Morgunblaðið - 16.11.2010, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2010
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
JÓLABLAÐIÐ
Morgunblaðið gefur út stór-
glæsilegt jólablað laugardaginn
27. nóvember 2010
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heimsækjum
fjölda fólks og verðum með fullt af spennandi efni fyrir
alla aldurshópa.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 22. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Meðal efnis verður :
Uppáhalds jólauppskriftirnar.
Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á aðventu og
jólum.
Villibráð.
Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.
Smákökur.
Eftirréttir.
Jólakonfekt.
Grænmetisréttir og einnig réttir fyrir þá sem hafa
hollustuna í huga þegar jólin ganga í garð.
Jólasiðir og jólamatur í útlöndum
Jólabjór og vínin.
Gjafapakkningar.
Tónlistarviðburðir, söfn, kirkjur á aðventu
og í kringum jólahátíðina.
Kerti og aðventukransar.
Jólagjafir.
Heimagerð jólakort.
Jólaföndur.
Jólabækur og jólatónlist.
Jólaundirbúningur með börnunum.
Margar skemmtilegar greinar
sem tengjast þessari hátíð ljóss og friðar.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Íslenski sönglistahópurinn heldur
sína fyrstu tónleika í kvöld klukkan
20.00 í Íslensku óperunni, á degi ís-
lenskrar tungu. Kynslóðir mætast
er yfirskrift þeirra en flutt verða
sönglög eftir Jón Ásgeirsson og
Tryggva M. Baldvinsson, aðallega
við ljóð eftir Halldór Laxness og
Þórarin Eldjárn, en einnig við ljóð
eftir Matthías Johannessen, Frey-
stein Gunnarsson, Valgarð Egilsson,
Jóhann Sigurjónsson, Stephan G.
Stephansson og Kristján Jónsson.
Íslenska sönglistahópinn skipa
þau Agnes Amalía Kristjónsdóttir,
Davíð Ólafsson, Guðrún Jóhanna
Jónsdóttir, Hlöðver Sigurðsson, Jó-
hanna Héðinsdóttir, Magnús Guð-
mundsson, Nathalía Druzin Hall-
dórsdóttir, Stefán Helgi Stefánsson,
Svanur Valgeirsson, Sæberg Sig-
urðsson, Þórunn Marinósdóttir og
Þórunn Sigþórsdóttir. Píanóleikari
er Agnes Löve.
„Við sviðsetjum verkin og flutn-
ingurinn er afar líflegur,“ segir Dav-
íð Ólafsson, einn söngvaranna.
Hann segir að fyrir hlé séu flutt lög
Jóns en lög Tryggva eftir hlé, eink-
um við Heimskringlu Þórarins Eld-
járns en einnig nýtt lag hans við ljóð
Stephans G. „Þótt þú langförull
legðir“.
„Þetta er blandaður sönghópur
atvinnumanna og menntaðra söngv-
ara sem er að takast á við krefjandi
verkefni,“ segir Davíð en hópurinn
kom saman fyrir um hálfu ári og tók
að undirbúa dagskrána. „Við svið-
setjum verkin á skemmtilegan hátt
og búum til kabarettleikhús með
verkunum. Við viljum skemmta fólki
og hylla um leið þessi vönduðu tón-
skáld, með því m.a. að flytja verk
eftir þá sem eru ekki of oft flutt,“
segir hann. Í vor flytur hópurinn
Þrymskviðu Jóns Ásgeirssonar.
Íslenski sönglistahópurinn kemur
aftur fram á sunnudaginn kemur, í
menningarhúsinu Hofi á Akureyri
og hefjast tónleikarnir þar klukkan
15.00. efi@mbl.is
Sviðsetja sönglög
Jóns og Tryggva
Íslenski sönglistahópurinn í Íslensku óperunni í kvöld
Íslenski sönglistahópurinn „Við viljum skemmta fólki og hylla um leið
þessi vönduðu tónskáld,“ segir einn söngvarinn.
Árleg höfunda-
kynning Bóka-
safns Seltjarnar-
ness verður í
dag, þriðjudag,
kl. 20:00. Þessar
kynningar hafa
mælst vel fyrir
og eru orðnar
fastur liður í
bæjarlífinu á
Seltjarnarnesi.
Kynnt eru verk misreyndra höf-
unda sem senda frá sér ævisögu,
smásagnasafn, spennusögu og
skáldsögu. Fjórir höfundar lesa og
taka þátt í umræðum. Þeir eru
Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson,
Guðni Th. Jóhannesson og Sigríð-
ur Pétursdóttir. Hjalti Snær Æg-
isson stjórnar umræðum í fram-
haldi af lestrinum. Aðgangur er
ókeypis.
Lesa upp
á bókasafni
Bragi
Ólafsson
Í hádeginu í dag, þriðjudag, flytur
Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari
erindi í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safns Íslands við Suðurgötu. Nefn-
ist það „Ókunnugir ferðalangar
biðja ávallt um leiðsögumann - Píla-
grímsferðir um sögustaði og mynd-
ir úr ferðalögum.“
Í erindi sínu mun Einar Falur
fjalla um pílagrímsferðir sem lista-
verk kveikja, út frá túlkun þeirra
Williams Gershoms Collingwoods
(1854-1932) á stöðum sem koma
fyrir í Íslendingasögunum. Á sýn-
ingunni Sögustaðir – í fótspor W.G.
Collingwoods sem nú er í Bogasal
Þjóðminjasafns, og í samnefndri
bók, birtast myndir þeirra tveggja
af stöðum sem oft láta lítið yfir sér
en eru hlaðnir sögulegri merkingu.
Fyrirlesturinn hefst kl.12.05.
Myndverk
pílagríma
Hallberg Hallmundssonsinnti áratugum samanmikilvægu menningar-starfi. En hann bjó
lengst af í New York. Bæði þýddi
hann fjöldamörg bandarísk verk og
annarra þjóða, einkum ljóð, á ís-
lensku. Þar að auki var hann drjúg-
ur í útgáfu íslenskra og skandinav-
ískra verka í Bandaríkjum. En
umfram allt orti hann og samdi
smásögur. Fimmtán ljóðabækur
komu út eftir hann og nú hefur
Árni Blandon Einarsson gefið út
úrval úr þeim ásamt seinustu ljóð-
um í ljóðaúrvali sem hann nefnir Á
barmi næturinnar.
Helstu einkennin á skáldskapi
Hallbergs er kaldhæðinn leikur að
máli, þverstæðum og andstæðum. Í
nokkrum ljóðabókum veiddi hann
ýmsar óvandaðar setningar úr fiski-
tjörn blaðaheims-
ins og lék sér
með orðskrípi og
ófullkomnar
setningar. Kald-
hæðnin ristir oft
djúpt og nær
t.a.m. til trúar-
innar og kannski
vísar eitt kvæði
hans skýrt til
umræðu Íslend-
inga nú um stundir um trúmál. Þar
segir frá glímu við guð sem endar
með ósköpum. Því að í lokin kemst
sjálfur guð svo að orði:
– Höggvirðu mig
þá heggurðu sjálfan þig!
Ég hjó – – –
Vissulega slær Hallberg stundum
ljóðrænni strengi og síðasta ljóð
bókarinnar, áður óbirt, er í raun
ástaróður hans til lífsförunautar
síns, fallegur sonnettuflokkur þar
sem hann minnist samverunnar.
Hvað sem því líður þá er veruleik-
inn með sína þverstæðufullu kald-
hæðni og járnkrumlu jafnvel ná-
lægur í þessum óð. Þannig upplifi
ég skáldskap Hallbergs og hef
sannast sagna stund og stund
blaðað í bókum hans mér til
ánægju.
Kaldhæðinn leikur
Ljóð
Á barmi næturinnar
bbbnn
eftir Hallberg Hallmundsson, JPV-
útgáfa. 2010 – 103 bls.
SKAFTI Þ.
HALLDÓRSSON
BÆKUR
Hallberg
Hallmundsson
Í dag, á degi íslenskrar tungu, stendur Nýlistasafnið fyr-
ir dagskrá þar sem flutt verða textaverk eftir nokkra ís-
lenska myndlistarmenn og fjallað um þau. Dagskráin
verður í Nýlistasafninu, Skúlagötu 28, og hefst klukkan
20.
Síðustu áratugi hafa æ fleiri myndlistarmenn beitt
textum í verkum sem birta nýstárlega nálgun við tungu-
málið: Íslenska sem myndmiðill. Þessi verk liggja utan
við eða til hliðar við allar hefðbundnar bókmenntagrein-
ar þótt þau sæki sér þangað fyrirmyndir og form.
Til umfjöllunar verða listamennirnir Bjarni H. Þór-
arinsson, Magnús Pálsson, Birgir Andrésson, Gunndís
Ýr Finnbogadóttir, Haraldur Jónsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson. At-
burðinum er stýrt af Jóni Proppé, listheimspekingi.
Textaverk í myndlist
Magnús
Pálsson