Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kristján B. Jónasson, formaður Fé- lags bókaútgefenda, segir að bókaút- gefendur telji að þeir tapi um 50 milljónum króna á gjaldþroti Máls og menningar við Laugaveg. Þeir hafi ekki fengið greitt fyrir seldar bækur í búðinni frá því fyrir jól og fái væntanlega ekki til baka óseldar bækur. Öllum á óvart Bókaútgefendur á Íslandi eru annaðhvort fyrirtæki með litla veltu eða miðlungsstór fyrirtæki og aðeins einn útgefandi telst til stórra fyrir- tækja. Kristján segir að velta margra sé á bilinu 50 til 70 milljónir og ætla megi að tap þeirra á gjald- þrotinu sé um 1,5 til 2 milljónir að meðaltali. „Það er ansi stór hluti af ársveltunni,“ segir hann. Kristján segir að staðið hafi á greiðslum frá eigendum Máls og menningar. Margir bókaútgefendur hafi því rætt við þá fyrir jólin og ver- ið fullvissaðir um að vel væri að hlut- um staðið. Útgefendur hafi líka horft til þess að eigendurnir væru með mörg járn í eldinum, rækju ýmis fyr- irtæki svo sem steypustöðvar, fast- eignafélög og hótel við Laugaveg 18. Þeir væru fjársterkir, hefðu til að mynda selt Reykjavíkurborg fast- eignirnar við Laugaveg 4 og 6 fyrir 580 milljónir og ættu húsnæðið þar sem Mál og menning hefði verið. Út- gefendur hafi því treyst eigendun- um. „Það er eins og gjaldþrotið hafi komið öllum í opna skjöldu,“ segir Kristján. Þrátt fyrir að útgefendur hafi treyst eigendum Máls og menn- ingar sættu ekki allir sig við fram- komu þeirra. Kristján segist vita af einum sem hafi stöðvað afgreiðslu til þeirra, annar hafi aðeins skipt við þá gegn staðgreiðslu og sumir hafi verið byrjaðir að innkalla bækur sínar. Sú staða sé reyndar ekki ný af nálinni í bókaviðskiptum og menn óttist ekki endilega gjaldþrot hjá viðskiptavini sínum þó þeir bregðist við með ein- hverjum hætti til þess að þrýsta á að fá greitt fyrir vörur sínar. „Ég held að það hafi ríkt ákveðið traust gagn- vart þessum eigendum.“ Kristján segir að bókaútgefendur beri sig mjög illa vegna gjaldþrots- ins. Þeir megi ekki við neinum áföll- um og því hafi svona skellur mjög al- varleg áhrif á stöðu þeirra, auk þess sem hann dragi kjark úr mönnum. „Þetta er mjög mikil blóðtaka,“ segir hann. Mikið áfall 2009 varð Penninn gjaldþrota, eig- endur Office1 fóru í nauðungar- samninga og A4 varð gjaldþrota, auk annarra minni gjaldþrota, en ljóst er að mikil óvissa ríkir í röðum bókaút- gefenda í kjölfar þessa gjaldþrots. „Þetta er stærsta gjaldþrot í grein- inni og mjög mikið áfall. Helvítis högg,“ segir Kristján. Bókaútgefendur tapa um 50 milljónum  Gjaldþrot Máls og menningar dregur dilk á eftir sér Morgunblaðið/Eggert Mál og menning Gjaldþrotið dregur dilk á eftir sér. „Það gengur ótrúlega vel hjá okkur,“ segir Arndís B. Sig- urgeirsdóttir, sem rekur bók- arverslunina Iðu við Lækj- argötu. Hún segir að hún sé í mikilli samkeppni við bankana. „Nánast öll bóksala nema hjá Iðu er í eigu bankanna,“ segir hún og áréttar að hún geti ekki auglýst eins og þessi fyrirtæki sem virðist hafa ótakmarkaðan aðgang að fjármagni. Samt nái hún að veita þeim samkeppni og ekki síst í erlendum bókum sem hún flytji sjálf inn. Samkeppni IÐA UTAN BANKANNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.