Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 ✝ BjarneyÁgústsdóttir fæddist í Hróars- holti í Hraungerð- issókn 5. sept- ember 1920. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands á Selfossi 13. febrúar 2011. For- eldrar hennar voru Ágúst Bjarnason, bóndi í Hróars- holti, f. 18. ágúst 1878, d. 27. júní 1928, og Kristín Bjarna- dóttir, f. 8. desember 1877, d. 16. ágúst 1963. Systkini Bjarn- eyjar eru Halldór, f. 1912, d. 1992, Stúlka, f. 1914, d. 1914, Bjarni, f. 1914, d. 1997, Guðrún, f. 1916, Guðmundur, f. 1917, d. 2002, og Guðfinna, f. 1919, d. 1973. Hinn 9. júní 1946 giftist Bjarney Ólafi Árna Guðunds- syni, sjómanni og verkamanni, f. á Sæfoksstöðum í Grímsnesi 30. maí 1922, d. 31. janúar búskap með Ólafi manni sínum á Eyrarbakka eftir giftingu í viðbyggingu við heimili tengda- foreldra sinna á Strönd á Eyr- arbakka. Fljótlega eða 1950 fluttu þau ásamt Halldóri bróð- ur Ólafs og Ástu konu hans á Sæfell sem þeir bræður byggðu og bjuggu þar síðan alla tíð. Bjarney var að síðustu ein eftir á Sæfelli og flutti síðan í júní 2008 á Dvalarheimili aldraðra á Sólvöllum á Eyrarbakka. Eftir að synir Bjarneyjar komust á legg fór hún að vinna úti, fyrst í frystihúsinu og síðan allmörg síðustu starfsárin í þvottahús- inu í fangelsinu á Litla-Hrauni. Bjarney gegndi margháttuðum félagsstörfum, mest í Kven- félaginu á Eyrarbakka þar sem hún var heiðursfélagi, enn- fremur var hún mjög virk í fé- lagi eldri borgara bæði á Eyr- arbakka og Selfossi og söng mörg ár með Hörpukórnum, kór eldri borgara. Auk þess átti hún í nokkur ár sæti sem vara- maður í hreppsnefnd Eyr- arbakkahrepps og sat þar fundi. Útför Bjarneyjar verður gerð frá Eyrarbakkakirkju í dag, 19. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. 1974. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Björnsson, f. 30. desember 1882, d. 31. janúar 1969, og Þóranna Theódóra Árnadóttir, f. 14. ágúst 1881, d. 7. febrúar 1954. Synir Bjarneyjar og Ólafs urðu Ágúst, f. 12. nóvember 1949, d. 2. mars 1976, Már, f. 11. janúar 1953, Þórarinn, f. 23. apríl 1954, og Óskar, f. í ágúst 1960, d. í september 1960. Bjarney ólst upp í Hróars- holti við öll venjuleg sveitastörf og naut þeirrar tíðar skóla- göngu til sveita, sem var nokk- urra vetra farskóli. Auk þess sótti hún húsmæðranám hjá Ár- nýju Filippusdóttur í Hvera- gerði. Hún lærði einnig að spila á orgel og var fyrsti organisti við Hraungerðiskirkju eftir að kór var stofnaður þar. Hún hóf Mig langar að minnast Bjöddu tengdamóður minnar með nokkr- um orðum. Okkar kynni hafa stað- ið í 36 ár, eða frá því að ég kom á Bakkann aðeins 19 ára unglingur. Hún kom mér fyrir augu sem mik- ilhæf kona. Bjadda varð snemma ekkja og eftir það þurfti hún að hafa talsvert fyrir lífinu með vinnu sinni, fyrst í frystihúsinu og síðan í þvottahúsinu á Litla-Hrauni, þar til starfsaldri lauk. Á frumbýlis- árum okkar Þórarins bjuggum við á Tjörn, sem er næsta hús við Sæ- fell, og nutum nálægðar við Bjöddu sem var boðin og búin að hjálpa til með barnapössun og annað sem þurfti. Bjadda var iðin handavinnukona og held ég að flestir ef ekki allir afkomendur hennar eigi eitthvað í fórum sín- um eftir hana. Félagsmál voru henni einnig hugleikin. Hún starf- aði í Kvenfélaginu allan sinn bú- skap á Bakkanum og hefur verið heiðursfélagi þess síðstu tíu árin. Og ekki má gleyma hartnær sex- tíu ára veru hennar í kirkjukór Eyrarbakkakirkju. Auk þessa kom hún dálítið að störfum í hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps. Fáeinum árum eftir að ég kom á Bakkann gekk ég í kvenfélagið og áttum við Bjadda margar góðar stundir þar saman, t.d. ferðalög. Bjadda elskaði að ferðast og kynnast nýjum löndum. Mikið vorum við Bjadda flottar dömur þegar við spásseruðum í stórborg- inni Prag og litum á alla fegurðina þar. Gott var líka að fara bara stuttar ferðir, t.d. aðeins upp í Hróarsholtshverfi, setjast þar á þúfu með kók og prins og hlusta á hana tala um klettana sína og æsku, sem var mjög góð í stórum systkinahópi og með vinum sínum í Flögu, sérstaklega vinkonu sinni henni Stebbu. Það var ekki leið- inlegt að fara með þeim vinkonum á þorrablót og aðrar skemmtanir í gömlu sveitinni þeirra. Margs er að minnast í samskiptum okkar Bjöddu öll þessi ár. Ég vil bara þakka þér Bjadda mín fyrir allt sem við gerðum saman og þú hjálpaðir mér við, t.d. sláturgerð, saumaskap og margt fleira. Þú varst mikil hvunndagshetja og lést ekkert buga þig, varst alltaf glæsileg og vel til fara. Og ekki má heldur gleyma öllum jólunum okkar sam- an. Stelpurnar okkar muna ekki önnur jól en að hafa þig hjá okkur og ekki síst síðustu jól með alla ungana okkar. Það var ógleyman- legt. Við hittumst síðar. Þín tengdadóttir, Ragnheiður. Elsku amma okkar á Sæfelli er látin. Hún lék stórt hlutverk í lífi okkar og um hana eigum við margar ljúfar minningar. Sæfell var okkar annað heimili og þar stóðu dyrnar alltaf opnar. Okkur fannst alltaf spennandi að koma til ömmu, við leituðum að ævintýrum í kjallaranum, spiluðum ólsen ól- sen og síðar rommí svo tímunum skipti, bökuðum pönnukökur og alltaf átti amma handa okkur ís, oftast með núggatbragði. Sæfell var okkar ævintýraheimur og amma var sérlega lagin við sögu- sundir, hvort sem það voru sögur af barnæsku hennar eða búkollu. Amma okkar var líka einstak- lega handlagin og kenndi hún okk- ur öllum að hekla, við eigum alltaf eftir að muna eftir litlu skinnskón- um sem hún bjó til og okkur þótti hún alveg einstaklega flink. Við munum líka eftir söngelskri ömmu, hún elskaði að syngja og við eyddum mörgum stundum við orgelið hennar og síðar við píanóið á Túngötunni syngjandi í röddum, amma söng alltaf alt. Amma var okkur einstaklega góð fyrirmynd, hún var alltaf svo glöð, hlý og jákvæð. Við minnumst brosmildrar konu sem alltaf sýndi öllu sem við tókum okkur fyrir hendur mikinn áhuga og alltaf mætti hún á tónleika, útskriftir og aðra viðburði í okkar lífi. Hún var alltaf til staðar. Jól án ömmu verða aldrei söm, hún var alltaf með okkur á að- fangadagskvöld og alla okkar barnæsku eyddum við öðrum degi jóla á Sæfelli. Síðustu jól verða okkur þó einstaklega minnisstæð, við komum allar heim, allar með dætur okkar og við áttum yndis- legar stundir saman, alls ekki vit- andi að þetta áttu eftir að vera okkar síðustu jól saman. Amma á Sæfelli er fyrsta nána manneskjan sem við systurnar missum og það er erfitt til þess að hugsa að hún verði ekki lengur hjá okkur en eftir standa margar góð- ar minningar sem eiga eftir að lifa í hjörtum okkar að eilífu. Ágústa, Ólöf og Kristín. Allir eru einstakir, í dag kveðj- um við einstaka konu, hana Bjöddu. Hún Bjadda skipaði stór- an sess í lífi okkar systkinanna þegar við vorum að alast upp og eftir að við eignuðumst okkar fjöl- skyldur. Við bjuggum í sama hús- inu, Sæfelli á Eyrarbakka, en Bjadda var konan hans Óla föð- urbróður okkar. Og þarna bjó stórfjölskylda, þau með drengina sína og við systkinin og foreldrar okkar. Það var innangengt á milli heimilanna í gegnum búrin og var endinn hjá þeim kallaður „austrí“ en okkar „vestrí“, stundum var sagt að fara yfir. Alltaf var opið á milli nema á matmálstímum, þá var hurðin krækt aftur. Bjadda var afskaplega ljúf kona, kát, hjálpsöm, góður leiðbeinandi og góður uppalandi. Hún heyrðist aldrei hallmæla neinum en sagði stundum að það hefði nú kannski mátt reyna aðra leið eða það verð- ur nú hver að fljúga eins og hann er fiðraður. Hún var mjög fé- lagslynd og söngelsk og var í kirkjukórnum á Eyrarbakka, kvenfélaginu, leikfélaginu á með- an það starfaði og síðar í félagi eldriborgara. Bjadda vann í fiski og seinna meir á Litla-Hrauni og einnig starfaði hún mikið í bú- skapnum heima en það var verið með kindur, hesta, kýr og garð- rækt. Bjadda tók aldrei bílpróf en tók stundum í jeppann hjá Óla ef þurfti að færa hann til á túnunum eða í görðunum. Seinna meir keypti hún sér fjórhjól sem hún ferðaðist talsvert á í lengri eða skemmri ferðir og hafði gaman af. En lífið er ekki alltaf auðvelt og það fékk Bjadda að reyna. Þau Óli misstu lítinn dreng sem hét Óskar en hann lést aðeins mánaðar gam- all. Og síðan létust þeir feðgar Óli og Ágúst með mjög stuttu milli- bili. Bjadda tók þessum áföllum af miklu æðruleysi og sótti sinn styrk í trúna. En það kom sér líka vel að eiga gott skjól hjá Má, Þór- arni og fjölskyldum. Ágúst lét eft- ir sig unga eiginkonu, Þórunni, og kornunga dóttur, Bjarneyju. Samband Bjöddu og Þórunnar var alla tíð mjög náið og reyndust þær hvor annarri vel. Bjadda var ekki vön að tjá sig um eigin líðan en þegar Þórunn lést fyrir nokkr- um árum sagði Bjadda við eitt af okkur: „Þetta er svo ósann- gjarnt.“ Í haust hélt Bjadda upp á 90 ára afmælið sitt og bauð til sín nánustu fjölskyldu og vinum. Það var yndisleg dagstund og ljúf minning. Við eigum margar góðar minningar til að ylja okkur við. Það var fastur liður á aðfanga- dagskvöld þegar búið var að borða að fara „austrí“ og Bjadda las jóla- guðspjallið og sungið var Heims um ból og þegar því var lokið mátti loks opna jólapakkana. Þeg- ar við vorum orðin lubbaleg um hárið var tekinn fram kollur og stundum þurfti að setja bækur á hann til að hækka okkur upp og Bjadda náði í flottu klippurnar sínar og snyrti okkur. Og svo bak- aði hún heimsins besta „veiði- mann“. Við systkinin viljum þakka Bjöddu fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur á lífsleiðinni. Hún var ankerið sem við höfðum í veikind- um móður okkar. Við viljum þakka fyrir þolinmæðina, ástúð- ina og hlýjuna sem hún gaf okkur öllum. Við sendum Má, Þórarni, Bjarneyju og fjölskyldum innileg- ustu samúðarkveðjur. Systkinin „vestrí“, Böðvar, Ásta, Ólafía og Inga. Bjarney Ágústsdóttir Elsku yndislegi Bjössi okkar. Hvað getur verið erfiðara en að kveðja son sinn í hinsta sinn, þennan einstaka ljúf- ling og gleðigjafa sem öllum vildi vel. Þetta getur ekki verið satt, að við eigum aldrei aftur eftir að heyra rödd þína og hláturinn, faðma þig og kyssa létt á kinn. Sorgin nístir og tómið er hel- Sigurbjörn Þorgrímsson ✝ SigurbjörnÞorgrímsson fæddist í Reykjavík 24. febrúar 1976. Hann lést 7. febr- úar 2011. Útför Sig- urbjörns var gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík 18. febr- úar 2011. djúpt. Við vildum bara segja þér Bjössi að við elskum þig meira en orð fá lýst og við vonum að þér líði betur í ljós- inu þar sem þú ert núna. Því viljum við trúa okkar ástkæri sonur. „Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Khalil Gibran) Hvíl í friði. Mamma og pabbi. • Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. • Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. • Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand erfidrykkjur Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, sími 514 8000. erfidrykkjur@grand.is grand.is ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR JÓHANN GUÐJÓNSSON, varð bráðkvaddur á heimili sínu miðviku- daginn 2. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hjartans þakkir öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð, hlýhug og aðstoðað okkur á þessum erfiðu tímum. Gugga (Guðbjörg Ragnarsdóttir), Holli (Holgeir Jónsson), Ragnar Jóhann Holgeirsson, Berglind Anna Holgeirsdóttir og Jenný Klara Jónsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSDÍS EYJÓLFSDÓTTIR, Aflagranda 40, lést á heimili sínu sunnudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 23. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Landssamtökin Þroskahjálp, s. 588 9390. Víglundur Þorsteinsson, Kristín M. Thorarensen, Hafdís B. Þorsteinsdóttir, Flemming Korslund, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÁKON BJÖRNSSON rafvirkjameistari, Höfða, Akranesi, áður til heimilis að Krókatúni 3, andaðist þriðjudaginn 15. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðviku- daginn 23. febrúar kl. 14.00. Sigursteinn Hákonarson, Sesselja Hákonardóttir, Guðbjörg Hákonardóttir, Ásgeir H. Magnússon og afabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SVAVAR PÁLSSON, Blönduósi, lést á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi miðvikudaginn 16. febrúar. Brynja Svavarsdóttir, Páll H. Svavarsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Guðmundur H. Svavarsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Okkar hjartkæra móðir, GUÐRÚN MAGNEA JÓHANNESDÓTTIR, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. febrúar. Útförin mun fara fram frá Digraneskirkju mánudaginn 28. febrúar kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldna okkar, Lárus Gíslason, Edda Norðdahl, Ragnheiður Guðnadóttir, Áslaug Erla Guðnadóttir, Kristinn Jóhannesson. ✝ Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, JÓN BJARNI HARALDSSON NORÐDAHL, til heimilis að Meðalholti 2, áður Bergstaðastræti 66, lést á líknardeild Landspítalans fimmtu- daginn 17. febrúar. Hildur Jónsdóttir, Stefán Brandur Jónsson, Eyrún Norðdahl Sigrúnardóttir, Árni Sigurðsson, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.