Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Óverðtryggð ríkisskuldabréf, en langflest skuldabréf íslenska ríkis- ins eru óverðtryggð, hafa fallið um- talsvert í verði frá áramótum og hefur stærstur hluti lækkunarinnar orðið í febrúarmánuði. Frá áramótum hefur óverð- tryggði hluti GAMMA skuldabréfa- vísitölunnar lækkað um 2,65 pró- sent og lækkunin frá febrúarbyrjun nemur 1,96 prósentum. Hins vegar hefur verðtryggði hluti vísitölunnar hækkað um 1,19 prósent frá áramótum og um 0,6 prósent frá febrúarbyrjun. Hafa flokkarnir tveir því fjarlægst tölu- vert á þessum tíma. Nokkrar skýringar eru á þessari þróun, að sögn Gísla Haukssonar, framkvæmdastjóra GAM Manage- ment. Í fyrsta lagi segir hann að eðlileg verðleiðrétting sé í gangi, að hluta til að minnsta kosti. „Þegar ákveðið var að taka útvarpsgjald út úr neysluverðsvísitölunni hafði það áhrif á vísitöluna og þar með á það hvernig verðbólga er reiknuð. Á skuldabréfamarkaði brugðust menn við með því að kaupa óverð- tryggð bréf, en verð hækkaði tölu- vert umfram það sem þessi breyt- ing gat réttlætt. Þess vegna er ekkert undarlegt við það að verðið lækki á ný.“ Þá segir Gísli að búist sé við tölu- verðri verðbólgu næstu þrjá mán- uði, eða um tveggja prósenta hækkun á almennu verðlagi á tíma- bilinu, og við slíkar aðstæður verði verðtryggðar eignir eftirsóttari. Gjaldeyrishöft og verðbólga „Þá má ekki gleyma því að von er á skýrslu Seðlabankans um gjald- eyrishöft og vonast menn til að í henni sé eitthvað að finna um slök- un á höftunum. Erlendir krónu- eigendur eru nánast eingöngu í óverðtryggðum ríkisbréfum og ef þeir munu geta losað hluta af sínu fé og flutt út mun það hafa áhrif á verð á bréfunum.“ Segir hann að innlendir fjárfestar séu að búa sig undir þessa hugsanlegu breytingu með því að losa sig við óverðtryggð bréf áður en að þessu kemur. „Fari svo að liðkað verði um fjár- magnsflutning út úr landinu getur það haft áhrif til veikingar á gengi krónunnar, sem aftur mun geta leitt til meiri verðbólgu. Við slíkar aðstæður verða verðtryggðar eign- ir verðmætari,“ segir Gísli. Ávöxtunarkrafa á ríkisskulda- bréf á gjalddaga árið 2019 hefur í febrúar hækkað úr 5,8 prósentum í 6,38 prósent. Óverðtryggð ríkisskuldabréf hafa lækkað töluvert í verði  Verðleiðrétting, yfirvofandi verðbólguskot og vangaveltur um gjaldeyrishöft Morgunblaðið/Ernir Gjaldeyrishöft Fjárfestar bíða nú eftir skýrslu Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál og gera margir þeirra sér vonir um að í henni felist leiðarvísir um afléttingu hafta, eða að minnsta kosti að þeim verði létt að hluta til. Skuldabréf » Skuldabréf útgefin af ís- lenska ríkinu eru almennt óverðtryggð, að einum skulda- bréfaflokki undanskildum. » Óverðtryggð bréf eru lang- flest gefin út af Íbúðalánasjóði. » Þegar verð lækkar á skulda- bréfi hækkar ávöxtunarkrafan, þ.e. að fjárfestar vilja fá meira fyrir fé sitt. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Aukin alþjóðleg samkeppni á flugleið- um milli Norður-Ameríku og Evrópu mun höggva skarð í tekjur Icelandair á þessu ári. Þetta segir Björgólfur Jó- hannsson, forstjóri samstæðu Ice- landair Group, í samtali við Morgun- blaðið. Björgólfur ýjaði að því að þessarar þróunar væri að vænta í kauphallartilkynningu vegna ársupp- gjörs félagsins, sem birt var fyrir skömmu. „Framboð á flugleiðum yfir Atlantshafið minnkaði almennt í kjöl- far þess að fjármálakreppan gerði vart við sig af alvöru. Við bættum hins vegar í á þessu tímabili, tókum inn leiðina til Seattle 2009 og erum að bæta Washington við núna. Ágæti þeirrar ákvörðunar að draga ekki úr okkar framboði á þessum flugleiðum skilaði sér í uppgjöri síðasta árs,“ seg- ir hann. Framboð eykst á ný Björgólfur segir að framboðið á flugleiðum yfir Atlantshafið sé nú aft- ur að aukast. Það muni skila sér í lægra verði. „Núna eru þegar margir sem fljúga yfir Atlantshafið. Til við- bótar við það mun samkeppni í flugi til Íslands aukast yfir sumartímann. Við reiknum því ekki með öðru en að meðalfargjaldið lækki af þeim sök- um.“ Áður hefur komið fram í fréttum að alls 13 flugfélög muni bjóða upp á áætlunarflug til Íslands í sumar. Þetta er náttúrlega algert met og mun að sjálfsögðu hafa einhver áhrif á okkar rekstur,“ segir Björgólfur. Inntur eftir því hvort Íslendingar geti nú horft fram á lægri flugfargjöld, segir Björgólfur erfitt að fullyrða um það. Icelandair Group birti í síðustu viku uppgjör fyrir árið 2010. Hagn- aður félagsins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir var sá mesti í sögu félagsins, eða 12,6 milljarðar. Afkom- an var vel yfir áætlunum, sem höfðu þó nokkrum sinnum verið uppfærðar til hins hærra á síðasta ári. Meiri samkeppni yfir Atlantshafinu  Áætlunarferðum yfir hafið fækkaði í kjölfar fjármálakrísu  Fjölgar nú á ný Morgunblaðið/Golli Icelandair Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Portúgölsk stjórnvöld ítrekuðu í gær að þau hefðu enga þörf fyrir neyðarl- ánveitingu frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Á sama tíma lýsti einn af leiðtogum stjórnar- andstöðunnar yfir að ekki yrði komist hjá því að leita eftir erlendri aðstoð. Undanfarnar viku hefur áhættuá- lagið á portúgölsk ríkisskuldabréf haldist yfir 7% en það er samdóma mat sérfræðinga að skuldir ríkissjóðs fái ekki staðist til lengdar ef fjár- mögnunarkjörin skána ekki í bráð. Fátt bendir til að það muni gerast á næstunni. Við þetta bætist að horf- urnar í portúgalska raunhagkerfinu eru dökkar um þessar mundir. Að sögn breska blaðsins Financial Times hafa nýleg ummæli Carlos Costa, seðlabankastjóra landsins, þess efnis að hagkerfið stefni á ný í samdrátt- arskeið, aukið áhyggjur manna af stöðu mála enn frekar. Spennan á evrópskum fjármála- mörkuðum einskorðast ekki við Portúgal. Samkvæmt tölum frá Evr- ópska seðlabankanum rauk eftir- spurn fjármálastofnana eftir neyðarl- ánum upp úr öllu valdi á miðvikudag. Seðlabankinn gaf ekki neinar skýr- ingar á þessu, en eins og bent er á í The Wall Street Journal bendir slíkt til þess að einn eða fleiri bankar standi frammi fyrir alvarlegri lausa- fjárþurrð. Sem stendur fara meira en 60% af öllum veðlánaviðskiptum Evrópska seðlabankans til banka í Grikklandi, Portúgal, Írlandi og á Spáni, þó svo að viðkomandi hagkerfi standi aðeins undir 20% af landsframleiðslu evru- svæðisins. ornarnar@mbl.is Spjót fjármálamarkaða beinast að Portúgal á ný  Stjórnarandstöðuleiðtogi segir þörf á neyðarlánveitingu Reuters Kauphöllin í Frankfurt Spenna ríkir enn á evrópskum fjármálamörkuðum. ● Frumtak hefur fjárfest fyrir 81 milljón í nýsköpunarfyrirtækinu Völku, sem sérhæfir sig í þróun tæknilausna fyrir sjávarútveginn. Í tilkynningu sem send var út vegna málsins segir að Valka hafi vakið mikla athygli fyrir lausnir fyrir sjálfvirkan skurð og flokkun fisks. Þar að auki hefur fyrirtækið þróað hug- búnað til að halda utan um fram- leiðsluferli og pantanakerfi. Valka var stofnuð árið 2003 af Helga Hjálm- arssyni og hefur selt sínar afurðir inn- anlands sem utan, meðal annars til Noregs, Kanada og Færeyja. Hefur fé- lagið þegar sótt um og eignast nokkur einkaleyfi. Frumtak, samlagssjóður í eigu Ný- sköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex stærstu lífeyrissjóða landsins auk þriggja banka. Sjóðurinn fjárfestir í ný- sköpunarfyrirtækjum. thg@mbl.is Frumtak fjárfestir í Völku fyrir 81 milljón ● Hópur spænskra spari- sjóða, með Caja Madrid í broddi fylkingar, mun lík- lega setja upp „slæman banka“ til að taka við lé- legum eignum og auðvelda skrán- ingu hópsins á hlutabréfamarkað. Fimm stórir sparisjóðir stefna að sam- einingu og skráningu á hlutabréfa- markað og er stofnun lélega bankans liður í að gera hlutabréfin álitlegri fjár- festingarkost. Fleiri spænskir sparisjóðir ætla að fara þessa sömu leið, en þrjár vikur eru síðan La Caixa, stór sparisjóður í Barcelona, sagðist ætla að setja á stofn slæman banka í sama tilgangi. Stofna lélegan banka ● Arion banki vill koma því á framfæri að enginn stjórnarmanna bankans eða varamanna í stjórn hafi fallið á prófi Fjár- málaeftirlitsins, sem snýr að hæfi og hæfni til stjórnarsetu í íslenskum fjár- málafyrirtækjum. Morgunblaðið greindi frá því á fimmtudaginn að 26 af 35 stjórnarmönnum og varamönnum í stjórn íslenskra banka, sem þreytt höfðu próf Fjármálaeftirlitsins, hefðu staðist. Einhverjir þreyttu prófið aftur með betri árangri, en sumir þeirra sem ekki stóð- ust gerðu ekki aðra tilraun til þess. Enginn féll á prófinu Stuttar fréttir…                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-+. +/0-/. ++/-/, .+-.0/ .1-233 +/-.12 +.4-1. +-212 +/.-23 +5/-,0 ++,-2 +01-./ ++0-.. .+-43 .1-5.3 +/-.5, +.4-43 +-21/+ +/4 +50-.4 .+5-0/4+ ++,-3/ +01-,2 ++0-5, .+-2.. .1-5/3 +/-4+ +.4-, +-2+.. +/4-52 +50-3,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.