Morgunblaðið - 24.12.2010, Síða 8

Morgunblaðið - 24.12.2010, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 Fáir tóku þátt í kosningu til hinssvokallaða stjórnlagaþings og niðurstaða kosningarinnar var flest- um óskiljanleg. Nú standa yfir kærumál um þá niðurstöðu og eng- inn veit hvern- ig fer.    Síðan erkomið í ljós, samkvæmt könnun sem Miðlun vann fyrir félagið And- ríki, að ríflega tveir af hverjum þremur sem afstöðu taka telja að fjármunum sé illa varið í stjórnlaga- þingið.    Þetta þarf ekki að koma á óvartþegar kostnaðurinn við þessa ráðstefnu er talinn verða 600-700 milljónir króna. Það munar um minna á niðurskurðartímum og óhætt að fullyrða að víða var þörfin brýnni.    Stjórnlagaþingið svokallaða er þvíhaldið í óþökk mikils meirihluta þjóðarinnar. Allir hljóta að sjá að þetta er ekki farsæl leið til að hefja endurskoðun stjórnarskrárinnar.    Stjórnlagaþingið er ekki einstaktdæmi um óheppilega eða jafn- vel öfuga forgangsröðun. Því miður rekur hvert dæmið annað í þessu efni og raunar er vandfundið það stóra mál á sviði stjórnmálanna sem ekki er rekið áfram á röngum for- sendum.    Framundan er sá tími ársins sembest er til þess fallinn að íhuga mál vandlega, endurskoða og endur- meta. Flest þeirra mála sem rekin hafa verið áfram með öfugum for- merkjum á síðustu misserum eru þess eðlis að þau má taka upp, end- urmeta og afturkalla.    Það eina sem þarf er hugrekki tilað viðurkenna mistökin og þrek til að leiðrétta þau. Enn er tækifæri til endurmats STAKSTEINAR Veður víða um heim 23.12., kl. 18.00 Reykjavík -3 snjókoma Bolungarvík 1 skýjað Akureyri -10 léttskýjað Egilsstaðir -10 skýjað Kirkjubæjarkl. -3 léttskýjað Nuuk 2 snjókoma Þórshöfn 0 heiðskírt Ósló -13 snjókoma Kaupmannahöfn -2 snjókoma Stokkhólmur -12 heiðskírt Helsinki -22 léttskýjað Lúxemborg 0 skýjað Brussel -1 snjókoma Dublin -3 léttskýjað Glasgow -3 léttskýjað London 2 skýjað París 0 snjókoma Amsterdam 0 skafrenningur Hamborg -1 snjókoma Berlín 0 þoka Vín 5 skýjað Moskva -6 alskýjað Algarve 15 léttskýjað Madríd 5 skýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 13 léttskýjað Winnipeg -8 snjókoma Montreal -2 snjókoma New York 0 skýjað Chicago -2 skýjað Orlando 14 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:24 15:32 ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:55 SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:36 DJÚPIVOGUR 11:02 14:52 Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Jólatréð sem stendur í aðalsal gisti- heimilisins Grundar á Flúðum hefur vakið verðskuldaða athygli. Það er einstaklega fagurskreytt, líkt og flest önnur jólatré landsmanna, en er sérstakt fyrir þær sakir að á því hanga nánast einungis handgerðir jólamunir. Heklaði á vakt „Ég hef í gegnum árin verið að hekla bæði jólabjöllur og engla sem ég stífi og hengi á tréð. Ég held að jólabjöllurnar séu í kringum 30 tals- ins og englarnir eitthvað svipað,“ segir Dagný Ólafsdóttir, eigandi gistiheimilisins á Flúðum. Á trénu góða er ekki einungis að finna muni eftir Dagnýju því fleiri hafa lagt henni gott til að skreyta tréð. „Mamma bróderaði svolítið af dóti sem hangir þarna og hún nafna mín, Dagný Atladóttir, perlaði stóra bjöllu sem er ofarlega á trénu þegar hún var 10 ára gömul. Þetta er svona samansafn,“ segir Dagný og hlær. Dagný heklar mikið yfir vetr- artímann þegar rólegt er, en hún vann vaktavinnu í mörg ár í fangels- inu í Kópavogi og þar urðu margir munirnir til. „Þær voru miklar hann- yrðakonur sem unnu með mér og við sátum gjarnan og hekluðum eða prjónuðum á nóttunni. Við nýttum tímann því þetta var náttúrlega bara yfirseta.“ Aðspurð hvort það sé ekki kúnst að hekla að nóttu til segir Dagný: „Nei nei þetta er enginn vandi. Þegar maður er búinn að gera svona eitt til tvö stykki þá gerirðu þetta nánast hugsunarlaust.“ Tréð vekur lukku Dagný segist passa vel upp á skrautið og notar það ár eftir ár. „Maður hendir því hvorki né týnir, því þetta er eitthvað sem þú gerir sjálfur en kaupir ekki í búð. Svo finnst fólki þetta svo fallegt og það hvetur mann náttúrlega til að geyma það vel.“ Að lokum segir Dagný tréð vekja mikla lukku og þá sérstaklega þegar búið er að hengja upp jóla- ljósin og jólatónlistin farin að hljóma. „Þá kemur góður fílingur.“ Fólki finnst þetta svo fallegt  Handgert jólaskraut vekur athygli  Munirnir koma úr ýmsum áttum Fagurskreytt Dagný segist geyma skrautið vel og notar það ár eftir ár. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) hefur ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna fjármála Kópavogs, að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Í ágústlok sendi EFS Kópavogsbæ erindi og tíundaði áhyggjur sínar af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Þau áhyggjuefni sem sérstaklega voru til tekin voru mikil skuldastaða, framlegð (EBITDA) undir viðmiðunarmörkum og veltufé frá rekstri, sem ekki stæði undir afborgunum langtímalána. EFS miðar við það að heildarskuldir og skuld- bindingar séu undir 150% af heildartekjum sveit- arfélags og að framlegð frá rekstri sé á bilinu 15- 20%. Framlegðarhlutfall A-hluta Kópavogsbæjar á árinu 2009 var töluvert undir því viðmiði eða 6,7%. Séu A og B-hlutar teknir saman er hlutfallið hærra, 12,2%, en samt sem áður undir viðmiðinu. Í lok árs 2009 voru heildarskuldir og skuldbind- ingar A og B-hluta sveitarfélagsins tæpir 43 millj- arðar, en tekjur á árinu tæpir 18 milljarðar. Milljarði varið í lækkun skulda 2011 Í tilkynningu Kópavogsbæjar kemur fram að skuldsetningarhlutfallið verði 248% vegna ársins í ár, en verði komið niður í 214% á næsta ári. Reksturinn eigi að skila einum milljarði til greiðslu skulda, „og svo áfram næstu árin.“ Til langs tíma er markmiðið að skuldir sem hlutfall af tekjum komist undir 200% árið 2014, þ.e. í lok yfirstandandi kjörtímabils. Í kjölfar erindis EFS átti Kópavogsbær í samskiptum við nefndina og fundaði með henni 23. nóvember síðastliðinn um fjárhagsstöðuna. Sú vinna hefur nú borið árangur. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, segir ljóst að ekkert megi út af bregða og halda þurfi stíft í taumana. „Stjórnendur bæjarins hafa sett sér skýr markmið og vandað til áætlana- gerðar næstu þriggja ára. Það er afar brýnt að okkur takist að vinda ofan af miklum skuldum bæjarins sem mun létta reksturinn til lengri tíma,“ segir Guðríður í tilkynningu. Aðhefst ekki vegna stöðu Kópavogs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.