Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 38
38 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞEGAR ÉG ER Í STUÐI ÞÁ GETUR ALLT GERST! ALLT NEMA STUÐ HANN ER NÝ- FLUTTUR Í HVERFIÐ OKKAR ÞETTA ER 5... ÆTTARNAFNIÐ HANS ER 95472 FRÚ 95472? ÉG HELD EKKI! ÞAÐ ER EKKI KRISTNUM MANNI SÆMANDI AÐ SIGLA UM HEIMINN Á SMÁSKÚTU OG RÆNA FÓLK ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR BRÓÐIR ÓLAFUR... ...ÞAÐ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ ÉG KAUPI MÉR STÆRRA SKIP FÉLAGI MINN VAR AÐ MISSA VINNUNA. HANN VAR REKINN ÚR BÍLAIÐNAÐINUM ÉG VISSI EKKI AÐ HUNDAR FENGJU VINNU Í BÍLA- IÐNAÐINUM, VIÐ HVAÐ VANN HANN? HANN SÁ UM ÖRYGGIS- PRÓFANIR ÞÓ AÐ ÞÚ SÉRT AÐ ELDAST ÞÁ ÆTTIRÐU EKKI AÐ LEYFA ÞÉR AÐ FITNA ÉG ÆTLA EKKI AÐ GERA ÞAÐ MÉR LÍÐUR MIKLU BETUR ÞEGAR ÉG HREYFI MIG REGLULEGA OG BORÐA HOLLAN MAT. ÉG ER BARA BÚINN AÐ GEFAST UPP Á ÞVÍ AÐ FÁ STINNA MAGAVÖÐVA ÉG BJÓST NÚ HELDUR EKKI VIÐ STINNUM MAGAVÖÐVUM EN Á HINN BÓGINN LÍTTU Á BYSSURNAR! EF ÞÚ SLEPPIR MÉR ÞÁ SKAL ÉG SKERA AF EINA KLÓ... ...SVO ÞÚ GETIR GERT ÞÍNAR RANNSÓKNIR ÞAÐ GERI ÉG EKKI, ÉG TREYSTI ÞÉR EKKI ÉG MUN FINNA LEIÐ TIL AÐ NÁ ÞEIM AF... ...Á MEÐAN ÞÚ ERT MEÐVITUNDARLAUS Uppgjöf Góðvinur minn benti mér á, að komnir væru til valda stjórn- málamenn sem ekki hefðu þann bar- áttuvilja sem ein- kenndi Íslendinga, einkum á síðustu öld. Þetta er alveg rétt, því miður er þetta staðreynd. Það fólk sem nú situr að völd- um og þá einkum Jó- hanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. hafa ekki þann dug sem þeir höfðu sem börðust fyrir fullveldi þjóðarinnar og lýðveldisstofnun Íslands. Þau hefðu heldur ekki haft dug eða þor til að berjast fyrir tólf mílna fisk- veiðilögsögunni, né fimmtíu míl- unum. Og undirlægjuháttur þeirra gagnvart erlendum stórþjóðum hefði ekki leyft þeim að berjast fyrir tvö hundruð mílna fiskveiðilögsög- unni á sínum tíma. Þetta er dapurlegt eftir alla þá baráttu sem þessi þjóð hefur háð, að sitja uppi með forustumenn sem leggjast bara á bakið og gefast upp við smámótbyr. Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn og við er- um með að minnsta kosti tvo ónýta hlekki í keðjunni. Fjármála- ráðherra sem var til í að samþykkja Icesave hvað sem það kostaði þjóðina og forsætis- ráðherra sem er líka á þeirri línu en vill auk þess færa Evrópusam- bandinu fullveldi þjóð- arinnar. Þarna er botninum náð. Upp- gjöfin er augljós, það er sama hvert litið er, skuldavandi heim- ilanna, atvinnu- uppbygging, brjálæðisleg græðgi- svæðing fjármálaráðherra í skattheimtu, bensínverð sem á sér hvergi í heiminum neina hliðstæðu. Þjóðin verður að rísa upp og bylta þessari verklausu ríkisstjórn, sem fyrir löngu er búin að gefast upp á að stjórna landinu. Ómar Sigurðsson skipstjóri. Ást er… … að horfa á uppáhalds- þátt hvort annars. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Íbók sinni Séra Baldur segirBaldur Vilhelmsson í Vatnsfirði frá bernsku sinni á Hofsósi, en þar var faðir hans kaupmaður og póst- afgreiðslumaður, en afgreiddi einn- ig skip Eimskips og „hafði svokall- aðan bringingarbát til að flytja vörurnar í land“. Af því tilefni orti karlinn á Laugaveginum: Í Hofsós á bringingarbát var Baldur og aldan er kát, hann var þar sem gestur en vígðist svo prestur í Vatnsfjörð – og Kristur varð mát. Jóhannes Hannesson orti: Það er eitt sem ég aldrei fæ skilið: ef ég ætla að ganga upp þilið losna iljarnar frá og fæturnir ná ekki að fylla að gagni upp í bilið. Ég hef alltaf ímyndað mér að þessi limra sé kveikjan að þessari limru Kristjáns Karlssonar: „Víst er gaman að ganga upp þil,“ sagði Guðný og labbaði upp þil. „Eða fyndist þér gaman jafngreindum í framan að geta ekki labbað upp þil?“ Í athugasemdum við bók sína Limrur segir Kristján: „En áður en limran fékk nafn og náði fótfestu hérlendis bregður hættinum eða að minnsta kosti líkum brag fyrir í ís- lenskum kveðskap, til dæmis í dans- lagatextum, en einkum í sálmum: Hvað eru dauðlegir menn, að þú minnst þeirra getur, mannanna börn, að þú vegsemdar slíkrar þau metur? Manninn á jörð máttugri englanna hjörð lítið eitt lægra þú setur. Þannig kvað séra Valdimar Briem í sálmi.“ Hér kemur limra eftir Kristján: Það var veisla og geysilegt gaman og gestirnir bjartir í framan yfir lystugum orðum en innst undir borðum lá eilífðin hnipruð saman. Halldór Blöndal halldorblondal@gmail.com Vísnahorn Og Kristur varð mát Jónas Jónsson frá Hriflu varskarpur maður, en átti erfitt með að hemja sig. Þegar hann var ráð- herra í minnihlutastjórn Framsókn- arflokksins árin 1927-1932, þótti hann misnota jafnt veitingarvald sitt í kennslumálaráðuneytinu og ákæru- vald sitt í dómsmálaráðuneytinu í þágu stjórnmálahagsmuna. Þess vegna sagði Hermann Jónasson við hann í Ráðherrabústaðnum 1937, þegar þeir kepptu um það, hvor þeirra ætti að vera forsætisráðherra: „Þú kannt að skrifa, en ekki að stjórna.“ Og þess vegna sagði Bjarni Benediktsson eitt sinn við hann með hógværlegu brosi: „Þín vinnubrögð í ríkisstjórninni verða jafnan öðrum til viðvörunar.“ Eitt fórnarlamb Jónasar var Jó- hannes Jóhannesson, bæjarfógeti í Reykjavík, sem Jónas hrakti úr emb- ætti og fékk síðan dæmdan fyrir litl- ar sakir (hann hafði ekki fremur en margir aðrir bæjarfógetar eða sýslu- menn reiknað dánarbúum í vörslu sinni fulla vexti). Jóhannes var virtur maður, lengi alþingismaður Seyðfirð- inga fyrir Íhaldsflokkinn og síðar Sjálfstæðisflokkinn. Má nærri geta, að þetta mál varð honum mikill áfall. Á efri árum sagði hann einni frænd- konu sinni frá því eftir gönguferð, að hann hefði þar hitt Jónas frá Hriflu og heilsað honum. „Heilsaðirðu hon- um Jónasi?“ spurði konan undrandi. „Já, auðvitað, ég hef aldrei gert hon- um neitt,“ svaraði Jóhannes. Minnir þessi skemmtilega saga á aðra af gríska heimspekingnum Sókratesi, sem Xenófón greinir frá í Minningum sínum. Sókrates furðaði sig á því, þegar maður einn reiddist, af því að oflátungur nokkur hefði ekki tekið kveðju hans: „Hlægilegt! Þú hefðir ekki reiðst, hefðir þú rekist á mann við verri heilsu en þú. En þú kippir þér upp við að hitta mann, sem er ókurteisari en þú.“ En sanngjarnasti dómurinn um Jónas frá Hriflu er ef til vill sá, sem hinn vitri bændahöfðingi Bjarni Ás- geirsson kvað upp: „Honum verður fyrirgefið mikið, af því að hann hefur elskað mikið.“ Vísaði Bjarni þar vit- anlega í hina helgu bók, en í Lúk- asarguðspjalli er komist svo að orði um bersyndugu konuna: „Hinar mörgu syndir hennar eru fyrir- gefnar, enda elskar hún mikið.“ Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar. Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Hann heilsaði Jónasi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.