Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
É
g fékk hugmyndina
að þessu kaffihúsi
þegar ég var í
fæðingarorlofi með
strákana mína tvo,
árin 2007 og 2009. Ég var farin að
skipuleggja hugmyndina að kaffi-
húsinu í fyrsta fæðingarorlofinu,
svo kom hrun og ég guggnaði á
þessu, en með seinni strákinn
ákvað ég að þetta yrði að gerast.
Ég er mikil félagsvera og
fann hvað maður getur einangrast
í fæðingarorlofi. Yngri strákurinn
fæðist að sumri til og þá fór ég að
taka eftir því að þótt maður vildi
gjarnan setjast á kaffihús var
maður ekkert ægilega velkominn
sem er alveg skiljanlegt gagnvart
barnlausu fólki sem nennir ekki að
hlusta á vælið í börnunum. Yfir
sumartímann er líka mikið af
ferðamönnum og augnaráðið sem
maður fékk við það að gefa brjóst
var oft ekki fagurt, það var aug-
ljóst að blygðunarkennd þeirra
margra var særð. Þannig að ég
var næstum farin að setjast inn á
klósett til að gefa brjóst, ofan á
það var engin aðstaða fyrir börn,
það var heppni ef það var skítugt
skiptiborð inni á einu klósettinu.
Þar að auki var eldri strákurinn
minn kveisubarn sem þýddi það að
ég mátti ekki éta nokkurn skap-
aðan hlut og það var erfitt að fá
eitthvað eftir sínum þörfum á
kaffihúsunum,“ segir Tinna þegar
hún er spurð út í ástæðu þess að
Fullkomið fyrir for-
eldra í fæðingarorlofi
Iðunnareplið nefnist nýtt kaffihús fyrir ung börn og foreldra þeirra við Templara-
sund í Reykjavík. Tinna Kristjánsdóttir rekur kaffihúsið sem hún fékk hugmynd-
ina að þegar hún var í fæðingarorlofi en henni fannst vanta stað þar sem for-
eldrar eru velkomnir með ung börn sín og geta drukkið kaffið sitt eða gefið brjóst í
ró og næði í barnvænu umhverfi.
Ungbarnakaffihús Tinna Kristjánsdóttir rekur Iðunnareplið í Templarasundi.
Leikaðstaða Gott og litríkt leikherbergi er fyrir börnin.
Það eru engin takmörk fyrir því hvað
okkur mannfólkinu dettur í hug. Á
vefsíðunni Heroofswitzerland.blog-
spot.com má sjá mörg dæmi um hvað
við erum hugmyndarík.
Undir liðnum Top Tips vinstra meg-
in á síðunni eru birtar hugmyndir að
því hvað má gera við gamalt dót eða
það sem virðist vera einskis virði,
einnig eru allskonar sniðug sparnað-
arráð. Þetta er undarlegur samtín-
ingur, t.d. mælir einn með því að hafa
alltaf tilbúna súpu í dós í skúffunni
hjá sér í vinnunni ef hádegismaturinn
gleymist heima, þá er alltaf hægt að
hita upp súpuna og það er miklu
ódýrara en að fara út og kaupa sér
mat. Mælt er með því að nota gamlan
vínrekka sem þurrkgrind, gamla
kökudiska sem myndaramma, að
nota tvo gaffla saman í staðinn fyrir
handþeytara, nota kakóduft sem
sólpúður og margt margt fleira sem
er fáránlegt og fyndið.
Annað skemmtilegt má finna á
þessari síðu, t.d. undir liðnum Stuff
We Like. Þar má sjá myndir af ýmsu
sniðugu, t.d. áhugaverðri hönnun,
myndir af undarlegum hlutum sem
einhver hefur rekist á á förnum vegi
og innsendar skopmyndir. Þetta er
fín vefsíða til afþreyingar.
Vefsíðan www.heroofswitzerland.blogspot.com
Reuters
Góð mynd Maður með vatnsbrúsa á hjóli í Afganistan.
Furðulegt og fyndið
Alþjóðatorg ungmenna og Gerðuberg
standa fyrir bráðlifandi bókasafni í
kaffihúsi Gerðubergs í dag, laugardag,
frá kl. 14-16. Á Lifandi bókasafni geta
gestir fengið að láni lifandi og talandi
bók til að fræðast og skemmta sér um
leið.
Markmið Lifandi bókasafns er að
vinna gegn fordómum og eru bækurnar
fulltrúar ólíkra hópa í samfélaginu,
hópa sem oft mæta fordómum, búa við
misrétti og/eða félagslega einangrun.
Ef þú ert tilbúinn til að horfast í augu
við fólk sem hefur öðruvísi sjónarhorn
þá ættir þú að gerast lesandi í Lifandi
bókasafni þar sem bækurnar geta talað.
Endilega …
… fáið lánaða
lifandi bók
Morgunblaðið/Golli
Bókasöfn Geta verið lifandi.
www.nyherji.is
FLEIRI KONUR Í
TÆKNIGREINAR
Nýherji leggur áherslu á að auka þátttöku kvenna í tæknigreinum.
Stelpur! Kynnið ykkur spennandi tölvunarfræðinám
á Háskóladeginum 19. febrúar, kl. 11.00-16.00,
í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands (Askja).
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
5
4
3
1