Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010
Óskum viðskiptavinum
okkar og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla
Starfsfólk Eignamiðlunar
S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Útlit er fyrir að samningar náist
milli sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna og heilbrigðisyfirvalda milli
jóla og nýárs, en núverandi samn-
ingar falla úr gildi um áramótin.
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands, segist
bjartsýnn á að niðurstaða náist í
næstu viku. „Það eru viðræður í
gangi við [sjálfstætt starfandi
heimilislækna], og var fundur í
gær. Svo hefur verið boðaður fund-
ur milli jóla og nýárs,“ segir Stein-
grímur. Hann geti þó ekki tjáð sig
um efni eða útfærslu nýrra samn-
inga.
Sjálfstætt starfandi heimilis-
læknar á höfuðborgarsvæðinu eru
tólf og sinna um 22 þúsund sjúk-
lingum. Nýliðun þeirra á meðal
hefur gengið illa og fáir sóst eftir
þeim stöðum sem auglýstar hafa
verið. „Hver svo sem niðurstaðan
verður, verður það tryggt að þjón-
ustan fer ekki í uppnám,“ segir
Steingrímur. „Ég get fullyrt að
það er það góður gangur í viðræð-
unum að það er engin hætta á að
þjónustan verði ekki tryggð.“
Málið ennþá viðkvæmt
Björgvin Á. Bjarnason, formað-
ur Heimilislækna utan heilsu-
gæslu, tekur í sama streng. Ekki
beri mikið í milli og líklegt að nið-
urstaða náist milli jóla og nýárs.
Hann segir málið hins vegar við-
kvæmt og vill ekki tjá sig um út-
færslu eða efni samkomulags frek-
ar en Steingrímur Ari.
Samningar sjálfstætt starfandi
heimilislækna runnu út í ráðherra-
tíð Álfheiðar Ingadóttur, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, og hún
sökuð um einhliða uppsögn þeirra
og að búa til óþarfa óvissu um
þjónustu læknanna við hinn mikla
fjölda sjúklinga sem þeir sinna. Í
samtali við Morgunblaðið um mitt
ár sagði hún þetta ekki rétt, samn-
ingarnir hafi runnið út um síðast-
liðin áramót og venjan væri sú að
samningar giltu í eitt ár frá því
þeir rynnu út. Á því væri engin
breyting nú, en hinn 1. maí síðast-
liðinn hafi heimilislæknunum hins
vegar verið tilkynnt að samningar
yrðu ekki óbreyttir nema til ára-
móta. Álfheiður sagði málin ekki í
uppnámi, „enda sex mánuðir til
stefnu,“ en nú er ljóst að sá frestur
hefur verið allur nýttur.
Samningar við heimilis-
lækna sagðir í sjónmáli
Tryggt verður að þjónusta fari ekki í uppnám um áramót
„Ég get fullyrt
að það er góður
gangur í viðræð-
unum“.
Steingrímur Ari Arason
Töluvert af fólki var á ferð í miðbæ
Reykjavíkur í gær á Þorláks-
messukvöld, sumir til þess að njóta
jólastemningarinnar sem myndast
þar ár hvert en aðrir til þess að
nota síðustu forvöðin til þess að
kaupa jólagjafirnar.
Ágætisveður var í bænum og
heiðskírt en smá gola. Þá var ekki
eins kalt og verið hefur undanfarna
daga í borginni og hafa miðborgar-
gestir eflaust verið þakklátir fyrir
það á rölti sínu í gærkvöldi.
Margir hafa eflaust komið úr
skötuveislum sem tíðkast mjög á
Þorláksmessunni. Eins og flestir
þekkja leggur sterka lykt af sköt-
unni og hún leyndi sér ekki á fötum
veislugesta í bænum. Golan í gær-
kvöldi hefur því eflaust verið kær-
komin þeim sem ekki eru eins
hrifnir af skötuátinu og lyktinni.
Morgunblaðið/Golli
Friðarganga Íslenskir friðarsinnar efndu til blysfarar niður Laugaveginn í gærkvöldi eins og þeir hafa gert á Þorláksmessu undanfarna þrjá áratugi.
Margir líta nú á friðargönguna sem ómissandi þátt í jólaundirbúningi fjölskyldunnar og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltekt og innkaupum rétt fyrir jólin til
að leggja þar sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið í heiminum. Endaði gangan á Ingólfstorgi þar sem m.a. kór Menntaskólans við Hamrahlíð söng.
Jólastemning í miðbæn-
um á Þorláksmessu
Jólabær Margir lögðu leið sína í Jólabæinn á Hljómalindarreitnum við
Laugaveg, meðal annars þessi unga stúlka sem horfir vongóð til jólanna.
Áhorfendur Áhugasamir vegfarendur stoppuðu við á Skólvörðustígnum til
að dást að handverki manns sem skar út skúlptúra úr tré með vélsög.
Jóel Færseth Einarsson, sem fæddist
á Indlandi nýlega og Alþingi veitti
ríkisborgararétt á laugardag, hefur
ekki enn fengið íslenskt vegabréf.
Ljóst er að hann mun verja fyrstu
jólunum á Indlandi ásamt foreldrum
sínum, þeim Einari Þór Færseth og
Helgu Sveinsdóttur.
„Við vorum að berjast fyrir því að
komast heim því pabbi minn lést á
meðan við vorum úti. Hann var jarð-
settur í gær. Eftir niðurstöðu Al-
þingis með drenginn okkar síðastlið-
inn laugardag vorum við mjög
vongóð um að komast heim í jarð-
arförina hjá föður mínum. Það var
ekki svo gott,“ segir Einar Þór.
Í forsætisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að forsetinn hefði
skrifað undir lögin í fyrradag. Þau
voru síðan send til birtingar í Stjórn-
artíðindum.
Í dómsmála- og mannréttinda-
ráðuneytinu fengust þær fregnir að
málið væri í hefðbundnu ferli líkt og
fjöldi laga sem samþykkt og staðfest
hafa verið. Staðfesting laganna um
veitingu ríkisborgararéttar barst
fyrir hádegi í gær. Líklegt var talið
að lögin yrðu birt milli jóla og nýárs.
Eyðir fyrstu jólunum
á Indlandi með
foreldrum sínum
Nýfæddur Jóel Færseth Einarsson
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli
tóku í fyrrakvöld mann með á milli
tíu og 20 þúsund e-töflur í farangr-
inum. Maðurinn var að koma frá
Kaupmannahöfn. Hann hefur ekki
áður komið við sögu lögreglunnar.
Rannsókn á málinu stóð enn yfir í
gærkvöldi og beinist m.a. að því
hvort fleiri en einn maður standa
að innflutningnum.
Í gæsluvarðhald í fjórar vikur
Ekkert annað fíkniefni fannst í
fórum mannsins. Maðurinn hefur
verið úrskurðaður í fjögurra vikna
gæsluvarðhald.
E-tafla er efni sem líkist amfeta-
míni, en hefur einnig ofskynjanir í
för með sér svipað og LSD. Íslensk-
ir dómstólar hafa tekið hart á þeim
sem flytja inn þetta efni.
Tekinn með 10 til 20
þúsund e-töflur