Morgunblaðið - 24.12.2010, Síða 40
40 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞEIR
NÁÐU AÐ
JAFNA!
ÉG VISSI EKKI AÐ ÞAÐ
HEFÐI VERIÐ SPÁÐ
RIGNINGU?!?
ÉG FYRIRGEF
ÞÉR FYRIR AÐ
ÖSKRA Á MIG
FANNST BARA
ÁSTÆÐA TIL AÐ GERA
ÞAÐ FYRIRFRAM
GRETTIR!
ER ÞAÐ SATT SEM
ÉG HEYRI, AÐ
GRÍMUR SÉ AÐ
EYÐA ARFI
ANNARS HUNDS?
NEI,
NEI, HANN
ER BARA AÐ
FJÁRFESTA
FYRIR
HENNAR
HÖND
HVAR ER
HANN?
HANN
ER Í NÝJA
HUNDA-
KOFANUM
SÍNUM
KOMDU
HINGAÐ
KALLINN!
NEI, HÆ! ÉG SEM VAR Á
LEIÐINNI HEIM TIL ÞÍN
VIÐ
GÆTUM GEFIÐ
NÁGRÖNNUNUM
EITTHVAÐ AF
ÞESSU
VIÐ SEM
HÖFÐUM ÁHYGGJUR
AF ÞVÍ AÐ VIÐ
FENGJUM EKKI NÓG
EN VIÐ
ERUM BÚIN AÐ
RÆKTA MIKLU
MEIRA EN VIÐ
ÞURFUM
VIÐ NÁUM
ALDREI AÐ KLÁRA
ALLT ÞETTA
GRÆNMETI ÁÐUR
EN ÞAÐ
SKEMMIST
ÉG ÞARF
AÐ STINGA ÞÉR
AFTUR
Í STEININN!
KEMUR
EKKI TIL
GREINA PADDAN
ÞÍN!
AF HVERJU
STENDURÐU BARA
ÞARNA OG BÍÐUR?
AF ÞVÍ BARA
EÐA MEÐ
ÖÐRUM ORÐUM, ÉG
ER MEÐ MYNDAVÉL
OG HÚN ER
STILLT TIL AÐ
TAKA MYNDIR
EINMITT HÉRNA
Ó NEI!
Ó NEI! Ó NEI!
Ó NEI!
Hátíð í bæ
Ágætu vinir og sam-
ferðamenn. Þá er
hann runninn upp há-
tíðisdagur okkar
flestra, aðfangadagur,
sem hæst ber kl. 18 en
þá hefst jólahátíðin.
Við hjónin njótum
þeirra forréttinda að
vera boðið í mat til
dótturinnar, tengda-
sonarins og barna-
barnanna. Ekki þarf
að sjá um matar-
standið, aðeins setjast
til borðs þegar kallið,
gjörið svo vel, kemur.
Þessu fylgir auðvitað að nú ræður
maður engu lengur og gerir bara
eins og manni er sagt.
Svona hefur þetta verið nokkur
undanfarin ár og venjan verið sú að
byrjað er að borða einhvern tíma
milli 18 og 19.
Fyrir mig er þetta nokkur breyt-
ing frá því ég var strákur og einnig
eftir að ég fór að búa. Matarveislan
hófst þá venjulega kl. 17 og ef mögu-
legt var þá var búið að vaska upp fyr-
ir messu. Ef við fórum ekki í kirkju
var hlustað á messuna í útvarpinu og
ekki litið til pakkanna fyrr en messan
var búin.
Hátíðarmessan er mjög hefð-
bundin og auðvitað var það svo að
maður var farinn að
kunna ferlið utan að
kannski 12 ára gamall.
Þegar hér er komið í
skrifræðinu er loksins
komið að því af hverju
penna var stungið nið-
ur. Ég held nefnilega
að barnabörnin hafi
aldrei farið í kirkju um
jólin og ef þau þekkja
sögu jólanna þá er það
helst í gegnum skól-
ann. Ég er ekki viss
um að þau viti t.d. að
sálmurinn Í Betlehem
er barn oss fætt er
fremst í messu-
söngnum og Heims um
ból aftast. Þau eru nefnilega að borða
og bíða eftir því að rífa upp pakkana
á meðan messan stendur yfir.
Kannski er þetta bara nöldur í mér
sem á ekki einu sinni heima í Velvak-
anda en eins og segir einhvers staðar
í auglýsingu þá á maður alltaf að
segja eins og manni finnst og
kannski er bæði betra eins og þar
stendur. Gömlu góðu siðirnir eru
bara börn síns tíma eða hvað?
Gleðilega jólahátíð öll sömul. Farið
varlega í hálkunni.
Guðjón.
Ást er…
… að hlæja þar til
þú tárast.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Jólin hafa orðið skáldum yrk-isefni síðan land byggðist og er
sá skáldskapur af öllum toga og ber
aldarhættinum vitni. Ingunn Jóns-
dóttir í Kornsá segir í Gömlum
kynnum að engar sögur hafi jafn-
mikil áhrif á börnin og einfaldar og
fagrar frásögur um jólaboðskapinn
í Betlehem, þegar góð móðir segir
frá. Og bætir síðan við: Það munu
fleiri hafa orðið fyrir líkum áhrif-
um frá mæðrum sínum og Matthías
lýsir svo snilldarlega:
Síðan hóf hún heilög sagnamál.
Himnesk birta skein í okkar sál.
Aldrei skyn né skilningskraftur minn
skildi betur jólaboðskapinn.
Um Þorgrím Pétursson Nesi veit
ég ekkert nema það, að hann orti
þessa stöku:
Jafnánægður étið get
ég í nautnaskóla
harðan fisk sem hangiket
á hátíðinni jóla.
Á jólamorgni orti Halla Eyjólfs-
dóttir á Laugabóli:
Kastið drunga, kætist þið,
hvergi er þungur hagur,
fjallabungum blasir við
bjartur ungur dagur.
Jón Jónsson alþingismaður frá
Sleðbrjót kom víða við, var síðast
veitingamaður í Vopnafirði áður en
hann fluttist vestur um haf 1903,
síðast í Siglunesbyggð við Mani-
tobavatn til æviloka 1923. Til hans
orti Stephan G. Stephansson:
Jólaeldur innri þinn
út yfir kveld þitt logi!
Skuggaveldin aldrei inn
að þér heldur vogi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nú stendur hún jólastundin há
Tekið er á móti framlögum á reikningi
Fjölskylduhjálpar:
Bnr. 101-26-66090 – Kt. 660903-2590.
Tökum á móti matvælum og fatnaði að
Eskihlíð. Upplýsingar í síma 551-3360
og 892-9603.
Jólaúthlutun verður dagana 14, 15,
21. og 22. desember í Eskihlíð 2-4.
Skráning í síma 892 9603.
Jólasöfnun Fjölskylduhjálpar
Íslands er hafin fyrir
starfsstöðvar okkar í Reykjavík,
á Akureyri og í Reykjanesbæ.
Þúsundir einstaklinga eru nú án atvinnu, auk
þeirra fjölmörgu sem minna mega sín í þjóð-
félaginu og eiga um sárt að binda. Leggjum okkar
af mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól.
Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2-4 | Sími 551 3360 og 892 9603
fjolskylduhjalpin.net | fjolskylduhjalp@simnet.is
Athugið að við erum einu óháðu og sjálfstætt starfandi
hjálparsamtökin, áttunda árið í röð.