Morgunblaðið - 19.02.2011, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
✝ BjarneyÁgústsdóttir
fæddist í Hróars-
holti í Hraungerð-
issókn 5. sept-
ember 1920. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands á Selfossi 13.
febrúar 2011. For-
eldrar hennar voru
Ágúst Bjarnason,
bóndi í Hróars-
holti, f. 18. ágúst 1878, d. 27.
júní 1928, og Kristín Bjarna-
dóttir, f. 8. desember 1877, d.
16. ágúst 1963. Systkini Bjarn-
eyjar eru Halldór, f. 1912, d.
1992, Stúlka, f. 1914, d. 1914,
Bjarni, f. 1914, d. 1997, Guðrún,
f. 1916, Guðmundur, f. 1917, d.
2002, og Guðfinna, f. 1919, d.
1973.
Hinn 9. júní 1946 giftist
Bjarney Ólafi Árna Guðunds-
syni, sjómanni og verkamanni,
f. á Sæfoksstöðum í Grímsnesi
30. maí 1922, d. 31. janúar
búskap með Ólafi manni sínum
á Eyrarbakka eftir giftingu í
viðbyggingu við heimili tengda-
foreldra sinna á Strönd á Eyr-
arbakka. Fljótlega eða 1950
fluttu þau ásamt Halldóri bróð-
ur Ólafs og Ástu konu hans á
Sæfell sem þeir bræður byggðu
og bjuggu þar síðan alla tíð.
Bjarney var að síðustu ein eftir
á Sæfelli og flutti síðan í júní
2008 á Dvalarheimili aldraðra á
Sólvöllum á Eyrarbakka. Eftir
að synir Bjarneyjar komust á
legg fór hún að vinna úti, fyrst
í frystihúsinu og síðan allmörg
síðustu starfsárin í þvottahús-
inu í fangelsinu á Litla-Hrauni.
Bjarney gegndi margháttuðum
félagsstörfum, mest í Kven-
félaginu á Eyrarbakka þar sem
hún var heiðursfélagi, enn-
fremur var hún mjög virk í fé-
lagi eldri borgara bæði á Eyr-
arbakka og Selfossi og söng
mörg ár með Hörpukórnum,
kór eldri borgara. Auk þess átti
hún í nokkur ár sæti sem vara-
maður í hreppsnefnd Eyr-
arbakkahrepps og sat þar
fundi.
Útför Bjarneyjar verður
gerð frá Eyrarbakkakirkju í
dag, 19. febrúar 2011, og hefst
athöfnin kl. 14.
1974. Foreldrar
hans voru hjónin
Guðmundur
Björnsson, f. 30.
desember 1882, d.
31. janúar 1969, og
Þóranna Theódóra
Árnadóttir, f. 14.
ágúst 1881, d. 7.
febrúar 1954. Synir
Bjarneyjar og
Ólafs urðu Ágúst,
f. 12. nóvember
1949, d. 2. mars 1976, Már, f.
11. janúar 1953, Þórarinn, f. 23.
apríl 1954, og Óskar, f. í ágúst
1960, d. í september 1960.
Bjarney ólst upp í Hróars-
holti við öll venjuleg sveitastörf
og naut þeirrar tíðar skóla-
göngu til sveita, sem var nokk-
urra vetra farskóli. Auk þess
sótti hún húsmæðranám hjá Ár-
nýju Filippusdóttur í Hvera-
gerði. Hún lærði einnig að spila
á orgel og var fyrsti organisti
við Hraungerðiskirkju eftir að
kór var stofnaður þar. Hún hóf
Mig langar að minnast Bjöddu
tengdamóður minnar með nokkr-
um orðum. Okkar kynni hafa stað-
ið í 36 ár, eða frá því að ég kom á
Bakkann aðeins 19 ára unglingur.
Hún kom mér fyrir augu sem mik-
ilhæf kona. Bjadda varð snemma
ekkja og eftir það þurfti hún að
hafa talsvert fyrir lífinu með vinnu
sinni, fyrst í frystihúsinu og síðan í
þvottahúsinu á Litla-Hrauni, þar
til starfsaldri lauk. Á frumbýlis-
árum okkar Þórarins bjuggum við
á Tjörn, sem er næsta hús við Sæ-
fell, og nutum nálægðar við
Bjöddu sem var boðin og búin að
hjálpa til með barnapössun og
annað sem þurfti. Bjadda var iðin
handavinnukona og held ég að
flestir ef ekki allir afkomendur
hennar eigi eitthvað í fórum sín-
um eftir hana. Félagsmál voru
henni einnig hugleikin. Hún starf-
aði í Kvenfélaginu allan sinn bú-
skap á Bakkanum og hefur verið
heiðursfélagi þess síðstu tíu árin.
Og ekki má gleyma hartnær sex-
tíu ára veru hennar í kirkjukór
Eyrarbakkakirkju. Auk þessa
kom hún dálítið að störfum í
hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps.
Fáeinum árum eftir að ég kom á
Bakkann gekk ég í kvenfélagið og
áttum við Bjadda margar góðar
stundir þar saman, t.d. ferðalög.
Bjadda elskaði að ferðast og
kynnast nýjum löndum. Mikið
vorum við Bjadda flottar dömur
þegar við spásseruðum í stórborg-
inni Prag og litum á alla fegurðina
þar. Gott var líka að fara bara
stuttar ferðir, t.d. aðeins upp í
Hróarsholtshverfi, setjast þar á
þúfu með kók og prins og hlusta á
hana tala um klettana sína og
æsku, sem var mjög góð í stórum
systkinahópi og með vinum sínum
í Flögu, sérstaklega vinkonu sinni
henni Stebbu. Það var ekki leið-
inlegt að fara með þeim vinkonum
á þorrablót og aðrar skemmtanir í
gömlu sveitinni þeirra. Margs er
að minnast í samskiptum okkar
Bjöddu öll þessi ár.
Ég vil bara þakka þér Bjadda
mín fyrir allt sem við gerðum
saman og þú hjálpaðir mér við,
t.d. sláturgerð, saumaskap og
margt fleira. Þú varst mikil
hvunndagshetja og lést ekkert
buga þig, varst alltaf glæsileg og
vel til fara. Og ekki má heldur
gleyma öllum jólunum okkar sam-
an. Stelpurnar okkar muna ekki
önnur jól en að hafa þig hjá okkur
og ekki síst síðustu jól með alla
ungana okkar. Það var ógleyman-
legt.
Við hittumst síðar.
Þín tengdadóttir,
Ragnheiður.
Elsku amma okkar á Sæfelli er
látin. Hún lék stórt hlutverk í lífi
okkar og um hana eigum við
margar ljúfar minningar. Sæfell
var okkar annað heimili og þar
stóðu dyrnar alltaf opnar. Okkur
fannst alltaf spennandi að koma til
ömmu, við leituðum að ævintýrum
í kjallaranum, spiluðum ólsen ól-
sen og síðar rommí svo tímunum
skipti, bökuðum pönnukökur og
alltaf átti amma handa okkur ís,
oftast með núggatbragði. Sæfell
var okkar ævintýraheimur og
amma var sérlega lagin við sögu-
sundir, hvort sem það voru sögur
af barnæsku hennar eða búkollu.
Amma okkar var líka einstak-
lega handlagin og kenndi hún okk-
ur öllum að hekla, við eigum alltaf
eftir að muna eftir litlu skinnskón-
um sem hún bjó til og okkur þótti
hún alveg einstaklega flink. Við
munum líka eftir söngelskri
ömmu, hún elskaði að syngja og
við eyddum mörgum stundum við
orgelið hennar og síðar við píanóið
á Túngötunni syngjandi í röddum,
amma söng alltaf alt.
Amma var okkur einstaklega
góð fyrirmynd, hún var alltaf svo
glöð, hlý og jákvæð. Við minnumst
brosmildrar konu sem alltaf sýndi
öllu sem við tókum okkur fyrir
hendur mikinn áhuga og alltaf
mætti hún á tónleika, útskriftir og
aðra viðburði í okkar lífi. Hún var
alltaf til staðar.
Jól án ömmu verða aldrei söm,
hún var alltaf með okkur á að-
fangadagskvöld og alla okkar
barnæsku eyddum við öðrum degi
jóla á Sæfelli. Síðustu jól verða
okkur þó einstaklega minnisstæð,
við komum allar heim, allar með
dætur okkar og við áttum yndis-
legar stundir saman, alls ekki vit-
andi að þetta áttu eftir að vera
okkar síðustu jól saman.
Amma á Sæfelli er fyrsta nána
manneskjan sem við systurnar
missum og það er erfitt til þess að
hugsa að hún verði ekki lengur hjá
okkur en eftir standa margar góð-
ar minningar sem eiga eftir að lifa
í hjörtum okkar að eilífu.
Ágústa, Ólöf og Kristín.
Allir eru einstakir, í dag kveðj-
um við einstaka konu, hana
Bjöddu. Hún Bjadda skipaði stór-
an sess í lífi okkar systkinanna
þegar við vorum að alast upp og
eftir að við eignuðumst okkar fjöl-
skyldur. Við bjuggum í sama hús-
inu, Sæfelli á Eyrarbakka, en
Bjadda var konan hans Óla föð-
urbróður okkar. Og þarna bjó
stórfjölskylda, þau með drengina
sína og við systkinin og foreldrar
okkar. Það var innangengt á milli
heimilanna í gegnum búrin og var
endinn hjá þeim kallaður „austrí“
en okkar „vestrí“, stundum var
sagt að fara yfir. Alltaf var opið á
milli nema á matmálstímum, þá
var hurðin krækt aftur. Bjadda
var afskaplega ljúf kona, kát,
hjálpsöm, góður leiðbeinandi og
góður uppalandi. Hún heyrðist
aldrei hallmæla neinum en sagði
stundum að það hefði nú kannski
mátt reyna aðra leið eða það verð-
ur nú hver að fljúga eins og hann
er fiðraður. Hún var mjög fé-
lagslynd og söngelsk og var í
kirkjukórnum á Eyrarbakka,
kvenfélaginu, leikfélaginu á með-
an það starfaði og síðar í félagi
eldriborgara. Bjadda vann í fiski
og seinna meir á Litla-Hrauni og
einnig starfaði hún mikið í bú-
skapnum heima en það var verið
með kindur, hesta, kýr og garð-
rækt. Bjadda tók aldrei bílpróf en
tók stundum í jeppann hjá Óla ef
þurfti að færa hann til á túnunum
eða í görðunum. Seinna meir
keypti hún sér fjórhjól sem hún
ferðaðist talsvert á í lengri eða
skemmri ferðir og hafði gaman af.
En lífið er ekki alltaf auðvelt og
það fékk Bjadda að reyna. Þau Óli
misstu lítinn dreng sem hét Óskar
en hann lést aðeins mánaðar gam-
all. Og síðan létust þeir feðgar Óli
og Ágúst með mjög stuttu milli-
bili. Bjadda tók þessum áföllum af
miklu æðruleysi og sótti sinn
styrk í trúna. En það kom sér líka
vel að eiga gott skjól hjá Má, Þór-
arni og fjölskyldum. Ágúst lét eft-
ir sig unga eiginkonu, Þórunni, og
kornunga dóttur, Bjarneyju.
Samband Bjöddu og Þórunnar
var alla tíð mjög náið og reyndust
þær hvor annarri vel. Bjadda var
ekki vön að tjá sig um eigin líðan
en þegar Þórunn lést fyrir nokkr-
um árum sagði Bjadda við eitt af
okkur: „Þetta er svo ósann-
gjarnt.“
Í haust hélt Bjadda upp á 90
ára afmælið sitt og bauð til sín
nánustu fjölskyldu og vinum. Það
var yndisleg dagstund og ljúf
minning. Við eigum margar góðar
minningar til að ylja okkur við.
Það var fastur liður á aðfanga-
dagskvöld þegar búið var að borða
að fara „austrí“ og Bjadda las jóla-
guðspjallið og sungið var Heims
um ból og þegar því var lokið
mátti loks opna jólapakkana. Þeg-
ar við vorum orðin lubbaleg um
hárið var tekinn fram kollur og
stundum þurfti að setja bækur á
hann til að hækka okkur upp og
Bjadda náði í flottu klippurnar
sínar og snyrti okkur. Og svo bak-
aði hún heimsins besta „veiði-
mann“.
Við systkinin viljum þakka
Bjöddu fyrir allt sem hún gerði
fyrir okkur á lífsleiðinni. Hún var
ankerið sem við höfðum í veikind-
um móður okkar. Við viljum
þakka fyrir þolinmæðina, ástúð-
ina og hlýjuna sem hún gaf okkur
öllum. Við sendum Má, Þórarni,
Bjarneyju og fjölskyldum innileg-
ustu samúðarkveðjur. Systkinin
„vestrí“,
Böðvar, Ásta, Ólafía og Inga.
Bjarney
Ágústsdóttir
Elsku yndislegi
Bjössi okkar. Hvað getur verið
erfiðara en að kveðja son sinn í
hinsta sinn, þennan einstaka ljúf-
ling og gleðigjafa sem öllum vildi
vel. Þetta getur ekki verið satt,
að við eigum aldrei aftur eftir að
heyra rödd þína og hláturinn,
faðma þig og kyssa létt á kinn.
Sorgin nístir og tómið er hel-
Sigurbjörn
Þorgrímsson
✝ SigurbjörnÞorgrímsson
fæddist í Reykjavík
24. febrúar 1976.
Hann lést 7. febr-
úar 2011.
Útför Sig-
urbjörns var gerð
frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 18. febr-
úar 2011.
djúpt. Við vildum
bara segja þér
Bjössi að við elskum
þig meira en orð fá
lýst og við vonum að
þér líði betur í ljós-
inu þar sem þú ert
núna. Því viljum við
trúa okkar ástkæri
sonur.
„Skoðaðu hug þinn
vel, þegar þú ert
glaður, og þú munt sjá, að aðeins
það, sem valdið hefur hryggð þinni,
gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg-
mæddur, skoðaðu þá aftur huga
þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.“
(Khalil Gibran)
Hvíl í friði.
Mamma og pabbi.
• Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
• Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
• Næg bílastæði og gott aðgengi.
Grand erfidrykkjur
Grand hótel Reykjavík,
Sigtúni 38, sími 514 8000.
erfidrykkjur@grand.is
grand.is
✝
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
RAGNAR JÓHANN GUÐJÓNSSON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu miðviku-
daginn 2. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hjartans þakkir öllum þeim sem sýnt hafa
okkur samúð, hlýhug og aðstoðað okkur á þessum erfiðu tímum.
Gugga (Guðbjörg Ragnarsdóttir), Holli (Holgeir Jónsson),
Ragnar Jóhann Holgeirsson,
Berglind Anna Holgeirsdóttir og Jenný Klara Jónsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSDÍS EYJÓLFSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
lést á heimili sínu sunnudaginn 6. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 23. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Landssamtökin
Þroskahjálp, s. 588 9390.
Víglundur Þorsteinsson, Kristín M. Thorarensen,
Hafdís B. Þorsteinsdóttir, Flemming Korslund,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÁKON BJÖRNSSON
rafvirkjameistari,
Höfða, Akranesi,
áður til heimilis að Krókatúni 3,
andaðist þriðjudaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðviku-
daginn 23. febrúar kl. 14.00.
Sigursteinn Hákonarson, Sesselja Hákonardóttir,
Guðbjörg Hákonardóttir, Ásgeir H. Magnússon
og afabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
SVAVAR PÁLSSON,
Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi
miðvikudaginn 16. febrúar.
Brynja Svavarsdóttir,
Páll H. Svavarsson, Valgerður Guðmundsdóttir,
Guðmundur H. Svavarsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Okkar hjartkæra móðir,
GUÐRÚN MAGNEA JÓHANNESDÓTTIR,
Gullsmára 7,
Kópavogi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. febrúar.
Útförin mun fara fram frá Digraneskirkju
mánudaginn 28. febrúar kl. 15.00.
Fyrir hönd fjölskyldna okkar,
Lárus Gíslason, Edda Norðdahl,
Ragnheiður Guðnadóttir,
Áslaug Erla Guðnadóttir, Kristinn Jóhannesson.
✝
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN BJARNI HARALDSSON
NORÐDAHL,
til heimilis að Meðalholti 2,
áður Bergstaðastræti 66,
lést á líknardeild Landspítalans fimmtu-
daginn 17. febrúar.
Hildur Jónsdóttir,
Stefán Brandur Jónsson,
Eyrún Norðdahl Sigrúnardóttir,
Árni Sigurðsson,
tengdabörn og barnabörn.