Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Heildsölur Ríki- og sveitarfélögVerslun H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 11 –0 08 9 Töf hefur orðið á því að Guð- bjartur Hann- esson velferð- arráðherra leggi fram frumvarp sem veitir Íbúða- lánasjóði skýrari heimild til að færa íbúðalán niður í 110% af markaðsvirði, líkt og bankarnir hafa boðað. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins má rekja töfina til vinnu fjármálaráðu- neytisins við kostnaðarmat, en ljóst þykir að þeir 33 milljarðar króna sem ríkið hafði áður lagt sjóðnum til duga ekki til að mæta aukinni af- skriftaþörf íbúðalána. Íbúðalánasjóði hafa nú borist um 650 umsóknir um niðurfærslu íbúðalána. Þar af hefur nokkrum þegar verið hafnað þar sem um- sækjendur uppfylla ekki öll skil- yrði. Sigurður Erlingsson, fram- kvæmdastjóri sjóðsins, segir að í næstu viku verði hægt að afgreiða umsóknir þar sem engin álitamál eru uppi. Þá fyrst geti endanleg af- greiðsla umsókna farið að hefjast. Unnið verði við allar umsóknir þar til lögin taka gildi. bjb@mbl.is Ný lög um Íbúðalána- sjóð tefjast ÍLS Lagabreyting tefst enn á þingi. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Einar Már Guðmundsson rithöfund- ur skorar á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að standa við orð sín og neita að staðfesta nýja Ice- save-samninginn. Einar Már kveðst vera í hópi þeirra sem „endur- heimtu“ forsetann þegar hann neit- aði að staðfesta síðasta samning. Einar er nú á upplestrarferð í Danmörku en gaf sér tíma þegar blaðamaður fréttavefs Morgun- blaðsins, mbl.is, náði tali af honum um miðjan dag í gær. Rithöfund- urinn dró þá blað úr vasa sínum og las tilvitnun í nýlegt viðtal við for- setann: „Hversu langt er hægt að ganga og fara fram á að venjulegt fólk, bændur, sjómenn, læknar og hjúkrunarfræðingar, axli ábyrgð á föllnu bönkunum? Sú spurning, sem er kjarninn í Icesave-málinu, mun brenna á mörgum í ríkjum Evr- ópu.“ Hitti naglann á höfuðið Einar Már segir forsetann hafa hitt naglann á höfuðið. „Þetta er kjarni málsins, enda fannst mörgum Íslendingum sem þeir hefðu endurheimt forsetann þegar hann hafnaði lögunum, að þá hefði hann vaknað eftir allt of langt faðmlag sitt við auðmennina. Ég var í þessum hópi. Málið snýst um lýðræði, að þjóðin fái sjálf að ákveða þetta. Ég fæ ekki séð að það geti skaðað nokkurt mál að almenningur fái að taka afstöðu til þess,“ segir Einar Már. Skorar á forsetann  „Sú spurning, sem er kjarninn í Icesave-málinu, mun brenna á mörgum í ríkjum Evrópu,“ segir Einar Már Guðmundsson Morgunblaðið/Eggert Áskorun Einar Már Guðmundsson er nú á upplestrarferð í Danmörku. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf í gær út reglugerðir um auknar heimildir til loðnuveiða. Aukningin nemur alls 65 þúsund tonnum og fer nær öll til íslenskra fiskiskipa eða 64,4 þúsund tonn. Heildarheimildir til loðnuveiða á fiskveiðiárinu eru nú 390 þúsund tonn og þar af fara um 317 þúsund tonn til íslenskra fiski- skipa. Aukningin er í samræmi við til- lögu Hafrannsóknastofnunar. Áætla má að tekjur þjóðarbúsins geti aukist um fjóra milljarða króna með þessari viðbót. Upp- hafskvóti var gefinn út 19. nóv- ember og var hann upp á 200 þús- und tonn. Fyrstu skipin byrjuðu veiðar í desember. Kvótinn var síðan aukinn 26. janúar í kjölfar leiðangurs Hafrannsóknastofnunar og nam sú aukning 125 þúsund tonnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Auknar heimildir til loðnuveiða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.