Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 9
Íslenskir námsmenn erlendis 2007 2008 2009 2010 2.341 2.380 2.129 2.485 FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Íslenskum námsmönnum erlendis fer nú fjölgandi á nýjan leik eftir að fækkaði í þeim hópi fyrst eftir bankahrun. Enn fleiri virðast stefna út næsta haust því aldrei hafa fleiri tekið hið alþjóðlega stöðupróf í ensku, TOEFL, sem krafist er í flestum skólum þar sem kennt er á ensku. Fyrst eftir bankahrun bjuggu ís- lenskir námsmenn erlendis við gríð- arlega óvissu vegna gengisfalls krónunnar. Sáu sumir sér ekki kleift að halda áfram námi og sneru heim. Haustið eftir hrun treystu færri en áður sér í nám utan landsteinanna og má ætla að margir hafi slegið slíkum áætlunum á frest vegna kreppunnar. Kreppan virðist hins vegar ekki lengur halda aftur af metnaði Íslend- inga til að mennta sig á erlendri grund, jafnvel þótt fæstir komist undan því að steypa sér í miklar námslánaskuldir. Fleiri úti en fyrir kreppu Ekki eru til tölur yfir aðra nema erlendis en þá sem þiggja námslán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Á árunum 2008 til 2009 fækkaði lánþegum í erlendum háskólum úr 2.380 í 2.129. Þeim hefur nú fjölgað að nýju og eru skólaveturinn 2010-2011 orðnir 2.485, fleiri en veturinn fyrir hrun, 2007-2008 þegar 2.341 fékk lán vegna náms erlendis. Ætla má að þessi þróun haldi áfram á næsta ári ef marka má fjölgun þeirra sem taka TOEFL- stöðuprófið í ensku. Aðsókn í próf- ið sló öll met nú í haust að sögn Guðmundar Pálmasonar, fram- kvæmdastjóra Tölvuskólans Þekk- ingar sem hefur umsjón með próf- unum hér á landi. Metaðsókn í erlend stöðupróf „Það kom okkur á óvart, 2009 varð mjög mikil fjölgun frá árinu á undan en í haust virtist sem það yrði ekki mikill fjöldi. Svo tók þetta við sér og það fylltist í öll sæti.“ Aðeins einn prófdagur var áætlaður í desember en ákveðið var að bæta öðrum við vegna aðsóknar. Samt komust ekki allir að og þurfa sumir að bíða fram í janúar með að taka prófið, en þá fer líka óðum að líða að því að umsókn- arfrestur í skólum renni út vegna náms haustið 2011. Í ár og í fyrra hafa samtals um 1.100 manns tekið prófið hjá Tölvuskólanum. Guð- mundur segir að flestir virðist stefna til útlanda í nám, en þó séu einhverj- ir inni á milli sem taka það vegna vinnu úti. Flestir komast í góða skóla „Ég held að margir hafi örvænt fyrst og ákveðið að bíða með að fara út en nú er eins og fólk sjái tækifæri til að drífa sig af stað,“ segir Hjördís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra námsmanna erlend- is. Hún segir að svo virðist sem margir treysti því að kreppan hafi náð lágmarki og bjartara sé fram- undan. „Það hlýtur að teljast jákvætt að fólk sæki í að mennta sig erlendis. Íslendingar komast líka almennt inn í flotta skóla og verða eftirsóttir vinnukraftar. En þetta fólk kemur náttúrlega ekki til baka ef aðstæður bjóða ekki upp á það, þótt Ísland togi mikið í þá þurfa stjórnvöld að hugsa hvað við getum gert til að lokka fólk til baka að loknu námi.“ Fleiri kjósa að mennta sig í útlöndum en fyrir hrun  Þrátt fyrir námslánaskuldir mennta Íslendingar sig í auknum mæli erlendis  Margir frestuðu námi eftir hrun en láta ekki kreppuna stöðva sig lengur FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010 Lánþegar LÍN eru alls 29.595 talsins og nam útlánasafn sjóðsins 136 millj- örðum í árslok 2009 en horfur eru fyrir að það verði 10 milljörðum hærra í árslok 2010. Íslenskir námsmenn skulda að meðaltali 3,3 milljónir króna við útskrift úr háskóla og að jafnaði skulda þeir sem nema erlendis mest en þetta getur verið mjög mismunandi eftir því hvar fólk er í námi og hversu lengi það hefur verið í námi. Til umræðu hefur komið hjá LÍN að koma til móts við niðurskurðarkröfur með því að hækka viðmið um sjálfsfjármögnun stúdenta upp í 30%. Samband íslenskra námsmanna erlendis hefur áhyggj- ur af því að verði þessi hækkun að veruleika gæti það leitt til þess að nám erlendis verði aðeins raunhæfur möguleiki fyrir þá sem eiga efn- aða foreldra. Það sem af er þessu ári er búið að innheimta um 95,1% af gjald- dögum samkvæmt upplýsingum frá LÍN, bróðurhluti þeirra sem eru með námslán greiða þau því áður en til innheimtu kemur en um 1,5% af kröfum LÍN fara að meðaltali áfram í löginnheimtu. Í mars á þessu ári var samþykkt að bjóða frystingu námslána til þriggja ára sem tímabundið úrræði fyrir lántaka sem komnir eru í vanskil og eru þegar með fyrstingu á lánum sínum hjá viðskiptabanka eða eru í greiðsluaðlögun. Skv. upplýsingum frá LÍN hafa 518 sótt um þetta úrræði síðan í mars og þar af 356 fengið samþykkt fryst- ingu námslána. Þetta úrræði verður áfram í boði á næsta ári. Horfur á að útlánasafn LÍN hækki um 10 milljarða króna á þessu ári FÆST NÁMSLÁN ENDA MEÐ INNHEIMTUAÐGERÐ Breytingar verða gerðar á starfs- stöðvum sendiherra í utanríkis- þjónustunni um áramótin. Mun Stefán Haukur Jóhannesson, sem verið hefur sendiherra í Brussel frá árinu 2005, flytjast heim til starfa í ráðuneytinu 15. janúar nk. og hann heldur áfram að gegna starfi aðal- samningamanns Íslands í aðildar- viðræðum við Evrópusambandið. Þórir Ibsen, sem verið hefur sendiherra í París frá árinu 2009, verður sendiherra Íslands í Brussel frá 15. janúar nk. með fyrirvara um samþykki belgískra stjórn- valda. Berglind Ásgeirsdóttir, sem ver- ið hefur í leyfi frá embætti sendi- herra í utanríkisþjónustunni frá árinu 2007, tekur við sem sendi- herra Íslands í París. Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að flytja Önnu Jóhanns- dóttur og Högna S. Kristjánsson úr embættum skrifstofustjóra í utan- ríkisþjónustunni í embætti sendi- herra frá og með 1. janúar 2011. Sendiherraskipti verða í Brussel eftir áramótin Lögreglan og Vegagerðin fylgjast með krapastíflu sem hefur myndast í Jökulsá á Fjöllum neðan við brúna á hringveginum, skammt norðan við Grímsstaði á Fjöllum. Áin þarf að bólgna talsvert mikið áður en fer að flæða yfir veginn að sögn Gunn- ars Bóassonar, vegaverkstjóra. „Þetta er meinhægt eins og er,“ sagði Gunnar í gærdag. „Við erum að vona að þetta sleppi og fari ekk- ert upp á veg. Við vöktum hana áfram.“ Áin er stokkfreðin og að hlaupa upp. Hún á þó dálítið eftir áður en hún flæðir upp á veg. Gunn- ar sagði að ekki væri við því að bú- ast að neitt gerðist skyndilega. Hann sagði að vel geti verið að áin fari að ryðja sig. Í gær brast á með „hlýindum“ á Fjöllum. „Það er bara sex stiga frost, sem þykir ekki mikið hér á Fjöllum,“ sagði Gunnar þar sem hann var staddur á Gríms- stöðum. Spáð er raunverulegum hlýindum á annan í jólum og vonaði hann að þetta slyppi til. Fylgst verður með ánni áfram, að sögn Gunnars. Lögreglan á Húsa- vík sagði að ef stíflan væri talin ógna öryggi vegfarenda þá yrði strax gefin út tilkynning um það. Vakta krapastíflu í Jökulsá á Fjöllum Jökulsá á Fjöllum Bólgnar upp í frostum. Morgunblaðið/RAX Eldur kom upp á búgarði í Kelstrup á Jótlandi í gær en þar var mikill fjöldi dýra í húsum, þar á meðal margir íslenskir hestar. Að sögn fréttavefjar År- hus Stiftstidende er ekki ljóst hve mörg af dýrunum brunnu inni. Hjón reka búgarðinn og segir blaðið að þau hafi unnið baki brotnu við að reyna að bjarga eins mörgum dýrum og mögulegt var. Voru þau bæði flutt á sjúkrahús í kjölfarið vegna gruns um að þau hefðu fengið reykeitrun. Eldurinn kviknaði þegar verið var að þíða vatnsrör sem frosið hafði í. Neistar frá eldi komust í þurran hálm og breiddist eldurinn mjög hratt út. Íslenskir hestar í eldsvoða á Jótlandi Gleðileg jól Hæðasmára 4 - Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 www.selena.is Opið aðfangadag kl. 10-13 Glæsileg ullar- og silkinærföt Undirföt beint frá París Úrval af náttfatnaði úr alsilki og bómull fyrir allar konur Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Opi ð í dag 9-1 2 ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík aðfangadag 9-12, jóladag LOKAÐ mánudag - fimmtudag 11-18:30 AFTURKÖLLUN ILVA ehf í samráði við forvarnarsvið slökkviliðsins hefur ákveðið að afturkalla öll CHRISTMAS strýtukerti þar sem þau gætu reynst hættuleg. Viðskiptavinir eru beðnir um að skila þeim í verslun ILVA á Korputorgi þar sem þau fást endurgreidd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.