Morgunblaðið - 16.11.2010, Page 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
1
2
5 9
5 8 3
1 2 8 3
4 5
6 4 1
1 9 2
4 3 9 8 6
5 1
8
1 6 3
7 5
1 3
5 2 4
3 9 1 8
8 2 4 7
5 9
3 9
2 4
2 1 5
6 8 5
9 6 3
1 9 5 6
1 3 7
8 7 9
1 5 7 3 6 9 8 2 4
3 2 4 5 8 1 7 6 9
9 6 8 4 7 2 3 5 1
5 9 3 6 1 4 2 8 7
4 7 2 8 3 5 9 1 6
6 8 1 2 9 7 4 3 5
8 4 6 7 5 3 1 9 2
7 1 5 9 2 8 6 4 3
2 3 9 1 4 6 5 7 8
1 2 7 9 6 4 3 8 5
3 5 6 8 1 7 9 4 2
9 8 4 3 5 2 6 1 7
4 6 8 7 9 5 1 2 3
7 9 1 2 3 8 5 6 4
2 3 5 1 4 6 7 9 8
8 4 3 6 7 9 2 5 1
6 1 2 5 8 3 4 7 9
5 7 9 4 2 1 8 3 6
4 7 2 9 6 1 5 8 3
5 6 8 4 3 2 7 1 9
9 3 1 8 5 7 4 6 2
2 1 3 7 9 5 6 4 8
7 4 5 2 8 6 3 9 1
6 8 9 1 4 3 2 7 5
3 2 4 6 1 8 9 5 7
1 9 7 5 2 4 8 3 6
8 5 6 3 7 9 1 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 16. nóvember,
320. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Þegar sál mín örmagn-
aðist í mér, þá minntist ég Drottins, og
bæn mín kom til þín, í þitt heilaga
musteri. (Jónas 2, 8.)
Víkverji gleðst yfir því að á hanner hlustað í Efstaleitinu. Ekki
er öðruvísi hægt að túlka þær breyt-
ingar sem orðið hafa á skemmtiþætti
Sjónvarpsins á laugardagskvöldum,
Hringekjunni. Ekki er verið að tala
um stórvægilegar breytingar en þó
getur Víkverji nefnt tvennt sem hann
gerði athugasemdir við á dögunum,
sem brugðist hefur verið við. Annars
vegar er það að fleiri en söngvarar
eru farnir að taka þátt í keppni þátt-
arins um hæfileikaríkasta ein-
staklinginn. Þetta gerðist nú bara í
fyrsta þætti eftir ádrepu Víkverja. Í
annan stað gerðist það í síðasta þætti
að betra flæði náðist á milli atriða
þegar stjórnandinn Gói ræddi lítil-
lega við viðmælanda sinn í settinu um
síðasta atriði á skjánum. Áfram
svona, Gói! Nú bíður Víkverji bara
eftir því að vera bænheyrður með að
saga gat á þilið á miðju hringekju-
sviðsins þannig að Gói geti hoppað á
milli. Annars er þátturinn allur að
koma til og verður sennilega orðinn
býsna góður um áramótin þegar
hann verður látinn víkja fyrir
Söngvakeppninni. Þannig hló Vík-
verji dátt að rappútgáfunni af Kast-
ljósviðtalinu fræga við Jón Gnarr.
x x x
Annað gladdi Víkverja fyrir fram-an sjónvarpstækið þetta sama
kvöld, þ.e. endurkoma Randvers
Þorlákssonar í Spaugstofunni á Stöð
2. Nú hefur róninn Bogi endurheimt
Örvar, félaga sinn, með aðstoð Fés-
bókarinnar. Óborganlegt atriði á
Arnarhólnum og vonandi fær Rand-
ver einnig að bregða sér í hlutverk
núverandi forsætisráðherra. Það
gerir enginn betur en hann.
x x x
Nú er jólabókaflóðið í algleym-ingi. Bækurnar streyma inn í
bókabúðir og bensínstöðvar og kunn-
uglegir höfundar komnir á metsölu-
listana. Meðal athyglisverðra bóka í
flóðinu er „Um Guð“ eftir Jonas Gar-
dell, í þýðingu Elínar Guðmunds-
dóttur og útgáfu Urðar bókafélags. Í
einni búðinni heyrði kunningi Vík-
verja á tal konu einnar sem spurði
bóksalann, alvörugefin á svip: „Er
þetta ævisaga?“ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þyrma, 4 hvetja, 7
varðveitt, 8 kjaga, 9 traust,
11 bára, 13 elska, 14 gleður,
15 heiðra, 17 naut, 20 rán-
fugls, 22 málmblanda, 23
sigrað, 24 áana, 25 kaka.
Lóðrétt | 1 raska, 2 tákn, 3
tómt, 4 ódrukkinn, 5
ánægja, 6 hryggdýrin,
10 mannsnafn, 12 keyra, 13
blóm, 15 sallarigna, 16 fóta-
þurrka, 18 fífl, 19 hljóðfæri,
20 greina, 21 sárt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ropvatnið, 8 tolls, 9 temja, 10 ket, 11 gifta, 13 aurar, 15
hægar, 18 illan, 21 auð, 22 sprek, 23 unnum, 24 bitakassi.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 vaska, 4 totta, 5 ilmur, 6 stag, 7 saur, 12 tía,
14 ull, 15 hæsi, 16 gerpi, 17 rakka, 18 iðuna, 19 lands, 20 nema.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 dxc4
5. Dc2 c5 6. Ra3 Rc6 7. Rxc4 Dc7 8.
O-O b5 9. Re3 Bb7 10. b3 Hc8 11. Bb2
Rb4 12. Db1 Be7 13. Hc1 O-O 14. a4 a6
15. axb5 axb5 16. Rg5 h6 17. Bxf6 hxg5
18. Bxe7 Dxe7 19. Bxb7 Dxb7 20. Db2
De4 21. d3 Dd4 22. Dc3 f5 23. Rd1 f4
24. Ha5 f3 25. Dd2 e5 26. exf3 Rxd3 27.
Hb1 Hxf3 28. Hxb5 Hcf8 29. Hb7
Staðan kom upp á opna alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu árið 1988 sem
Jón L. Árnason vann með glæsibrag.
Hér hafði hann svart gegn hinum
kunna sovéska stórmeistara Lev Po-
lugaevski. 29. … Hxf2! 30. Rxf2 Hxf2
31. Hxg7+ Kxg7 32. Dxg5+ Kf7 33.
Dh5+ Ke7 34. Dg5+ Kd7 og hvítur
gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Mikið traust.
Norður
♠K102
♥D6
♦D96
♣G10865
Vestur Austur
♠ÁD97 ♠863
♥ÁG874 ♥109532
♦82 ♦K1053
♣43 ♣2
Suður
♠G54
♥K
♦ÁG74
♣ÁKD97
Suður spilar 5♣.
Vestur leggur niður ásana sína tvo,
spilar svo spaða í þriðja slag. Sagnhafi
fer upp með ♠K, tekur tvisvar tromp,
hendir spaða í ♥D og staldrar við áður
en hann fer í tígulinn. Þar má engan
slag gefa.
Spilið er frá sterku alþjóðlegu boðs-
móti í Kaupmannahöfn, sem fram fór
nýlega. Svíarnir Bertheau og Nyström
unnu sannfærandi sigur, en í öðru sæti
urðu Bocchi og Madala frá Ítalíu.
Bocchi var eini sagnhafinn sem kom 5♣
í hús. Hann spilaði ♦D úr borði, drap
kónginn og horfði grunsemdarfullur á
♦8 vesturs, sem kom í slaginn. Eigandi
hennar var frú Sabine Auken. Var áttan
heiðarlegt spil frá ♦108 eða blekking frá
♦8x? Samkvæmt tölfræðinni er ♦8x lík-
legri kostur ef vestur blekkir alltaf með
áttuna aðra. Bocchi treysti Sabine til
þess og svínaði ♦7. Ellefu slagir.
16. nóvember 1907
Stytta af Jónasi Hallgrímssyni
var afhjúpuð í tilefni þess að
hundrað ár voru liðin frá fæð-
ingu skáldsins. Styttan er eftir
Einar Jónsson og var sú fyrsta
sem hér var sett upp eftir Ís-
lending, annan en Thorvald-
sen. Hún var fyrst við Amt-
mannsstíg í Reykjavík en var
flutt í Hljómskálagarðinn árið
1947.
16. nóvember 1957
Nonnahús á Akureyri var opn-
að sem minjasafn þegar
hundrað ár voru liðin frá fæð-
ingu Nonna, Jóns Sveinssonar
rithöfundar og prests. Hann
fór ungur til útlanda og kom
tvisvar heim, 1894 og 1930. Þá
höfðu bækur hans verið prent-
aðar í fimm milljónum ein-
taka. Stytta af Nonna, eftir
Nínu Sæmundsson, var af-
hjúpuð við safnið 1995.
16. nóvember 1996
Dagur íslenskrar tungu var í
fyrsta sinn haldinn hátíðlegur,
efnt var til málræktarþings og
verðlaun Jónasar Hallgríms-
sonar veitt. Þau hlaut Vilborg
Dagbjartsdóttir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Jóhann Már Maríusson, verkfræðingur og fyrrver-
andi aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, er 75 ára í
dag. Hann segist ætla að taka því rólega en taka á
móti fjölskyldunni og vinum í tilefni dagsins. Eig-
inkona hans er Sigrún Gísladóttir og eiga þau
fjögur börn og 12 barnabörn. „Þetta verður ekk-
ert sérstakt,“ segir hann og vill sem minnst úr
tímamótunum gera.
Lengst af starfaði Jóhann Már hjá Landsvirkjun
en hann hætti að vinna fyrir um fjórum árum. „Ég
verð að sætta mig við það,“ segir hann, en Jóhann
Már var meðal annars eftirlitsverkfræðingur við
ýmsar virkjanir Landsvirkjunar. Hann segir skemmtilegast hafa ver-
ið að vinna við að koma upp virkjununum við Búrfell, Sigöldu og
Hrauneyjafoss. „Hvað heldurðu, maður,“ segir hann. „Þetta þótti
skemmtilegt.“ Jóhann Már segir einnig eftirminnilegt að hafa unnið
við fjármál Landsvirkjunar og að hafa náð góðum samningum við
lánastofnanir. Þau hjónin hafi líka ferðast víða þó dregið hafi úr ferð-
um. „Heimurinn er ágætis kot. Ég hef komið á ansi merkilega staði en
það er ekki hægt að setja sig almennilega inn í hlutina nema vera
virkur þátttakandi og ég kann best við mig á Íslandi.“ steinthor@mbl.is
Jóhann Már Maríusson verkfræðingur 75 ára
„Heimurinn er ágætis kot“
Söfnun
Sara Ívarsdóttir,
Anna Dögg Arn-
arsdóttir, Laufey
M. Long Sumar-
liðadóttir og Valur
Guðmundsson
bjuggu til sultu og
seldu í Mjóddinni.
Þau söfnuðu 14.218
kr. sem þau gáfu
Rauða krossi Ís-
lands.
Flóðogfjara
16. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.30 3,0 8.48 1,5 14.56 3,1 21.14 1,3 10.00 16.26
Ísafjörður 4.34 1,6 10.43 0,9 16.49 1,7 23.12 0,7 10.25 16.11
Siglufjörður 0.25 0,5 6.43 1,1 12.51 0,5 18.56 1,1 10.09 15.53
Djúpivogur 5.43 0,9 11.57 1,7 18.05 0,9 9.34 15.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú leggur hart að þér bæði í leik og
starfi. Reyndu að takmarka aðgengið svo þú
getir sinnt því sem máli skiptir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Félagslífið ætti að ganga vel hjá þér í
dag. Reyndu að halda ró þinni og gakktu til
starfa þinna með venjubundnum hætti.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert allra vinur þessa stundina og
ættir að láta þér vel líka í flestum tilvikum.
Vertu þolinmóður og ekki reikna með að
menn geti lesið hugsanir þínar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Jákvætt viðhorf þitt í vinnunni bætir
andrúmsloftið í kringum þig og áhugi þinn
virkar smitandi á aðra. Varastu að láta aðra
misnota gjafmildi þína.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Flokkaðu sjálfan þig með fólki sem þú
hefur gaman af og vilt vera með. Eitthvað
sem verið hefur á verkefnalistanum um langt
skeið má alveg fara.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Fjölskyldan og heimilið krefjast athygli
þinnar þessa dagana. Hugur þinn er skarpur
og þolinmóður og þú setur markið hátt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er allt að verða vitlaust í vinnunni.
Segðu hug þinn svo samstarfsmenn þínir fari
ekki í grafgötur um afstöðu þína.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fólk breytist – og undanfarið
sérstaklega þú. Leggðu þitt af mörgum mögl-
unarlaust og þá fylgja aðrir á eftir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert í fullu fjöri og veist varla í
hvorn fótinn þú átt að stíga. Það getur eitt og
annað farið úrskeiðis þegar menn tala ekki
hreint út um hlutina.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú leitar ráða hjá félaga sem reyn-
ist skemmtileg blanda af speki og hnyttni.
Hugsanlega mun gamall kærasti eða kærasta
gefa til kynna að loginn á milli ykkar sé ekki
slokknaður.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhver á eftir að taka ummæli þín
óstinnt upp. Þér finnst erfitt að láta kylfu
ráða kasti, enda nægur tími til undirbúnings.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert jákvæð/ur og því ganga nán-
ustu sambönd þín sérstaklega vel þessa dag-
ana. Fólk er tilbúið til að hlusta á það sem þú
hefur að segja.
Stjörnuspá