Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Frá Þingmúlakirkju er í dag,
19. febrúar, til moldar borinn
hann Metúsalem bróðir minn.
Hann átti heima hér á Víðilæk
nær allt sitt líf en sótti vinnu utan
heimilis tíma og tíma fyrr á árum.
Var á vertíð í Vestmannaeyjum,
vann við Grímsárvirkjun meðan á
byggingu hennar stóð og byggði
íbúðar- og gripahús á nokkrum
bæjum, m.a. byggði hann hér á
Víðilæk öll útihús og íbúðarhús frá
grunni. Smíðaði glugga og hurðir,
múraði, lagði pípulagnir, m.ö.o.
vann allt það sem gerði hús íbúð-
arhæft. Metúsalem dvaldi nokkra
mánuði á Smíðaskólanum á Hólmi
í Landbroti í kringum árið 1950,
nýttist honum það nám ákaflega
vel. Hann var mjög vandvirkur og
samviskusamur við hvaðeina það
sem hann tók sér fyrir hendur og
var trúað fyrir. Hann var einlæg-
ur dýravinur og sárnaði og tók
mjög nærri sér ef hann frétti af
því að skepnum væri ekki sinnt
Metúsalem Kjerúlf
Björgvinsson
✝ MetúsalemKjerúlf Björg-
vinsson fæddist á
Þorgerðarstöðum í
Fljótsdal 7. desem-
ber 1929. Hann lést
á sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum 9. febr-
úar 2011. Foreldrar
hans voru hjónin
Aðalbjörg Metúsal-
emsdóttir Kjerúlf
og Níels Björgvin
Sigfinnsson.
Útför Metúsalems fer fram frá
Þingmúlakirkju í dag, 19. febr-
úar 2011, og hefst athöfnin kl. 14.
svo sem vera bar.
Metúsalem hafði
mikið yndi af því að
umgangast hesta og
eftir að hann hætti
að halda hross fyrir
nokkrum árum tók
hann til vetrarfóðr-
unar fáein hross og
sinnti um þau sem
um kornabörn væri
fjallað. Þegar farga
þurfti hrossum
treysti Metúsalem sér ekki til að
gera það heldur fékk aðra til og
ekki kom til greina að nýta kjötið
heldur var hrossunum búinn
hvíldarstaður þar sem þurrt var
og jarðvegur góður. Um nokkurra
áratuga skeið átti Metúsalem við
allmikið áfengisvandamál að
stríða sem olli hans nánustu angri
og kvíða. Þetta vandamál leysti
hann með 10 daga dvöl á Vogi og
bragðaði Metúsalem ekki áfengi
næstu u.þ.b. 20 árin en hóf aftur
að neyta þess fyrir tveimur árum
en í mjög litlum mæli sem engum
óþægindum olli. Það má með
sanni segja að Metúsalem hafi
verið traustur og góður maður.
Hann var ókvæntur og barnlaus
en ákaflega barngóður. Hann tók
systrabörnin á heimilinu oft á hné
sér og söng fyrir þau. Metúsalem
hafði góða söngrödd og nýtti hana
til hins ýtrasta þegar vínið vermdi
sál.
Við eftirlifandi systkin hans
færum bróður okkar hlýjar kveðj-
ur með þakklæti fyrir hjálpsemina
á vegferð lífsins. Þar sem góðir
fara eru Guðsvegir.
Bragi Björgvinsson, Víðilæk.
✝ Björn Jóhann-esson fæddist á
Sturlu-Reykjum í
Reykholtsdal 25.
nóvember 1928.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Vesturlands á
Akranesi 9. febrúar
2011.
Foreldrar hans
voru hjónin Jó-
hannes Erlendsson,
f. 8.8. 1888, d. 29.7. 1950, og Jór-
unn Kristleifsdóttir, 5.10. 1897,
d. 21.5. 1972. ábúendur á Sturlu-
Reykjum. Systkini Björns: 1)
Andrea, f. 4.4. 1920, d. 3.6. 1921,
2) Erlendur Sturla, f. 3.4. 1922,
d. 2.10. 1986, 3) Kristleifur, f.
1.9. 1923, d. 6.2. 1981. 4) Andrés,
f. 20.12. 1931.
Björn giftist 8. maí 1953 Guð-
rúnu Gísladóttur, f. 12.8. 1923.
Börn þeirra: 1) Gísli, f. 31.1.
1954, kvæntur Kristínu Halls-
dóttur, f. 16.10. 1954, börn
þeirra: a) Ingi Rúnar, f. 16.5.
1973, kona hans, María Páls-
Björn stundaði nám í Héraðs-
skólanum í Reykholti. Árið 1954
hófu Björn og Guðrún búskap á
nýbýli frá Sturlu-Reykjum sem
þau nefndu Laugavelli en fluttu
þangað árið 1960. Þau bjuggu á
Laugavöllum til ársins 1988 er
þau brugðu búi og fluttu á Akra-
nes.
Björn stundaði vinnu frá búi
sínu alla sína búskapartíð. Hann
vann hjá Vélasjóði við skurð-
gröft víða um land, hann rak
jarðvinnuvélar og starfaði við
skólaakstur í fjölda ára. Björn
var mikill hestamaður, ræktaði
sitt stóð, tamdi fyrir sjálfan sig
aðra. Björn vann til fjölda verð-
launa á hrossum sínum. Er
Björn flutti á Akranes hóf hann
störf sem lagermaður hjá Skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts,
síðan gerðist hann af-
greiðslumaður hjá Olís á Akra-
nesi og vann hann þar þar til
hann lét af störfum sakir aldurs.
Björn var söngmaður góður,
söng með m.a. með Karlakórn-
um Söngbræðrum og hafði yndi
af fögrum söng.
Björn verður jarðsunginn frá
Reykholtskirkju í Reykholtsdal í
dag, 19. febrúar 2011, kl. 11.
dóttir, f. 7.9. 1974,
börn þeirra Tanja
Rós, f. 13.8. 1994,
Birnir Snær, f. 4.12.
1996, Aron Skúli, f.
28.10. 1998. b) Lára
Björk, f. 15.4. 1978,
maki Ólafur Lind-
berg Karvelsson, f.
31.3. 1975, börn
þeirra Aldís Birta,
f. 28.9. 2008, og
Elmar Gísli, f.
17.12. 2010. c) Guðrún Lind, f.
28.5. 1979, maki Ármann Smári
Björnsson, f. 7.1. 1981. Börn
þeirra Andrea Kristín, f. 20.4.
2004, og Elín Birna, f. 31.7.
2008. 2) Helga, f. 11.11. 1966,
gift Óla Öder Magnússyni, f.
30.10. 1966. Börn þeirra: Björn
Öder, f. 3.8. 1993, og Friðrik
Öder, f. 3.9. 2003. Fyrir átti Guð-
rún Lilju Leifsdóttur, f. 18.12.
1948, gifta Jens Ágústi Jónssyni,
f. 25.6. 1949, barn þeirra Soffía
Rúna Jensdóttir, f. 28.2. 1973,
sambýlismaður Kristján Þórð-
arson, f. 31.5. 1969.
Nú er þessu lokið hjá þér elsku
pabbi minn. Mér eru efst í huga
stundir okkar saman með hestun-
um. Snarfaxi, Smyrill, Neisti og
Svaði koma strax upp í hugann,
hvílíkir gæðingar. Þú varst sá
fljótasti að járna, ekkert hangs
þar og gerðir það vel. Þú varst líka
einn sá besti að „leggja“ og átti
Smyrill Íslandsmetið í 150 m
skeiði á tímabili. Útreiðar á
Reykjadalsá á ís voru einstaklega
skemmtilegar. Smalamennska þar
sem hestarnir sáu um það sjálfir
svo að segja, maður var bara far-
þegi, og ef maður datt af baki þá
snarstoppuðu hestarnir og biðu
eftir að maður kæmist aftur á bak,
en fyrst varð að finna nógu stóra
þúfu til að ná upp í ístaðið. Færa
hesta á milli hólfa, marka folöldin,
ná í hestana, moka undan þeim,
vatna, gefa ormalyf, allt ógleym-
anlegar stundir. Endalausir út-
reiðartúrar í náttúrunni, hleypa á
skeið, alltaf svolítil keppni. Útreið-
ar í rigningu voru sérstaklega
skemmtilegar, hestarnir voru svo
kátir og lyktin æðisleg.
Þú seldir ófáa gæðingana til
Þýskalands og ég man alltaf eftir
Walter Feldmann gamla sem kom
reglulega að Laugavöllum og
keypti alltaf hross í hvert skipti,
alltaf spenningur í kringum það.
Hestar voru líf þitt og yndi og er
ég mjög ánægð með að hafa átt
þátt í því lífi pabbi minn með þér.
Ég veit að nú ríður þú út með vin-
um þínum og ert alsæll – ég bið að
heilsa Snarfaxa.
Helga.
Einn af góðvinum mínum í
Borgarfirði, Björn Jóhannesson á
Laugavöllum í Reykholtsdal, er
horfinn frá okkur í síðustu ferð
sína.
Hann var einn af þeim mörgu
góðu starfsmönum sem unnu við
Kleppjárnsreykjaskóla á árunum
1973 til 1988, annaðist hann akstur
skólabarnanna. Auk þess hafði
hann áður unnið við skólann bæði
við holræsagerð og íþróttavöllinn.
Í öllum verkum sínum var hann
mjög samviskusamur, ósérhlífinn
og sérstaklega verkhygginn. Öll-
um þessum atriðum fylgdi síðan
vandvirkni og ráðhollusta við
verkkaupendur
Mannkostir hans komu enn
betur fram í framkomu hans við
skólabörnin. Þeim féllu þessir
flutningar misvel í geð. Sumum
þótti þetta þægileg tilbreytni, en
öðrum var þetta óþægilegur þátt-
ur skólastarfsins. Björn sinnti
flutningi þeirra af mikilli nær-
gætni, aðgæslu og tillitssemi. Til-
finning góðs föður gagnvart börn-
um kom berlega í ljós hjá Birni.
Það var alltaf notalegt að líta
inn til þeirra Guðrúnar og Björns.
Hafi þau bestu þökk fyrir gistingu
í margar nætur og góðan beina.
Saknaðarkveðja fylgir Birni í loka-
áfangann. Blessuð sé minning
hans.
Innileg samúð til fjölskyldu
hans.
Hjörtur Þórarinsson.
Ég kynntist Bjössa fyrst árið
1959 þegar ég kom til sumardval-
ar hjá bróður hans Sturlu á
Sturlu-Reykjum. Í fyrstu snið-
gekk ég Bjössa því í hvert skipti
sem ég átti við hann orðastað leið-
rétti hann ambögur í máli mínu og
ekki bætti úr skák þegar stríðnin
gerði vart við sig. Fljótlega eftir að
ég áttaði mig á að málvendnin var
skóli og stríðnin aðeins sársauka-
laus glettni tók ég Bjössa í sátt og
eftir það þróaðist með okkur vin-
átta. Vinátta sem byggðist á gagn-
kvæmri virðingu og frelsi beggja
til að vera þeir sjálfir. Við Bjössi
náðum mestum samhljómi í ferð-
um fram á Arnarvatnsheiði. Best
var þegar frambyggði rússa-
jeppinn var farkosturinn og Siggi í
Stafholtsey var með í för.
Bjössi var hestamaður af guðs
náð og vann til margra verðlauna
á hestum sínum. Hann átti ávallt
úrvals reiðhesta og ber gæðingur-
inn Svaði þar af. Samspil þeirra
var einstakt, sérlega hvað skap-
gerð varðaði, en þar mættust tvö
stórveldi. Ég held að það sé ekki
ofsögum sagt að Bjössa hafi liðið
best á hestbaki í góðra vina hópi
og stundaði hann hestamennsku
meðan heilsan leyfði. Bjössi og
Guðrún brugðu búi á Laugavöllum
fyrir rúmum tveimur áratugum og
fluttu á Akranes. Þótt þangað
væri komið varð hluti af Bjössa
eftir í Reykholtsdalnum enda
taugarnar sterkar til æskustöðv-
anna. Hann skrapp oft heim í dal-
inn sinn til að vitja vina og ætt-
ingja. Á þessari stundu er mér
ljósara en áður hvað vináttan er
dýrmæt og gott er að eiga bara
góðar minningar.
Aðstandendum votta ég mína
dýpstu samúð. Minningin lifi.
Jens Á. Jónsson.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnst Björns Jóhannessonar,
oftast kennds við Laugavelli í
Reykholtsdal. Kynni okkar hófust
þegar hann gerðist vaktstjóri hjá
Olíuverslun Íslands hf. á Akranesi
í júlí 1988 og hafði starfsstöð hjá
Olís-Nesti við Esjubraut. Björn
starfaði hjá Olís í rúm 10 ár.
Það leyndist engum að Björn
var mikill Borgfirðingur og áhuga-
maður um sveitastörf, og þá sér-
staklega um hesta, en segja má að
hestar og hestamennska hafi verið
hans ær og kýr. Þótt fjölskyldan
væri alltaf í fyrsta sæti hjá honum
var hestamennskan þar aldrei
langt á eftir, þetta fór ekki fram
hjá okkur samstarfsmönnum
Björns.
Olís og starfsmenn þess á Akra-
nesi voru mjög heppin að hafa
Björn sem vinnufélaga. Hann var
ábyrgur stjórnandi og starfsmað-
ur með skemmtilegan húmor, frá-
sagnar- og sögumaður góður og
skemmtilegur félagi sem var annt
um samstarfsmenn sína og við-
skiptamenn félagsins.
Ég vil fyrir mína hönd og Siggu
konu minnar, Olís og starfsmanna
þess á Akranesi þakka Birni sam-
ferðina um leið og við vottum eft-
irlifandi aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Gunnar Sigurðsson.
Björn Jóhannesson
HINSTA KVEÐJA
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Hvíldu í friði elsku afi og
takk fyrir allt.
Þín
Soffía Rúna.
likkistur.is
Íslenskar kistur og krossar.
Hagstæð verð. Sími 892 4605
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
50% afsláttur
af legsteinum
úr íslensku blágrýti
Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Rvk
sími 587 1960 - www.mosaik.is
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA BJARNADÓTTIR
frá Öndverðarnesi,
til heimilis að Hlíðarvegi 14,
Kópavogi,
lést á Landspítala, Fossvogi, sunnudaginn
13. febrúar.
Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju mánudaginn 21. febrúar
kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Rauða kross Íslands,
Kópavogi, Föt sem framlag, kt. 530379-0199/0130-26-410816.
Fyrir hönd fjölskyldu og ástvina,
Jón Helgi Guðmundsson, Þórunn Þórðardóttir,
Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir, Sigfinnur Þorleifsson,
Þórunn Guðmundsdóttir, Ingvar A. Guðnason,
Björk Guðmundsdóttir, Antoníus Þ. Svavarsson,
Sjöfn Guðmundsdóttir, Jón Sigurmundsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
OLGA INGIBJÖRG EYLAND
PÁLSDÓTTIR
frá Siglufirði,
andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði mánu-
daginn 31. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hjartans þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug.
Pálmi Bernhard Larsen, Sigríður Ólafsdóttir,
Brynja Þórdís Þorbergsdóttir, Þóroddur S. Skaptason,
Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir, Þorvaldur Steinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BÁRA FREYJA RAGNA
VERNHARÐSDÓTTIR
frá Fljótavík,
andaðist á líknardeild Landspítala Landa-
koti mánudaginn 14. febrúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 25. febrúar
kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknardeildina á
Landakoti.
Björgvin Hjörvarsson, Ólöf Jóna Kristjánsdóttir,
Sævar Óli Hjörvarsson, Halldóra Þórðardóttir,
Selma Hjörvarsdóttir, Tómas H. Árdal,
Marín Hjörvarsdóttir, Þorsteinn Thorarensen,
Dagný S. Borge, Carina Borge,
Hjörvar Freyr Hjörvarsson, Birgitta Vigfúsdóttir,
Atli Þór Hjörvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARÍA MAGNÚSDÓTTIR,
Aðalstræti 13,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð miðvikudaginn
9. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
23. febrúar kl. 13.30.
Svala Guðmundsdóttir,
Guðmundur Magnús Guðmundsson, Jónína Davíðsdóttir,
Jósef Kristján Guðmundsson, Kolbrún Þ. Guðmundsdóttir,
Hrafnkell Guðmundsson, Steinunn K. Kristinsdóttir,
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
og langamma,
ÓLÖF P. JÓHANNSDÓTTIR
frá Hellissandi,
Gautlandi 19,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
17. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgerður Elín Halldórsdóttir,
Jóhann Þór Halldórsson, Þórlaug Arnsteinsdóttir,
Hafdís Halldórsdóttir, Páll Pálsson,
Ragnheiður G. Halldórsdóttir, Vilhjálmur Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.