Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Helga Mjöll Stefánsdóttir hms6@hi.is Íris Stefanía Skúladóttir stendur í ströngu þessa dagana við að skipuleggja tónlistarhátíðina Bergen-Reykjavík-Nuuk, sem fer fram dagana 24.-25. febrúar. „Þetta er hrærigrautur af lista- mönnum frá fjórum borgum: Bergen, Reykjavík og Nuuk og svo Bretlandi. Í grunninn er þetta ólík tónlist sem á sér samt sam- hljóm,“ segir Íris. Meðal þeirra sem spila á hátíðinni eru Samúel Jón Samúelsson með stórsveit sinni, Davíð Þór Jónsson, Ragn- heiður Gröndal, Moses Hightower og Mr. Silla. Æskuvinkona kemur fram á hátíðinni Josefin Winther, tónlistarkona og æskuvinkona Írisar frá Bergen, kemur fram á hátíðinni og óskaði Íris eftir aðstoð hennar við skipu- lagningu hátíðinnar. „Það vill svo skemmtilega til að ég bjó í Bergen sem unglingur og Josefin kom og heimsótti mig á Íslandi í sumar. Hún endaði svo á því að flytja hingað vegna ástar sinnar á land- inu. Í dag erum við á fullu að skipuleggja há- tíðina.“ Þær stöllur vildu efla sam- starfið milli þessara ólíku landa og borga en Josefin mun sjálf koma fram á hátíðinni, enda að gera góða hluti í Bergen með aðra plötu sína, Raising Armies. Josefin mun vera þekkt af tónlist sinni í Noregi en hún leikur rólegt rokk og hefur m.a. verið líkt við P.J. Harvey, að sögn Írisar. Listamenn syngi á móðurmálinu Josefin og Íris hittu fyrir til- viljun í sumar þekktan umboðs- mann í Noregi, Mikael Telle, sem er m.a. með Kings of Convenience á sínum snærum. Hann vildi ólmur fá að senda ungt og nýtt tónlist- arfólk á hátíðina og fyrir hans til- stuðlan mun hljómsveitin John Olav Nilsen & Gjenge koma fram á hátíðinni. Í kjölfarið var ákveðið að hafa það að leiðarljósi að lista- mennirnir syngju á sínu móð- urmáli. „Við ætlum að gera tilraun með það og mun allavega helm- ingur hljómsveitanna syngja á sinni tungu,“ segir Íris. Hún lofar mikilli skemmtun og hvetur alla til þess að mæta. Hægt er að nálgast miða á vefsíðunni midi.is.og er verðið 2.500 kr. fyrir eitt kvöld en 4.000 kr. fyrir bæði kvöldin. Hrærigrautur listamanna úr ýmsum áttum Vinsæl Josefin Winther gerir það gott í heimalandi sínu Noregi. Íris Stefanía Skúladóttir  Norræn tónlistarhátíð hefur göngu sína í Norðurpólnum  „Ólík tónlist sem á sér samt sam- hljóm,“ segir skipuleggjandi  Norska tónlistarkonan Josefin Winther heldur tónleika á hátíðinni Höfundur er meistaranemi í blaða- og fréttamennsku. Sviti Hljómsveitin John Olav Nilsen & Gjenge er með sama umboðsmann og Kings of Convenience. Hér sést hún á tónleikum með sveittum söngvara. SPARBÍÓ 3D á allar sýningar merktar með grænu950 kr.. SÝND Í KRINGLUNNI OG EGILSHÖLL FRÁ JAMES CAMERON SEM FÆRÐI OKKUR TITANIC OG AVATAR , to nada from PRADA FRÁBÆR GAMANMYND BYGGÐ Á SÖGU JANE AUSTEN, SENSE AND SENSIBILITY „EIN BESTA MYND ÞEIRRA COEN BRÆÐRA“ - EMPIRE MYND Í ANDA CLUELESS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI „MYNDIN BÝÐUR ÞVÍ UPP Á ENDURTEKIÐ ÁHORF OG ÓGLEYMANLEGA SKEMMTUN.“ - H.S. - MBL SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK DISTURBIA MICHEAL BAY - R.C. - BOXOFFICE MAGZINE / ÁLFABAKKA I AM NUMBER FOUR kl. 1 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 12 THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 - 10:30 L TRUE GRIT kl. 5:30 - 8 - 10:30 16 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D ísl. tal kl. 1 - 3:15 L YOGI BEAR 3D ísl. tal kl. 1 - 3:30 - 5:30 L MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 1 - 3:15 L SANCTUM 3D kl. 8 - 10:30 14 / EGILSHÖLL I AM NUMBER FOUR kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 YOGI BEAR 3D ísl. tal kl. 2 - 3:50 14 I AM NUMBER FOUR kl. 3 - 5:40 - 8 - 10:20 VIP KLOVN - THE MOVIE kl. 8 - 10:20 14 TRUE GRIT kl. 5:40 - 8 - 10:30 16 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI ísl. tal kl. 1:203D - 3:303D L FROM PRADA TO NADA kl. 3:40 - 8 - 10:20 10 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L THE KING'S SPEECH kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 L MEGAMIND ísl. tal kl. 1:30 L ROKLAND kl. 5:50 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.