagt komið að
leiðarlokum og ekki er lengur
hægt að leita til hans í erfiðum
málum. En þrátt fyrir allt hygg ég
að andi hans muni eftir sem áður
svífa yfir vötnum í sölum réttvís-
innar.
Þorvaldur Bragason.
✝ Rebekka Ýr Guð-mundardóttir
fæddist í Reykjavík
24. september 2010.
Hún lést á Barnaspít-
ala Hringsins 4. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar eru
Auður Sif Sigurðar-
dóttir, f. 13. maí 1989,
og Guðmundur Már
Þorsteinsson, f. 16.
september 1987. For-
eldrar Auðar eru Ás-
laug Björt Guðmund-
ardóttir, f. 2.
nóvember 1967, og
Sigurður Einar
Steinsson, f. 14. októ-
ber 1965. Foreldrar
Guðmundar eru Ólöf
Ólafsdóttir, f. 25. des-
ember 1956, og Grét-
ar Karlsson, f. 15.
desember 1964. Syst-
ir Rebekku Ýrar er
Rakel Emma Guð-
mundardóttir, f. 29.
apríl 2009.
Útför Rebekku Ýr-
ar hefur farið fram í
kyrrþey.
Hann var fallegur september-
morgunninn sem Rebekka Ýr leit
dagsins ljós í fyrsta sinn og ég var
óendanlega stolt þennan dag af
ömmustelpunum mínum tveimur og
foreldrum þeirra. Margs er að minn-
ast frá þessum fáu vikum sem við
fengum að njóta með Rebekku litlu
og mikið var hún velkomin og elskuð.
Einkar kær er mér í minningunni
fyrsta og jafnframt síðasta heimsókn
hennar á Kristnibrautina þar sem ég
sat með litlu systurnar báðar í fang-
inu. Rebekka var svo mikið kát og
gaf ömmu sinni hvert fallega brosið á
fætur öðru á meðan Rakel stóra
systir strauk henni um kollinn og
brosti með henni. Það eru einmitt
svona stundir sem skapa hamingj-
una og þessi minning mun lifa í
hjarta mér alla tíð.
„Ó, faðir gjör mig lítið ljós, um lífs
míns stutta skeið“. Þessar línur úr
sálmi Matthíasar Jochumssonar
hafa verið mér hugleiknar síðustu
daga. Eins og ljós og skuggi fylgjast
þær að, gleðin og sorgin. Svo sann-
arlega var Rebekka Ýr lítið ljós og
aldrei lýsti hún skærar en í dauða
sínum er hún gaf þá stærstu gjöf
sem nokkur getur gefið – hjartað úr
brjósti sér svo lítill drengur í Svíþjóð
fengi lifað. Þótt sorgin nísti sárt er
gleðin líka fölskvalaus yfir því lífsins
kraftaverki sem elsku litla stúlkan
okkar kom til leiðar.
Elsku Auður Sif mín og Gummi.
Enginn skilur nema hafa sjálfur
staðið í ykkar sporum hversu djúp
og sár sorg ykkar hlýtur að vera. Það
þarf kjark, bjartsýni og ást til að
trúa því og treysta að lífið sé sterk-
ara en dauðinn og þessa eiginleika
eigið þið bæði tvö í ríkum mæli. Það
hafið þið sýnt og sannað í öllum ykk-
ar sameiginlegu verkefnum hingað
til og ekki síst í eldraun síðustu daga.
Elskið og styðjið hvort annað í sorg-
inni af heilu hjarta og hafið hugfast
að elsku litla Rebekka Ýr verður
dóttir ykkar og systir Rakelar
Emmu alla tíð þótt samleiðin hér
hafi ekki verið löng. Ástina til henn-
ar tekur enginn frá ykkur, hún er ei-
líf. Lífið kallar á ykkur þrátt fyrir
sorgina og minningin um litlu dótt-
urina lýsir ykkur einu leiðina sem er
fær – fram á veg. Við öll í stórfjöl-
skyldunni styðjum ykkur af fremsta
megni og gleðjumst með ykkur yfir
öllu því góða sem lífið hefur gefið og
mun gefa ykkur.
Ég kveð þig, elsku hjartans Re-
bekka mín, með lítilli kvöldbæn og
mun minnast þín í hvert sinn sem ég
bið hana með stóru systur þinni, Rak-
el Emmu. Góða heimferð, elsku
ömmuhjarta. Við sjáumst seinna.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Amma Áslaug.
Það að missa ástvin er aldrei létt-
bær reynsla, minningar koma upp og
fjölskylda og vinir eiga um sárt að
binda. Það að kveðja Rebekku Ýr sem
átti aðeins nokkurra vikna jarðvist
meðal okkar er allt önnur og erfiðari
reynsla. Enginn skilur hvers vegna
blessað barnið er tekið frá ástvinum
sínum á svo óvæginn hátt og eftir
standa foreldrar, fjölskyldur þeirra
og vinir algerlega ráðþrota. Spurn-
ingarnar þjóta hjá og okkur gengur
öllum illa að svara þeim. Eftir standa
foreldrarnir, Auður Sif og Guðmund-
ur ásamt Rakel Emmu litlu. Þau hafa
staðið sig með ólíkindum vel og eigum
við erfitt með að ímynda okkur hvað
þessir síðustu dagar hafa verið þeim
erfiðir. Það sem veitir okkur innri ró á
stundum sem þessum er að hún er
komin á góðan stað, þar sem hún er
umvafin hlýju rétt eins og þann stutta
tíma er hún hafði hér á meðal okkar.
Elsku Auður Sif, Gummi og Rakel
Emma, okkur langar að láta fylgja
með sálminn góða sem huggar okkur
núna á þessum erfiðu tímum.
Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái’ að spilla.
Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.
(Páll Jónsson)
Sigurður afi, Soffía, Fjóla
María, Viktor Kolbeinn og
Íris Hekla.
Með þessari litlu bæn kveðjum við
þig litla ljósið okkar og minningu
þína geymum við í hjörtum okkar,
elsku Rebekka Ýr.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgrímur Pétursson)
Elsku Gummi, Auður og Rakel
Emma, Guð veri með ykkur og
styrki á þessum erfiða tímakveðja
Ólöf amma, Grétar afi, Anna
og Vilmundur, Svanur,
Kristbjörg og Ísey Carmen.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku Gummi, Auður og Rakel
Emma.
Hugur okkar allur er hjá ykkur á
þessum erfiðu sorgartímum.
Minning okkar um prinsessuna
Rebekku Ýr mun ávallt lifa í hjörtum
okkar um ókomna tíð. Megi Guð um-
vefja Rebekku litlu og gefa ykkur
styrk á þessum erfiðu tímum.
Jóhann (Kiddi), Guðrún,
Andri Snær og Heiða Diljá.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku Gummi Auður og Rakel
Emma, megi englar Guðs umvefja
ykkur í þeirri sáru sorg sem þið upp-
lifið nú.
Megi Guð geyma og vernda gull-
molann ykkar hana Rebekku Ýri.
Ólafur, Lára og Jakob Dagur.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Elsku Gummi, Auður, Rakel
Emma og fjölskyldur.
Fá huggunarorð eru til á þessum
erfiða tíma en minning um yndislegu
dóttur ykkar hana Rebekku Ýr mun
lifa með okkur um ókomna tíð.
Megi góður guð umvefja Rebekku
litlu og styrkja ykkur í sorginni.
Svanhildur, Þorleifur
og Kristmundur.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: ,,Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum
(Björn Halldórsson í Laufási)
Elsku Auður, Gummi, Rakel
Emma og fjölskyldur, megi Guð vera
með ykkur á erfiðum tímum.
Guðbjörg, Haukur,
Jón Vilberg og Ólína.
Rebekka Ýr
Guðmundardóttir